Fleiri fréttir

Starfshópur um staðgöngu skipaður

Kristrún Heimisdóttir, lektor í lögfræði, er formaður starfshóps sem skipaður hefur verið til að gera lagafrumvarp sem heimilar staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni.

Kveikt í nýbyggingu fyrir aldraða

Kveikt var í einangrun nýbyggingar við Hlaðhamra dvalarheimili aldraðra í Mosfellsbæ í nótt, slökkviliðið var kallað á staðinn en eldurinn náði sér þó aldrei á strik.

Stormurinn Leslie nær ekki fellibylsstyrk

Töluvert hefur dregið úr styrk hitabeltisstormsins Leslie sem fara mun yfir austurströnd Nýfundnalands í dag og litlar líkur eru nú taldar á því að Leslie nái fellibylsstyrk. Reiknað er með að leyfarnar af Leslie nái til Íslands á næstu dögum en þá sem haustlægð.

"Það eru allir boðnir og búnir að taka höndum saman"

"Það gefur auga leið að þegar bústofninn er í hættu þá er þungt yfir mönnum. Svona hefur ekki átt sér stað í mörg mörg ár," segir Svavar Pálsson, sýslumaður á Húsavík, sem hefur fundað með viðbragðsaðilum fyrir norðan í allt kvöld.

Neyðarstigi lýst yfir fyrir norðan - 12 þúsund kindur fastar upp á fjöllum

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra lýsti í kvöld yfir neyðarstigi í Þingeyjarsýslum vegna óveðursins sem gekk yfir landið í gær. Talið er að 10 til 12 þúsund kindur séu fastar upp á fjöllum vegna fannfergis. Hættustigin hjá Almannavarnardeild eru þrjú, það er að segja óvissu-, hættu- og neyðarstig.

Verkþekking Íslendinga byggir upp innviði Grænlands

Virkjunarframkvæmdir Ístaks, sem nú standa yfir við Diskóflóa á Grænlandi, skila 6-8 milljarða króna tekjum til íslenskra fyrirtækja. Íslensk verkþekking byggir um leið upp innviði Grænlands og segir orkumálastjóri landsins smíði vatnsaflsstöðva hafa gríðarlega þýðingu. Þetta kom fram í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í kvöld, þeim síðari um störf Íslendinga á Grænlandi, en sá fyrri var í gærkvöldi. Virkjunin við Ilulissat telst kannski ekki stór á íslenskan mælikvarða, hún verður 22,5 megavött eða um fjórðungur af stærð Búðarhálsvirkjunar, sem nú er í smíðum.

Fjármálaráðherra: Ríkið er að sigla örugglega út úr kreppunni

Fjármálaráðherra vill hækka barnabætur, lengja fæðingarorlofið og stendur við átján prósenta hækkun virðisaukaskatts á gistingu. Þetta er meðal þess sem hún kynnti í nýjum fjárlögum sem hún segir að megi líta á sem kosningafjárlagafrumvarp. Hún segir ríkið vera að sigla örugglega út úr kreppunni.

Virkjunin gæti breyst í ísklump

Virkjanagöng, sem Ístaksmenn bora á Grænlandi langt norðan heimskautsbaugs, liggja í svo köldu bergi að það virkar eins og frystikista. Það er því raunveruleg hætta á því að virkjunin geti frosið og orðið að ísklumpi. Þetta kemur fram í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 laust fyrir klukkan sjö í kvöld en þar verður fjallað um þær miklu áskoranir sem mæta íslenskum verktökum og verkfræðistofum við hönnun og smíði virkjunar skammt frá bænum Ilulissat við Diskóflóa.

Skorið verulega niður hjá sérstökum saksóknara

Áætlað er að lækka framlög ríkisins til sérstaks saksóknara um 516,3 milljónir króna samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisins sem var kynnt í dag. Gert er ráð fyrir því að veltan dragist saman eftir því sem rannsóknum embættisins vindur áfram. Þá er áætlað að skorið verði ennfrekar niður, eða um þrjú hundruð milljónir króna, árið 2014.

Um 20% stunda nám erlendis

Tæplega fimmtungur íslenskra háskólanema stundaði nám erlendis árið 2010. Það er hærra hlutfall en í nokkru öðru ríki sem tilheyrir Efnahags- og framfarastofnunni að Lúxemborg undanskildu.

Skorið niður hjá hælisleitendum en Útlendingastofnun efld

Gert er ráð fyrir 3,4 milljóna króna niðurskurð í málaflokki hælisleitenda samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem var kynnt í dag. Í útskýringum í frumvarpinu segir að umönnunarkostnaður vegna hælisleitenda hafi vaxið mikið á liðnum misserum og má gera ráð fyrir því að fyrir árið 2012 muni útgjöld vegna málaflokksins fara verulega fram úr fjárheimildum gildandi fjárlaga, sem eru 77 milljónir króna.

Umboðsmaður setur ofan í við Persónuvernd

Umboðsmaður Alþingis komst nýverið að þeirri niðurstöðu að úrskurður Persónuverndar hefði ekki verið verið í samræmi við lög. Persónuvernd hafði úrskurðað að tveir sálfræðingar hefðu brotið lög um persónuvernd þegar þeir unnu skýrslu um einelti á ákveðinni stofnun.

Níu þingmenn viðstaddir hugvekju Siðmenntar

Níu þingmenn mættu til hugvekju Siðmenntar sem haldin var á Hótel Borg í stað þess að mæta í hefðbundna guðsþjónustu í Dómkirkjunni við setningu Alþingis. Það var Svanur Sigurbjörnsson, læknir og stjórnarmaður í Siðmennt, sem hélt hugvekju um "heilbrigði þjóðar“.

Braust inn á eigið heimili - lögreglan fann svo kannabis í skúrnum

Lögreglan á Suðurnesjum hafði um helgina afskipti af manni, sem var að reyna að brjótast inn í hús með barefli. Í ljós kom að þarna var að verki húsráðandi sem hafði læst sig úti. Hann var kominn inn í inngang að bílskúr húsnæðisins þegar lögreglumenn komu á vettvang og fundu þeir sterka kannabislykt þar.

Sitja fastir á 38 tommu dekkjum

Tveir bílar frá Björgunarsveitinni á Hellu voru sendir upp að Gæsavötnum á hálendinu um tvö leytið í dag til að sækja hóp erlendra ferðamanna sem sitja þar fastir vegna veðurs.

Stal samloku og heyrnartólum

Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi karlmann fæddan 1987 fyrir að hafa stolið samloku og heyrnartólum. Maðurinn stal samlokunni í janúar síðastliðnum og svo heyrnartólunum, sem voru að gerðinni Sennheiser, í mars. Maðurinn játaði sök. Brotaferill mannsins hófst árið 2005 en hann hefur fjórum sinnum gengist undir sáttir vegna brota á ávana- og fíkniefnalöggjöfinni.

Dæmdur fyrir kannabisrækt

Karlmaður fæddur 1986 var sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að staðið að ræktun á fimm til tíu kannabisplöntum og haft í vörslum sínum rúmlega fimmtán hundruð grömm af kannabislaufum. Maðurinn játaði brot sitt skýlaust en hann hafði staðið að ræktun plantnanna um nokkurt skeið. Plönturnar fundust á heimili mannsins í maí á síðasta ári.

Ekki flókið að texta fréttatíma

Gísli Ásgeirsson, skjalaþýðandi og fyrrverandi starfsmaður Ríkissjónvarpsins, segir að hvorki sé flókið né kostnaðarsamt að texta sjónvarpsfréttatíma svo heyrnarskertir geti fylgst með. Félag heyrnarskertra telur mikið réttindamál að öll íslensk sjónvarpsdagskrá verði textuð og hyggst berjast ötullega fyrir því á 75 ára afmælisári félagsins sem nú stendur yfir.

Guðsþjónusta hafin

Hefðbundin guðsþjónusta í Dómkirkjunni vegna þingsetningar er hafin. Séra Kristján Valur Ingólfsson vígslubiskup prédikar og séra Hjálmar Jónsson, sóknarprestur í Dómkirkjunni, þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, Agnesi M. Sigurðardóttur.

Bændur kunna að bjarga sér

Bændur á Norðurlandi sem sjá fram á rafmagnsleysi næstu daga finna leiðir til að bjarga sér. Flestir eru með litlar rafstöðvar við býlin sín og þeir sem ekki búa svo vel geta sótt slíkar rafstöðvar og ekið þeim á milli bæja. Þannig er komið í veg fyrir mikið tjón sem rafmagnsleysi getur valdið í landbúnaði.

Borgarís við Hornbjarg

Borgarís er 16 sjómílur norðvestur af Hornbjargi, en TF SIF, flugvél Landhelgisgæslunnar, flaug yfir hann á leið sinni til æfingar á austurströnd Grænlands. Segir Landhelgisgæslan að gera megi ráð fyrir að borgarísinn reki nær landi undan norðan-áttinni. Ísinn er um 160 metrar á breidd.

Norðlendingar sennilega rafmagnslausir í tvo daga

Búast má við því að íbúar á norðausturlandi þurfi að búa við rafmagnsleysi í tvo daga til viðbótar á sumum svæðum. Örlygur Jónasson framkvæmdastjóri Rekstrarsviðs RARIK segir að allur tiltækur mannskapur sé nú við viðgerðir eftir að miklar skemmdir urðu á raflínum á Norðausturlandi í gær. Verið er að vinna við línur í Skagafirði, Bárðardal, Laxárdal og í Mývatnssveit. Þungfært er enn í Mývatnssveit og því erfitt um vik fyrir viðgerðarmenn. Ljóst er að um áttatíu staurar hafa brotnað í óveðrinu.

Alþingi girt af

Lögreglan er búin að girða Alþingi af og er töluverður viðbúnaður vegna þingsetningarathafnar sem hefst klukkan hálf tvö í dag með guðsþjónustu í Dómkirkjunni.

Mannréttindi að fá texta á íslenskt efni

Félagsmenn Heyrnarhjálpar, félags heyrnarskertra, setja textun á íslensku sjónvarpsefni fram sem eitt helsta réttlætis- og baráttumálefni heyrnarskertra hér á landi. Heyrnarhjálp er 75 ára á þessu ári og í nýútkomnum afmælisbæklingi miða tvær greinar að þessu málefni. Þar er sagt að efling textunar verði eitt æðsta markmið afmælisársins.

Breytingar á Alþingi - Ásbjörn og Þuríður hætta

Þuríður Backman, þingmaður VG í norðausturkjördæmi, ætlar að láta af þingmennsku í lok kjörtímabilsins. Hún hefur verið þingmaður VG frá því árið 1999. Hún segir það ekki liggja fyrir hvað hún muni starfa eftir að þingmennsku lýkur, en hún er menntuð hjúkrunarfræðingur og starfaði við það áður en hún var kjörin á þing. Þá upplýsti vefurinn Skessuhorn í gær að Ásbjörn Óttarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hyggðist ekki gefa kost á sér áfram til þingsetu.

Hvetja bændur til þess að leita aðstoðar

Í kjölfar illviðrisins í gær er óttast um afdrif fjölda sauðfjár, einkanlega norðanlands, þar sem veðrið var hvað verst Í tilkynningu frá Landssamtökum sauðfjárbænda segir að í mörgum tilvikum eru afréttir og önnur beitilönd ósmöluð, enda göngur og réttir í gangi fram eftir septembermánuði.

Ölvaður maður reykti í flugvél

Ölvaður maður var um helgina staðinn að því að reykja inni á salerni flugvélar Icelandair á leið til landsins. Þegar lögreglan á Suðurnesjum ræddi við hann stóð hann fyrst fast á því að hann hefð ekki reykt í vélinni. Fljótlega breytti hann þó framburði sínum og sagðist sjá eftir athæfi sínu sem myndi ekki endurtaka sig. Að því búnu var hann frjáls ferða sinna en að sögn lögreglu var hann afar ölvaður.

Ekki handtekinn fyrir innbrot

Lögreglan á Suðurnesjum var um helgina kölluð út vegna þess að maður reyndi að brjótast inn í hús með barefli. Þegar lögreglan kom á vettvang reyndist maðurinn ekki innbrotsþjófur heldur eigandi hússins. Hann hafði læst sig úti en var kominn inn í inngang að bílskúr hússins.

Minnihlutinn skrópaði allur á fundi

Meirihluti hreppsnefndar Rangársþings ytra á Hellu er afar ósáttur við að allir aðalmenn minnihluta hafi forfallast á síðasta hreppsnefndarfundi. Samþykktu þeir bókun þess efnis að sveitastjóranum væri falið að fá skýringar á forföllunum frá oddvita minnihlutans.

HÍ og Björk fengu verðlaun

Háskóli Íslands hlaut um helgina evrópsk verðlaun fyrir besta vísindamiðlunarverkefni ársins 2011. Um er að ræða svokallaðar Biophilia-tónvísindasmiðjur sem er samstarfsverkefni Bjarkar Guðmundsdóttur tónlistarkonu, Háskóla Íslands og Reykjavíkurborgar. Verðlaunin veita Samtök samskiptasérfræðinga í evrópskum háskólum (EUPRIO) og tók Jón Örn Guðbjartsson, sviðsstjóri markaðs- og samskiptasviðs Háskóla Íslands, við þeim fyrir hönd háskólans á ársfundi EUPRIO í Gautaborg. Aðild að EUPRIO eiga flestir virtustu háskólar Evrópu.

Skopmyndateiknarar túlka aðstæður Þorgerðar á sama hátt

Skopmyndateiknarar Fréttablaðsins virðast túlka ummæli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, með sama nefi ef marka má myndir þeirra í blöðunum í dag. Þorgerður Katrín sagði í viðtalsþættinum Klinkinu hér á Vísi á sunnudaginn að Sjálfstæðisflokkurinn mætti ekki einangra sig yst á hægri vængnum og verða Teboðshreyfing Íslands.

Hús fæst gefins í Grindavík

Tæplega 50 fermetra hús sem stendur á leikvelli í Grindavík fæst gefins. Til stóð að rífa húsið, en í stað þess var ákveðið að gefa það gegn því að viðkomandi aðilar fjarlægi það alfarið á eigin kostnað.

Allt að 70 manns búa á götunni

Talið er að 50-70 manns sem eru haldnir áfengis- og vímuefnafíkn lifi á götum Reykjavíkur. Þetta kemur fram í grein sem Björn M. Sigurjónsson, varaformaður stjórnar sjúkrastofnunar SÁÁ, skrifar í Fréttablaðið og á Vísi í dag.

Crossfit-þjálfun veldur fagfólki áhyggjum

"Fólk meiðist í auknum mæli. Sprenglært íþróttafólk sem sækir þessa tíma hefur horft upp á fólk meiðast því það þekkir ekki sín takmörk,“ segir Íris Anna Steinarrsdóttir, fráfarandi formaður Íþróttakennarasambands Íslands, um crossfit og aðrar tengdar íþróttagreinar þar sem fólk reynir um of á þolmörk sín undir handleiðslu ómenntaðra þjálfara.

Hvorugur vill greiða talþjálfun barna

Móðir í Hveragerði fær hvorki stuðning frá sveitarfélaginu né Sjúkratryggingum Íslands til að greiða kostnað vegna talþjálfunar dóttur sinnar.

Sjá næstu 50 fréttir