Hvorugur vill greiða talþjálfun barna 11. september 2012 07:30 Deilt er um hver eigi að greiða niður kostnað vegna stúlku sem sækir talþjálfun til Reykjavíkur. Fréttablaðið/Valli
Móðir í Hveragerði fær hvorki stuðning frá sveitarfélaginu né Sjúkratryggingum Íslands til að greiða kostnað vegna talþjálfunar dóttur sinnar. Móðirin vill fá endurgreiddan hluta af talþjálfun sem sérfræðingur telur nauðsynlegt að dóttir hennar njóti. Eftir að hún fékk synjun frá Sjúkratryggingum leitaði hún til bæjaryfirvalda í Hveragerði enda vísuðu Sjúkratryggingar henni þangað. Bæjarráðið segir sér ekki fært að verða við bón móðurinnar og vísar henni til baka á Sjúkratryggingar enda sé skylda þeirra að taka þátt í greiðslu vegna talþjálfunar barna og unglinga ótvíræð. Kveðst bæjarráðið átelja Sjúkratryggingar harðlega fyrir að hafna erindi konunnar. Það sé bæði andstætt lögum og reglugerðum og í andstöðu við upplýsingar á heimasíðu Sjúkratrygginga. Þar komi fram að greiða eigi áttatíu prósent af kostnaði við nauðsynlega talþjálfun fyrstu þrjátíu skiptin fyrir börn yngri en átján ára. Sjúkratryggingar vísa hins vegar í samning sinn við talmeinafræðinga. Bæjarráðið segir sveitarfélögin ekki aðila að þeim samningi og hann geti ekki lagt skyldu á sveitarfélög umfram það sem kveðið sé á um í lögum. Samband íslenskra sveitarfélaga er sagt hafa unnið að lausn málsins. „Hvetur bæjarráð þá aðila sem og viðkomandi ráðuneyti til að finna ásættanlega lausn á þessu máli hið allra fyrsta því börnin líða fyrir þessa stöðu,“ segir bæjarráðið.- gar
Mest lesið Dómari krefst þess að Liam og föður hans verði sleppt úr haldi Erlent Barn í lífshættu eftir skotárás á skrúðgöngu Erlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Innlent Samantekt: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni Innlent Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Innlent Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Innlent Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Innlent „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Innlent „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ Innlent Fleiri fréttir Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Samantekt: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Skjálftinn í Bárðarbungu 5,3 að stærð Rýnt í Epstein-skjölin, prófkjör Viðreisnar og árás ungmenna „Koma einhverjir strákar og svo fer allt í háaloft“ Fjórðungur kosið í prófkjöri Viðreisnar Maður hlotið stórfellt líkamstjón eftir árás ungmenna „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi eru hér“ „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Sjá meira