Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kínverjar vilja verja 5 milljörðum í heilsuþorp Flúðum Félag á vegum kínverska ríkisins ætlar að fjármagna fimm milljarða króna uppbyggingu á heilsuþorpi með nýrri heilsurækt og spa á Flúðum, en auk þess er stefnt að því að byggja hótel og fjölda íbúða. Kínverjarnir verða ekki hluthafar í fyrirtækinu sem byggir heldur leggja því aðeins til fjármagn. 29.8.2012 21:59
Brotasaga ríkisstjórnar gegn jafnréttislögum áhyggjuefni „Auðvitað er þetta áhyggjuefni," svarar Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, þegar hún er spurð hvort brotasaga ríkisstjórnar gegn jafnréttislögum sé ekki áhyggjuefni. 29.8.2012 20:52
Þreyttu inntökupróf í læknaskóla í Slóvakíu Ellefu Íslendingar þreyttu í dag inntökupróf í læknaskóla í Slóvakíu. Einn þeirra sem komst inn ákvað á mánudaginn að taka prófið, en námið hefst eftir viku. 29.8.2012 20:30
Þjófur í formi stal iPhone Þjófur, hugsanlega í góðu formi, stal svörtum iPhone-síma úr læstum skáp í líkamsræktarstöð í Dalsmára um hálf tvö leytið í dag. Leitað er að þjófinum samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. 29.8.2012 17:10
Ríkisráð kemur saman á morgun Ríkisráð Íslands hefur verið kvatt saman á Bessastöðum klukkan tvö á morgun. Samkvæmt upplýsingum frá forsætisráðuneytinu er um að ræða hefðbundinn ríkisráðsfund þar sem ráðherrar munu leggja fram mál fyrir forsetann til endurstaðfestingar. Þá mun Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra bera upp tillögur sem varða ráðuneytabreytingar, en eins og fram hefur komið stendur til að gera nokkrar breytingar nú í haust. Þær fela meðal annars í sér að iðnaðarráðuneytið verður lagt niður. Verkefni þess munu flytjast til umhverfisráðuneytis annars vegar og nýs atvinnuvegaráðuneytis hins vegar. 29.8.2012 13:34
Lýst eftir ökumanni Lögreglan leitar nú ökumanns Mercedes Benz-bifreiðar sem ekið var á ljósgráan Skoda Octavia á Hafnarfjarðarvegi um tíuleytið í gærmorgun. Bílunum var ekið suður Hafnarfjarðarveg en slysið átti sér stað við Álftanesveg. 29.8.2012 12:46
Gerendur þekktir í tveimur af þremur nauðgunarmálum Lögreglan er með menn grunaða í tveimur af þremur nauðgunarmálum sem komu upp um verslunarmannahelgina í Vestmannaeyjum. Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Selfossi, staðfestir þetta í samtali við Vísi. Tekin hefur verið skýrsla af báðum mönnunum og voru þeir látnir lausir að því loknu. 29.8.2012 12:34
„Hvað ef þetta hefði verið Anders Breivik á upptökunni í Eyjum?" Lögreglan getur ekki fengið upplýsingar um farsímanotkun meintra hryðjuverkamanna ef hún þarf að fá upplýsingar um farsímanotkun úr ótilgreindum fjölda símtækja á tilteknu tímabili. Það má lesa úr nýjum dómi Hæstaréttar um afhendingu gagna vegna nauðgunarmáls í Vestmannaeyjum og fyrri dómafordæmum. 29.8.2012 12:16
Borguðu 50 evrur þrátt fyrir handtöku "Ég fékk bara hnút í magann yfir því að ég væri með menn sem stæðu í ólöglegum innflutningi,“ sagði leigubílstjóri á áttræðisaldri sem kom fyrir dómara í morgun í tengslum við umfangsmikið fíkniefnasmygl hingað til lands í apríl síðastliðnum. 29.8.2012 12:26
Fíkniefnahundurinn Nelson kom upp um smyglið Pólskir háskólamenntaðir karlmenn og einn leikskólakennari neita að hafa skipulagt umfangsmikið fíkniefnasmygl til landsins fyrr á þessu ári. Mennirnir eru ákærðir fyrir að smygla 8,5 kílóum af amfetamíni í sjampóbrúsum. 29.8.2012 11:53
Neita að hafa skipulagt umfangsmikið amfetamínsmygl Þrír pólskir karlmenn sem grunaðir eru um að hafa flutt inn 8,5 kíló af amfetamíni í sjampóbrúsum til landsins í apríl, neita allir að hafa skipulagt innflutning efnanna. Tveir mannanna voru handteknir í leigubíl eftir komuna til landsins en sá þriðji var handtekinn í Leifsstöð. 29.8.2012 10:47
Reyndu að selja íslenska konu mansali Ung íslensk kona fullyrðir að reynt hafi verið að selja hana mansali í vændishús í Brasilíu. Í viðtali við DV í dag segir hún að henni hafi á ævintýralegan hátt tekist að flýja undan Íslendingum í Amsterdam sem ætluu að selja hana manali. Fólkið avr handtekið eftir ábendingu konunnar en einn þeirrra sem sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna málsin er STeinar Aubertson sem var eftirlýstur af Interpol vegna fíkniefnamáls hér á landi. 29.8.2012 09:44
Truflanir á umferð um Suðurlandsveg vegna kvikmyndatöku Búast má við truflunum á umferð um Suðurlandsveg í dag. True Nort er með mikinn viðbúnað vegna kvikmyndatöku sem verður á Suðurlandsvegi við Hveradali í dag. Veginum verður lokað reglulega í dag vegna þessa. Bent er á að hjáleið um Þrengslaveg verður opin. 29.8.2012 09:23
Íbúar eins og fangar á lyftulausu heimili Íbúar í þjónustuíbúðum aldraðra komast ekki út úr húsi því eina lyfta hússins hefur verið biluð síðan á mánudag. „Það eru svo margir sem ekki geta farið stiga,“ segir Hrafnhildur Thors, fyrrverandi húsmóðir og 92 ára gamall íbúi í þjónustuíbúð Sunnuhlíðar við Kópavogsbraut 1A. Hún hefur búið í húsinu í rúmlega tíu ár og verður 93 ára gömul í september. 29.8.2012 09:00
Kartöflubændur of fáir fyrir markaðinn Íslenskum kartöflubændum hefur fækkað úr hundrað í þrjátíu á síðustu tíu árum. Næturfrost síðustu daga og þurrkar sumarsins munu hafa slæm áhrif á kartöfluuppskeru þessa árs hjá kartöflubændum, sérstaklega á Norðurlandi. Bergvin Jóhannsson, formaður Sambands kartöflubænda, segir það áhyggjuefni hversu fáir bændur eru eftir. 29.8.2012 09:00
Nokkrum milljónum var stolið frá Jarðböðum við Mývatn Lögreglan á Húsavík og rannsóknadeild lögreglunnar á Akureyri rannsaka nú stórþjófnað á skrifstofu Jarðbaðanna við Mývatn nýverið. 29.8.2012 06:35
Hringbraut lokuð til austurs við JL húsið Hringbraut er nú lokuð til austurs við JL húsið vegna árekstrar sem þar varð fyrir skömmu síðan. Þar sem Hringbrautin er lokuð til austurs á þessu stað eru ekki miklar truflarnir á umferð á brautinni. Lögreglan segir að lokunin muni vara í skamman tíma og ætti brautin að opnast fljótlega. 29.8.2012 08:54
Íslenskur snekkjusmiður enn í varðhaldi Rúmlega fertugur íslenskur karlmaður situr í varðhaldi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, en honum er gert að sök að hafa falsað skjal í málaferlum sem hann höfðaði í landinu. Hann neitaði sök fyrir rétti í Dubai á mánudag. 29.8.2012 08:00
Þungfært um Sprengisand vegna snjókomu Þungfært varð um Sprengisand í gær vegna snjókomu, en enginn vegfarandi lenti þó í alvarlegum vandræðum og munu allir hafa komist leiðar sinnar. 29.8.2012 07:01
Ikea gæti átt í Hörpuhóteli Dótturfélag sænska húsgagnaframleiðandans Ikea gæti orðið einn eigenda fyrirhugaðs hótels sem reisa á við hlið Hörpu, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Félagið ier í samstarfi við World Leisure Investment, sem keypti byggingarréttinn á lóðinni við hlið Hörpu, um að fjárfesta í hundrað hótelum í öllum helstu borgum Evrópu. Það sem aðallega hefur staðið í vegi fyrir aðkomu Ikea að byggingu hótelsins við Hörpu er að Ikea-samstæðan heimilar ekki fjárfestingar á Íslandi. 29.8.2012 07:00
Samþykkt með þorra atkvæða gegn 5 VG samþykkti 10. maí 2009 ályktun þar sem mælt var með því að mynduð yrði ríkisstjórn með Samfylkingu "á grundvelli þeirrar samstarfsyfirlýsingar sem nú liggur fyrir“. Ályktunin var samþykkt með þorra atkvæða gegn fimm, einn sat hjá. 29.8.2012 07:00
Tvö ungmenni hótuðu manni og tóku af honum bílinn Tveir 17 og 18 ára piltar tóku bíl af ungum manni í austurborginni í gærkvöldi með því að beita hann hótunum. 29.8.2012 06:55
Slasaðist þegar tvö bifhjól skullu saman Ökumaður bifhjóls slasaðist þegar hann rakst utan í annað bifhjól, sem ekið var samsíða honum í Breiðholti undir kvöld í gær. Bæði hjólin skullu í götuna, en ökumaður annars hjólsins slapp ómeiddur. 29.8.2012 06:48
ESB vomir yfir VG í kosningabaráttunni Flokksráð Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs (VG) fundaði um helgina. Fyrirfram höfðu verið skapaðar nokkrar væntingar um að nú yrði látið sverfa til stáls í málefnum er varða umsókn að ESB. Raunin varð önnur, samþykkt var ályktun um samskipti Íslands við þjóðir og þjóðabandalög þar sem umræðunni um samskipti Íslands og ESB er fagnað og hvatt til þess að hún haldi áfram. 29.8.2012 06:30
Vilja tafarlausar framkvæmdir Samtök iðnaðarins vara við því að ef nýframkvæmdir á íbúðamarkaði fari ekki af stað bráðlega sé hætta á því að til komi vöntun á íbúðum, jafnvel fyrr en áður var talið. 29.8.2012 06:00
Aðsókn að leikskólum og gæslu barna jókst eftir hrun Aðsókn að leikskólum og frístundaheimilum Reykjavíkurborgar hefur aukist eftir hrun. Ýmsir óttuðust hið gagnstæða og að bágt efnahagsástand þýddi það að margir þyrftu að neita sér um þjónustuna. Mannekla er svipuð og verið hefur undanfarin ár. 29.8.2012 05:30
Áhersla á sambandið við Færeyjar ESB Ísland leggur mikla áherslu á að sambandið við Færeyjar sé varðveitt þrátt fyrir að til ESB-aðildar komi. Þetta er meðal þess sem kemur fram í samningsafstöðu Íslands varðandi utanríkistengsl, en samningsafstaða varðandi þann málaflokk annars vegar og um tollabandalag hins vegar var opinberuð í gær. 29.8.2012 05:00
Bensen fannst í flugeldum Umhverfisstofnun mældi magn þrávirka efnisins hexaklórbensen í flugeldum og skotkökum níu innflytjenda. Í tveimur sýnishornum reyndist efnið vera yfir leyfilegu magni, en það var í flugeldum frá KR-flugeldum og Alvöru flugeldum. 29.8.2012 04:00
Glúmur stendur á bak við asísk þríhjól í miðbænum Það er Glúmur Baldvinsson sem stendur að baki Tuk Tuk þríhjóla að asískum hætti sem íbúar Reykjavíkurbograr hafa hugsanlega komið auga á í miðbænum síðastliðnar vikur. Í tilkynningu frá Glúmi segir að Þau Tuk Tuk sem flutt hafa verið til Reykjavíkur eru rafknúin ólíkt flestum þeim tækjum sem þeysa um götur Tælands, Sri Lanka, Indlands, Kína og víðar. 28.8.2012 20:45
Ökufantur um sextugt sakar lögreglu um valdníðslu og einelti Af einhverjum ástæðum eiga sumir ökumenn mjög erfitt með að virða hámarkshraða. Í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að þetta eigi ekki bara við um unga ökumenn því þeir eldri og reyndari eru ekki alltaf bestu fyrirmyndirnar. 28.8.2012 18:27
Ölvaður maður reyndi að stela áfengi Lögregla var kölluð að vínbúðinni Austurstræti rétt fyrir klukkan tvö í dag. Þar hafði ölvaður maður reynt að stela áfengi og var stöðvaður utandyra. Hann var handtekinn og fluttur á lögreglustöð þar sem hann vistast þar til runnið er af honum. 28.8.2012 17:23
Vodafone afhendir ekki heldur gögn vegna nauðgunarrannsóknar Vodafone mun ekki heldur afhenda lögreglunni á Selfossi gögn sem símafyrirtækin voru krafin um vegna rannsóknar á nauðgun í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina. Þetta staðfestir Hrannar Pétursson upplýsingafulltrúi fyrirtækisins í samtali við Vísi. 28.8.2012 17:19
Guðmundur í Brimi: Fiskurinn á sig sjálfur - ekki útgerðarfyrirtækin Guðmundur Kristjánsson forstjóri útgerðarfyrirtækisins Brims segir að búið sé að rugla þjóðina með umræðunni um eignarhaldið á kvótanum og fisknum í sjónum. 28.8.2012 15:21
Síminn liggur á gögnum sem gætu leyst nauðgunarmál Hæstiréttur Íslands úrskurðaði í gær að Símanum er ekki nauðsynlegt að láta af hendi upplýsingar sem gætu nýst við lausn á nauðgunarmáli sem rannsakað er. 28.8.2012 15:10
Legutíminn lengist á Landspítalanum Meðallegutími sjúklinga á Landspítalanum hefur lengst um þrjú til fjögur prósent á síðustu tveimur árum. Erfitt hefur reynst að útskrifa eldra fólk og geðsjúka á annað meðferðarform segir forstjórinn. 28.8.2012 13:05
Jón Bjarna: Steingrímur með of mikla einræðistilburði Jón Bjarnason þingmaður Vinstri Grænna segir þingmenn samfylkingarinnar beita frekju og yfirgangi með því að segja að ESB málið sé stjónarslitamál. VG sé komið langt út frá grunnstefnu sinni með því að keyra ESB umsóknarferlið áfram og honum finnst Steingrímur J Sigfússon formaður flokksins hafa sýnt of mikla einræðistilburði við stjórn flokksins. 28.8.2012 12:05
Sex stöðvaðir á Keflavíkurflugvelli á fimm dögum Sex einstaklingar hafa verið stöðvaðir við landamæraeftirlit lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli undanfarna fimm daga með fölsuð skilríki eða án skilríkja við komu til landsins. Hluti þessa fólk hefur sótt um hæli hér á landi en aðrir hafa þegar hafið afplánun dóms vegna skjalafals. 28.8.2012 12:03
Íslensk yfirvöld beita sér í máli Íslendings í Dubai Utanríkisráðherra og forseti Íslands hafa beitt sér í máli rúmlega fertugs Íslendings sem hefur verið ákærður fyrir skjalafals í Sameinuðu arabísku fyrstadæmunum. Maðurinn, sem er sagður snekkjusmiður, gengur laus gegn tveggja milljóna króna tryggingu og hafa yfirvöld þar í landi haldlagt vegabréf hans tímabundið. 28.8.2012 10:57
Íslendingur stýrir stórri listsýningu í Tékklandi Níu ungir íslenskir listamenn verða meðal þáttakenda í fjölþjóðlegri listsýningu, yfir 30 listamanna í Zinkovy kastala, skammt frá Prag í Tékklandi, sem hefst um mánaðmótin og stendur út September mánuð. Sýningarstjóri er Hrafnhildur Gisssurardóttir, sem útskrifaðist með bachelor gráðu í myndlist frá Gerrit Rietveld háskólanum árið 2009 og hefur undanfarið ár stýrt sýningahaldi í Amstel-41 galleríinu í miðborg Amsterdam. 28.8.2012 11:44
Rekstrarfé nýtt til tækjakaupa Rekstur Landspítalans var, í fyrsta skipti síðastliðin þrjú ár, neikvæður. Þetta sýnir hálfsársuppgjör spítalans. Hallinn er 84 milljónir króna fyrstu sex mánuði ársins en 61 milljón sé litið til síðustu sjö mánaða. 28.8.2012 10:00
Töluverð skjálftavirkni á landinu Töluverð skjálftavirkni var á landinu í gær, en aðeins þrír skjálftar mældust tvö stig eða meira, þar af tveir í Goðabungu og einn á Gjögurtá. 28.8.2012 08:18
Til Íslands að leysa fjölskylduráðgátuna Ítalski verkfræðingurinn Giuseppe Massaro er staddur hér á landi til að fræðast um afdrif afa síns Salvatore Massaro en enginn veit af hverju hann tók sig til og flutti til Íslands árið 1954. Bjó hann hér á landi til dauðadags árið 1960. Brotthvarf Salvatores Massaro olli miklu róti sem verið hefur viðvarandi í stórfjölskyldunni allar götur síðan. 28.8.2012 08:15
Lítið bólar á Skaftárhlaupi Lítið bólar enn á Skaftárhlaupinu, sem talið var að væri að hefjast fyrir helgi. Þó hefur mælst aukin rafleilðni í vatninu, sem er vísbending um hlaup, og vísbendingar eru um að ísskjálftar hafi orðið í jöklinum, en þeir eru oft fyrirboðar eða fylgifiskar hlaupa. 28.8.2012 07:20
Hrefna var komin allt að Kanaríeyjum Örar breytingar hafa átt sér stað í hafinu þangað sem Íslendingar sækja að mestu leyti hagsæld sína. Til dæmis hefur hátterni hrefnunnar að mörgu leyti komið mönnum á óvart í sumar. Hafrannsóknastofnun undirbýr nú merkingar á hvölum og vonast til að getað komist að því hvar þeir halda til á veturna. 28.8.2012 11:00
Gísli J. Ástþórsson látinn Gísli J. Ástþórsson, fyrrverandi blaðamaður Morgunblaðsins, teiknari og rithöfundur, lést á laugardaginn, 89 ára að aldri. Gísli fæddist í Reykjavík 5. apríl 1923. Hann lauk BA-prófi í blaðamennsku frá University of North-Carolina árið 1945, en hann var fyrsti Íslendingurinn með háskólapróf í því fagi. 28.8.2012 10:00