Íslensk yfirvöld beita sér í máli Íslendings í Dubai 28. ágúst 2012 10:57 Snekkja við Abú Dabí þar sem maðurinn hugðist setja á fót snekkjufyrirtæki. Myndin tengist fréttinni ekki beint. úr safni
Utanríkisráðherra og forseti Íslands hafa beitt sér í máli rúmlega fertugs Íslendings sem hefur verið ákærður fyrir skjalafals í Sameinuðu arabísku fyrstadæmunum. Maðurinn, sem er sagður snekkjusmiður, gengur laus gegn tveggja milljóna króna tryggingu og hafa yfirvöld þar í landi haldlagt vegabréf hans tímabundið. Samkvæmt heimildum fréttastofu er málið komið inn á borð Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, þar sem svo virðist sem maðurinn sé beittur miklum órétti af yfirvöldum þar ytra. Þá hefur fréttastofa upplýsingar um það að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, viti einnig af málsatvikum. Svo virðist sem hann sé fórnarlamb óheiðarlegra viðskiptahátta heimamanns. Málið er svolítið sérkennilegt en fréttavefurinn The National fjallaði um það í gær. Þar kemur fram að Íslendingurinn hafi leitað eftir fjárfesti til að setja á fót fyrirtæki sem smíðar lúxussnekkjur fyrir fjórum árum síðan. Hann fann heimamann sem sagðist hafa áhuga á að vera bakhjarl í fyrirtækinu en með því skilyrði að hann útvegaði honum snekkju til eigin nota. Það gerði Íslendingurinn og afhenti manninum snekkjuna fyrir tveimur árum. Hann sveik aftur á móti samkomulagið og greiddi ekki krónu fyrir snekkjuna og þegar Íslendingurinn fór fram á að henni yrði skilað neitaði hann að afhenta honum hana. Hann höfðaði því mál á hendur manninum fyrir dómstólum í Dúbaí. Íslendingurinn vann dómsmálið og var heimamanninum gert að greiða honum 130 milljónir króna. Þetta var árið 2010. Það er eftir að dómurinn er kveðinn upp sem málið tekur aðra stefnu. Nú nýlega er Íslendingurinn nefnilega sakaður um að hafa falsað dómsskjal og lagt fyrir dóminn, þegar málið var þar til meðferðar fyrir tveimur árum. Hann hefur verið ákærður fyrir að hafa áhrif á málið með ólögmætum hætti. Þessi ásökun virðist koma algjörlega upp úr þurru og neitar Íslendingurinn staðfestlega sök, samkvæmt upplýsingum Vísis. Ákæran var tekin fyrir hjá dómstólum í gær og er Íslendingurinn laus gegn tryggingu upp á 1,7 milljónir króna. Þá þurfti hann einnig að láta vegabréfið af hendi og hefur verið þinghaldi verið frestað til 29. september.
Tengdar fréttir Íslenskur snekkjugerðarmaður ákærður fyrir skjalafals í Dúbaí Rétt rúmlega fertugur snekkjusmiður frá Íslandi hefur verið ákærður fyrir skjalafals í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en hann gengur nú laus gegn tryggingu sem hljóðar upp á tæplega tvær milljónir íslenskrar króna. 27. ágúst 2012 23:30 Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira
Íslenskur snekkjugerðarmaður ákærður fyrir skjalafals í Dúbaí Rétt rúmlega fertugur snekkjusmiður frá Íslandi hefur verið ákærður fyrir skjalafals í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en hann gengur nú laus gegn tryggingu sem hljóðar upp á tæplega tvær milljónir íslenskrar króna. 27. ágúst 2012 23:30