Kínverjar vilja verja 5 milljörðum í heilsuþorp Flúðum Þorbjörn Þórðarson skrifar 29. ágúst 2012 21:59
Félag á vegum kínverska ríkisins ætlar að fjármagna fimm milljarða króna uppbyggingu á heilsuþorpi með nýrri heilsurækt og spa á Flúðum, en auk þess er stefnt að því að byggja hótel og fjölda íbúða. Kínverjarnir verða ekki hluthafar í fyrirtækinu sem byggir heldur leggja því aðeins til fjármagn. Félag á vegum kínverska ríkisins ætlar að fjármagna fimm milljarða króna uppbyggingu á heilsuþorpi með nýrri heilsurækt og spa á Flúðum, en auk þess er stefnt að því að byggja hótel og fjölda íbúða. Kínverjarnir verða ekki hluthafar í fyrirtækinu sem byggir heldur leggja því aðeins til fjármagn. Það er á jörðinni Gröf á Flúðum sem heilsuþorpið á að rísa en jörðin er að mestu leyti í eigu sveitarfélagsins Hrunamannahrepps. Árni Gunnarsson fyrrverandi alþingismaður er stjórnarformaður Flúða Spa - Heilsuþorps ehf. sem hefur leitað um nokkra hríð að fjárfestum til að reisa myndarlegt heilsuþorp með spa, líkamsrækt og heilsuhóteli á Flúðum. Hann hafði svo samband við Íslandsstofu og þá tóku hjólin að snúast. Kínverska fyrirtækið CSST hafði samband við Árna fyrir milligöngu Íslandsstofu, en CSST framleiðir m.a eftirlitsbúnað til að fylgjast með ferðum fólks. Síðan fékk Árni bréf frá Yang Yue, forstjóra Smart Cities International Ltd. annars félags á vegum kínverska ríkisins þar sem forstjórinn lýsir yfir áhuga á að koma að verkefninu á Flúðum og fjármagna það.Verða Kínverjarnir hluthafar í fyrirtækinu sem rekur spa á svæðinu eða koma þeir bara að verkefninu sem lánveitendur? „Þeir koma fyrst og fremst að þessu sem lánveitendur og kannski að hluta til verktakar, en við höfum tekið það alveg skýrt fram við þá að það komi ekki til greina að hingað komi kínverskir starfsmenn til að vinna að þessu," segir Árni Gunnarsson. Skipulagsvinna er langt á veg komin og Árni segir að reiknað hafi verið út að 130-140 varanleg störf skapist á staðnum vegna verkefnisins. Árni segir að ávinningur Kínverjanna sé aðallega vaxtatekjur af láni til Heilsuþorps ehf. en fyrirtækið verður áfram í eigu Árna og annarra Íslendinga og sveitarfélagsins Hrunamannahrepps. „Síðan hafa aðrir kínverskir aðilar sýnt því áhuga að senda hingað kínverska ferðamenn," segir Árni, en kínverskum ferðamönnum hefur fjölgað mikið hér á landi að undanförnu. Á þessu ári komu sjö þúsund kínverskir ferðamenn til Íslands og hefur þeim fjölgað um helming frá í fyrra en Heilsuþorpið verður markaðssett sérstaklega í Kína.Eru einhverjar vísbendingar um að áhugi Kínverjanna sé til kominn vegna ráðabruggs kínverskra stjórnvalda, eins og ýmsir ýjuðu að í Nubo-málinu? „Ég er nokkuð sannfærður um að svona ákvörðun er ekki tekin nema að hluta til á pólitískum forsendum. Ég hef látið mér detta það í hug að Kínverjum hafi þótt Grímsstaðamálið fara illa með ímynd þeirra hér á Íslandi og kannski vilja þeir bæta úr því," segir Árni. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Sjá meira