Innlent

Jón Bjarna: Steingrímur með of mikla einræðistilburði

Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar
Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra.
Jón Bjarnason, fyrrverandi ráðherra. mynd/stefán karlsson
Jón Bjarnason þingmaður Vinstri Grænna segir þingmenn Samfylkingarinnar beita frekju og yfirgangi með því að segja að ESB málið sé stjónarslitamál. VG sé komið langt út frá grunnstefnu sinni með því að keyra ESB umsóknarferlið áfram og honum finnst Steingrímur J Sigfússon formaður flokksins hafa sýnt of mikla einræðistilburði við stjórn flokksins.

Jón Bjarnason var gestur Heimis Karlssonar og Kolbrúnar Björnsdóttur í morgunþættinum Bítinu á Bylgjunni í morgun.

Þar ræddi hann um óánægju innan Vinstri grænna aðallega vegna aðildarviðræðna Íslands við ESB.

Hann sagði meðal annars VG hafa fært miklar fórnir í ríkisstjórnarsamstarfi sínu með Samfylkingunni og þegar þingmenn hennar, Árni Páll Árnason og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segi að ESB málið sé stjórnarslitamál sé verið að túlka samstarfsyfirlýsingu flokkanna um ESB alltof langt.

„Þarna er farið að beita þá bara frekju og yfirgangi, nú fyrir utan það þegar rætt var um að senda þessa umsókn af stað þá átti hún bara að taka tvö ár. Ég held meira að segja að Árni Páll hafi sagt á Alþingi að þessu máli lýkur innan tveggja ára, og þá erum við búin að afgreiða það. En er það nú aldeilis svo," segir Jón.

Hann segir forystu flokksins vera komna langt frá grunnstefnu flokksins á þeim forsendum að þarna þurfi samstarf til og það sé ekki samkvæmt stefnu flokksins að keyra Evrópusambandsaðildarviðræður áfram fram að kosningum.

Hefur Steingrímur verið með of mikla einræðistilburði? „Já, mér finnst það - ekki nokkur vafi að hann hefur verið það, enda er það einmitt ein af rökunum fyrir því að Atli Gíslason gekk úr flokknum þá rakti hann það að það væri ekki nógu mikil lýðræðisleg vinna innan flokksins og ég tel að þessu þurfi að breyta."

Hægt er að hlusta á viðtalið við Jón Bjarnason hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×