Fleiri
1.7.2012 22:25 Herdís sér ekki eftir neinu Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi segist ekki sjá eftir neinu sem hún hafi gert á undanförnum mánuðum. 1.7.2012 03:10 Talningu atkvæða lokið í Reykjavík Búið er að telja atkvæði í Reykjavíkurkjördæmi suður. Alls hafa 30.837 atkvæði verið talin. Ólafur fékk flest atkvæði í kjördæminu. Næst á eftir honum kom Þóra Arnórsdóttir. 1.7.2012 02:46 Ari Trausti útilokar ekki framboð á ný Þótt Ólafur Ragnar Grímsson sé augljós sigurvegari kosninganna eru niðurstöðurnar ekki upplífgandi fyrir hann, segir Ari Trausti Guðmundsson, forsetaframbjóðandi. Hann útilokar ekki að bjóða sig fram til forseta aftur að fjórum árum liðnum. Ari Trausti ræddi við Jóhönnu Margréti Gísladóttur, fréttamann Stöðvar 2 og Vísis, um miðnættið í kvöld. 1.7.2012 02:21 Ólafur er sigurvegari kosninganna Ljóst er að Ólafur Ragnar Grímsson hefur verið endurkjörinn sem forseti lýðveldisins. Eins og staðan er núna á landinu öllu fær Ólafur 51,5% atkvæða. Þóra Arnórsdóttir fær 33,7% atkvæða. Ari Trausti er í þriðja sæti með 8,9%. Herdís og Andrea fá báðar 2,5% atkvæða og Hannes rekur lestina með minna en eitt prósent atkvæða. 1.7.2012 02:20 Fjallað um sigur Ólafs erlendis Fjallað er um íslensku forsetakosningarnar á forsíðu fréttamiðilsins BBC. Þar er því slegið fram að Ólafur eigi fyrir höndum fimmta kjörtímabilið á Bessastöðum og að Þóra hafi þegar lýst sig sigraða. 1.7.2012 01:51 Engar líkur að falsaðir seðlar séu í kössunum Katrín Theodórsdóttir, formaður yfirkjörsóknar í Reykjavíkurkjördæmi norður, segir hverfandi líkur á því að fölsuð atkvæði hafi komist í kjörkassana í forsetakosningunum í dag. 1.7.2012 01:33 Þóra: Sigur að ná þriðjungi atkvæða Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi og fjölmiðlamaður var kampakát eftir að fyrstu tölur voru kynntar í kvöld. "Það að ná meira en þriðjungi atkvæða er alveg ótrúlegur sigur,“ sagði hún í samtali við fréttamann á Stöð 2 og Vísi. Kjörsókn hefur verið afar dræm en Þóra sagðist ekki geta tjáð sig hvaða áhrif það hefði. "Hún hefur sjálfsagt eitthvað að segja en í hvaða átt get ég ekki sagt,“ sagði Þóra. 1.7.2012 01:18 Ólafur leiðir í Reykjavík Þegar 22.654 atkvæði hafa verið talin í Reykjavíkurkjördæmi norður leiðir Ólafur baráttuna með 45,1% fylgi. Þóra fylgir á hæla hans með 36,5%. 1.7.2012 01:08 Minna en helmingur kaus í Reykjavík norður Kosningaþáttakan var mjög lág í Reykjavíku norður kjördæmi. Þar mætti minna en helmingur kosningarbærra manna á kjörstað. 49,66% kusu. Í Reykjavíkurkjördæmi suður kusu 55,21%. 1.7.2012 00:56 Sjá næstu 50 fréttir
Sakborningur í mansalsmáli fær engar bætur frá ríkinu Íslenska ríkið hefur verið sýknað af kröfu manns sem var handtekinn og sætti einangrun í þrjár vikur vegna mansalsmálsins 2009. Um er að ræða eina mansalsmálið sem hefur verið ákært í á Íslandi, en maðurinn var sýknaður af ákærunni. 2.7.2012 16:04
Gordon spilar ekki með Bretum á Ólympíuleikunum Það er nú ljóst að NBA-leikmaðurinn Ben Gordon mun ekki spila með breska landsliðniu á Ólympíuleikunum í Lundúnum sem hefjast síðar í mánuðinum. 2.7.2012 16:00
Ólíklegt að kosningarnar verði ógiltar Þó að framkvæmd atkvæðagreiðslu fatlaðra í forsetakosningunum á laugardag gæti talist ágalli á kosningunum er ólíklegt að það leiði til ógildingar þeirra. Þetta segir Bryndís Hlöðversdóttir, rektor Háskólans á Bifröst. 2.7.2012 15:53
Framleiðendur Oblivion vildu loka svæðinu yfir Veiðivötnum Framleiðendur kvikmyndarinnar Oblivion óskuðu eftir því að flugbann yrði sett yfir svæðinu þar sem tökur fara fram á Veiðivatnasvæðinu. Eins og kunnugt er leikur Tom Cruise aðalhlutverkið í myndinni. Flugmálayfirvöld fengu beiðni um að svæðinu yrði lokað fyrir flugumferð þar sem einhverjar sprengingar voru fyrirhugaðar vegna töku kvikmyndar þar. 2.7.2012 15:42
Vinna hafin við þriðja bindi sögu Akraness Samningar um að hefja vinnu við þriðja bindið af sögu Arkaness voru samþykktir í bæjarráði Akraness í júní. Vinnan við þriðja bindi sögunnar er því hafin og sem fyrr sér Gunnlaugur Haraldsson um ritunina. Upphæðin sem samþykkt var fyrir þetta ár var 4,2 milljónir króna en í heild sinni er gert ráð fyrir að vinnan við bindið kosti 14 milljónir. 2.7.2012 14:54
Eldri borgarar biðla til borgarfulltrúa Eldri borgarar úr Gerðubergi í Breiðholti afhentu borgarfulltrúum í dag bænaskjal þar sem þess er farið á leit að starfi eldri borgara í Gerðubergi verði bjargað. Undirskriftir 450 manns sem tengjast starfinu voru afhentar borgarfulltrúunum. Á meðal þeirra sem hittu borgarfulltrúana var Björk Vilhelmsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og formaður velferðarráðs. 2.7.2012 14:24
Tökur á Oblivion enn í gangi Það ræðst líklega á morgun hvenær tökum á myndinni Oblivion, sem skartar Tom Cruise í aðalhlutverki, mun ljúka. Þetta staðfestir talsmaður tökuliðsins við Vísi. Tökur hafa farið fram undanfarna daga samkvæmt áætlun, þrátt fyrir þrálátar sögusagnir í erlendum miðlum um að Tom Cruise hafi yfirgefið landið eftir að Katie Holmes sótti um skilnað frá honum. Tökur fara fram núna á Suðurlandi, í nágrenni við Veiðivötn. 2.7.2012 14:04
Leita vitnis að umferðarslysi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Nýbýlavegi í Kópavogi um hádegisbil föstudaginn var. Í hringtorgi á móts við Toyota-umboðið var svörtum Range Rover ekið í veg fyrir bifhjól með þeim afleiðingum að ökumaður þess missti stjórn á hjólinu, ók á vegkant og féll síðan af því. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar. 2.7.2012 13:13
Guðmundur: Forsetinn kominn í pólitík Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir þjóðina hafa sent þau skilaboð í forsetakosningunum að forsetinn eigi að láta til sín taka í umræðunni um hin stærstu mál. Guðmundur Steingrímsson, formaður stjórnmálaflokksis Bjartrar framtíðar, segir að með þessu sé forsetinn kominn í pólitík og að breytingar þurfi að verða á embættinu í samræmi við það. Skoðanir forsetans geti ekki komið úr vernduðu umhverfi. 2.7.2012 12:17
Telpurnar fluttar til Danmerkur í gær Telpurnar þrjár, sem voru teknar með lögregluvaldi af móður sinni á föstudag, voru fluttar úr landi síðdegis í gær til Danmerkur. Lögmaður móðurinnar furðar sig á að börnin hafi ekki verið kyrrsett á Íslandi. 2.7.2012 12:11
Brotist inn í nýbyggingu í Mosfellsbæ Brotist var inn í nýbyggingu í Mosfellsbæ og nokkrum verkfærum var stolið. Tilkynning um innbrotið barst lögreglunni um hálftíuleytið í morgun. Ekki er vitað hver eða hverjir voru þarna að verki en þeirra er leitað. 2.7.2012 11:52
Hundruð handverkakvenna óttast um hag sinn Verulegur hiti er meðal handverkakvenna sem hafa haft lífsviðurværi sitt af því um árabil að selja ferðamönnum prjónaðar vörur og annað íslenskt handverk. Stórfyrirtæki á Íslandi eru farin að senda lopa til Kína þar sem íslenskir minjagripir eru framleiddir. Í morgun greindi Verkalýðsfélagið Framsýn greindi frá því að félagið hyggðist kanna hver kjör kinversk verkafólks væru. 2.7.2012 10:38
Viðbragðsáætlun virkjuð á Keflavíkurflugvelli Viðbragðsáætlun var virkjuð á Keflavíkurflugvelli nú á níunda tímanum vegna flugvélar sem á að lenda um klukkan korter í níu. Tilkynnt var um reyk í flugstjórnarklefa vélarinnar, en á þessari stundu er ekki vitað hvað veldur reyknum. Ekki hafa fengist um það upplýsingar á þessari stundu hvaðan vélin var að koma. 2.7.2012 08:38
Vilja að lopapeysurnar séu prjónaðar á Íslandi Verkalýðsfélagið Framsýn íhugar að óska eftir upplýsingum frá íslenskum aðilum sem láta framleiða íslenskar lopapeysur í Kína til þess að selja á Íslandi. Óskað verður eftir upplýsingum um kjör og aðbúnað fólksins í Kína sem framleiðir lopapeysurnar fyrir markaðinn á Íslandi. Á vef Framsýnar segir að Kínverjar hafi fram að þessu ekki verið þekktir fyrir góð launakjör eða aðbúnað verkafólks, sé tekið mið af því sem gerist á Íslandi. 2.7.2012 08:52
Snjallsímaleiðsögn í boði um Austurland Austfirðingar hafa tekið nýjustu tækni í þjónustu sína til að auka gildi ferðalaga um fjórðunginn. Nýtt smáforrit fyrir snjallsíma og spjaldtölvur gerir ferðalöngum kleift að nálgast leiðsögn um sex aðskilin svæði á héraði og niðri á fjörðum. 2.7.2012 08:00
Bílvelta á Mosfellsheiði Bílvelta varð á Mosfellsheiði í gærkvöld um tíu leytið. Tvennt var í bílnum, ungur ökumaður og stúlka. Þau slösuðust ekki að ráði, fengur skrámur og eymsli á öxl en voru flutt á slysadeild til skoðunnar. Bíllinn er hinsvegar stórskemmdur. 2.7.2012 07:03
Örtröð strandveiðibáta á miðin Um áttahundruð bátar hafa streymt á sjó í morgunsárið en öll svæði þar sem stunda má strandveiðar eru nú opin. 2.7.2012 06:29
Þvottastöðvar knúnar fótafli viðskiptavina Ef hugmyndir átta bandarískra listhönnuða ganga eftir verður ekki langt í að þvottastöðvar, sem í leiðinni verða hálfgerðar félagsmiðstöðvar, skjóti upp kollinum víða um land. 2.7.2012 06:00
Þóra var duglegust á samfélagsmiðlum Rannsóknir benda til þess að fylgni sé á milli úrslita kosninga og áhrifa frambjóðenda á samfélagsmiðlum. Þekkingarfyrirtækið Cloud engineering tók saman upplýsingar um virkni forsetaframbjóðenda á Facebook í aðdraganda kosninganna. Skemmst er frá því að segja að Þóra Arnórsdóttir og stuðningsmenn hennar nýttu samfélagsvefinn mest allra frambjóðenda til að kynna sig og eiga samskipti við kjósendur. Gagnasöfnunin um Facebook-notkunina spannaði allan júnímánuð. 2.7.2012 04:00
Einföld atriði útskýra dræma kjörsókn Kjörsókn í forsetakjöri hefur aðeins einu sinni verið lakari, árið 2004. Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórmálafræði, segir augljós atriði skýra dræma kjörsókn nú. 2.7.2012 01:15
Úrslit kosninganna í takti við skoðanakannanir Úrslit kosninganna eru mjög í takt við skoðanakannanir sem birst hafa undanfarið. 1.7.2012 14:37
Enginn þingmaður hefur óskað Ólafi til hamingju Hvorki ráðherrar né þingmenn höfðu óskað Ólafi Ragnari Grímssyni til hamingju með kosningaúrslitin í hádeginu í dag. Hann segir það vera í góðu lagi því kosningarnar snúist ekki um ríkisstjórnina. "Þær eru um fólkið í landinu, vilja þess og framtíðarsýn," sagði Ólafur Ragnar Grímsson í samtali við Lóu Pind Aldísardóttur á Bessastöðum í dag. 1.7.2012 13:26
Fullur, próflaus og óviðræðuhæfur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um klukkan hálf átta í morgun um sérkennilegt aksturslag bifreiðar í austurbænum. Skömmu síðar fannst bifreiðin og rætt var við ökumann sem var ekki var kominn með bílpróf. Hann var sýnilega mjög ölvaður og óviðræðuhæfur af þeim sökum samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni. 1.7.2012 13:04
Lokatölur yfirkjörstjórnar í Norðausturkjördæmi Auðir og ógildir seðlar í Norðausturkjördæmi voru 404, eða 1,9%, samkvæmt lokaskýrslu yfirkjörstjórnar þar. Á kjörskrá voru 29.003. Greidd atkvæði voru alls 20.884 sem þýðir 72,0% kjörsókn. Atkvæði féllu þannig: Andrea J. Ólafsdóttir 348 eða 1,7%. Ari Trausti Guðmundsson 1.882 eða 9,2%. Hannes Bjarnason 277 eða 1,4%. Herdís Þorgeirsdóttir 583 eða 2,8%. Ólafur Ragnar Grímsson 10.363 eða 50,6%. Þóra Arnórsdóttir 7.027 eða 34,3%. Auðir seðlar 344 eða 1,6% Aðrir ógildir seðlar 60 eða 0,3%. 1.7.2012 12:57
Myndir frá kosningakvöldi Það var ys og þys hjá forsetaframbjóðendum í gærkvöld. Allir mættu þeir, nema Hannes Bjarnason, í útsendingu í sjónvarpssal hjá RÚV klukkan hálfellefu. Um það leyti voru fyrstu tölur lesnar upp. Síðan héldu þau Ari Trausti, Herdís og Þóra á kosningavökur í miðborg Reykjavíkur en Ólafur og Andrea vörðu kvöldinu með vinum og vandamönnum. Það gerði Hannes Bjarnason líka en hann var í Skagafirði allan gærdag. Daníel Rúnarsson ljósmyndari hjá Fréttablaðinu fylgdi frambjóðendum eftir í gær. 1.7.2012 12:40
Lokatölur yfirkjörstjórnar í Suðvesturkjördæmi Auðir seðlar og ógildir seðlar í Suðvesturkjördæmi voru 1194, eða 2,75%, samkvæmt lokatölum yfirkjörstjórnar. Á kjörskrá voru 62.069 kjósendur. Gildir atkvæðaseðlar voru 42.192. Kjörsókn var 69,9%. 1.7.2012 12:33
Lokatölur yfirkjörstjórnar úr Norðvesturkjördæmi Auður og ógildir seðlar í Norðvesturkjördæmi voru 1,85%, samkvæmt tölum yfirkjörstjórnar. Auðir seðlar 258 stk eða 1,68%. Ógildir seðlar 26 stk 0,17%. Kjörsókn var 71,74%. Greidd voru 15.346 atkvæði sem skiptust þannig: 1.7.2012 11:56
Segir Ólaf Ragnar hafa fengið gula spjaldið Þingmaður Samfylkingarinnar, Ólína Þorvarðardóttir, veltir því fyrir sér hvort Ólafur Ragnar Grímsson hafi fengið gula spjaldið í kosningunum núna. Þannig reiknar hún út fylgi Ólafs Ragnars miðað við þá sem eru á kjörskrá, en þannig má reikna út að hann hafi fengið rúmlega 35 prósent atkvæða. 1.7.2012 10:32
Ólafur Ragnar í beinni útsendingu á Stöð 2 Sérstakur hádegisfréttatími tileinkaður forsetakosningunum verður í beinni útsendingu á Stöð 2 og Bylgjunni. Þar munu fréttamenn okkar fara yfir atburði gærkvöldsins og næturinnar og bein útsending verður frá Bessastöðum. 1.7.2012 09:35
Lokatölur yfir landið: Ólafur 52,78% Ólafur Ragnar Grímsson hlaut 52,78% atkvæða yfir landið allt, en Þóra Arnórsdóttir 33,16% samkvæmt lokatölum sem birtust um klukkan hálfátta í morgun á kosningavef RÚV. Ólafur Ragnar hefur því verið endurkjörinn forseti Íslands til næstu fjögurra ára. Ari Trausti Guðmundsson hlaut 8,64%, Herdís Þorgeirsdóttir 2,63%, Andrea Ólafsdóttir 1,8% og Hannes Bjarnason 0,98%. Heildarkjörsókn yfir landið allt var 69%. 1.7.2012 08:08
Boðar aukna þátttöku í opinberri umræðu Ólafur Ragnar Grímsson sagði í viðtali við Sigurjón M. Egilsson í Sprengisandi í morgun að það væri margan lærdóm hægt að draga af nýloknum forsetakosningum, en Ólafur Ragnar var endurkjörin með um 53 prósent atkvæða. Meðal annars sagði hann að almenningur kallaði eftir vitrænni samræðu og að tími auglýsinga og slagorða væri liðinn. 1.7.2012 12:02
Tólf látnir eftir storm í Bandaríkjunum Að minnsta kosti tólf eru látnir og yfir þrjár milljónir heimila og fyrirtækja eru án rafmagns í norðvesturhluta Bandaríkjanna eftir öflugan fellibyl sem gekk þar yfir. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Washington, Ohio og Virginíu vegna mikilla skemmda og hefur Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, heitið skjótri hjálp. 1.7.2012 10:07
Björn Valur: Lítill stuðningur hlýtur að vera áhyggjuefni Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, segir lítinn stuðning við endurkjörinn forseta hljóta að valda honum áhyggjum. Þannig skrifar hann á bloggsvæði sitt: 1.7.2012 09:58
Bein útsending frá úrslitum Landsmóts Úrslit Landsmóts hestamanna frá Víðidal verða send beint út á Vísi og Stöð 2 Sport og hefst útsendingin fimm mínútur í tíu. Kynnir verður Telma L. Tómasson fréttamaður og með henni verður Hafliði Halldórsson hestamaður, dómari og hrossaræktandi, sem mun skýra það sem fyrir augu ber, fara yfir keppnisreglur og greina frá ýmsum spennandi hliðum á hestamennsku og gæðingakeppni. 1.7.2012 09:30
Úðaði málningu á bíla Lögreglan í Hafnarfirði leitar að skemmdarvargi sem úðaði málningu á bifreiðar við Stórás í Hafnarfirði um miðnætti síðastliðna nótt. Þegar lögreglan kom á vettvang var vargurinn á bak og burt og er hans því leitað. Þá var einnig tilkynnt um rúðubrot á Dalshrauni í Hafnarfirði á svipuðum tíma og bílarnir voru skemmdir. 1.7.2012 09:29
Herdís sér ekki eftir neinu Herdís Þorgeirsdóttir forsetaframbjóðandi segist ekki sjá eftir neinu sem hún hafi gert á undanförnum mánuðum. 1.7.2012 03:10
Talningu atkvæða lokið í Reykjavík Búið er að telja atkvæði í Reykjavíkurkjördæmi suður. Alls hafa 30.837 atkvæði verið talin. Ólafur fékk flest atkvæði í kjördæminu. Næst á eftir honum kom Þóra Arnórsdóttir. 1.7.2012 02:46
Ari Trausti útilokar ekki framboð á ný Þótt Ólafur Ragnar Grímsson sé augljós sigurvegari kosninganna eru niðurstöðurnar ekki upplífgandi fyrir hann, segir Ari Trausti Guðmundsson, forsetaframbjóðandi. Hann útilokar ekki að bjóða sig fram til forseta aftur að fjórum árum liðnum. Ari Trausti ræddi við Jóhönnu Margréti Gísladóttur, fréttamann Stöðvar 2 og Vísis, um miðnættið í kvöld. 1.7.2012 02:21
Ólafur er sigurvegari kosninganna Ljóst er að Ólafur Ragnar Grímsson hefur verið endurkjörinn sem forseti lýðveldisins. Eins og staðan er núna á landinu öllu fær Ólafur 51,5% atkvæða. Þóra Arnórsdóttir fær 33,7% atkvæða. Ari Trausti er í þriðja sæti með 8,9%. Herdís og Andrea fá báðar 2,5% atkvæða og Hannes rekur lestina með minna en eitt prósent atkvæða. 1.7.2012 02:20
Fjallað um sigur Ólafs erlendis Fjallað er um íslensku forsetakosningarnar á forsíðu fréttamiðilsins BBC. Þar er því slegið fram að Ólafur eigi fyrir höndum fimmta kjörtímabilið á Bessastöðum og að Þóra hafi þegar lýst sig sigraða. 1.7.2012 01:51
Engar líkur að falsaðir seðlar séu í kössunum Katrín Theodórsdóttir, formaður yfirkjörsóknar í Reykjavíkurkjördæmi norður, segir hverfandi líkur á því að fölsuð atkvæði hafi komist í kjörkassana í forsetakosningunum í dag. 1.7.2012 01:33
Þóra: Sigur að ná þriðjungi atkvæða Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi og fjölmiðlamaður var kampakát eftir að fyrstu tölur voru kynntar í kvöld. "Það að ná meira en þriðjungi atkvæða er alveg ótrúlegur sigur,“ sagði hún í samtali við fréttamann á Stöð 2 og Vísi. Kjörsókn hefur verið afar dræm en Þóra sagðist ekki geta tjáð sig hvaða áhrif það hefði. "Hún hefur sjálfsagt eitthvað að segja en í hvaða átt get ég ekki sagt,“ sagði Þóra. 1.7.2012 01:18
Ólafur leiðir í Reykjavík Þegar 22.654 atkvæði hafa verið talin í Reykjavíkurkjördæmi norður leiðir Ólafur baráttuna með 45,1% fylgi. Þóra fylgir á hæla hans með 36,5%. 1.7.2012 01:08
Minna en helmingur kaus í Reykjavík norður Kosningaþáttakan var mjög lág í Reykjavíku norður kjördæmi. Þar mætti minna en helmingur kosningarbærra manna á kjörstað. 49,66% kusu. Í Reykjavíkurkjördæmi suður kusu 55,21%. 1.7.2012 00:56