Innlent

Þóra: Sigur að ná þriðjungi atkvæða

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi og fjölmiðlamaður var kampakát eftir að fyrstu tölur voru kynntar í kvöld. „Það að ná meira en þriðjungi atkvæða er alveg ótrúlegur sigur," sagði hún í samtali við fréttamann á Stöð 2 og Vísi. Kjörsókn hefur verið afar dræm en Þóra sagðist ekki geta tjáð sig hvaða áhrif það hefði. „Hún hefur sjálfsagt eitthvað að segja en í hvaða átt get ég ekki sagt," sagði Þóra.

Smelltu á hlekkinn „Horfa á myndskeið með frétt" til að sjá viðtal Jóhönnu Margrétar Gísladóttur við Þóru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×