Innlent

Engar líkur að falsaðir seðlar séu í kössunum

BBI skrifar
Katrín Theodórsdóttir, formaður yfirkjörsóknar í Reykjavíkurkjördæmi norður, segir hverfandi líkur á því að fölsuð atkvæði hafi komist í kjörkassana í forsetakosningunum í dag.

Fyrr í kvöld bárust fregnir af því að menn væru að dreifa kjörseðlum fyrir utan Ráðhúsið og hvetja fólk til þess að lauma fleiri en einum kjörseðli í kjörkassana. Að sögn Katrínar fór lögreglan í málið en ekkert kom í ljós.

Katrín segir að ekki sé fræðilegur möguleiki að neinum hafi tekist að ræna kjörseðlum af kjörstjórninni. Ef einhverjir hefðu hins vegar falsað kjörseðlana þá hefði það ekki farið framhjá kjörstjórninni við talningu. Því eru mjög litlar líkur á að fölsuð atkvæði hafi spillt kosningunum í Reykjavík.

„Þetta var því bara stormur í vatnsglasi held ég," segir Katrín.

Nú þegar hafa öll atkvæði verið talin í kjördæminu. Þar greiddu rétt yfir 30 þúsund manns atkvæði eða 67%. Það er fremur dræm kjörsókn. Í síðustu forsetakosningum var kjörsókn reyndar 63% en venjulega er hún töluvert hærri.


Tengdar fréttir

Lögreglan rannsakar kjörseðlamál

Formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavik norður hefur óskað eftir því að lögreglan rannsaki hvað veldur því að ungir menn stóðu í miðborg Reykjavíkur í dag og dreifðu seðlum. Eins og Morgunblaðið greindi frá er annað hvort um að ræða raunverulega kjörseðla, eða seðla sem líktust þeim gríðarlega mikið. Katrín Theodórsdóttir telur þó útilokað að mönnum hafi tekist að stela seðlum úr kjördeildum. Meiri líkur séu á að seðlarnir séu falsaðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×