Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þyrla sótti veikan sjómann Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, sótti veikan sjómann í gær af bát sem var að veiðum austur af Hornafirði. Hafði skipstjóri samband við Gæsluna klukkan 03.15 og fór þyrlan í loftið 30 mínútum síðar. 24.5.2012 07:00
Vill ekki gefa ungu fólki falsvonir Mögulegt er að lækka þurfi ávöxtunarkröfu lífeyrissjóðanna úr 3,5% vegna efasemda um að svo há ávöxtun geti náðst til langs tíma. Það er mikilvægt er að gefa ekki ungu fólki falskar vonir um lífeyri í framtíðinni, segir Þórey S. Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. 24.5.2012 07:00
Vill að borgin stöðvi háhýsi úr fortíðinni Íbúi í Vesturbænum vill að borgin hindri að sjö hæða hús rísi við höfnina. Byggingin var samþykkt 2006 en varð ekki meira en húsgrunnur fyrir hrunið. Þótt framkvæmdir séu ekki hafnar að nýju er byrjað að selja íbúðir í húsinu. 24.5.2012 06:30
Sterkt efni getur hæglega verið banvænt Hálft til eitt gramm af amfetamíni getur verið stórhættulegt börnum, til dæmis ef þau myndu gleypa það, að sögn Jakobs Kristinssonar, prófessors í eiturefnafræðum. Fréttablaðið spurði Jakob hvaða áhrif það gæti haft á fimm ára barn að innbyrða hálft til eitt gramm af amfetamíni. 24.5.2012 06:00
Veiðimenn vilja gott sambýli Borgarstjórn hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi sem gerir líkamsræktarfyrirtækinu Boot Camp kleift að hefja starfsemi í húsi Fornbílaklúbbs Íslands í Elliðaárdal. Fjórar vikur eru nú þar til laxveiðitímabilið í Elliðaánum hefst. 24.5.2012 06:00
Samstarf um norðurslóðamál Háskólinn á Akureyri og Háskóli Pierre et Marie Curie skrifuðu undir viljayfirlýsingu um samstarf í rannsóknum á þriðjudag. Áhersla samstarfsins verður á norðurslóðamál. 24.5.2012 05:30
Gamla lánið er enn hagstæðast Stjórn Faxaflóahafna hafnar öllum átta tilboðunum sem bárust í endurfjármögnun á langtímaláni. Að sögn Gísla Gíslasonar hafnarstjóra var umrætt lán tekið árið 2006 til tuttugu ára. Það stendur í dag í um 1.200 milljónum króna. Vextirnir eru 4,6 prósent auk verðtryggingar. 24.5.2012 05:30
Borgin byggir upp skólalóðir Sett verða upp ný boltagerði við tvo grunnskóla í Reykjavík í sumar; Breiðagerðisskóla og Foldaskóla. Stefnt er að því að ljúka framkvæmdum í sumar. Einnig verða gerðar endurbætur á lóðum Hamraskóla, Réttarholtsskóla og Seljaskóla. 24.5.2012 05:30
Frakkar stórir í þorskkaupum Fiskkaupendur í Frakklandi keyptu á fyrsta ársfjórðungi þessa árs 45% meira af ferskum þorski en á sama tíma í fyrra og um 90% meira af ýsu. 24.5.2012 05:30
Eiga 25.000 skópör á lagernum Ný íþróttavöruverslun undir merkjum Sports Direct opnar við Smáratorg í Kópavogi á laugardag. Sports Direct er stærsta íþróttaverslanakeðja Bretlands og er í eigu auðkýfingsins Mikes Ashleys. 24.5.2012 05:00
ESA skýrir samkeppnisreglur sínar ESA, eftirlitsstofnun EFTA, hefur tekið upp nýjar reglur sem skýra eiga hvenær samkeppnisaðilar mega eiga í samstarfi og hvers lags samráð rúmist innan ramma Samningsins um evrópska efnahagssvæðið. 24.5.2012 05:00
Annþór og Börkur harðneita allri sök Tveir kunnir ofbeldismenn og refsifangar á Litla-Hrauni neita því alfarið að bera ábyrgð á dauða samfanga síns. Dómari kveður upp úr með gæsluvarðhald í dag. Fangelsisstjóri á Litla-Hrauni segir erfitt að taka á hættulegum föngum. 24.5.2012 05:00
Alls eru 94 stjórnarfrumvörp óafgreidd Samkvæmt starfsáætlun verður þingi frestað 31. maí og því aðeins fjórir þingdagar eftir. Fyrir þingi liggja 94 stjórnarfrumvörp og af þeim hafa 27 ekki enn verið tekin til fyrstu umræðu. Umræður um þjóðaratkvæðagreiðslu um drög að stjórnarskrá hafa tekið tæpar 50 klukkustundir og hefur meiri tími farið í andsvör en þingræður. 24.5.2012 04:30
Aðalstigi fæst ekki færður Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hefur hafnað veitingu leyfis fyrir ýmsum breytingum innandyra á Fríkirkjuvegi 11. Novator, félag Björgólfs Thors Björgólfssonar, vildi færa aðalstiga milli hæða ásamt ýmsum öðrum breytingum. 24.5.2012 04:30
Sóldögg kemur fram á Bestu útihátíðinni „Það verður löðrandi nostalgía á Bestu útihátíðinni í sumar." Þetta segir Bergsveinn Arilíusson, forsprakki hljómsveitarinnar Sóldögg en hún mun koma saman eftir langt hlé á hátíðinni í sumar. 23.5.2012 22:37
Krefjast þingrofs og kosninga á mismunandi forsendum "Þetta hefur ekkert með stjórnmálaflokka að gera,“ segir Ásta Hafberg, en hún talar fyrir hönd aðgerðarhóps sem stendur að baki undirskriftarsöfnun þar sem farið er fram á þingrof og að kosið verði til Alþingis sem fyrst. 23.5.2012 21:30
Nærmynd af Ara Trausta Vísindamanninum, rithöfundinum og forsetaframbjóðandanum Ara Trausta Guðmundssyni er lýst sem heiðarlegum, víðsýnum og kærleiksríkum af vinum og fjölskyldu. Ísland í dag ræddi við nánasta fólk Ara í dag. 23.5.2012 21:15
Innan við 10 manns á ári myndu nýta sér staðgöngumæðrun "Í mínu starfi hef ég hitt mörg pör sem eiga þann draum að eignast börn,“ segir Guðmundur Arason, frjósemislæknir hjá Art Medica. "Það er ein af frumþörfum hvers einstaklings að geta barn.“ 23.5.2012 21:00
Kvótalaus útgerðarmaður fer í olíuleit í Drekasvæðinu Útgerðarmaður kvótalauss fiskiskips úr Vestmannaeyjum ætlar næstu þrjá mánuði að nýta skipið til olíuleitar á Jan Mayen-hryggnum og segir milljarða tækifæri bíða Íslendinga á þessu sviði. Akureyri á von á umtalsverðum þjónustutekjum í sumar. Sennilega halda margir að olíuleit sé eitthvað sem er langt inni í framtíðinni hjá Íslendingum. 23.5.2012 20:30
Berst fyrir bættum hag útigangsmanna Ung kona sem missti vin sinn, þrjátíu og tveggja ára gamlan útigangsmann, berst fyrir því að opnað verði nýtt skýli fyrir útigangsfólk. Eftir andlát vinar hennar skrifaði hún borgarstjóra bréf, en ekkert hefur breyst. 23.5.2012 20:00
Hannes og Ástþór fá frest fram á föstudag til að skila meðmælum Yfirkjörstjórnir Reykjavíkurkjördæma norður og suður hafa staðfest meðmælenda lista frambjóðenda til forsetakosninganna. 23.5.2012 19:52
Tvöfaldur pottur í Víkingalottóinu í næstu viku Fyrsti vinningur gekk ekki út í Víkingalottóinu í kvöld. Vinningstölurnar voru 11, 21, 23, 42, 44, 47. Þá voru bónustölurnar 2 og 5 en ofurtalan var 45. 23.5.2012 19:38
Erfðabreyttar mýs í tilraunir Íslenskt rannsóknarfyrirtæki hefur fengið leyfi til að nota erfðabreyttar mýs í tilraunir. Mýsnar verða notaðar ásamt rottum til að rannsaka sykursýki. 23.5.2012 19:30
Segjast hafa reynt að aðstoða fangann Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson segja engar barsmíðar hafa átt sér stað inni í fangaklefa fanga sem lést þar í síðustu viku. Honum hafi verið ómótt og þeir hafi einungis verið að aðstoða hann. Tvímenningarnir voru leiddir fyrir dómara í dag þar sem farið var fram á gæsluvarðhald. 23.5.2012 18:45
Átján ára ökumaður ákærður fyrir manndráp af gáleysi Átján ára piltur hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Farþegi í bíl hans, Eyþór Darri Róbertsson, lést eftir alvarlegan árekstur. Pilturinn var próflaus þegar slysið varð. 23.5.2012 18:45
Unnu sem verktakar fyrir sérstakan saksóknara Tveir lögreglumenn hafa verið kærðir til ríkissaksóknara fyrir brot á þagnarskyldu í starfi fyrir embætti sérstaks saksóknara. Málið gæti skaðað rannsóknir mála sem mennirnir tveir komu að, en þær tengdust fjárfestingafélaginu Milestone. 23.5.2012 18:30
Krafist þingrofs í undirskriftasöfnun Óskað er eftir þingrofi og kosningum í undirskriftasöfnun sem hófst í dag. Á vefsíðunni er skorað á Jóhönnu Sigurðardóttir, forsætisráðherra, að ganga til fundar við forseta Íslands og biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt. 23.5.2012 18:22
Páll Óskar telur Ísland sigurstranglegt í Eurovision "Þetta var stórkostlegur flutningur,“ segir Páll Óskar en hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann var beðinn um að gefa álit sitt á frammistöðu Jónsa og Grétu í undankeppni Eurovision í gær. 23.5.2012 17:30
Sérstakur saksóknari kærir tvo starfsmenn sína til ríkissaksóknara Tveir lögreglumenn, fyrrum starfsmenn embættis sérstaks saksóknara, hafa verið kærðir til ríkissaksóknara vegna brots á þagnarskyldu. Mennirnir, sem létu af störfum um síðustu áramót, eru kærðir fyrir að hafa látið þriðja aðila í té upplýsingar úr rannsókn máls sem þeir unnu að á sama tíma og þeir störfuðu fyrir sérstakan saksóknara. Samkvæmt heimildum Vísis snertir þetta málefni Milestone, sem áður var í eigu Karls Wernerssonar, en það fyrirtæki hefur verið til rannsóknar undanfarna mánuði. 23.5.2012 16:38
Gunnar Birgisson íhuga að áfrýja Gunnar I. Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri í Kópavogi og stjórnarformaður Lífeyrissjóðs Kópavogs, íhugar alvarlega að áfrýja dómi sem kveðinn var upp yfir honum í gær vegna brota tengdum störfum hans fyrir Lífeyrissjóðinn. Hann var dæmdur til að greiða 150 þúsund krónur fyrir að gefa Fjármálaeftirlitinu villandi upplýsingar um lánveitingar sjóðsins til bæjarsjóðs. Gunnar segist vera saklaus af sakargiftum ríkissaksóknara og hann hafi þar af leiðandi búist við sýknu í öllum ákæruliðum. Hann hafi verið sýknaður af aðalákæruliðnum. 23.5.2012 16:08
Krefjast gæsluvarðhalds yfir Annþóri og Berki Annþór Karlsson og Börkur Birgisson voru færðir fyrir dómara nú á fjórða tímanum en krafist verður gæsluvarðhalds á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Þetta er gert til þess að hægt sé að halda þeim áfram í einangrun á meðan rannsókn málsins stendur yfir. Mennirnir eru grunaðir um að hafa myrt samfanga sinn á fimmtudag í síðustu viku. Samkvæmt heimildum Vísis úr fangelsismálakerfinu var hinn látni með innvortis áverka sem hann hefði ekki með neinum hætti getað fengið nema að utanaðkomandi aðili hafi veitt honum þá. Annþór og Börkur voru færðir í einangrun í gær eftir að krufningaskýrsla lá fyrir. Þeir höfðu áður verið í fangelsinu að afplána refsidóma sem þeir fengu fyrir eldri brot. 23.5.2012 16:03
Füle kemur til Íslands Štefan Füle, framkvæmdastjóri stækkunar- og nágrannastefnu Evrópusambandsins, verður í heimsókn á Íslandi á morgun og föstudag til að ræða um starfið sem framundan er í aðildarviðræðunum. Nú hafa fimmtán samningskaflar verið opnaðir í samningaviðræðum Íslands og Evrópusambandsins, tíu hefur þegar verið lokað til bráðabirgða og undirbúningur er hafinn að því að fást við næstu kafla. 23.5.2012 14:50
Munu opna Boot Camp í Elliðaárdal Eigendur Boot Camp munu geta opnað líkamsræktarstöð í Elliðaárdal í sumar. Þetta var ljóst þegar borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti breytingu á deiliskipulagi að Rafstöðvarvegi 9 og 9a á fundi sínum í gær. 23.5.2012 14:44
Allt að 25 stiga hita spáð um næstu helgi Allt að 25 stiga hita er spáð á landinu um næstu helgi. Það er hvítasunnuhelgin og má búast við að hún verði fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins. 23.5.2012 14:22
Á annan tug ökumanna stöðvaður Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði á annan tug ökumanna í gær og fyrradag. Þessir ökumenn voru allir á bílum á nagladekkjum en það er óheimilt á þessum árstíma. Nú ber að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk og því kemur trassaskapurinn verulega við pyngjuna hjá áðurnefndum ökumönnum. Lögreglan ítrekar þau tilmæli til eigenda og umráðamanna ökutækja sem eru búin nagladekkjum að gera þar bragarbót á. 23.5.2012 13:49
Vill að Alþingi beiti sér í málum Asera og Armena Zakir Jón Gasanov, formaður Vináttufélags Íslands og Aserbaídsjan, hvetur Alþingi Íslendinga til þess að beita sér til þess að lausn fáist í deilum Asera við nágranna þeirra Armena. 23.5.2012 13:41
Skuldamál Regnbogabarna fyrir dóm Höfundur barnabókar um forvarnir gegn einelti hefur stefnt Regnbogabörnum fyrir að hafa ekki greitt sér fyrir bókina. Regnbogabörn fara fram á að málinu verði vísað frá dómi. 23.5.2012 12:15
Tæplega 4 ára fangelsi fyrir vopnuð rán Liðlega þrítugur karlmaður, Mark Gunnar Roberts, hefur verið dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir rán sem framin voru í þremur verslunum 1. febrúar síðastliðinn. Í öllum tilfellum ógnaði hann starfsfólki með sprautunálum og hótaði að smita með HIV veirunni ef hann fengi ekki peninga úr versluninni. Mark Gunnar á að baki fjölmörg hegningarlagabrot og var á skilorði þegar hann framdi brotin. Hann hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því að hann framdi ránin. 23.5.2012 11:35
Annþór og Börkur í yfirheyrslum í dag Þeir Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson sem eru grunaðir um að hafa orðið samfanga sínum að bana á Litla Hrauni í síðustu viku eru til yfirheyrslu hjá lögreglunni á Selfossi núna og verða yfirheyrðir fram eftir degi. Maðurinn lést á fimmtudag en hann var nýkominn í fangelsið. 23.5.2012 10:27
Sótti veikan sjómann Sjómaður veiktist alvarlega um borð í íslensku nótaskipi austur af Hornafirði í nótt og óskaði skipstjórinn eftir þyrlu til að flytja hann á sjúkrahús. Gæsluþyrla var send austur í nótt og hífði sjómanninn um borð undir morgun. 23.5.2012 07:08
Presley kom til bjargar - dró bát til Grindavíkur Hætta skapaðist í nótt þegar vélin bilaði í litlum fiskibáti með einum manni um borð, þegar báturinn var staddur skammt undan Reykjanesi og tók að reka í átt að grýttri ströndinni. 23.5.2012 07:04
Þyrla slökkti mosaeld með fötu TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, aðstoðaði Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins við að slökkva eld í mosa í Kapelluhrauni á mánudag. Til verksins var nýttur búnaður sem var keyptur fyrir þyrluna eftir sinubrunann mikla á Mýrum vorið 2006. 23.5.2012 07:00
Ítreka kröfu um hraðari viðræður Þingmaður Vinstri grænna vill kosningar um aðild að ESB í ár. Ráðherra tekur undir. Verði breytingartillaga Vigdísar Hauksdóttur um kosningar um framhald viðræðna í haust samþykkt styður Framsókn kosningar um stjórnarskrá. 23.5.2012 06:30
Undirmenn borgarstjóra átta í stað átján Teknar voru til afgreiðslu tillögur um einföldun á stjórnkerfi Reykjavíkurborgar á aukafundi borgarstjórnar í gær. Einnig var afgreidd stofnun embættis umboðsmanns borgarbúa. 23.5.2012 06:30
Hærri gjaldskrár en heimsóknum fjölgar Samningsleysi Sjúkratrygginga við sérfræðilækna hefur í för með sér hærri gjöld. Fjórði hver Íslendingur frestaði nauðsynlegri læknisþjónustu árin 2006 og 2007. Finnum fyrir auknum þrýstingi, segir kynningarfulltrúi Sjúkratrygginga. 23.5.2012 06:00