Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Alræmdir hrottar í haldi vegna andláts Annþór Karlsson og Börkur Birgisson færðir af almennri deild á Litla-Hrauni í einangrun. Taldir hafa veitt samfanga sínum áverka sem drógu hann til dauða. 23.5.2012 05:00
Sinueldur í Hafnarfirði - slökkvistarfi lokið Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur ráðið niðurlögum sinuelds sem kom upp við Breiðhellu í Hafnarfirði fyrr í kvöld. Ekki var um mikinn eld að ræða og voru slökkviliðsmenn snöggir að ná tökum á honum. 22.5.2012 23:17
Mögulegt að rækta kaffi, sykurmaís og kakóbaunir hér á landi Guðríður Helgadóttir hjá Landbúnaðarskólanum að Reykjum var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis í dag. Þar ræddi hún um ýmiskonar ræktun sem mætti reyna á Íslandi. 22.5.2012 22:15
Of Monsters and Men með bestu plötuna samkvæmt Amazon Stærsta vefverslun veraldar, Amazon, hefur valið plötuna My Head is an Animal eftir íslensku hljómsveitina Of Monsters and Men sem bestu hljómplötuna það sem af er árinu. 22.5.2012 21:30
Höfum almennt verið heppin Íslensk umræða um útlendinga er frumstæð og stjórnmálaflokkar þurfa að marka sér stefnu í málaflokknum. Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddi við Kristínu Völundardóttur, forstjóra Útlendingastofnunar, um hælisleitendur, fjársvelti og umræðuna. 22.5.2012 22:00
Ákvörðun um áfrýjun tekin í kvöld Gunnar Birgisson, fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogs, vill ekki tjá sig um niðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness í dag. Gunnar og Sigrún Ágústa Bragadóttir voru dæmd til að greiða 150 þúsund krónur í sekt vegna brota tengdum störfum þeirra fyrir Lífeyrissjóð starfsmanna Kópavogs. 22.5.2012 21:37
Catalina á leið til Íslands Catalina-flugbátur er væntanlegur til Íslands á fimmtudag og verður hann hápunkturinn á flugdegi sem Flugmálafélag Íslands heldur á Reykjavíkurflugvelli á laugardag í tilefni af 75 ára afmæli Icelandair. Þetta verður í fyrsta sinn í áratugi sem almenningi hérlendis gefst kostur á því að skoða í návígi og sjá Catalinu á flugi, að sögn Matthíasar Sveinbjörnssonar, stjórnarmanns í Flugmálafélaginu. 22.5.2012 21:00
Ísland komst áfram Gréta Salóme og Jónsi komust áfram á úrslitakvöld söngvakeppni Eurovision í Bakú í Aserbaídsjan. Ljóst var að lagið Never Forget, sam Gréta samdi, færi áfram þegar þriðja umslagið var opnað. 22.5.2012 20:46
Kornsnákur fannst í austurborginni Kornsnákur fannst í húsi í austurborginni um helgina. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók snákinn í vörslu en skriðdýrið var síðan flutt á dýraspítala. Snákurinn er rúmlega metri á lengd. 22.5.2012 20:45
Málþófi á Alþingi lokið - Atkvæði um stjórnlagaráð greidd á fimmtudag Samkomulag náðist á sjötta tímanum á milli stjórnarflokkana og stjórnaraðstöðunnar um að ljúka umræðum um stjórnlagaráð. Sá þingmaður sem oftast talaði í umræðunum fór alls 115 sinnum í pontu. 22.5.2012 20:30
Ættleiðingaráform í uppnámi: "Við fáum engin svör" Ungt par sem er í óvissu með ættleiðingarmál sitt hér á landi íhugar að leita út fyrir landsteinana til að láta draum sinn rætast þrátt fyrir mikinn aukakostnað og umstang. Óvissan sé hræðileg og engin svör berist frá innanríkisráðherra. 22.5.2012 19:45
Flutningur Grétu og Jónsa gekk vel - Svartfjallaland vekur athygli Íslenski Eurovision-hópurinn stóð sig með stakri prýði þegar þau stigu á svið í Kristalshöllinni í Bakú í kvöld. Þau Gréta Salóme og Jónsi voru önnur í röðinni en það var Svartfjallaland sem opnaði söngvakeppnina í ár. 22.5.2012 19:42
Vilja rigningu til að skola Grímsvatnaöskunni burt Úrhellsrigningar er það sem bændur í Skaftárhreppi óska sér nú heitast til að losna við öskuna úr Grímsvötnum. Undir Eyjafjöllum er verið að setja Svaðbælisá í nýjan farveg og með því vonast menn til að vandræðin sem hlutust af eldgosinu úr Eyjafjallajökli verði að mestu úr sögunni. 22.5.2012 19:11
Meirihluti fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu vegna ESB-aðildar Nýr meirihluti myndaðist í morgun í utanríkismálanefnd fyrir því að vísa umsókn um aðild að ESB í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir áramót. Málið mun hafa komið viðkvæmri sátt í fleiri málum milli stjórnarflokkanna í algjört uppnám. 22.5.2012 19:00
Óvæntur glaðningur fylgir íslenska laginu í Eurovision Evrópubúar mega búast við óvæntum og hjartnæmum glaðningi frá íslenska Eurovision-hópnum sem stígur á svið í Bakú eftir stutta stund. Fréttamaður ræddi við Jónsa sem var á leið í tónleikahöllina fyrir stuttu. 22.5.2012 18:30
Annþór og Börkur í einangrun Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson sem afplána nú dóma á Litla-Hrauni hafa verið settir í einangrun grunaðir um að hafa veitt öðrum fanga áverka sem leiddu hann til dauða. Ekki hefur verið tekin skýrsla af mönnunum sem eru þekktir afbrotamenn. 22.5.2012 17:58
Gréta Salóme: Síðasta rennsli fyrir keppni gekk vel „Það er alveg svakalega góð stemning hérna," segir Gréta Salóme Stefánsdóttir, lagahöfundur og annar flytjandi íslenska Eurovision lagsins. Þáttastjórnendur útvarpsþáttarins Reykjavík síðdegis ræddu við Grétu í dag en hún var þá nýstigin af sviði í Bakú. 22.5.2012 17:12
Fangar grunaðir um morð Tveir fangar á Litla-Hrauni voru færðir í einangrun síðdegis, grunaðir um að bera ábyrgð á dauða samfanga. Karlmaður um fimmtugt lést í fangelsinu í síðustu viku eins og Vísir greindi frá. Þá var talið að andlátið hefði ekki borið að með saknæmum hætti. 22.5.2012 16:24
Skiptar skoðanir í utanríkismálanefnd um framhald ESB-viðræðna Árni Þór Sigurðsson formaður utanríkismálanefndar vill halda aðildarviðræðum við Evrópusambandið áfram. Kosið verði um aðild þegar samningur er til lykta leiddur. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingmaður VG, lagði fram bókun á fundi utanríkismálanefndar í morgun þar sem hún fer fram á að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið fyrir lok þessa árs. Fréttastofa RÚV greindi frá því í dag að hugsanlega sé meirihluti í nefndinni fyrir þessari tillögu Guðfríðar, en þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hafa gagnrýnt aðildarviðræðuferlið harðlega. 22.5.2012 15:17
Gunnar Birgisson dæmdur til að greiða sekt Gunnar Birgisson og Sigrún Ágústa Bragadóttir voru dæmd til að greiða 150 þúsund krónur í sekt í Héraðsdómi Reykjaness í dag vegna brota tengdum störfum þeirra fyrir Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogs. Þeim var ekki gerð refsing að öðru leyti og aðrir stjórnarmenn í sjóðnum voru sýknaðir af ákæru. 22.5.2012 13:53
Fjármögnun Vaðlaheiðaganga verði rædd í vikunni Stefnt er að því að hægt verði að taka fjármögnun Vaðlaheiðaganga á dagskrá þingsins í vikunni. Framkvæmdin hefur verið umdeild, áætlaður kostnaður við byggingu þeirra er um 8,7 milljarðar. Vonast er til þess að féð verði greitt til baka á komandi árum, svo sem í gegnum veggjöld en óvissa hefur verið um fjármögnun verkefnisins. 22.5.2012 13:11
Rússnesku ömmurnar hafa mikið fylgi Eurovisionfarinn Greta Salóme Stefánsdóttir gefur lítið fyrir spádóma um úrslit Eurovisionkeppninnar. Íslenski hópurinn stígur á svið eftir um sjö klukkustundir og allt er að verða tilbúið fyrir stóru stundina. Hið svokallaða dómararennsli fór fram í gær sem gekk vel að sögn Gretu Salóme. 22.5.2012 12:59
Morðingi í dómi: Djöfuls viðbjóður - fokkaðu þér Kröfu um að réttarhöld yfir Hlífari Vatnari Stefánssyni yrði lokuð var hafnað í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Það voru lögmenn aðstandenda hinnar látnu sem báru kröfuna fram og tók verjandi Hlífars undir þá kröfu. Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari hafnaði hins vegar kröfunni. 22.5.2012 11:34
Verjandi meints morðingja vill lokað réttarhald Lögmaður fjölskyldu Þóru Eyjalínar Gísladóttur, sem var myrt í Hafnarfirði í febrúar á þessu ári, krefst þess að réttarhöldin yfir meintum morðingja verði lokuð. Þetta kom fram við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. 22.5.2012 10:55
74% brota framin á höfuðborgarsvæðinu Um 74% hegningarlagabrota sem framin voru á fyrstu fjórum mánuðum ársins voru framin á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkislögreglustjóra um afbrotatölfræði. Alls voru framin 3.700 hegningarlagabrot og þar af voru 2.722 brot á höfuðborgarsvæðinu. Næstflest brot voru skráð hjá lögreglunni á Suðurnesjum eða 7% brota og þar á eftir fylgir lögreglan á Akureyri með 5% hegningarlagabrota. Þá voru 4% allra hegningarlagabrota skráð hjá lögreglunni á Selfossi. Fjögur lögregluembætti hafa því sinnt 90% hegningarlagabrota. 22.5.2012 10:18
Sendiherra Þýskalands gagnrýnir „aðalritstjóra“ Morgunblaðsins Sendiherra Þýskalands á Íslandi, Hermann Sausen, segir í opnu bréfi til "aðalritstjóra" Morgunblaðsins í dag, að hann furði sig mjög á þeirri fullyrðingu sem fram hafi komið í ritstjórnargrein í Morgunblaðinu 14. maí, að sendiherra ESB á Íslandi hafi blandað sér í innanríkismál og þannig brotið gegn umboði sínu sem erlendur sendiráðsmaður. „Að slík ásökun skuli koma frá ritstjórn virts dagblaðs í sjálfsöruggu lýðræðisríki eins og Íslandi sem er nátengt ESB, m.a. með aðild sinni að EES, gerir hana þeim mun óskiljanlegri og fjandsamlegri," segir Sausen m.a. í grein sinni. 22.5.2012 09:22
Regnið dró úr öskuskýinu Ryk- og öskumengun í lofti á Suður- og Suðvesturlandi hefur hríðfallið frá því sem verst var í gærkvöldi, eftir að rigna tók á Suðurlandi í gærkvöldi. 22.5.2012 09:02
Ekkert verður af því að Hreyfingin styðji stjórnina Ekkert verður af því að þingmenn Hreyfingarinnar samþykki að verja ríkisstjórnina falli. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá þingflokknum sem barst í morgun en viðræður hafa staðið í nokkra daga. "Því miður náðist ekki samkomulag og er viðræðunum lokið af okkar hálfu. Þar sem samningar hafa ekki tekist liggur ekki fyrir neitt samkomulag um að við verjum ríkisstjórnina vantrausti,“ segir í tilkynningunni en viðræðurnar voru sagðar "óbeint framhald“ funda sem haldnir voru um síðustu áramót og skiluðu ekki heldur niðurstöðu. 22.5.2012 07:07
Umræðu á Alþingi frestað á ný Síðari umræðu um þingsályktunartillögu um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá var frestað skömmu fyrir miðnætti í kvöld. 22.5.2012 00:31
Samstaða vill að ríkisstjórnin víki Stjórn Samstöðu, flokks lýðræðis og velferðar, krefst þess í yfirlýsingu sem flokkurinn sendi frá sér í gærkvöldi að ríkisstjórnin víki hið fyrsta og bvoðað verði til kosninga. 22.5.2012 08:40
Öryggisbúnaður og kunnátta skipta öllu Öryggisbúnaður og kunnátta í því að nota slíkan búnað skipta sköpum þegar óvænt hættuástand skapast á fjöllum. Það segir Smári Sigurðsson, þaulvanur vélsleðamaður, en hann lenti í háska í fjallaferð í síðustu viku. 22.5.2012 06:30
Yfirtaka ÍLS á lánum lífeyrissjóða skoðuð Starfshópur skoðar nú ýmsar útfærslur á því að Íbúðalánasjóður taki yfir lánsveðslán lífeyrissjóðanna. Ráðherra útilokar enga leið sem geti leyst hútinn. Lífeyrissjóðirnir vilja ekki fella niður lánin þar sem lög heimila þeim það ekki. 22.5.2012 06:00
Vísbendingar um sérlausnir Vísbendingar eru um það í opnunarviðmiðum Evrópusambandsins (ESB) fyrir þann hluta aðildarviðræðna sem snýr að landbúnaðarmálum að sérstakt tillit verði tekið til aðstæðna hér á landi í aðildarsamningi við Ísland. 22.5.2012 06:00
Segjast hafa lokað á sölu fisks frá Granda Hvalfriðunarsamtök fullyrða að þau hafi komið í veg fyrir sölu á fiski frá HB Granda á Ólympíuleikunum í London í sumar. Forsvarsmenn HB Granda koma af fjöllum. Samtökin hafa lengi barist gegn Granda vegna tengsla við Hval hf. 22.5.2012 05:30
Hefur ítrekað farið fram úr áætlunum Kostnaður við rekstur Lyfjastofnunar hefur verið umfram áætlanir þrjú af síðustu fjórum árum og stefnir allt í að sama muni gilda um yfirstandandi ár. Þetta kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar um rekstur stofnunarinnar. 22.5.2012 05:30
Mega geyma erfðabreytt fræ í Grindavík Líftækni hefur fengið leyfi frá Umhverfisstofnun fyrir geymslu og frævinnslu á erfðabreyttu byggi í húsnæði við Vörðusund 1 í Grindavík. Heimilt er að vinna með bygguppskeru frá ræktunarstöðum ORF Líftækni hf. 22.5.2012 05:30
ASÍ undirbýr málaferli gegn ríkinu vegna fjársýsluskatts Ríkið brýtur gegn jafnræðisreglu með innheimtu fjársýsluskatts frá lífeyrissjóðum segir forseti ASÍ. Hann segir að leysa þurfi vanda vegna lífeyrisskuldbindinga ríkisins eða hækka tekjuskatt um fjögur prósentustig. 22.5.2012 05:00
Eigum sameiginlega norðurslóðahagsmuni Tveir franskir vísindamenn eru staddir hér á landi til að efla samvinnu í vísindarannsóknum á norðurheimskautssvæðinu. Segja Ísland og Frakkland geta boðið hvort öðru upp á margt á hinu mikilvæga sviði loftslagsrannsókna. 22.5.2012 05:00
Grunaður morðingi fyrir dóm á morgun Ákæra gegn Hlífari Vatnari Stefánssyni verður þingfest í Héraðsdómi Reykjaness á morgun. Hlífar er grunaður um að hafa banað fyrrverandi unnustu sinni í Hafnarfirði í byrjun febrúar á þessu ári. 21.5.2012 20:12
Börðust við sinueld í fjóra tíma Sinueldur kviknaði í svæði við Krýsuvíkurveg á þriðja tímanum í dag. Töluverður fjöldi slökkviliðsmanna barðist við sinuna sem var meðal annars í mosa og því erfið viðureignar. Það tók slökkviliðsmennina um fjóra tíma að ráða niðurlögum eldsins. Slökkviliðið naut aðstoðar Landhelgisgæslunnar við verkið sem hellti vatni úr stórum poka sem hékk úr þyrlu Gæslunnar. 21.5.2012 19:35
Kærleikurinn og nándin sterkari eftir eldgosið Öskumistur sem blásið hefur yfir sunnanvert landið í dag minnti stóran hluta landsmanna á Grímsvatnagosið sem hófst á þessum degi í fyrra. Af Kambabrún mátti sjá að mistrið lá nokkuð þétt yfir Suðurlandsundirlendinu, austur í Vík var skyggnið vart nema um kílómetri, og á veginum milli Víkur og Skaftafells bara nokkrir tugir metra á köflum svo hægja þurfti ferðina. 21.5.2012 19:30
Ekki einfalt að skila undirskriftum - listarnir stundum ógildir Það er ekki einfalt að skila inn meðmælendalistum vegna framboðs til embættis forseta Íslands. Oddviti yfirkjörstjórnar í Reykjavík norður segir það hafa komið fyrir að listi frambjóðanda sé ógildur. 21.5.2012 18:53
Milljónum ríkari í Evrulandi Íslendingur sem tók húsnæðislán árið 2005 - væri fimmtán milljónum ríkari í dag ef honum hefðu boðist meðalvextir á slíkum lánum í Evruríkjunum. Þetta sýnir ný reiknivél Evrópusinna á www.jaisland.is. Ekki eru þó allir á einu máli um hvort reiknivélin gefur rétta mynd. 21.5.2012 18:45
Hælisleitandi neitaði aldursgreiningu - ekki lengur sérmeðferð Hælisleitandi sem hefur haldið því fram að hann sé undir átján ára aldri, neitaði í dag að gangast undir aldursgreiningu. Hann fær því ekki lengur sérmeðferð hjá Útlendingastofnun sem barn. Sex hælisleitendum er gert að gangast undir aldursgreiningu. Tveir þeirra hælisleitenda sem um ræðir voru nýverið dæmdir fyrir að koma hingað til lands með fölsuð skilríki, og dveljast þeir hjá fósturfjölskyldu. Hinir fjórir búa á FIT Hostel í Reykjanesbæ. Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, segir að fimm hælisleitendum hafi verið tilkynnt í dag um aldursgreininguna. "Fjórir samþykktu hana en einn hafnaði," segir hún. Ekki fæst uppgefið hver það er sem neitaði aldursgreiningu. Aldursgreiningin var kynnt þannig fyrir hælisleitendunum að ef þeir samþykktu ekki að gangast undir hana, jafngilti það viðurkenningu þeirra á því að þeir væru í raun orðnir lögráða. Þannig færi mál þeirra í hefðbundið ferli hælisleitenda og þeir hætta að njóta þeirrar sérmeðferðar sem börn njóta. Eins og fréttastofa hefur greint frá fer aldursgreiningin fram með því að meta þroska endajaxla, sem breytast mikið frá um þrettán ára aldir og til tvítugs. Eftir því sem fréttastofa kemst næst eru allir sem um ræðir ýmist frá Marokkó eða Alsír. Einn þeirra var stoppaður af þegar hann reyndi að gerast laumufarþegi með flutningaskipi Eimskipa nýverið. Hann er einn af þremur sem segjast vera sautján ára. Þá barst nýtt mál ungs hælisleitenda inn á borð Útlendingastofnunar í síðustu viku. Gert er ráð fyrir að honum verði á morgun tilkynnt krafa um aldursgreiningu. 21.5.2012 18:45
Mest tekið af þeim sem minnst hafa Tekjutenging ellilífeyris gerir það að verkum að mest er tekið af þeim sem minnst hafa, að sögn fyrrverandi forseta ASÍ. Hann sér eftir að hafa hvatt fólk til að greiða í lífeyrissjóð og vill sjá breytingu á kerfinu hið fyrsta. Í erindi sínu á ráðstefnu um lífeyrismál í dag sagðist Ásmundur Stefánsson fyrrverandi forseti ASÍ skilja þá sem velta fyrir sér af hverju þeir hafi greitt samviskusamlega í lífeyrissjóð þar sem tekjuskerðingin hafi leikið margan grátt. 21.5.2012 18:30