Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þóra ætlar í framboð - boðað til blaðamannafundar Þóra Arnórsdóttir ætlar að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands, samkvæmt heimildum Vísis. Í fréttatilkynningu frá stuðningsmönnum hennar er boðað til fundar í Hafnarborg í Hafnarfirði klukkan korter yfir fjögur í dag. 4.4.2012 10:21
Beðið eftir sýnum frá Svíþjóð og niðurstöðum úr geðrannsókn Gæsluvarðhald yfir karlmanni á þrítugsaldri, sem grunaður er um manndráp í Hafnarfirði í byrjun febrúar, rennur út í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu verður farið fram á áframhaldandi varðhald síðar í dag. 4.4.2012 10:04
Vilja ákvæði inn í stjórnarskrá Stjórn Samtakanna "78 skorar á Alþingi að gera lagaúrbætur til handa transfólki. Samtökin sendu frá sér yfirlýsingu í gær vegna þess að ungur transmaður var beittur ofbeldi á öldurhúsi í Reykjavík en fyrir þinginu liggur frumvarp um stöðu transfólks á Íslandi. 4.4.2012 07:30
Uppsóp er þrefalt á götum borgarinnar Vandséð er að tímaáætlanir haldi í vorhreinsun gatna í Reykjavík. Tíðarfar í vetur varð til þess að mun meira hefur safnast af sandi og drullu á götum borgarinnar. Jákvætt viðmót borgara sem færa bíla sína flýtir fyrir vinnunni. 4.4.2012 07:00
Unga fjölskyldufólkið aftur í utanlandsferðir Um 26.500 Íslendingar flugu af landi brott í mars. Það er um 17% aukning frá sama mánuði í fyrra. Unga fjölskyldufólkið virðist farið að ferðast aftur þó ferðamynstrið sé breytt segir forstjóri ferðaskrifstofu. Ferðirnar eru styttri. 4.4.2012 07:00
Þóra sögð ætla að tilkynna um framboð í dag Þóra Arnórsdóttir fréttamaður ætlar að tilkynna í dag um framboð sitt til embættis forseta Íslands. Þetta var fullyrt á mbl.is seint í gærkvöldi en þar er sagt að hún hafi þegar greint nánustu vinum sínum frá þessari ákvörðun sinni. Þóra hefur ítrekað verið nefnd sem mögulegur frambjóðandi og komið einna best út í þeim skoðanakönnunum sem gerðar hafa verið, ef frá er talinn sitjandi forseti Ólafur Ragnar Grímsson. 4.4.2012 06:39
Íslenskur minkur étur meiri fisk Mikilvægasta fæða íslenska minksins eru ýmsar tegundir fiska og fugla. Fæða minksins er þó mjög mismunandi eftir búsvæðum dýrsins, eftir árstíðum og kyni. Fiskur er stærri hluti fæðu minks hérlendis en í flestum sambærilegum rannsóknum erlendis. 4.4.2012 06:30
Íslensk kúabú bæta heimsmet Hlutfall mjólkur sem kemur frá búum með mjaltaþjóna er hæst í heimi hér á landi, eða 28,2 prósent. Frá þessu er greint á vef Landssambands kúabænda og vitnað í tölur NMSM, samtaka norrænna afurðastöva í mjólkuriðnaði. 4.4.2012 06:00
Helsti óvissuþáttur í spá um þróun íbúðaverðs Fjöldi íbúða í eigu fjármálastofnana er einn helsti óvissuþátturinn í spá greiningardeildar Íslandsbanka um þróun íbúðaverðs. Í lok síðasta árs voru um þrjú þúsund íbúðir í eigu fjármálastofnana, þar af 1.600 í eigu Íbúðalánasjóðs. 4.4.2012 06:00
Fiskveiðarnar þurfi ekki að verða hindrun „Ég er bjartsýnn á að viðræður um fiskveiðimál geti skilað hagstæðri niðurstöðu fyrir bæði Ísland og Evrópusambandið,“ segir Evrópuþingmaðurinn Christian Dan Preda í samtali við Fréttablaðið. 4.4.2012 06:00
Hæsta sekt sinnar tegundar Samkeppniseftirlitið hefur ákveðið að leggja 440 milljóna króna sekt á Símann fyrir brot á samkeppnislögum. 390 milljónir eru vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu og brot gegn ákvæðum EES-samningsins og fimmtíu milljónir vegna rangrar og misvísandi upplýsingagjafar til yfirvalda við meðferð málsins. Sektin er sú hæsta sem lögð hefur verið á fyrirtæki á Íslandi vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu. 4.4.2012 06:00
Bæta við tveimur flugvélum Icelandair mun bæta tveimur vélum í flugvélaflota sinn og verða með sextán vélar í rekstri næsta sumar, en vélarnar voru fjórtán síðasta sumar. 4.4.2012 05:30
Ekki hægt að tala um fólksflótta héðan Brottflutningur frá Íslandi er síst meiri nú en á öðrum samdráttarskeiðum samkvæmt nýrri skýrslu. Atvinnuleysi á Evrópska efnahagssvæðinu hefur áhrif á að hvorki Íslendingar né útlendingar fari í meiri mæli til annarra landa. 4.4.2012 05:30
Um helmingur skulda eru bílalán Skuldir vegna bílalána áttu stóran þátt í að koma heimilum í greiðsluvanda. Ári eftir hrun áttu heimili sem voru í erfiðleikum með að greiða af lánum, rúman helming allra bílaskulda. Velferðarráðherra segir ekki réttlætanlegt að ríkið bjargi fólki úr skuldum vegna bíla og annarrar neyslu. 4.4.2012 19:00
Rúmlega 40 kannabisplöntur fundust á Selfossi Töluvert magn kannabisplantna fannst í einbýlishúsi á Selfossi í dag. Lögreglan uppgötvaði plönturnar eftir að fíkniefnahundur hafði runnið á lyktina. 3.4.2012 22:09
Leggja til að Alþingi þrýsti á bresk stjórnvöld vegna Sellafield Verði þingsályktunartillaga sem nú liggur fyrir á Alþingi samþykkt mun ríkisstjórnin þrýsta á bresk stjórnvöld og stjórnendur kjarnorkuendurvinnslustöðvarinnar í Sellafield til að minnka umfang hágeislavirks vökva sem geymdur er í stöðinni. 3.4.2012 20:45
Óttast ekki komu Bauhaus Átök eru framundan á byggingarvörumarkaði nú þegar Bauhaus hefur boðað komu sína. „Markaðurinn er of lítill nú þegar," sagði Baldur Björnsson hjá Múrbúðinni. Hann var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 3.4.2012 19:22
Hætta á að aukin tæknivæðing leiði til verri aðbúnaðar Sú hætta er fyrir hendi að aukin tæknivæðing í íslenskri nautgríparækt leiði til versnandi aðbúnað mjólkurkúa. Þetta kemur fram í máli fulltrúa Bændasamtakanna. 3.4.2012 19:15
Unnu eitt stærsta björgunarafrek Íslandssögunnar Fimmtán ára drengur og fjölskylda hans unnu eitt stærsta björgunarafrek Íslandssögunnar þegar breskur herflokkur lenti í hrakningum í aftakaveðri á Eskifjarðarheiði. Heimildarmynd um atvikið var frumsýnd á Eskifirði um helgina en það var dagskrárgerðarmaðurinn Þorsteinn J. sem annaðist framleiðslu hennar. 3.4.2012 19:09
Hundurinn hafði áður drepið Eigandi læðunnar kærði í gær eiganda hundsins Birnu til lögreglu en þessi sama tík réðist á og drap kött í Dofraborgum í Grafarvogi fyrir um árið. Það atvik var einnig kært til lögreglu en endaði með dómssátt. Í samtali við fréttastofu í dag sagði nágranni, sem varð vitni að þeirri árás, hundana hafa ógnað bæði eiganda kattarins og þeim sem komu honum til hjálpar. 3.4.2012 18:37
Tekjuhæstu fá mest afskrifað Sértækar aðgerðir ríkisstjórnarinnar gegn greiðsluvanda komu helst að gagni þeim sem alls ekki voru í slíkum vanda. Þetta er mat hagfræðinga Seðlabankans. Velferðarráðherra tekur fyrir að þetta sé áfellisdómur yfir aðgerðunum. 3.4.2012 18:30
Útlit fyrir gott ár í ferðaþjónustu Útlit er fyrir að afar gott ár í ferðaþjónustu, og er áætlað að gjaldeyristekjur geti farið yfir 200 milljarða króna á þessu ári. Átakið Ísland allt árið hefur þegar skilað góðum árangri, segir framkvæmdastjóri Icelandair, en erlendum ferðamönnum hefur fjölgað um 20 prósent það sem af er ári, miðað við árið á undan. 3.4.2012 18:17
Eldur kom upp í Vesturbergi Eldur kom upp í íbúðarhúsæði við Vesturberg í Reykjavík fyrir stuttu. Maður og kona voru flutt á slysadeild Landsspítala en grunur leikur á að þau hafi orðið fyrir reykeitrun. 3.4.2012 18:11
Síminn áfrýjar niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins Síminn mun skjóta málsniðurstöðu Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Í dag ákvað Samkeppniseftirlitið að leggja 400 milljóna króna sekt á Símann. 3.4.2012 17:23
Sérstakur saksóknari vann knattspyrnumót lögreglumanna Lið sérstaks saksóknara bar sigur úr býtum í árlegu landsmóti lögreglumanna í knattspyrnu sem fram fór á Húsavík um helgina. Aðspurður segist Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, vera stoltur af sínum mönnum. 3.4.2012 17:16
Um 80% vilja að almenningur geti krafist þjóðaratkvæðagreiðslu Áttatíuprósent þeirra sem svöruðu Netkönnun Reykjavík síðdegis hér á Vísi vilja að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að tiltekið hlutfall kosningabærra manna geti krafist þess að mál fari í þjóðaratkvæðagreiðslu. Einungis 20% atkvæðabærra manna vilja það ekki. Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis vildi að tilteknar spurningar um stjórnarskrána yrði lagðar í þjóðaratkvæði samhliða forsetakosningum í sumar. Nú er orðið ljóst að ekkert verður úr því en Reykjavík síðdegis ákvað engu að síður að leggja spurningarnar fyrir Vísi. Alls svöruðu 1795 manns spurningunum. 3.4.2012 16:13
Lögreglan leitar eigenda málverka Tvö málverk eru í óskilum hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Eigendurnir geta vitjað þeirra hjá lögreglunni en upplýsingar eru veittar í síma 444-1000 en einnig má senda fyrirspurnir í tölvupósti á netfangið abending@lrh.is. Krafist verður staðfestingar á eignarhaldi. 3.4.2012 15:01
Fólksflutningar síst meiri nú en áður Brottflutningur íslenskra ríkisborgara undanfarin ár er síst meiri en hann hefur verið á öðrum samdráttarskeiðum. Þetta fullyrðir Ólöf Garðarsdóttir, prófessor við menntavísindasvið Háskóla Íslands, í nýrri skýrslu um mannfjöldaþróun sem hún vann fyrir velferðarráðuneytið. Í skýrslunni er þetta skýrt með því að atvinnuleysi sé mikið alls staðar á Evrópska efnahagssvæðinu að Noregi undanskildu. Íslendingar hafi líkt og aðrar Norðurlandaþjóðir notið góðs af þeim hagfelldu aðstæðum sem ríki í Noregi og hafi sótt þangað í talsverðum mæli. 3.4.2012 14:49
Hraunar yfir tillögu meirihlutans: 4 Smáralindir við Landspítalann? Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir harðlega nýtt deiliskipulag Landspítalans við Hringbraut sem meirihlutinn í borginni hefur lagt fram. Hann segir tillöguna mjög vonda; bílastæðamál séu mjög illa leyst og ásýndin að gamla spítalanum hverfi á bak við risabyggingar. 3.4.2012 14:39
Segir fylkingar takast á í Hæstarétti Hæstaréttardómarar túlkuðu skipun Ólafs Barkar Þorvaldssonar og Jóns Steinars Gunnlaugssonar í embætti hæstaréttardómara sem atlögu Davíðs Oddssonar, þáverandi forsætisráðherra, að réttinum. Þeir töldu sér hótað af Davíð í kjölfar öryrkjadómsins svokallaða og óttuðust pólitísk afskipti. 3.4.2012 13:58
Sólveig Lára gefur kost á sér Sólveig Lára Guðmundsdóttir, sóknarprestur á Möðruvöllum, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti vígslubiskups á Hólum. Í tölvupósti til fjölmiðla segist hún leggja áherslu á að vinna að stefnumótun í söfnuðum stiftisins, efla samstarf og hlúa að starfsfólki kirkjunnar. Framundan sé starf við stefnumörkun biskupsembættanna og hún vilji leggja sitt af mörkum til að þau þjóni kirkjunni enn betur. Framboðsfrestur vegna vígslubiskupskjörsins rennur út 30. apríl næstkomandi. 3.4.2012 13:38
Síbrotamaður í tveggja ára fangelsi Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í morgun tvo menn í fangelsi fyrir innbrot og vörslur fíkniefna í sölu- og dreifingarskyni. Þá var annar mannanna sakfelldur fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna og sviptur ökurétti. Með brotum sínum rauf maðurinn skilorð 22 mánaða dóms frá árinu 2008 og var dómurinn tekinn upp og manninum gerð refsing í einu lagi fyrir bæði málin. Hann var því í morgun dæmdur í óskilorðsbundið fangelsi í tvö ár og þrjá mánuði. Jafnframt var hann sviptur ökurétti í tvö ár. Hinn maðurinn, sem tók þátt í innbrotinu, var dæmdur í 3 mánaða skilorðsbundið fangelsi. 3.4.2012 13:27
Svona verður veðrið um páskana Vænlegasta veðrið fyrir skíðaiðkun verður á Austurlandi um páskana samkvæmt veðurspá. Gert er ráð fyrir hálku á vegum næsta mánudag og því ættu ferðalangar að fara varlega í umferðinni. 3.4.2012 12:53
Fjárfestar beri ábyrgðina "Ég held að orðið ábyrgð sé mikilvægt og ég held að það hafi skipt máli í bankahruninu. En ég held að það sé líka mikilvægt í öllu mannlegu lífi," segir Gunnlaugur Jónsson fjárfestir. Hann hefur skrifað bók sem ber þann einfalda titil Ábyrgðarkver: Bankahrun og lærdómurinn um ábyrgð. Hann segir að ábyrgð skipti máli, bæði þegar menn hugi að sínu eigin lífi en líka þegar rætt er um opinbert kerfi og stjórnmál. 3.4.2012 12:42
Dópaður klessti á ljósastaur og stakk af Um klukkan hálf sjö í morgun var tilkynnt um harðan árekstur á mótum Breiðholtsbrautar og Skógarsels þar sem bifreið var ekið á umferðarljós. Ökumaðurinn var sagður hafa hlaupið af vettvangi. Í ljós kom að um var að ræða bifreið sem hafði verið stolið í gær. 3.4.2012 11:35
Böddi er kominn heim Hundurinn Böddi, sem gerði sig heimkominn á fréttasviði 365 í morgun, er kominn til eiganda síns á ný. Böddi leit við á fréttasviðinu eftir lítilsháttar misskilning sem varð milli hans og og eigandans snemma í morgun. 3.4.2012 11:34
Kom blóðug á lögreglustöð eftir árás frá Facebook-vin Erlend kona kom á lögreglustöðina við Hverfisgötu um klukkan þrjú í nótt og tilkynnti að á hana hafi verið ráðist á heimili hennar í Vesturborginni. Konan, sem var nokkuð blóðug, sagðist hafa kynnst manni á Facebook og hann komið heim til hennar. Eftir stuttar samræður hafi maðurinn ráðist á hana. Hann hafi síðan stolið farsíma hennar. Þetta kemur fram í dagbókarfærslu lögreglunnar en ekki er vitað á þessari stundu um líðan konunnar. 3.4.2012 11:07
Mikil aukning ferðamanna í Leifsstöð Alls fóru 33.600 erlendir ferðamenn frá landinu í nýliðnum marsmánuði eða tæplega sjö þúsund fleiri en í sama mánuði árið 2011 og nemur aukningin 26,2 prósentum á milli ára. Þetta er vel yfir meðallagi en á þeim ellefu árum sem Ferðamálastofa hefur talið ferðamenn í Leifsstöð hefur aukningin að jafnaði verið tæp átta prósent. Ferðamenn í nýliðnum mars voru tæplega helmingi fleiri en í sama mánuði árið 2002. 3.4.2012 10:29
Íslendingum fjölgaði um 1.123 einstaklinga í fyrra Hinn 1. janúar síðastliðinn voru íbúar landsins 319.575. Þeim fjölgaði um 0,4% frá sama tíma árið áður eða um 1.123 einstaklinga. 3.4.2012 09:03
Stundvísin stórbatnar í Keflavík Stundvísi íslenskra félaga á Keflavíkurflugvelli hefur stórbatnað að því er fram kemur í tölum á vefsíðunni Túristi.is. Þar segir að síðasta sumar hafi Keflavíkurflugvöllur ekki staðist samanburð við stærstu flugvelli Norðurlanda þegar kemur að stundvísi en þá fóru um 90 allra véla í höfuðborgum hinna Norðurlandanna í loftið á réttum tíma á meðan hlutfallið í Keflavík fór niður í 45 prósent á tímabili. 3.4.2012 08:52
Fáir skemmtistaðir með kranabjór frá fleiri en einum söluaðila Tvö örbrugghús hafa sakað Vífilfell og Ölgerðina um að einoka markaðinn fyrir kranabjór og leitaði einn til Samkeppniseftirlitsins síðastliðinn föstudag. Samkvæmt heimildum fréttastofu gerði bjórframleiðandi sem nú hefur lagt upp laupana slíkt hið sama fyrir nokkru en sá segist hafa reynt að koma bjórtegund sinni á dælu í um ár án árangurs þrátt fyrir góða sölu á bjórnum í vínbúðum. 3.4.2012 19:30
Hundur í óskilum hjá 365 Þessi vinalegi voffi hefur gert sig heimankominn á skrifstofum 365 en þangað kom hann óboðinn og eigandalaus. Hann er ómerktur en þeir sem kannast við hvutta geta haft samband í síma 899 9747. 3.4.2012 10:21
Þörungar geta leyst af innflutt eldsneyti Lífeldsneyti má framleiða úr þörungum í slíku magni að komi í staðinn fyrir innflutt eldsneyti. Orkusparandi ljósdíóðutækni og aðgangur að jarðhita gera aðstæður hér til framleiðslunnar einstakar. Hægt væri að flytja út lífeldsneyti. 3.4.2012 08:00
Íslendingar ekki lengur í hópi hamingjusömustu þjóðanna Íslendingar eru ekki lengur meðal hamingjusömustu þjóða heimsins að því er fram kemur í nýrri skýrslu í Bandaríkjunum um málið. 3.4.2012 07:06
Starfsfólkið fær líka spítalamat Framkvæmdastjórn Landspítala hefur ákveðið að eldhús spítalans taki við rekstri matsala fyrir starfsfólk þann 1. maí 2012. Frá þessu er greint á vef Landspítalans, lsh.is. 3.4.2012 07:00