Uppsóp er þrefalt á götum borgarinnar 4. apríl 2012 07:00 Í aprílmánuði og líkast til eitthvað fram í maí verða götusóparar algeng sjón á götum Reykjavíkur. Svo mikið var sandað í vetur vegna hálku og snjóa að það tefur hreinsistarfið. Fréttablaðið/Vilhelm
Vandséð er að tímaáætlanir haldi í vorhreinsun gatna í Reykjavík. Tíðarfar í vetur varð til þess að mun meira hefur safnast af sandi og drullu á götum borgarinnar. Jákvætt viðmót borgara sem færa bíla sína flýtir fyrir vinnunni. Gífurlegt magn af sandi og drullu tefur hreinsistarf á götum og gangstéttum Reykjavíkur. Þessa dagana er unnið að hreinsun með kröftugum hreinsitækjum og má gera ráð fyrir slíkum framkvæmdum út mánuðinn hið minnsta. „Eiginlega er það tíðarfarið sem búið er að vera í vetur sem veldur þessu,“ segir Lárus Kristinn Jónsson, framkvæmdastjóri Hreinsitækni sem annast hreinsun fyrir borgina. „Ég myndi halda að í vetur hafi verið sandað um það bil þrisvar sinnum meira en á miðlungsvetri. Ef ég man rétt er búið að dreifa á stéttar höfuðborgarinnar um 3.000 rúmmetrum af sandi.“ Verkið er svo að stórum hluta unnið með litlum gangstéttarsópum. „Sem dæmi má nefna að við hreinsun stétta á Snorrabraut vorum við búnir að fylla fimm sópa, en hver tekur um rúmmetra af efni, og áttum þá eftir einn þriðja af leiðinni. Vanalega hafa dugað einn eða tveir vagnar.“ Þar sem snjó hefur verið hraukað upp, svo sem við Laugardalslaug, segir Lárus ástandið svo jafnvel enn verra. „Við erum allt að því þrisvar sinnum lengur að þessu bara út af efnismagni.“ Lárus segir þó ánægjulegt að fólk komi gjarnan út og færi bíla sína frá til að auðvelda þrifin. Það flýti fyrir. Ljóst er að mikill kostnaðarauki er af meira uppsópi og akstri og ekki fjarri lagi að þrefalt sandmagn þrefaldi líka olíukostnað við hreinsun. Kostnaðaraukann segir Lárus hins vegar líklega lenda á fyrirtækinu. „Þetta er náttúrlega bara allt í útboði hjá okkur og í föstum tölum.“ Samkvæmt áætlun átti vorhreinsunin að hefjast 15. mars og kveður Lárus fljótlega hafa komið hringingar frá borginni til að huga að verkinu og tímaáætlunum. „En fram til 19. mars var nú bara enn þá verið að moka snjó,“ segir hann og telur að miðað við aðstæður hefði verið nær að gefa fyrirtækinu rýmri tíma til að klára. Samkvæmt upplýsingum frá borginni er þessa dagana unnið að hreinsun gatna í Háaleiti, Gerðum og Fossvogi og að því stefnt að ljúka fyrri yfirferð í þeim hverfum fyrir páska. Eins séu páskafrí nýtt til að hreinsa skólalóðir. Þá kemur fram að til páska verði einnig lögð áhersla á hreinsun göngu- og hjólastíga enda megi búast við að fólk stundi hjólreiðar og útivist í páskafríinu. Áhersla verður lögð á helstu hjólaleiðir, svo sem um Fossvogsdal, Elliðaárdal upp í Víðidal og áfram upp að Rauðavatni. „Einnig verða leiðirnar meðfram Miklubraut og yfir Gerðin hreinsaðar.“ olikr@frettabladid.is
Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Fleiri fréttir Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Sjá meira