Innlent

Bæta við tveimur flugvélum

Flugfélagið verður með sextán flugvélar í sumar.
Flugfélagið verður með sextán flugvélar í sumar. fréttablaðið/vilhelm
Icelandair mun bæta tveimur vélum í flugvélaflota sinn og verða með sextán vélar í rekstri næsta sumar, en vélarnar voru fjórtán síðasta sumar.

Gengið hefur verið frá samningum um tvær Boeing 757-200 vélar sem munu bætast við flota Icelandair á næstu mánuðum. Annars vegar er um að ræða kaup á vél og hins vegar leigu á vél til 20 mánaða. Kaupin eru fjármögnuð úr sjóðum félagsins, að því er fram kemur í tilkynningu frá Icelandair. Kaupverðið er trúnaðarmál.

Gert er ráð fyrir að báðar vélarnar verði tilbúnar til notkunar í leiðakerfi félagsins í maí næstkomandi. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×