Fiskveiðarnar þurfi ekki að verða hindrun 4. apríl 2012 06:00 Evrópuþingmaðurinn Christian Dan Preda segist vongóður um að Ísland og ESB nái samkomulagi um fiskveiðimál. Fréttablaðið/Vilhelm „
Ég er bjartsýnn á að viðræður um fiskveiðimál geti skilað hagstæðri niðurstöðu fyrir bæði Ísland og Evrópusambandið,“ segir Evrópuþingmaðurinn Christian Dan Preda í samtali við Fréttablaðið. Dan Preda, sem er í forsvari hjá Evrópuþinginu í málefnum sem varða aðildarumsókn Íslands, er staddur hér á landi vegna fundar sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og ESB. Hann segist byggja bjartsýni sína á því að allt sé til staðar til þess að uppbyggilegar viðræður geti átt sér stað. „ESB hefur á að skipa góðu samningaliði og íslensku samningamennirnir eru sömuleiðis mjög færir á sínu sviði. Svo eru báðir aðilar með mikla reynslu og þekkingu á sviði fiskveiða og þannig erum við með kjöraðstæður til að ná samkomulagi milli aðilanna.“ Dan Preda, segir að gagnkvæmir hagsmunir Íslands og ESB ættu að tryggja opnar viðræður þó að í almennri umræðu beggja vegna borðsins sé jafnan gert ráð fyrir að komandi viðræður um fiskveiðar verði hvað erfiðasti hjallurinn í aðildarviðræðunum. „Þetta er auðvitað veigamikið mál fyrir bæði Ísland og ESB og ég skil hvers vegna umræðan er eins og hún er. Hins vegar sé ég ekki hvers vegna við ættum ekki að geta náð góðu samkomulagi.“ Enn hafa samningaviðræður um fiskveiðar ekki hafist, en Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB, sagði í svari við spurningu Fréttablaðsins fyrir helgi að hann vonaðist til þess að allir kaflar yrðu opnaðir fyrir árslok. - þj
Mest lesið Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Innlent „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Innlent „Við verðum að fá fólk heim aftur“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ákærður fyrir banatilræði við Trump Erlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira