Fleiri fréttir

Fáeinir dagar eftir af vertíðinni

Loðnuvertíð er að ljúka en aðeins tuttugu þúsund tonn eru óveidd af 591 þúsund tonna aflamarki, samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Fiskistofu. Skip HB Granda áttu í gær óveidd um 1.500 tonn af kvóta fyrirtækisins og er vonast til þess að hægt verði að ná því magni í vikunni. Ingunn AK hefur lokið veiðum en hin skipin eru enn að.

Skordýrafræðingur: Kakkalakkar mjög skemmtileg gæludýr

"Þetta eru mjög skemmtileg dýr, þarna er mikil fjölbreytni og sumir geysistórir og fallegir líka, þó svo mörgum bjóði við þeim,“ sagði skordýrafræðingurinn Erling Ólafsson, í viðtali í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag, þar sem hann var spurður út í þá sérkennilegu nýlundu að dýrabúð í Kópavogi bjóði nú almenningi að kaupa meðal annars kakkalakka sem gæludýr.

Prjóna peysu á traktorinn

Kvenfélagskonur í Eyjafirði prjóna nú flík í öllum regnbogans litum utan um traktor sem ætlunin er að sýna á handverkshátíð á Hrafnagili í ágústmánuði í sumar. Eyfirðingum hefur með handverkshátíðinni tekist að skapa héraðinu þá ímynd að vera höfuðból heimilisiðnaðar á Íslandi.

Eldur í bíl

Eldur kom upp í bil við Höfðabakka upp úr klukkan níu í kvöld. Mikill eldur var í bílnum en svo virðist sem eldsvoðinn hafi átt upptök sín í vél bílsins. Ekki er ljóst hvað kveikti eldinn. Bíllinn er gjörónýtur. Enginn í bílnum slasaðist. Slökkviliðið réði niðurlögum eldsins og voru fljótir að því.

Vill rannsaka lán Seðlabankans til Kaupþings skömmu fyrir hrun

Formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, Helgi Hjörvar, vill láta kanna til hlítar hvers vegna Seðlabankinn tók ákvörðun um að lána Kaupþingi jafnvirði áttatíu og fjögurra milljarða króna hinn sjötta október 2008 en útlit er fyrir að hluti lánsins fáist aldrei endurgreiddur og milljarðar króna af skattfé séu því glataðir.

Varar við "bjórlánum“

"Ég vara náttúrulega stórlega við þessum lánum. Þau eru ein dýrstu lán sem þú getur nokkurntímann tekið,“ sagði Breki Karlsson í viðtali í Reykjavík síðdegis, spurður út í smálán sem nokkur fyrirtæki bjóða upp á á Íslandi í dag.

Þriðji maðurinn gaf sig fram

Þriðji karlmaðurinn hefur gefið sig fram eftir að lögreglan lýsti eftir honum í öllum fjölmiðlum í dag. Tveir karlmenn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag á grundvelli rannsóknarhagsmuna.

Muamba var í hjartastoppi í 78 mínútur

Læknir breska fótboltaliðsins Bolton Wanderes sagði að Fabrice Muamba hafi í raun verið látinn í 78 mínútur áður en endurlífgunartilraunir báru árangur.

CCP með fyrirlestur í Hörpu

Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP stendur fyrir opnum fyrirlestri og kynningu á starfsemi fyrirtækisins í Hörpunni á morgun. Rætt verður um fjölspilunarleikinn EVE Online og EVE Fanfest hátíðinni sem haldin verður í tónlistarhúsinu um helgina.

Ólafur er Dalai Lama norðurslóða

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun ávarpa fund Fletcher-skólans í Massachusetts á mánudaginn. Ólafur verður frummælandi á fundinum en fjallað verður um málefni norðurheimskautsins.

Fiskurinn dýrastur í Melabúðinni og Gallerý fiski

Verðlagseftirlit ASÍ gerði verðsamanburð á ferskum fiski í 23 verslunum vítt og breitt um landið síðastliðinn mánudag. Kannað var verð á 25 algengum tegundum af fiskmeti sem oft er á borðum landsmanna. Munur á hæsta og lægsta verði var oftast 25-75%. Lægsta verðið var oftast að finna hjá Litlu Fiskbúðinni Miðvangi í Hafnarfirði eða í 15 tilvikum af 25. Mikil dreifing var á hæsta verðinu á milli verslanna, en hæsta verðið var oftast hjá Melabúðinni Hagamel og Gallerý fiski í Nethyl eða í 5 tilvikum af 25. Fiskbúðin Bryggjuhúsið neitaði þátttöku í könnuninni.

Ástþór segist ekki borga 150 krónur fyrir hverja undirskrift

"Nei þetta er bara bull,“ segir Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, spurður hvort að hann borgi fólki, sem safnar meðmælum fyrir framboð hans, 150 krónur fyrir hverja undirskrift. Á Smugunni og DV hefur komið fram að Ástþór borgi 100 til 150 krónur fyrir hverja undirskrift. Ástþór vísar þessu á bug, en segist vissulega borgi hann fólki sem starfi fyrir hann.

Íbúar ósáttir við svalirnar á Prikinu

Íbúar í grennd við skemmtistaðinn Prikið eru ósáttir við að byggingafulltrúi borgarinnar hafi ekki leitað lögboðins álits húsafriðunarnefndar áður en veitt var leyfi fyrir svölum, sem reistar voru í lokuðu porti við skemmtistaðinn fyrir nokkrum árum. Íbúasamtök borgarinnar velta því fyrir sér hvort að byggingafulltrúinn telji sér ekki skylt lögum samkvæmt að kynna sér grenndaráhrif bygginga, er lúta að hávaða og truflun í nærumhverfinu.

Spilafíkn vandi hjá 4 til 7 þúsund

Um 2,5% Íslendinga þjást af spilafíkn samkvæmt rannsóknarniðurstöðum dósents við sálfræðideild Háskóla Íslands. Niðurstöðurnar voru kynntar í dag. Þar kemur fram að 4.000 til 7.000 manns hér landinu á aldrinum 18 ára til sjötugs eigi í verulegum vanda.

Megintenging innan Vestfjarða ófær í fjóra mánuði

Vegagerðin hefur frestað því að opna Hrafnseyrarheiði og Dynjandisheiði en þær hafa báðar verið meira og minna lokaðar undanfarna fjóra mánuði. Ráðamenn á Vestfjörðum segja ástand vegamála þar ömurlegt. Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði eru á miðhluta Vestfjarða en þær hafa verið meira og minna verið lokaðar frá því í nóvember og alfarið frá 12. desember.

Rannsókn á bankahruninu lýkur í lok árs

Fimmtíu og þrjú mál sem Fjármálaeftirlitið hefur haft til rannsóknar eftir bankahrun hafa verið kærð til efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra eða saksóknara. Þetta kemur fram í vefriti FME.

Plássin oftast fullnýtt

Reykjavíkurborg býður gistipláss og búsetuúrræði fyrir 60 til 64 einstaklinga sem eru í mikilli vímuefnaneyslu og eiga í engin hús að venda. Sigtryggur Jónsson, framkvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar Miðborgar og Hlíða, segir plássin oftast fullnýtt.

Banaslys í íslenskum togara

Banaslys varð um borð í íslenskum togara á Ísafjarðardjúpi snemma í morgun. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send með lækni, sem seig um borð í togarann, og úrskurðaði hann manninn látinn. Togarinn kom með lík mannsins til hafnar á Ísafirði um ellefu leitið og er lögregla að taka skýrslur af skipverjum.

Gréta og Jónsi númer tvö á sviðið í Bakú

Yfirstjórn Eurovision tilkynnti í gær röð keppenda í undankeppnum Eurovision. Gréta Salóme og Jónsi syngja lag sitt, Never Forget, á fyrra undanúrslitakvöldinu, 21. maí. Atriði þeirra er annað atriði kvöldsins af þeim 18 sem taka þátt það kvöld.

Hitamet frá árinu 1948 gæti fallið um helgina

Svo gæti farið að sextíu og fjögurra ára hitamet fyrir marsmánuð verði slegið um helgina en spáð er miklum hlýindum víða um land. Árið 1948 mældist hitinn 18,3 gráður á Sandi í Aðaldal. Um helgina er spáð 10 til 15 stiga hita norðan- og austanlands og segir Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur, það ekki vera ólíklegt að hitametið falli. Mikil hlýindi hafa verið við Bretlandseyjar um skeið og spáir nú breska veðurstofan að hitaskilin verði komið komin norður við Ísland á aðfaranótt föstudags. Það er því ljóst að vorið er að gera boð á undan sér, nú strax í mars, eflaust við mikinn fögnuð Íslendinga.

Heitavatnslaust í Fossvogi

Heitavatnslaust verður frá klukkan 13 í dag í Fossvogi og nágrenni vegna viðgerðar á heitavatnslögn. Svæðið sem lokað veður fyrir afmarkast af byggð neðan Bústaðavegar frá Reykjanesbraut að Eyrarlandi við Grímsbæ auk Brúnalands. Þá verður einnig heitavatnslaust í Ásgarði, raðhúsum við Tunguveg, Stjörnu- og Blesugrófinni í Reykjavík sem og húsum sem standa við Fossvogsbrún. Í tilkynningu frá Orkuveitunni segir að vonast sé til að viðgerð verði lokið um klukkan 15 í dag. Dragist viðgerð mun Orkuveitan senda út tilkynningu þar að lútandi á heimasíðu sinni, or.is. Íbúum er bent á að skrúfa fyrir alla heitavatnskrana til að forðast slysahættu eða tjón þegar vatnið kemst á að nýju. Þá er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að minnka varmatap.

Hagar stefnir Arion banka - vilja 824 milljónir

Stjórn Haga hefur ákveðið að krefja Arion banka um rúmar áttahundruð og tuttugu milljónir króna vegna endurútreiknings á gengistryggðum lánum. Félagið telur að eftir dóm hæstaréttar í síðasta mánuði þurfi að endurreikna lánin aftur og hefur því ákveðið að höfða dómsmál til að fá skorið úr um réttmæti kröfunnar. Bankinn álítur hins vegar að dómurinn hafi takmarkað fordæmisgildi og eigi ekki við um lán Haga.

Tveir í gæsluvarðhald - sá þriðji eftirlýstur

Tveir karlmenn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir, sem eru báðir innan við tvítugt, voru handteknir í gær í tengslum við rannsókn lögreglunnar á sprengju sem sprakk á rúðu skartgripaverslunar við Bankastræti 12 í miðborg Reykjavíkur og ráni í matvöruverslun í austurborginni.

Banaslysið varð við þrif á togaranum

Banaslysið um borð í íslenskum togara út af Straumsnesi á Ísafjarðardjúpi snemma í morgun varð þegar skipsverjar unnu við þrif á hreinsiborði, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Ísafirði. Tekin var skýrsla af áhafnarmeðlimum þegar togarinn kom um borð en presturinn á Ísafirði fór einnig um borð og ræddi við skipsverja. Rannsóknarnefnd sjóslysa tekur við málinu þegar rannsókn lögreglu er lokið. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send með lækni, sem seig um borð í togarann snemma í morgun og úrskurðaði manninn látinn. Ekki er hægt að greina frá nafni hans að svo stöddu.

Hertar kröfur vegna mengunar

Með breytingu á reglugerð fellir umhverfisráðuneytið úr gildi sérákvæði starfandi sorpbrennslustöðva um brennslu úrgangs. Reglugerðin, sem nýlega var undirrituð, hefur í för með sér að allar íslenskar sorpbrennslustöðvar eiga nú að uppfylla sömu kröfur og gerðar eru til sambærilegrar starfsemi á Evrópska efnahagssvæðinu.

Heildarskuldir skólans nema 739 milljónum

Uppsafnaður halli Landbúnaðarháskóla Íslands nam 307 milljónum króna í lok síðasta árs. Heildarskuldir skólans nema 739 milljónum og hafa fimmfaldast frá árinu 2005. Í nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar eru stjórnendur skólans og yfirvöld menntamála hvött til að taka á vanda skólans.

Gæsluvarðhald yfir Annþóri og Berki að renna út

Gæsluvarðhald yfir hópi manna sem handteknir voru í umfangsmikilli lögreglurassíu í síðustu viku rennur út í dag. Lögmenn sumra þeirra, sem Fréttablaðið ræddi við í gær, gerðu fastlega ráð fyrir því að krafist yrði framlengingar á varðhaldinu yfir að minnsta kosti einhverjum mannanna.

Hámarks miskabætur verði fimmfaldaðar

Hámarksbætur sem ríkið greiðir fyrir líkamstjón verða tvöfaldaðar og hámarksbætur fyrir miska verða fimmfaldaðar nái frumvarp Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra fram að ganga.

Sprengjumennirnir ófundnir

Mennirnir tveir, sem gerðu tilraun til að sprengja rúðu í úra- og skartgripaverslun við Bankastræti í Reykjavík í fyrrinótt, er ófundnir eftir því sem Fréttastofa kemst næst.

Húsamýs komu til Íslands og Grænlands með víkingunum

Ný rannsókn sýnir að víkingarnir sem sigldu frá Noregi til Íslands og síðar til Grænlands og Nýfundnalands báru með sér húsamýs til þessara landa á níundu öld. Sennilega hafa þær leynst í fóðri húsdýra sem víkingarnir fluttu með sér á ferðum sínum.

Nýr spítali þjónar 125 þúsund manns

Nýr spítali sem byggður hefur verið fyrir þróunarfé frá Íslandi hefur þegar fengið ríflega milljón heimsóknir, þó að formlega hafi hann verið vígður í gær. Sjúkrahúsið þjónar um 125 þúsund manna svæði í Malaví í Suðaustur-Afríku.

Kosið verði um tillögur stjórnlagaráðs

Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis samþykkti á fundi sínum í gær að leggja fram þingsályktunartillögu þess efnis að kosið verði um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá samhliða forsetakosningum 30. júní næstkomandi. Um ráðgefandi þjóðaratkvæði er að ræða, samkvæmt lögum. Spurt verður um stjórnarskrárdrögin í heild, auk spurninga um fimm sérstök álitamál.

Sigurrós ráðin á Hjálmars vakt

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi, segir það koma sér á óvart að Hjálmar Hjálmarsson, bæjarfulltrúi Næst besta flokksins, skuli spyrjast fyrir um störf Sigurrósar Þorgrímsdóttur við ritun sögu Kópavogs.

Slasaðist alvarlega um borð í togara

Sjómaður slasaðist alvarlega um borð í togara á Ísafjarðardjúpi snemma í morgun. Þyrla Landhelgisgæslunnar var send með lækni, sem seig niður i togarann og var ákveðið að sigla með hinn slasaða í land og er læknirinn um borð, en þyrlan lenti á Ísafjarðarflugvelli og er þar til taks. Ekki er vitað hvernig slysið varð, en sjómaðurinn mun vera alvarlega slasaður. Togarinn er væntanlegur til hafnar nú um ellefu leitið.

Stefán Máni: Glæpamenn skátadrengir miðað við gæjana í dag

"Þeir menn sem ég var í sambandi við á þeim tíma voru skátadrengir miðað við gæjana sem maður sér í dag,“ sagði rithöfundurinn Stefán Máni Sigþórsson sem skrifaði glæpabókina Svartur á leik fyrir um tíu árum síðan, í viðtali í Kastljósi í kvöld. Þar ræddi Sigmar Guðmundsson við Stefán Mána og Stefán Eiríksson, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, um glæpaheiminn á Íslandi þá og nú. Tilefnið er að sjálfsögðu kvikmyndin Svartur á leik sem bregður ákaflega dökkri og ógeðfelldri mynd af glæpaástandinu í kringum aldamótin síðustu.

Nýtingarsamningar til 20 ára í nýrri heildarlöggjöf um fiskveiðar

Gerðir verða nýtingarsamningar til 20 ára við kvótaeigendur samkvæmt nýrri heildarlöggjöf um stjórn fiskveiða en undirbúningur þess er á lokametrunum og er stefnt að því að kynna frumvarp á ríkisstjórnarfundi á föstudag. Framkvæmdastjóri LÍÚ segir að ekkert samráð hafi verið haft við útvegsmenn.

Saga er fimm milljónasti Norðmaðurinn - en um það er deilt

Hún Saga Jónsdóttir Eldon fæddist klukkan 02:39 aðfaranótt 19. mars á sjúkrahúsi í Noregi. Sjónvarpsstöðin TV2 tók viðtal við nýbakaða foreldra stúlkunnar, ástæðan er sú að Norðmenn eru orðnir fimm milljónir talsins. Og hugsanlega er Saga litla fimm milljónasti Norðmaðurinn.

Vigdís braut þingsköp

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, gerðist brotleg við þingsköp samkvæmt niðurstöðu Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis. Vigdís miðlaði upplýsingum af fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis á Facebook síðu sína áður en fundinum lauk. Valgerður Bjarnadóttir, formaður nefndarinnar, sleit þá fundinum sem fram fór 13. mars síðastliðinn.

La Bohéme fær fjórar stjörnur í The Daily Telegraph

Uppsetning Íslensku óperunnar á La Bohéme eftir Giacomo Puccini í Hörpunni fær fjórar stjörnur af fimm mögulegum hjá The Daily Telegraph. Frammistöðu leikaranna er hrósað og fer gagnrýnandi fögrum orðum um Eldborgarsal Hörpunnar.

Íslandi spáð 12. sæti í Eurovision

Íslandi er spáð 12. sæti í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem haldin verður í Aserbaídjan í maí. Samkvæmt breska veðbankanum William Hill er Svíum spáð sigri, Rússum öðru sæti og Dönum því þriðja.

Sjá næstu 50 fréttir