Fleiri fréttir

Lýst eftir kerru

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir kerru sem var stolið úr bílskýli við Sóleyjarima í Reykjavík í síðustu viku. Kerran er nýleg, galvaniseruð, grá og vel með farin. Hún er á hvítum felgum og fram og afturgaflar hennar eru opnanlegir. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar kerran er niðurkomin eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1180 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is.

Vinsælasta rúðan í bænum til að brjóta

"Það er ekki skemmtilegt að lenda í svona, þetta er leiðinleg tilfinning," segir Ólafur G. Jósefsson, eigandi GÞ Skartgripir og úr í Bankastrætinu í miðbæ Reykjavíkur. Öflug sprengja var límd utan á rúðu skartgripaverslunarinnar á sjötta tímanum í morgun og heyrðist hár hvellur um nágrennið. Sprengjubrot fundust í allt að 30 metra fjarlægð.

Vinna fyrrum bæjarfulltrúa sé skýrð

„Það er ekki auðvelt að draga þennan kostnað saman þar sem hann er ekki alltaf sérgreindur, heldur samþættist öðrum kostnaði hjá bænum,“ segir í svari Ármanns Kr. Ólafssonar bæjarstjóra við fyrirspurn bæjarfulltrúans Hjálmars Hjálmarssonar um heildarkostnað bæjarins við ritun Sögu Kópavogs.

Tvöfalt fleiri erlendir ríkisborgarar nú en fyrir áratug

Á síðastliðnum 10 árum hefur fjöldi erlendra ríkisborgara á Íslandi tvöfaldast. Þann 1. janúar 2012 voru skráðir hérlendis 20.957 erlendir ríkisborgarar, samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun. Hlutfall erlendra ríkisborgara af heildarmannfjölda var 6,6% samanborið við 3,4% árið 2002. Aftur á móti fækkaði erlendum ríkisborgurum milli 2011 og 2012 um 186. Hlutfall erlendra ríkisborgara stóð þó í stað.

Lækka virðisaukaskatt á græna bíla

Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að lækka skatta á umhverfisvæna bíla. Frumvarp þess efnis var kynnt þingflokkum stjórnarflokkanna í gær, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Hobbitinn heitir eftir eigandanum sjálfum

"Ég held að þeir séu varla að fara að setja sig í samband við mann einhvers staðar í afdölum á Íslandi sem er hvort sem er farið á hausinn,“ segir Einar Magnús Gunnlaugsson, eigandi söluskálans Hobbitans í Ólafsvík.

Öflug sprengja sprakk í Bankastræti

Öflug sprengja var sprengd á rúðu skartgripaverslunar við Bankastræti klukkan korter fyrir fimm í morgun og segir lögregla að hætta hafi skapast af af henni.

Fleiri gerðir húsnæðislána í boði en áður

Valkostum húsnæðiskaupenda á lánamarkaði hefur fjölgað með tilkomu óverðtryggðra fasteignalána. Til margs ber að líta þegar lánagerð er valin en væntingar um verðbólgu og vexti eru lykilatriði. Fréttablaðið gerði stuttan samanburð á verðtryggðum og óverðtryggðum fastvaxtalánum.

ESB flýtir ákvörðun um refsiaðgerðir gegn Íslandi og Færeyjum

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar að flýta ákvörðun um refsiaðgerðir gegn Íslendingum og Færeyingum vegna makríldeilunnar svo málið verði útkljáð þegar viðræður um sjávarútvegskaflann í aðildarvilðræðum Íslands að sambandinu hefjast í næsta mánuði.

Víða vandræði vegna illviðris og ófærðar

Björgunarsveitarmenn í Búðardal voru kallaðir út í gærkvöldi til að aðstoða fólk í föstum bílum á Bröttubrekku, en þar var illviðri eins og víða um vestanvert landið í gærkvöldi.

Lögregla gagnrýnir innanríkisráðherra - fréttaskýring

Hversu langt eiga stjórnvöld að ganga til að vinna gegn skipulagðri glæpastarfsemi hér á landi? Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur ekki trú á því að lagalegt bann við starfsemi alþjóðlegra glæpasamtaka hér á landi skili nokkru.

Lýsti eftirköstum sjálfsvígs móður sinnar - upplifði þöggun

"Ég var búin að ganga lengi með þessa grein í maganum,“ segir Anna Sigríður Ólafsdóttir, sem skrifaði áhrifaríka grein á Vísi í dag þar sem hún lýsir eftirköstum sjálfsvígs móður sinnar. Anna Sigríður segir að það hafi ekki verið fyrr en maður kom til hennar þremur árum eftir sjálfsvígið sem hún áttaði sig á því að hún þyrfti að minnast lífsins, en ekki dauðans.

Ögmundur gekk hálf lamaður út af Svörtum á leik

„Ég fór að sjá myndina í gærkvöldi, og hún var hrikaleg," sagði Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, en hann fór að sjá kvikmyndina Svartur á leik í boði Reykjavík síðdegis. Í viðtali á Bylgjunni lýsti Ögmundur upplifun sinni af myndinni. Og það er ljóst að hún hreyfði við ráðherranum.

Ætla að telja allar kanínur í Reykjavík

Fyrsta almenna kanínutalningin fer nú fram í Reykjavík. Með henni á að reyna að finna út hversu margar villtar kanínur er að finna innan borgarmarkanna.

Lóan er komin - varað við ísingu og éljahryðjum

Það er víst staðreynd, Lóan er komin. Allavega greinir Skessuhorn frá því á vef sínum að fyrsta heiðlóan sé sannanlega komin til landsins. Mynd náðist af henni á heimtúninu við bæinn Ytri Hólm í Hvalfjarðarsveit, skammt sunnan við Akranes.

Fríhöfnin dýrari en Bónus

Vörukarfa með sælgæti og hreinlætisvörum er ellefu prósentum ódýrari í Bónus en í Fríhöfninni. Þrátt fyrir þetta eru vörur í Fríhöfninni undanskildar virðisaukaskatti og aðflutningsgjöldum.

Endurteknar yfirlýsingar ráðherra um uppbyggingu ekki enn ræst

Samningi um kísilver á Suðurnesjum hefur verið rift en honum lýstu forystumenn ríkisstjórnarinnar sem mikilvægum skilaboðum um að menn hefðu trú á framtíðinni á Íslandi. Ítrekaðar yfirlýsingar ráðherra undanfarin tvö ár, um að Þingeyingar ættu að búa sig undir stórfellda atvinnuuppbyggingu, hafa heldur ekki ræst.

Mikill verðmunur á kirsuberjatómötum - vitlaus samanburður

Bjarni Jónsson framkvæmdastjóri Samtaka garðyrkjubænda svaraði fyrir mikinn verðmun á innlendu og erlendu grænmeti í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Ástæðan var grein sem birtist á Pressunni þar sem því var haldið fram að verðmunur á kirsuberjatómötum væri gríðarlegur.

Reuters fjallar um gagnaver Verne Global

Fjallað er um Verne Global gagnaverið að Ásbrú í Reykjanesbæ á heimasíðu Reuters í dag. Þar segir að gagnaverið sem opnaði nýverið, sé umhverfisvænasta gagnaver í heiminum. Meðal annars er talað við forstjóra Verne, Jeff Monroe, sem bendir á að stuðst sé við orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum auk þess sem staðsetningin, mitt á milli Evrópu og Ameríku sé afar góð.

Hollendingur ætlaði að reykja hass á Íslandi - fékk 40 þúsund króna sekt

Hollenskur karlmaður var stöðvaður við hefðbundið eftirlit í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á fimmta tímanum í gær. Fíkniefnahundurinn Nelson hafði gefið til kynna að hann væri með fíkniefni í fórum sínum og við leit fundust rúmlega þrjú grömm af meintu kannabisefni í sýnapoka. Þá reyndist hann vera með hasspípu í forum sínum, tvær hasskökur og lítinn poka með ætluðum kannabisfræjum.

Fimmtán mánaða fangelsi fyrir vopnað rán

Karlmaður um þrítugt var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir vopnað rán og akstur undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn fór inn í söluturn í Breiðholti í mars í fyrra, í félagi við konu, með andlitið á sér hulið og vopnaður hamri og hafnarboltakylfu. Hann krafðist þess að fá pening og hafði um tíu til fimmtán þúsund krónur með sér á brott. Þá ók hann einnig bifreið undir áhrifum amfetamíns og áfengis. Maðurinn játaði brot sín en hann rauf skilorð með brotunum. Þá var hann einnig sviptur ökuréttindum ævilangt.

Ofurölvi maður með amfetamín í sokknum

Lögreglunni á Suðurnesjum barst tilkynning aðfararnótt sunnudagsins um einstakling sem væri grunaður um að vera með amfetamín í fórum sínum. Lögreglumenn fundu fljótlega einstakling sem passaði við þá lýsingu sem gefin hafði verið.

Margfaldur munur á gjaldtöku banka

Margfaldur munur er á gjaldtöku banka við skuldaraskipti á íbúðalánum, Landsbankinn rukkar minnst en Frjálsi fjárfestingarbankinn og Íslandsbanki innheimta prósentu af lánsupphæð. Talsmaður neytenda telur óeðlilegt að innheimta hlutfallsgjald af slíkri skjalagerð.

Clarissa fann kannabis

Tveir karlmenn voru handteknir í kjölfar húsleitar sem lögreglan á Suðurnesjum gerði í umdæminu um helgina. Leitað var í íbúðarhúsnæði að fengnum dómsúrskurði. Við húsleitina fannst marijuana í tösku í stofu íbúðarinnar. Jafnframt voru í töskunni bíllyklar af bifreið sem stóð fyrir utan húsnæðið. Fíkniefnahundurinn Clarissa leitaði í bifreiðinni og fundust tvær pakkningar milli framsæta bílsins af meintu marijuana. Annar hinna handteknu játaði að eiga ofangreind efni. Í herbergi hins mannsins sem handtekinn var fundusr marijuana, sveppir og tvær e-pillur. Sá maður viðurkenndi einnig eign sína á þeim efnum. Eftir yfirheyrslur á lögreglustöð voru mennirnir látnir lausir og teljast málin upplýst.

Skrifar bók um líf dóttur sinnar - leitar eftir aðstoð almennings

Jóhannes Kr. Kristjánsson blaðamaður vinnur nú að bók um Sigrúnu Mjöll dóttur sína sem lést fyrir nokkrum misserum. Á bloggsíðu sinni segir Jóhannes að bókin verði blanda af hennar sögu og hvernig baráttan við það að koma henni til aðstoðar hafi gengið fyrir sig. Hann biðlar nú til almennings og lýsir eftir sögum og myndum af Sigrúnu, eða Sissu, eins og hún var kölluð.

Laus úr öndunarvél en er haldið sofandi

Framkvæmdastjóri Lagastoðar, Skúli Sigurz, sem slasaðist lífshættulega í hnífaárás fyrir tveimur vikum er kominn úr öndunarvél. Hann dvelur þó enn á gjörgæslu og er haldið sofandi. Árásarmaðurinn, Guðgeir Guðmundsson, situr í gæsluvarðhaldi og gengst hann nú undir geðrannsókn. Hann hefur játað verknaðinn.

Leyft að rannsaka virkjanakosti á ný

Orkustofnun hefur veitt Landsvirkjun rannsóknarleyfi vegna Skrokkölduvirkjunar, þrátt fyrir ósk Landverndar til iðnaðarráðherra um að útgáfa rannsóknarleyfa yrði áfram bönnuð meðan rammaáætlun væri óafgreidd frá Alþingi. Þetta er fyrsta rannsóknarleyfið sem Orkustofnun veitir eftir að tímabundið bann rann út þann 1. febrúar síðastliðinn.

Hafa þurft að bjarga flestum sem ætla yfir jökulinn

Björgunarsveitir hafa þurft að sækja flesta þá sem ætla yfir Vatnajökul í vetur enda tíðin verið óvenju slæm. Belgísku ferðamennirnir tveir sem var bjargað um helgina eru brattir, og ætla að ferðast áfram um landið næstu daga.

Borgarverðir aðstoði útigangsfólk

Borgarverðir eru færanlegt vettvangsteymi sérfræðinga sem mun þjónusta utangarðsfólk í Reykjavík. Í frétt á vef Reykjavíkurborgar segir að þeim sé ætlað að aðstoða fólk sem á í erfiðleikum vegna vímuefnafíknar og/eða geðsjúkdóma og sem stöðu sinnar vegna lendir í aðstæðum á almannafæri sem það ræður ekki við eða veldur öðrum ónæði.

Eurovison-myndbandið frumsýnt klukkan 12

Myndbandið við Mundu eftir mér sem er Eurovision-framlag okkar Íslendinga í ár verður frumsýnt á vefsíðu Vodafone klukkan 12 á hádegi í dag.

Ný samtök nefnast Dögun

Dögun – samtök um réttlæti, sanngirni og lýðræði er nafn nýrra stjórnmálasamtaka. Þetta var ákveðið á öðrum stofnfundi samtakanna sem fram fór í gær. Um hundrað manns sátu fundinn.

Ómar Ragnarsson: Þjófurinn er í vanda

"Þeir sem tóku þetta eru áreiðanlega í vandræðum því það er enginn sem vill kaupa svona vél. Ég bara bíð og vona," segir skemmtikrafturinn Ómar Ragnarsson. Fyrir rúmlega tveimur vikum var stolið frá honum tveimur kvikmyndatökuvélum og einu magabelti með veski sem hann hafði lagt frá sér við innganginn á blokkinni sinni.

Þriðjungur er andvígur meiri virkjun

Afstaða fólks til aukinna virkjanaframkvæmda á Hellisheiði er önnur en til almennrar nýtingar jarðvarma. Þetta kemur í ljós þegar bornar eru saman tvær nýlegar kannanir.

Eldgosin kostuðu ríkið 1,3 milljarða króna

Ríkisstjórnin hefur veitt um 1,3 milljarða króna aukalega vegna eldgosa og annarra hamfara síðan í maí árið 2010. Í þeirri fjárhæð er ekki meðtalinn margvíslegur kostnaður stofnana sem fjármagnaður hefur verið af árlegum fjárheimildum þeirra.

Tveir fluttir á slysadeild eftir árekstur

Tveir voru fluttir á slysadeild Landsspítalans eftir að þrír bílar skullu saman á Reykjanesbtraut í gærkvöldi og að minnstakosti eisnn þeirra hafnaði utan vegar. Hvorugur slasaðist þó alvarlega, en brautinni var lokað um tíma á meðan lögreglan var að greiða úr málinu.

Sjá næstu 50 fréttir