Hagar stefnir Arion banka - vilja 824 milljónir 21. mars 2012 19:30
Stjórn Haga hefur ákveðið að krefja Arion banka um rúmar áttahundruð og tuttugu milljónir króna vegna endurútreiknings á gengistryggðum lánum. Félagið telur að eftir dóm hæstaréttar í síðasta mánuði þurfi að endurreikna lánin aftur og hefur því ákveðið að höfða dómsmál til að fá skorið úr um réttmæti kröfunnar. Bankinn álítur hins vegar að dómurinn hafi takmarkað fordæmisgildi og eigi ekki við um lán Haga. Í tilkynningu frá Högum segir: Í kjölfar niðurstöðu dóms Hæstaréttar í máli nr. 600/2011, sem kveðinn var upp 15. febrúar sl., hafa Hagar hf. fengið lögfræðiálit á stöðu sinni vegna gengistryggðra lána félagsins hjá Arion banka hf., áður Kaupþings Búnaðarbanka hf., sem greidd voru upp í október 2009. Hagar fengu greiddar kr. 514.891.325 í desember 2011 vegna endurútreiknings bankans á fyrrnefndum lánum. Niðurstaða lögfræðiálitsins gefur til kynna að Hagar eigi enn frekari kröfu á hendur Arion banka vegna lánanna en Arion banki hefur tilkynnt félaginu, með bréfi dagsettu 12. mars sl., að bankinn álíti sem svo að dómurinn hafi takmarkað fordæmisgildi og telji því að Hagar eigi ekki rétt til frekari endurútreiknings lánanna. Stjórn Haga hefur tekið þá ákvörðun að höfða dómsmál á hendur Arion banka til að fá skorið úr um réttmæti kröfunnar enda er ljóst að um umtalsverðar fjárhæðir er að ræða. Hagar hafa fengið fyrirtækjasvið KPMG ehf. til að framkvæma endurútreikning miðað við forsendur dómsins og gefur hann til kynna að félagið eigi rúmar 824 milljóna króna kröfu á bankann, miðað við uppgjörsdag 29. febrúar 2012.
Mest lesið Ákærði hálfur Íslendingur: Játaði morðið á Instagram tveimur vikum eftir það Erlent Holskefla í kortunum Innlent „Þetta var óvenjuleg ræða“ Innlent Tæp 68 prósent barna í 2. bekk með aldurssvarandi hæfni í lestri Innlent Fagnar því að sjá Pírata mælast á þingi og útilokar ekki formannsframboð Innlent Sprenging í Osló og stórt svæði girt af Erlent Drónaflugin geti valdið mikilli röskun og miklu tjóni Innlent „Maður er skíthræddur um að maður brenni inni“ Innlent Rússland sé „pappírs tígur“ og Úkraínumenn geti unnið landið aftur Erlent Bílslys í Laugardal Innlent Fleiri fréttir „Þetta var óvenjuleg ræða“ Fagnar því að sjá Pírata mælast á þingi og útilokar ekki formannsframboð Drónaflugin geti valdið mikilli röskun og miklu tjóni Tæp 68 prósent barna í 2. bekk með aldurssvarandi hæfni í lestri Holskefla í kortunum Bílslys í Laugardal „Við erum notuð sem hræðsluáróður fyrir verðandi foreldra“ „Maður er skíthræddur um að maður brenni inni“ Núverandi kvikusöfnunartímabil geti dregist á langinn Brennuvargur gengur laus, stórfjölgun krabbameina og í beinni frá Köben Þorgerður telur tilefni til að kalla saman þjóðaröryggisráð Inga eigi að kalla saman þjóðaröryggisráð þegar í stað Skólameistarar styðja ekki breytingar ráðherra Stefnir í lokað þinghald að beiðni mæðgnanna Harmsaga fjölskyldunnar ekkert einsdæmi Örlög hjartanna enn óráðin Troðfyllti stangirnar af amfetamínbasa Forsetahjónin á leið til Finnlands Benti á mikilvægi fyrirmynda þegar kæmi að jafnréttismálum Ekki lengur framsal á fullveldi heldur neytendavernd Mæla hiklaust með lyfinu á meðgöngu ef þörf þykir á Hrædd um að brennuvargur gangi laus í bænum Starfandi forsætisráðherra lítur drónabrölt „grafalvarlegum augum“ Vara við svikapóstum frá Ríkisskattstjóra Dularfullir drónar og umdeildar kenningar um einhverfu og parasetamól Telja sig vita hverjir grímuklæddu mennirnir eru Ferðum aflýst og einni vél snúið við vegna drónaumferðar í Kaupmannahöfn Ætlar að fækka sveitarfélögum fyrir kosningar Aðeins helmingur telur sig við góða heilsu Rannsaka húsbrot og eldsvoða á Sauðárkróki Sjá meira