Fleiri fréttir

Kynnti skýrslu um framtíðarskipan fjármálakerfisins

Steingrímur J. Sigfússon, Efnahags- og viðskiptaráðherra, kynnti á ríksstjórnarfundi í morgun skýrslu sína til Alþingis um framtíðarskipan íslenska fjármálakerfisins og opinbert eftirlit með því. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að fjármálakreppa síðustu fjögurra ára hafi leitt í ljós ýmsa vankanta og veilur á fjármálakerfinu "og jafnframt vakið upp margvíslegar siðferðilegar og pólitískar spurningar sem takast verður á við og svara, eigi að takast að endurreisa traust almennings til banka og fjármálamarkaða. Af þessum sökum er þörf fyrir gagngerar endurbætur á umgjörð og skipan fjármálakerfisins víða um lönd. Ísland er hér engin undanteking. Allar götur frá bankahruninu haustið 2008 hafa breytingar á lagaumgjörðinni um fjármálastarfsemi á Íslandi verið til umræðu.“

Bongóblíða um helgina

Hitinn nær fimmtán stigum á Seyðisfirði í dag og á Neskaupstað er hann 14,7 gráður. Það má því segja að það sé bongóblíða í dag á Austfjörðum. Á hálendinu er líka mikill hiti. Á Möðrudal er 10,7 gráðu hiti.

Glitnismenn áfrýja til Hæstaréttar

Úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur, frá því í dag, í máli sérstaks saksóknara gegn Lárusi Welding og Guðmundi Hjaltasyni hefur verið kærður til Hæstaréttar. Þetta staðfestir Þórður Bogason hæstaréttarlögmaður og verjandi Guðmundar í samtali við Vísi. Hann vildi að öðru leyti ekki láta hafa neitt eftir sér um málið.

Einar Boom segist hættur í Vítisenglum

Einar Ingi Marteinsson, Einar Boom, er hættur í Hells Angels. Samkvæmt frásögn á DV.is hringdi Einar úr gæsluvarðhaldi í ritstjórn DV til að greina frá þessu. "Ég er hættur í Hells Angels. Ég ætla ekkert að ræða það frekar, en ég er hættur og þetta er staðfest," er haft eftir Einari og segir ástæðuna fyrir brotthvarfi hans verða opinberaða síðar. Aðspurður segir Einar það vera skrítið að vera skilinn við samtökin en hann segir að þannig sé það engu að síður. Einar situr í gæsluvarðhaldi grunaður um aðild að árás á konu um síðustu áramót.

Fanfest vekur athygli víða um heim

Mikið hefur verið dýrðir í Hörpunni frá því að Fanfest hátíðin hófst þar í gær. Rúmlega 1.500 spilarar og aðdáendur EVE Online tölvuleiksins hafa heimsótt tónlistarhúsið. Þá hafa þúsundir fylgst með fyrirlestrum tengdum EVE Online og DUST 514 í gegnum netið.

Össur fundaði með Ashton

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, tók í gær þátt í fundi með Catherine Ashton, yfirmanni utanríkis- og öryggismálastefnu Evrópusambandsins, og starfsbræðrum sínum frá öðrum umsóknarríkjum ESB í Brussel. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að þá hafi setið fundinn utanríkisráðherrar "formennskuþríeykis sambandsins sem og ráðherrar nokkurra annarra aðildarríkja þess.“

Dorrit með ADHD og lesblindu

Dorrit Moussieff forsetafrú er með lesblindu og AD/HD. Frá þessu greinir hún í samtali við Verzlunarskólablaðið. Ítarlegt viðtal er við Dorrit í blaðinu. Þar er hún meðal annars spurð að því hvort hún hafi gengið í skóla sem barn.

Sérstakur saksóknari þarf ekki að láta upptökur af hendi

Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag kröfu verjenda Lárusar Welding og Guðmundar Hjaltasonar, fyrrum Glitnismanna, að sérstakur saksóknari afhendi þeim geisladiska með mynd- og hljóðupptökum af skýrslutökum yfir þeim. Þeir Lárus og Guðmundur hafa verið ákærðir fyrir umboðssvik vegna lánveitinga til Milestone.

Talning í biskupskosningunum hafin

Kjörnefnd kom saman á Dómkirkjuloftinu klukkan eitt í dag til að telja atkvæðin í fyrstu umferð biskupskosninganna. Kosið var í póstkosningu. Kjörnefnd byrjar á því að fara yfir umslögin sem borist hafa. Um klukkan fjögur í dag verður svo byrjað að telja sjálf atkvæðin. Búist er við því að úrslitin sjálf liggi svo fyrir á sjötta timanum.

Sigmaður gæslunnar fékk í sig straum

Sá óvenjulegi atburður varð við æfingar hjá Landhelgisgæslunni á dögunum að mikið stöðurafmagn myndaðist þegar þyrla var við æfingar á ytri höfn Reykjavíkur í röku lofti og hundslappadrífu. Á heimasíðu gæslunnar segir að afar sjaldgæft sé að svo mikið stöðurafmagn myndist en það þekkist þó í ákveðnum veðurfarslegum skilyrðum þrátt fyrir jarðtengivír sem notaður er til varnar þessum aðstæðum.

Breytingar á tíðnisviði gætu kostað rekstraraðila hundruð milljóna

Breytingar Póst- og fjarskiptastofnunar á tíðinisviði, sem lengi hefur verið notað undir þráðlausa hljóðnema og annan hljóðbúnað, gætu kostað útsendingaraðila og leikhús mörg hundruð milljónir. Rekstraraðilar þurfa því að greiða fyrir endurstillingi hljóðbúnaðarins eða kaupa nýjan.

Þarf meira en 50% atkvæða

Biskupsefni þarf meira en 50% atkvæða til þess að hljóta kjör, samkvæmt upplýsingum frá biskupsstofu. Talning atkvæða í fyrstu umferð kjörsins fer fram í dag og hefst klukkan eitt. Átta manns eru í kjöri og er gert ráð fyrir því að ef enginn þeirra fær meira en helming atkvæða gætu ný kjörgögn farið út 2. apríl, þeim yrði skilað 16. apríl og talið yrði 20. apríl.

Telur fordæmisgildi dóms mikið

Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra, þarf að fá undanþágu frá Hæstarétti til að fá að áfrýja dómi héraðsdóms í meiðyrðamáli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á hendur Birni. Sótt verður um leyfið eftir helgi segir Jón Magnússon, verjandi Björns.

Ráðherrar í lögreglufylgd

Lögreglumenn fylgdu ráðherrunum Steingrími J. Sigfússyni og Ögmundi Jónassyni þegar þeir yfirgáfu ríkisstjórnarfund í stjórnarráðinu í morgun. Ráðherrar á Íslandi eru alla jafna ekki í fylgd lífvarða, en þó hafa komið upp tímabil þar sem talin hefur verið þörf á því. Skemmst er að minnast þess að lífverðir fylgdu Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hvert fótmál eftir að bankakerfið hrundi haustið 2008.

Sundhöllin 75 ára

Sundhöll Reykjavíkur er 75 ára í dag og verður afmælishátíð allan daginn fyrir gesti og velunnara. Eva Einarsdóttir, formaður Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, mun flytja ávarp og boðið verður upp á kaffi og köku í afgreiðslu laugarinnar.

Kona fái bætur fyrir fall á eigin heimili

Umboðsmaður Alþingis gagnrýnir úrskurðarnefnd almannatrygginga fyrir að túlka reglugerð of þröngt þegar nefndin neitaði eldri konu, sem handleggsbrotnaði á heimili sínu, um bætur úr slysatryggingu.

Sakar Bryndísi um lygar

Halla Harðardóttir, systurdóttir Bryndísar Schram, sakar hana um lygar í aðsendri grein í Fréttatímanum í dag. Málið snýst um viðtal og grein sem Þóra Tómasdóttir, ritstjóri Nýs lífs, skrifaði um meinta kynferðislega áreitni Jóns Baldvins Hannibalssonar, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, gegn Guðrúnu Harðardóttur. Bryndís Schram, eiginkona Jóns Baldvins, svaraði ásökununum á hendur Jóni í aðsendri grein sem hún sendi í Fréttatímann fyrir viku. Halla, sem er systir Guðrúnar, ákvað að svara Bryndísi í grein sem hún birtir í Fréttatímanum í dag.

Geta beygt út af lögreglustöð

Gerð hefur verið sú breyting á fyrirhuguðum framkvæmdum við umferðareyjar og hringtorg á Dalvegi að lögreglan mun fá undanþágu til að beygja til vinstri þegar ekið er frá lögreglustöðinni þar við götuna.

Þjórsá í biðflokk og Reykjanes í nýtingu

Unnið er að því að tryggja þingmeirihluta fyrir Rammaáætlun um verndun og nýtingu náttúrusvæða. Áætlunin hefur verið afgreidd úr ríkisstjórn og er nú í þingflokkum stjórnarflokkanna. Tillögu verkefnisstjórnar er breytt og virkjanakostir færðir úr nýtingarflokki yfir í biðflokk. Unnið er að því að tryggja meirihluta málsins.

Búist við 8.000 ferðamönnum úr 4 skipum á einum degi

Búist er við að allt að átta þúsund erlendir ferðamenn muni stíga á land úr fjórum skemmtiferðaskipum í Reykjavík 18. júní næstkomandi og munu aldrei áður jafn margir farþegar úr slíkum skipum hafa komið sama daginn til Reykjavíkur.

Hitabylgja helgarinnar gerir vart við sig

Svokölluð hitabylgja, sem landsmenn vonast nú eftir, er farin að gera vart við sig og voru farnar á sjást tveggja stafa hitatölur strax á sjötta tímanum í morgun.

Tryggja meirihluta Rammaáætlunar

Unnið er að því að tryggja þingmeirihluta fyrir Rammaáætlun um verndun og nýtingu náttúrusvæða. Áætlunin hefur verið afgreidd úr ríkisstjórn og er nú í þingflokkum stjórnarflokkanna. Tillögu verkefnisstjórnar er breytt og virkjanakostir færðir úr nýtingarflokki yfir í biðflokk. Unnið er að því að tryggja meirihluta málsins.

Kvöð um 50 ára aldursmark óbreytt

Félagið FM-hús ehf. sem á íbúðablokkina Skipalón 10 til 14 fær ekki fellda niður kvöð sem er á húsinu og öðrum fjölbýlishúsum í næsta nágrenni í Skipalóni um að íbúar á svæðinu séu fimmtíu ára eða eldri. Erindi FM-húsa var tekið fyrir í skipulags- og byggingaráði Hafnarfjarðar á þriðjudag. Fjöldi athugasemda barst frá íbúum til beggja handa við Skipalón 10.

Olweus er samofinn skólastarfinu

Ingibjörg Jósefsdóttir, skólastjóri Hagaskóla, segir nauðsynlegt að allir skólar séu með einhvers konar eineltisáætlun. Eins og greint var frá í Fréttablaðinu í gær, hefur einelti í þeim skólum sem fylgja Olweusar-áætluninni dregist saman um þriðjung.

SS stefnir á pylsuútrás

Nú stefnir í að Sláturfélag Suðurlands (SS) muni hefja nýstárlega útrás, þeir hyggjast nefnilega flytja út og selja pylsur á erlendum mörkuðu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir meðal annars að Í gegnum árin hafi félagið fengið mikinn fjölda fyrirspurna frá erlendum og innlendum aðilum sem vilja selja SS pylsuna erlendis en ekki hefur verið hægt að verða við þessu fyrr en nú.

Ótrúlega mörg rafstuð - mikilvægt að læra skyndihjálp

"Fimmtán rafstuð, það er ansi mikið,“ segir Felix Valsson, formaður Endurlífgunarráðs, í viðtali við Reykjavík síðdegis í dag, en þar var rætt um ótrúlega endurlífgun fótboltakappans Fabrice Muamba. Hann féll skyndilega niður í miðjum leik Bolton og Tottenham á White Hart Lane á laugardaginn síðasta. Hann var tæknilega látinn í 78 mínútur. En með þrautseigju og hárréttum viðbrögðum, fór hjarta Muamba að slá á ný. Nú sýnir hann ótrúleg batamerki.

Fanfest: Þjóðhátíð tölvuleikjaspilara

Tölvuleikjaframleiðandinn CCP kynnti nú síðdegis nýjan tölvuleik fyrir Play Station leikjatölvur. Leikurinn hefur verið í þróun í fjögur ár og markar hann tímamót í tölvuleikjaiðnaði heimsins segir framkvæmdastjóri fyrirtækisins.

Merethe Lindstrøm fékk bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs

Það var rithöfundurinn Merethe Lindstrøm sem hlaut bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2012. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands um klukkan sjö í kvöld. Verðlaunin fær Lindstrøm fyrri bók sína, Dager i stillhetens historie, sem kom út á síðasta ári í Noregi.

Lækkaði verðið og var kosinn besti rekstrarstjórinn

Nú nýverið var haldinn árlegur fundur hjá rekstrarstjórnendum TGI Friday´s í heiminum og fór hann fram í Dallas í Texas samhliða heimsmeistarakeppni barþjóna hjá keðjunni, einnig voru menn heiðraðir fyrir fyrirmyndarárangur.

Grásleppan sendir fræðingunum "puttann“

Grásleppuvertíðin fer vel af stað fyrir norðan en þetta er í fyrsta sinn sem bannað er að henda grásleppunni í sjóinn eftir að búið er að hirða úr henni hrognin. Við Eyjafjörð byrjuðu flestir að leggja grásleppunetin fyrir viku og í Grenivíkurhöfn hitti Stöð 2 þá Þórð Ólafsson og Ingólf Björnsson sem voru að gera klárt fyrir róður á Elínu ÞH.

Fá ekki rafmagn fyrir fiskimjölsverksmiðjur

Hægt væri að spara hundruð milljóna í gjaldeyri með því að raforkuvæða íslenskar fiskimjölsverksmiðjur. Þetta segir rekstrarstjóri verksmiðju HB Granda á Akranesi. Rafmagnið hefur hins vegar ekki fengist.

Segir andstöðu gegn Vaðlaheiðargöngum með ólíkindum

Bæjarstjóri Akureyrar segir með ólíkindum hvernig allskyns hlutir séu leitaðir uppi gegn Vaðlaheiðargöngum og hvetur stjórnvöld til að drífa framkvæmdina af stað nú þegar. Fimm mánuðum eftir að tilboð voru opnuð í gerð Vaðlaheiðarganga situr verkefnið fast í meðförum ríkisstjórnar og Alþingis.

Ekki lengur hægt að senda nafnlaus smáskeyti

Gerðar hafa verið endurbætur á SMS-sendingum í gegnum vefsíðuna Já.is. Frá og með deginum í dag munu þeir sem senda SMS af Já.is þurfa að auðkenna sig áður en þeir geta sent SMS-skeyti í íslensk farsímanúmer. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Ósannað að byssumennirnir hafi reynt að drepa fórnarlömbin

Axel Már Smith, sem var ákærður fyrir aðild að skotárás í Bryggjuhverfinu í nóvember síðastliðnum, var sýknaður af þeim ákærulið. Þetta kemur fram í dómnum sem Vísir hefur undir höndum. Þrír menn voru ákærðir í málinu. Auk Axels voru það þeir Kristján Halldór Jensson, sem var dæmdur í fjögurra ára fangelsi, og Tómas Pálsson Eyþórsson sem var dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi. Skotið var á bíl við bílasöluna Höfðahöllin.

Olíudómi verður áfrýjað

Íslenska ríkið þarf að endurgreiða olíufélögunum sektargreiðslur vegna verðsamráðs upp á einn og hálfan milljarð króna samkvæmt niðurstöðu héraðsdóms Reykjavíkur. Félögin nutu að mati dómara ekki andmælaréttar í samræmi við lög.

Framkvæmdastjóri smálánafyrirtækis: Umræðan einkennist af forsjáhyggju

"Við fögnum umræðunni og að það sé verið að taka á fjármálalæsi hjá fólki,“ segir Leifur Haraldsson, framkvæmdastjóri hjá Kredia, í viðtali við Reykjavík síðdegis í dag. Þar voru smálánin til umræðu en Reykjavík síðdegis ræddi við Breka Karlsson í gær, en hann hefur varað við smálánum auk þess sem hann kennir ungu fólki fjármálalæsi.

Fóðurbíll valt

Engin slys urðu á fólki þegar stór fóðurbíll valt á hliðina í hringtorgi á Suðurlandsvegi, austanmegin við Olís bensínstöðina, nú eftir hádegið. Samkvæmt upplýsingum frá árekstri.is var vegurinn lokaður um tíma.

Bíl stolið frá Suzuki bílaumboðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir ljósgráum Suzuki Swift með skráningarnúmerið SSA-91 en bílnum var stolið frá Suzuki bílaumboðinu í Skeifunni í síðustu viku. Þeir sem geta gefið upplýsingar um hvar bíllinn er niðurkominn eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 444-1000 eða senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is

Sjá næstu 50 fréttir