Kynnti skýrslu um framtíðarskipan fjármálakerfisins 23. mars 2012 16:30
Steingrímur J. Sigfússon, Efnahags- og viðskiptaráðherra, kynnti á ríksstjórnarfundi í morgun skýrslu sína til Alþingis um framtíðarskipan íslenska fjármálakerfisins og opinbert eftirlit með því. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að fjármálakreppa síðustu fjögurra ára hafi leitt í ljós ýmsa vankanta og veilur á fjármálakerfinu „og jafnframt vakið upp margvíslegar siðferðilegar og pólitískar spurningar sem takast verður á við og svara, eigi að takast að endurreisa traust almennings til banka og fjármálamarkaða. Af þessum sökum er þörf fyrir gagngerar endurbætur á umgjörð og skipan fjármálakerfisins víða um lönd. Ísland er hér engin undanteking. Allar götur frá bankahruninu haustið 2008 hafa breytingar á lagaumgjörðinni um fjármálastarfsemi á Íslandi verið til umræðu." Þáverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, Árni Páll Árnason, lýsti því yfir síðastliðið haust á Alþingi að hann hyggðist láta semja yfirlitsskýrslu um fjármálakerfið og framtíðarþróun þess, sem lögð yrði fram á þessu þingi. „Skýrslan sem lögð var fram í ríkisstjórn í morgun, Framtíðarskipan fjármálakerfisins, er hugsuð sem framlag til umræðu um þetta mikilvæga viðfangsefni, bæði innan þings og utan. Í skýrslunni eru ekki lagðar fram fastmótaðar tillögur, en aftur á móti fjallað um meginviðfangsefni og viðhorf á þessu sviði með opnum hætti og með vísan til alþjóðlegrar þróunar. Auk umfjöllunar á Alþingi og í nefndum þingsins verður skýrslan send hagsmunaaðilum og háskólastofnunum til álits og umsagnar þegar eftir að hún hefur verið lögð fram á þingi." Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur jafnframt skipað starfshóp sérfræðinga - með þátttöku erlendra sérfræðinga - til þess að undirbúa tillögur um samræmda heildarumgjörð laga og reglna um alla starfsemi á íslenskum fjármálamarkaði. Í sérfræðingahópnum eru Gavin Bingham, fv. framkvæmdastjóri Central Bank Governance Forum hjá BIS í Basel, Jón Sigurðsson, fv. forstjóri Norræna fjárfestingarbankans (NIB) í Helsingfors og Kaarlo Jännäri, fv. forstjóri fjármálaeftirlits Finnlands. Í verklýsingu sérfræðingahópsins kemur fram að honum er ætlað að rýna texta skýrslunnar um framtíðarskipan fjármálakerfisins og kynna sér skoðanir og athugasemdir sem fram kunna að koma við umræður um hana innan þings og utan. Á grundvelli skýrslunnar og annarra tiltækra gagna er sérfræðinganefndinni ætlað að: 1. Kanna hvernig lögum og reglum um fjármálastarfsemi og framkvæmd eftirlits á Íslandi hefur verið breytt í tilefni af fjármálahruninu 2008; 2. greina veikleika sem enn kunna að vera til staðar í lögum og reglum um fjármálamarkaðinn og tengda markaði og í framkvæmd fjármálaeftirlits og eftirfylgni með því og gera tillögur til úrbóta; 3. gera tillögur um það hvernig unnt er að skipta betur verkum með einstökum þátttakendum á fjármálamarkaði og styrkja stofnanaumgjörð fjármálaeftirlits, bæði hvað varðar eindaeftirlit og þjóðhagsvarúð þ.e. heildareftirlit; 4. gera tillögur um hvernig best fari á því að setja samræmda heildarumgjörð laga og reglna um alla starfsemi á fjármálamarkaði. „Hópnum er síðan ætlað að skila til efnahags- og viðskiptaráðherra tillögum um breytingar á lagaumgjörð fjármálamarkaðarins, sérstaklega hvað varðar ábyrgðarsvið Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins. Ráðherra hyggst síðan leggja fram frumvarp á haustþingi 2012 byggt á tillögum sérfræðingahópsins. Sérfræðingahópurinn mun verða ráðuneytinu til ráðgjafar við samningu frumvarpa um þetta efni. Vonir eru við það bundnar að skýrslan um framtíðarskipan fjármálakerfisins sem hér liggur frammi og væntanlegt álit sérfræðingahópsins, sem kynntur var til sögunnar hér að framan, geti myndað gagnlegan umræðugrundvöll svo að upplýst umræða geti beint framtíðarþróun fjármálakerfisins á farsælar brautir. "
Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Erlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Fleiri fréttir „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Sjá meira