Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hagstæðast að kaupa páskaeggin í Bónus Hagstæðast er að gera páskaeggjakaupin í Bónus samkvæmt nýrri könnun Verðlagseftirlits ASÍ. Könnunin var gerð í 7 matvöruverslunum víðsvegar um landið á mánudaginn var. Kannað var verð á 28 algengum páskaeggjum. Kostur og Víðir neituðu þátttöku í könnuninni. 29.3.2012 10:22
Búið að stela nær öllum tönnum úr búrhvalnum í Beruvík Búið er að stela flest öllum tönnunum úr búrhvalnum, sem rak dauðan á fjöru í Beruvík á Snæfellsnesi um helgina, að því er Skessuhorn greinir frá. 29.3.2012 08:08
Innbrot í Lágmúla Lögreglunni var tilkynnt um innbrot í hús við Lágmúla í Reykjavík laust fyrir klukkan tvö í nótt. 29.3.2012 07:39
Skrölti áfram á þremur hjólum í Kömbunum Ölvaður ökumaður missti stjórn á bíl sínum neðst í Kömbunum um hálf tvö leitið í nótt fór yfir á öfugan vegarhleming og utan í vegrið þar. 29.3.2012 07:21
Sleðahundasport vaxandi grein Fjöldi fólks og hunda tók þátt í Íslandsmeistaramóti Sleðahundaklúbbs Íslands á Mývatni um síðustu helgi. Veðrið lék við keppendur, sem voru 28 talsins, og keppt var í 21 grein. Er þetta í annað sinn sem keppnin er haldin á vegum Sleðahundaklúbbs Íslands. 29.3.2012 07:00
Kvótafrumvarpið rætt til klukkan hálf fjögur í nótt á Alþingi Fyrstu umræðu um frumvarp stjórnvalda um stjórn fiskveiða, lauk ekki fyrr en klukkan hálf fjögur í nótt. Málinu var vísað til nefndar og annarar umræðu. 29.3.2012 06:45
Segja tekjujöfnun verða auðveldari Ákveðin skilyrði þarf til þess að gegnumstreymiskerfi borgi sig betur en sjóðsöfnun lífeyrisréttinda. Áhugi stjórnmálamanna á lífeyrissjóðum er sagður ills viti. Skiptar skoðanir eru um ágæti kerfisbreytingar í lífeyriskerfi landsmanna. 29.3.2012 06:00
Ræðst í dag hvort kosið verður í júní Alþingi samþykkti í gær að vísa þingsályktunartillögu um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskrár til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Nefndin fundaði um málið í gær og leggur meirihlutinn til talsverðar orðalagsbreytingar á spurningum sem leggja á fyrir þjóðina samhliða frumvarpsdrögunum. 29.3.2012 05:00
Horft til bankakerfis Kanada Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, vill efla stjórnmálaleg og viðskiptaleg tengsl Íslands og Kanada. Hann er nú staddur í Kanada til að ræða efnahagsmál við þarlenda ráðamenn og fundaði meðal annars með seðlabankastjóra og fjármálaráðherra Kanada í gær. Hann sagði fundina hafa verið afar gagnlega og telur ljóst að það sé áhugavert fyrir Ísland að byggja upp aukin tengsl við Kanada og horfa til þess 29.3.2012 05:00
Ferðamannastaðir sumir við þolmörk Ójöfn dreifing ferðamanna veldur miklu álagi á umhverfi auk þess sem upplifun ferðamanna skerðist ef þeir eru of margir. Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Önnu Dóru Sæþórsdóttur, dósents í ferðamálafræði við Háskóla Íslands, á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) í síðustu viku. 29.3.2012 04:00
Engin reikistjarna eins lík jörðinni Í lífbelti umhverfis stjörnur í vetrarbrautinni okkar, svokallaða rauða dverga, er að finna milljarða af bergreikistjörnum sem eru ekki mikið stærri en jörðin. Lífbeltið er sú fjarlægð frá stjörnunum þar sem hitastig er með þeim hætti að líf geti þrifist þar. 29.3.2012 03:15
Kaupþingsstjórar fyrir rétt á morgun Búast má við því að Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, Ólafur Ólafsson, einn stærsti eigandi hins fallna banka, og Magnús Guðmundsson, forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, muni allir mæta í Héraðsdóm Reykjavíkur á morgun. Þá verður fyrirtaka í máli sérstaks saksóknara gegn þeim í svokölluðu al-Thani máli. 28.3.2012 23:27
Telja betra að leyfa spilavíti Það er kominn tími á nýjan hugsanahátt varðandi vanda spilafíkla. Þetta segir Arnar Gunnlaugsson, í viðtali við Reykjavík síðdegis í dag. Hann og Bjarki bróðir hans hafa áhuga á að opna spilavíti hér á landi. 28.3.2012 22:19
Aðalsamningamaðurinn látinn hætta Aðalsamningamaður Íslendinga við Evrópusambandið í makríldeilunni var látinn hætta um síðustu áramót. Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, fullyrti þetta í umræðum um kvótafrumvarpið á þingi í kvöld. 28.3.2012 21:47
Barnaafmæli á listasafni Nýstárleg sýning stendur yfir í Nýlistasafninu sem hefur tímabundið verið breytt í leiksvæði fyrir börn. Listamaðurinn Curver Thoroddsen stendur fyrir sýningunni. Hann segir að listaverkið verði til þegar fjölskyldan mættir á sýninguna til að leika sér og skemmta. 28.3.2012 20:56
Þurfum að eiga fyrir því sem við kaupum Það er allt í lagi að eignast hluti ef maður hefur efni á því, segir Jón Jónsson, tónlistarmaður og hagfræðingur. Í Reykjavík síðdegis í dag ræddi Jón um samtal sem hann átti við börn á fermingaraldri hjá Arion banka í gær. 28.3.2012 20:51
Þjóðverja þyrstir í skrif Ragnars Þýska útgáfurisinn Fischer Verlage hefur tryggt sér útgáfuréttinn á íslensku bókinni Myrknætti eftir Ragnar Jónasson, rithöfund. Bókaforlagið gaf líka út Schneebraut, sem var valin ein af fjórum bestu bókum haustsins 2011 af þýsku tímariti. 28.3.2012 19:44
Íslensk ættleiðing í fjársvelti Svo gæti farið að eina ættleiðingafélag Íslands hætti að taka við umsóknum á þessu ári vegna fjárskorts. Formaður segir félagið þurfa áttatíu milljónir aukalega frá ríkinu til að geta haldið rekstrinum áfram. 28.3.2012 18:56
Íslendingur vann 108 milljónir í Víkingalottói Íslendingur varð 108 milljónum króna ríkari eftir að dregið var í Víkingalottóinu í kvöld. Miðinn var seldur í Olís við Glerá á Akureyri. Tölurnar sem komu upp voru 7 16 27 28 35 45. Bónustölurnar voru 6 og 14 28.3.2012 18:19
Katrín mælti fyrir kvótafrumvarpinu Katrín Jakobsdóttir, varaformaður VG, mælti fyrir frumvarpi um stjórn fiskveiða á Alþingi í dag. Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, var fjarverandi þegar málið var sett á dagskrá. Katrín er starfandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra á meðan. 28.3.2012 18:10
Lögreglustjóri trúir ekki Guðrúnu Ebbu Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segist ekki eiga annað en góðar minningar um tengdaföður sinn heitinn, séra Ólaf Skúlason. Sigríður er gift séra Skúla Ólafssyni sem kom fram fyrir alþjóð í vetur þar sem hann lýsti því yfir að hann legði ekki trúnað á orð systur sinnar, Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur, sem hefur sakað föður þeirra um kynferðisbrot gegn sér. Í forsíðuviðtali við Nýtt líf, sem kemur út á morgun, er Sigríður spurð hvort hún sé skoðunar og Skúli og efist um frásögn Guðrúnar Ebbu. "Hann hefur sagt að bældar minningar séu afar umdeilt fyrirbæri meðal sérfræðinga um þessi mál. Sú er vitaskuld raunin, því fátt hefur vakið eins miklar deilur innan sálarfræðinnar eins og mál af þessum toga. Og hann hefur sagt að þessi mynd sem var máluð af heimilishaldinu og af föður hans standist ekki. Ég get vissulega tekið undir það. Ég er búin að vera meira en 20 ár í fjölskyldunni og ég á bara góðar minningar um tengdaföður minn. Við verðum að treysta á réttarríkið og það að fólk sé saklaust þar til sekt þess hefur verið sönnuð." Athygli vekur að það er Sigríður Dögg Auðunsdóttir, verðlaunablaðamaður, sem tekur viðtalið í Nýju lífi og markar það því endurkomu hennar í fjölmiðla eftir áralangt hlé. 28.3.2012 17:46
Fara fram á lögbann á innheimtuaðgerðir Landsbankans Hagsmunasamtök heimilanna og talsmaður neytenda hafa farið fram á lögbann á innheimtuaðgerðir Landsbankans hjá sýslumanninum í Reykjavík. Þannig vilja samtökin og talsmaður að komið verði í veg fyrir að bankinn innheimti greiðsluseðla sem tilkomnir eru vegna veðskuldarbréfa eða skuldabréfa sem eru gengistryggð í erlendri mynt eða hafa verið gengistryggð í erlendri mynt en eru nú íslenskum krónum og hvíla á fasteign eða lausafé og veitt hafa verið neytendum, frá og með lögbanni sýslumanns. 28.3.2012 15:46
Aðskotahlutir í First Price salthnetum Með hliðsjón af neytendavernd og í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur þá hefur Kaupás hf tekið úr sölu First Price salthnetur í 250g umbúðum, varan hefur verið í sölu í verslunum Krónunnar, Nóatúns, Kjarvals & 11-11. Í öllum framantöldum verslunum hefur varan verið fjarlægð úr hillum verslana. 28.3.2012 15:24
Fimm tonna tjakkur féll á fót starfsmanns álversins í Straumsvík Það tók um hálftíma að losa byrði sem féll ofan á fót starfsmann álversins í Straumsvík en slysið átti sér stað laust eftir hádegi í dag. Það var fimm tonna tjakkur sem féll ofan á fótinn, en hann féll úr krana og á fót starfsmannsins. 28.3.2012 14:53
RFF hefst á morgun - Tískuvaka í miðbænum Reykjavík Fashion Festival hefst á morgun og verður Tískuvaka haldin í Hörpunni og miðbæ Reykjavíkur. Um 60 verslanir munu taka þátt í vökunni og verða þær opnar til klukkan níu annað kvöld. 28.3.2012 17:09
Tófú með chili innkallað vegna örverumengunar Heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík hefur innkallað Six fortune tófú með chili af markaði vegna örverumengunar. Matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur hafa borist upplýsingar frá Matvælastofnun um innköllun af markaði á Six fortune tófú með chili vegna örverumengunar af völdum Bacillus cereus. 28.3.2012 15:34
Rafrænar kosningar í Reykjavík hefjast eftir miðnætti Rafrænar íbúakosningar í Reykjavík, þar sem kosið verður um verkefni í hverfum borgarinnar, hefjast þegar klukkan verður eina mínútu gengin í eitt í nótt, fimmtudaginn 29. mars. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg en opið verður fyrir móttöku atkvæða fram yfir miðnætti þriðjudaginn 3. apríl. 28.3.2012 14:40
Vinnuslys í álverinu í Straumsvík Vinnuslys varð í álverinu í Straumsvík á öðrum tímanum í dag. Meðal annars var slökkviliðsbíll kallaður út en samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var það vegna þess að sá slasaði klemmdi fótinn sinn og þurfti að losa hann með hjálp tækjabúnaðar slökkviliðsins. 28.3.2012 14:13
Leiðbeinandi dæmdur fyrir að misnota unglingsstúlkur Karlmaður fæddur 1986 var dæmdur í tveggja ára óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Vesturlands í síðustu viku fyrir að misnota kynferðislega tvær unglingsstúlkur síðasta sumar. Um er að ræða mann sem starfaði annarsvegar sem leiðbeinandi í grunnskóla stúlknanna og að auki starfaði hann sem leiðbeinandi hjá Rauða Krossinum. 28.3.2012 13:58
Mottumars klárast á morgun Árvekni- og fjáröflunarátakinu Mottumars lýkur á morgun, fimmtudaginn, 29. mars, með lokahófi í Þjóðleikhúskjallaranum. Alls hafa tæpar 23 milljónir safnast í átakinu í þetta sinnið og á morgun verða þeir sem þátt tóku í átakinu með því að skarta yfirskeggjum af öllum stærðum og gerðum heiðraðir. 28.3.2012 14:06
Steingrímur farinn til Kanada Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, er staddur í Ottawa í Kanada. Í tilkynningu frá ráðuneytum hans segir að þar muni hann eiga þar nokkra fundi með ráðherrum, bankamönnum og öldungardeildarþingmönnum. Á morgun mun ráðherra taka þátt í pallborðsumræðum um stöðu efnahagsmála og vanda ríkissjóða hjá Harvard Business School Club í Toronto. 28.3.2012 13:51
Fartölvum stolið frá Mæðrastyrksnefnd - ekki úthlutað í dag Brotist var inn hjá Mæðrastyrksnefnd í Reykjavík í nótt. Þjófarnir höfðu þrjár nýlegar Lenovo fartölvur á brott með sér - tölvurnar voru keyptar í síðustu viku. 28.3.2012 12:40
Þrjátíu veiktust í veislu í Skagafirði Talið er að hátt í þrjátíu manns hafi veikst af matareitrun eftir að hafa borðað sjávarrétt í veislu í Skagafirði. Enginn var lagður inn á sjúkrahús en eldri maður fékk ansi svæsin einkenni. 28.3.2012 12:08
Árs fangelsi fyrir brennu Karlmaður var dæmdur í eins árs óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun fyrir að kveikja í íbúðarhúsi á Leifsgötu i Reykjavík í júlí árið 2010. Maðurinn var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir að kveikja í öðru húsi á Tryggvagötu í janúar 2009. 28.3.2012 12:07
Pétur Kr. Hafstein hættir sem forseti kirkjuþings Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, hefur af heilsufarsástæðum sagt af sér embætti forseta og jafnframt þingfulltrúastarfi fyrir Suðurprófastsdæmi, 9. kjördæmi kirkjuþings. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðkirkjunni. Pétur lætur jafnframt af öðrum trúnaðarstörfum í þágu þjóðkirkjunnar. 28.3.2012 11:44
Tveggja ára fangelsi fyrir að verða barni sínu að bana Agné Krataviciuté, var dæmd í tveggja ára fangelsi fyrir að hafa orðið nýfæddu sveinbarni sínu að bana í júlí á síðasta ári, veita því skurðáverka í andliti og koma líkama þess fyrir í ruslageymslu Hótel Frón, þar sem Agné starfaði við þrif. Dómari kvað upp úrskurð nú fyrir stundu. 28.3.2012 11:36
Eygló hraunaði yfir Ragnheiði Elínu úr ræðustól á Alþingi Eygló Harðardóttir þingmaður Framsóknarflokksins hraunaði yfir framgöngu Ragnheiðar Elínar Árnadóttur þingflokksformanns Sjálfstæðisflokksins í nótt. Í ræðustól á Alþingi rétt áðan sagði Eygló að framkoma þingflokksformannsins hafi verið mikill dónaskapur og henni til skammar. 28.3.2012 11:05
Gengistryggð lán milljónum lægri en verðtryggðu lánin Kostnaður við að færa verðtryggð lán Íbúðalánasjóðs, frá árunum 2002 fram að hruni, niður að stöðunni eins og hún væri hefðu verðbólgumarkmið Seðlabankans staðið nemur 67,2 milljörðum króna. Þetta kemur fram í útreikningum sem KPMG hefur unnið fyrir Helga Hjörvar, formann efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. 28.3.2012 11:00
Lokað hjá Mæðrastyrksnefnd Lokað verður hjá Mæðrastyrksnefnd í dag samkvæmt tilkynningu frá stjórn nefndarinnar. Úthlutun er að öllu jöfnu á miðvikudögum en verður semsagt ekki í dag. Aftur á móti er stefnt að úthlutun eftir viku. 28.3.2012 10:47
Hungurleikarnir og sálmabókin seljast vel Íslendingar eru hrifnir af norrænum krimmum þessa dagana samkvæmt sölutölum Eymundsson vikuna 21. til 27. mars. Þá seldust bækurnar Englasmiðurinn og Snjókarlinn best í bókabúðum Eymundsson. Þá er einnig ljóst að Hungurleikarnir eftir Suzanne Collins fer vel í ungmenni þjóðarinnar. Hún er þriðja mest selda bókin og trónir einnig á toppnum í flokki unglinga- og barnabókmennta. 28.3.2012 10:20
Skógarkerfill sækir í sig veðrið Skógarkerfill hefur lagt undir sig lúpínubreiður í Hrísey á undanörnum árum. Gróska kerfilsbreiða hefur nú verið rannsökuð í fyrsta sinn og því er hægt að fá vísbendingar um hvers er að vænta í landi sem skógarkerfill leggur undir sig. Að sögn Borgþórs Magnússonar, plöntuvistfræðings hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, sækir kerfillinn helst í frjósamt land og gömul tún sem hætt er að rækta. 28.3.2012 09:00
Smáey seld frá Eyjum, áhöfninni sagt upp störfum Allri 12 manna áhöfn togskipsins Smáeyjar frá Vestmannaeyjum hefur verið sagt upp og skipið selt til Grenivíkur, án kvóta. 28.3.2012 07:40
Mjallgæs sést á Íslandi í fyrsta sinn Meðal þeirra fugla, sem nýttu sér góðan byr til Íslands í hlýindunum á mánudag, var svonefnd Mjallgæs, sem er hvít gæs og hefur aldrei áður komið hingað til lands, svo vitað sé. 28.3.2012 07:26
Áskorun um að tryggja öryggi lögreglumanna Lögreglufélag Suðurlands skorar á yfirstjórn lögreglumála að tryggja það að öryggismálum lögreglumanna, þjálfun og búnaði verði án tafa komið í það horf, sem kveðið er á um í reglum ríkislögreglustjóra. 28.3.2012 07:20
Slökkvitæki olli útkalli hjá slökkviliðinu Slökkviliðið á Suðurnesjum var kallað að stúdentagörðum Keilis við Keflavíkurflugvöll þar sem tilkynnt hafði verið um reyk. 28.3.2012 07:15