Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Einn dæmdur fyrir að brenna Krýsuvíkurkirkju Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt rúmlega tvítugan mann í eins árs fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir að leggja eld að Krýsuvíkurkirkju í janúar 2010 með þeim afleiðingum að hún brann til ösku. Dómurinn féll um miðjan febrúar en hefur ekki verið birtur opinberlega. 28.3.2012 04:00
Búlandsvirkjun hefur mikil áhrif á náttúru og byggð virkjanirÁstæður þess að Búlandsvirkjun er sett í biðflokk í frumvarpi um rammaáætlun eru að veruleg óvissa ríkir um umhverfisáhrifin en á vatnasviði Skaftár og á áhrifasvæði virkjunarinnar eru náttúruverðmæti á heimsvísu. Þetta kemur fram hjá Þóru Ellen Þórhallsdóttur sem var formaður faghóps I og í verkefnisstjórn 2. áfanga rammaáætlunar. 28.3.2012 03:15
Leggja til að skipulögð glæpastarfsemi verði bönnuð Þingflokkur Framsóknarflokksins lagði í dag fram þingsályktunartillögu þess efnis að innanríkisráðherra verði falið að leggja fram frumvarp til breytinga á lögum sem banna að á Íslandi starfi brotahópar sem stundi starfsemi sem fellur undir alþjóðlegar skilgreiningar um skipulagða glæpastarfsemi. 27.3.2012 22:51
Íslendingar í gæsluvarðhaldi í Danmörku vegna fíkniefnasmygls Tveir íslenskir karlmenn sitja í gæsluvarðhaldi í Danmörku vegna fíkniefnasmygls. Annar þeirra hefur þegar játað. 27.3.2012 21:29
Segja kvótafrumvarpið mjög íþyngjandi fyrir sjávarútveginn Kvótafrumvarpið sem Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kynnti í gær er mjög íþyngjandi fyrir rekstur sjávarútvegsfyrirtækja. Þetta kemur fram í greinargerð sem unnin var fyrir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið. Það voru þeir Daði Már Kristófersson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands, og Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri, sem unnu greinargerðina. 27.3.2012 21:14
Játaði rán í 10/11 Annar mannanna tveggja sem handteknir voru í morgun, grunaðir um að hafa framið rán í verslun 10/11 við Mýrarveg á Akureyri, játaði við yfirheyrslur hjá lögreglu í dag. Hann er talinn hafa staðið einn að ráninu. Þáttur hins mannsins, sem handtekinn var, var lítill eftir því sem lögreglan fullyrðir. 27.3.2012 20:59
Stærsta verk í vegagerð eftir hrun Ingileifur Jónsson verktaki átti lægsta tilboð í þverun tveggja fjarða á Vestfjörðum, upp á rúma tvo milljarða króna. Þetta er stærsta verk sem Vegagerðin ræðst í eftir hrun. 27.3.2012 19:13
Íslensk olíuleitarfélög sækja um Drekann með erlendum félögum Tveir aðskildir hópar Íslendinga undirbúa í samvinnu við erlend olíuleitarfélög að senda inn umsókn í Drekasvæðið, en frestur rennur út á mánudag. Báðir hóparnir leggja nú lokahönd á stofnun íslensks olíuleitarfélags, hvor í sínu lagi. 27.3.2012 18:54
Eldri borgari varð 30 milljónum ríkari Sjötug kona varð 30 milljónum króna ríkar þegar dregið var út í Milljónaveltu Happadrættis Háskólans í dag. Potturinn hafði safnast upp í 30 milljónir í mars eða um 10 milljónir fyrir hvern mánuð ársins sem liðinn er. Konan sem fékk vinninginn hafði átt miðann um árabil. Konan var að vonum himinlifandi þegar hún fékk fréttirnar. Milljónaveltan gekk einnig út í mars mánuði fyrir ári síðan, þá 30 milljónir eins og nú - og vinningurinn þá féll einnig í skaut sjötugrar konu frá Reykjavík. 27.3.2012 17:55
Þingmenn vilja fara að sjá siðareglur fyrir forsetann Sex þingmenn úr Samfylkingunni og VG ásamt Atla Gíslasyni hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar þar sem Alþingi álykti að fela forsætisráðherra að undirbúa í samvinnu við embætti forseta Íslands setningu siðareglna fyrir forsetaembættið. 27.3.2012 17:09
Ekki vera eins og Þrándur Nú styttist í að rafrænar kosningar fari fram í Reykjavík. Að því tilefni hefur samráðsvefurinn Betri Reykjavík birt myndband þar sem borgarstjórinn ræðir um kosti slíkra kosninga. 27.3.2012 16:43
Dómur Landsdóms líklega kveðinn upp eftir páska Landsdómur mun að öllum líkindum ekki kveða upp dóm í sakamáli gegn Geir H. Haarde fyrr en eftir páska samkvæmt upplýsingum frá Þorsteini A. Jónssyni, skrifstofustjóra Hæstaréttar Íslands. 27.3.2012 15:56
Keyptu yfir tíu þúsund miða í Herjólf - lögmætið óljóst Þjóðhátíðarnefndin í Vestmannaeyjum keypti rúmlega tíu þúsund miða í Herjólf yfir Verslunarmannahelgina. Þannig er nær uppselt í ferðir til Vestmannaeyja fimmtudag og föstudag fyrir helgina. Og svo á mánudegi og þriðjudegi eftir helgi. Þjóðhátíðarnefndin selur svo miðana áfram, á sama verið og þeir voru keyptir, eða á 1150 krónur. 27.3.2012 16:57
Tilboð í Vestfjarðarveg opnuð - lægsta boð 2,1 milljarður Tilboð í gerð Vestfjarðarvegar um Kjálkafjörð og Kerlingafjörð voru opnuð í dag hjá Vegagerðinni. Hæsta boð átti Ingileifur Jónsson og hljóðar það upp á 83 prósent af áætlaðri kostnaðaráætlun. Hún hljóðar upp á 2.580 milljónir króna og var lægsta boð því 2.154 milljónir. Suðurverk átti næstlægsta boð, 2.487 milljónir. 27.3.2012 15:39
Þriggja vikna biðlisti hjá Stígamótum Þrátt fyrir sex ráðgjafa þá er þriggja vikna bið í viðtöl hjá Stígamótum. Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur, framkvæmdastýru Stígamóta þá geta fulltrúarnir tekið fimm til sex einstaklinga í viðtöl á hverjum degi. 27.3.2012 15:28
Bústaður brennur í Hvassahrauni Eldur logar nú í sumarhúsi í Hvassahrauni, sem er sunnan við álverið í Straumsvík. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór a staðinn og að sögn vaktstjóra er bústaðurinn alelda. Hann er því að öllum líkindum ónýtur. Óljóst er um eldsupptök. 27.3.2012 15:22
Slökkviliðið kallað út vegna straujárns Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út upp úr klukkan hálf tvö í dag vegna elds í fjölbýlishúsi í Kópavogi. 27.3.2012 14:48
Lýst eftir Sindra Frey Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Sindra Frey Jenssyni 16 ára, til heimilis að Túngötu 20, Grindavík. Síðast er vitað um ferðir Sindra Freys í Mosfellsbæ í gærdag. Hann var þá klæddur í gráa hettupeysu með rennilás, grænum/gráum Adidas jogging-buxum og í svörtum skóm. 27.3.2012 14:23
Bæjarlögmaðurinn segir ásakanir fráleitar Þórður Clausen Þórðarson, bæjarlögfræðingur Kópavogs, segir það af og frá að hann hafi reynt að hafa áhrif á vitni á fundi sem Morgunblaðið greinir frá í dag. Orðrétt segir Þórður í yfirlýsingu sem hann sendi á fjölmiðla: 27.3.2012 14:18
Fær miskabætur vegna rannsóknar á nauðgun - eiginkonan skildi við hann Héraðsdómur Reykjavíkur hefur gert Íslenska ríkinu að greiða karlmanni hálfa milljón króna í miskabætur eftir að lögreglan handtók hann í maí árið 2009 þar sem hann var grunaður um að hafa nauðgað gesti skemmtistaðar í Reykjavík. Lögreglan fór því næst fram á að maðurinn sætti gæsluvarðhaldi og samþykkti Héraðsdómur Reykjavíkur kröfu lögreglustjórans um vikulangt varðhald. 27.3.2012 14:08
Fjórir Vítisenglar handteknir og húsleitir á sex stöðum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og lögreglan á Suðurnesjum handtóku fyrir helgina fjóra meðlimi Hells Angels og framkvæmdu í kjölfarið húsleit á samtals sex stöðum í báðum umdæmunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Mönnunum var öllum sleppt skömmu síðar en handtökurnar eru liður í rannsókn lögreglu á skipulagðri glæpastarfsemi. 27.3.2012 13:30
Kynjaskipt svefnpokapláss á Þjóðhátíð Þjóðhátíðarnefnd Vestmannaeyja keypti í morgun hluta af miðunum sem seldir verða með Herjólfi í kring um hátíðina. Ekki fæst uppgefið hversu stóran hluta nefndin keypti. Í ár verður í fyrsta sinn boðið upp á vaktað kynjaskipt svefnrými innahúss á Þjóðhátíð. Byrjað var í morgun að selja miðana. "Við keyptum hluta af miðunum til að setja í sölu með miðum í Herjólfsdal," segir Páll Scheving Ingvarsson, formaður þjóðhátíðarnefndar. Hann vill ekki gefa upp um hversu stórt hlutfall mðanna er að ræða. "Við viljum nú kannski ekki gefa það upp. Ég held að það sé misjafnt eftir ferðum," segir Páll. Miðarnir sem nefndin keypti eru í ferðir á fimmtudag og föstudag fyrir þjóðhátíðarhelgina, og svo á mánudag og þriðjudag. Þetta er í fyrsta skipti sem nefndin kaupir miða með Herjólfi. Páll segir að aðrir hafi þó áður selt saman miða í Herjólf og í Herjólfsdal. Ástæðuna fyrir kaupunum segir Páll vera til að fá betri yfirsýn yfir gestafjölda, og til að nýta ferðir Herjólfs til fulls. Páll segir nefndina hafa keypt miðana til að fá betri yfirsýn yfir gestafjölda, og nýta ferðir Herjólfs til fulls. Oft hafi miðar með Herjólfi hreinlega selst upp á tveimur dögum þegar byrjað er að selja miðana í marsmánuði. "En síðan er fólk ekki alltaf að nýta farmiðana og er þá um leið í raun að "blokkera" aðgang annarra á sama tíma," segir Páll. Hann tekur fram að nefndinn hafi keypt miðana fullu verði, og þeir verði seldir áfram fyrir sömu upphæð, jafnvel í pakka þar sem einnig er boðið upp á gistingu. "Við ætlum að bjóða upp á nýja gistimöguleika. Við ætlum að tjalda inni í nýja knattspyrnuhúsinu og leigja þar gistingu, undir þaki, í skjóli, í vöktuðu húsnæði. Við munum líka bjóða upp á kynjaskipta gistingu í íþróttasölum þar sem verður vöktun líka, þar sem stelpur verða sér og strákar verða sér." Eftir síðustu Þjóðhátið var mikil umræða um þær nauðganir sem áttu sér stað á hátíðinni. Er þess aukna gæsla og kynjaskipting viðbrögð við þeim? "Kannski ekki bein viðbrögð. Við teljum þetta bara vera vinkil á því að geta betur tryggt öryggi," segir Páll. 27.3.2012 12:18
Grétar Mar: Nýtt kvótafrumvarp verra en núgildandi lög Kvótafrumvarp ríkisstjórnarinnar er verra en núverandi lög og nær hvorki að tryggja nýliðun innan greinarinnar né jafnræði. Þetta segir fyrrverandi þingmaður. Með frumvarpinu sé verið að afhenda útgerðarmönnum fiskiauðlinda á silfurfati. 27.3.2012 12:08
Straumsvíkurmálinu frestað - vitni neitar að koma til landsins Réttarhöldunum í Straumsvíkurmálinu svokallað var frestað í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgunn þar sem lykilvitni ákæruvaldsins vill ekki mæta fyrir dómstól og bera vitni. Ástæðan er sú að vitnið á að hafa pakkað og sent fíkniefnin frá Hollandi til Íslands, en maðurinn er búsettur í Hollandi. Hann er talinn geta varpað ljósi á það hver skipulagði innflutninginn. 27.3.2012 11:58
Sprengjumaður áfram í gæsluvarðhaldi Dómari Héraðsdóms Reykjaness féllst á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manni í gær, sem var handtekinn í lok febrúar, eftir að lögreglu á Suðurnesjum bárust ábendingar um sérkennilega Facebook síðu mannsins. Þar mátti finna myndir af manninum, sem er 29 ára gamall, handleika skotvopn auk þess sem þar mátti finna myndir af sprengju og sprengjuefni. Þá hafði maðurinn myndað það þegar hann sprengdi fiskikar í loft upp. 27.3.2012 10:50
Húsleitir hjá Samherja í Reykjavík og á Akureyri Fulltrúar frá gjaldeyriseftirliti Seðlabankans og sérstökum saksóknara eru nú í húsleitum á skrifstofum Samherja í Reykjavík og á Akureyri. 27.3.2012 09:56
Bæjarlögmaður sakaður um að reyna að hafa áhrif á vitni Bæjarlögmaður Kópavogs, Þórður Clausen Þórðarson, á að hafa lagt til við Sigrúnu Ágústu Bragadóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs Kópavogs, um að hún hagaði skýrslugjöf sinni fyrir dómi með þeim hætti að Gunnar I. Birgisson, bæjarfulltrúi og fyrrverandi bæjarstjóri Kópavogsbæjar, hefði beitt hræðslustjórnun þegar hann fór með völdin í bænum - og þannig stjórnað öllu ferli sjóðsins. 27.3.2012 09:48
LÍÚ segir kvótafrumvarpið skerða aflaheimildir verulega Aflaheimildir í þorski verða skertar um 9,5%, um 6,5% í ýsu, rúm 7% í ufsa og tæp 10% í steinbít, samkvæmt frumvarpi ríkisstjórnarinnar um fiskveiðistjórnun, segir á heimasíðu Landssambands íslenskra útvegsmanna. 27.3.2012 07:17
Innanlandsflugið aftur á áætlun Innanlandsflug Flugfélags Íslands frá Reykjavík virðist vera á áætlun nú í morgunsárið, en hætta varð innanlandsflugi í gærkvöldi vegna hvassviðris á Reykjavíkurflugvelli. 27.3.2012 07:13
Vopnað rán framið á Akureyri í nótt Vopnað rán var framið á Akureyri í nótt þegar grímuklæddur maður, vopnaður rörbút, kom inn í sólarhringsverslun 10-11 í kaupangi um hálf þrjú leitið og ógnaði afgreiðslumanni. 27.3.2012 07:10
Dögun mótmælir kvótafrumvarpinu harðlega Félagsfundur Dögunar, samtaka um réttlæti, sanngirni og lýðræði, mótmælir harðlega frumvarpi ríkisstjórnarinnar um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu og krefst þess að fram fari þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíðarskipan kerfisins. 27.3.2012 07:06
Banaslys á Ólafsfjarðarvegi Banaslys varð á Ólafsfjarðarvegi síðdegis í gær á móts við bæinn Kross, sunnan Dalvíkur, þegar flutningabíll og sendibíll skullu þar saman og ökumaður sendibílsins lést. Hann var á þrítugsaldri. 27.3.2012 07:00
Skora á háskólarektor að bjóða sig fram til embættis forseta Hópur fólks ætlar að skora á Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands, að bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. 27.3.2012 06:53
Hertu viðurlög við alvarlegum spjöllum Alþingi hefur samþykkt að herða verulega viðurlög við spjöllum á náttúru Íslands. Opna lagabreytingarnar meðal annars á það að ökutæki verði gerð upptæk hafi þau verið notuð af eiganda þeirra við náttúruspjöll. 27.3.2012 06:00
Óljós ákvæði og óásættanleg Bændasamtök Íslands leggjast alfarið gegn samþykkt frumvarps um breytingu á búvörulöggjöf og tollalögum í óbreyttri mynd. Í umsögn samtakanna um frumvarpið segir að taka verði til endurskoðunar þau ákvæði þess sem lúta að skilgreiningu á hvenær framboð búvara er ekki nægjanlegt. 27.3.2012 06:00
Selja mynd til styrktar löxum Tvær íslenskar laxveiðiár eru meðal þeirra áa sem eru vettvangur bandarískrar heimildarmyndar um Norður- Atlantshafslaxinn. Í myndinni, sem heitir Passion Called Salmon, eða Ástríðan lax, er meðal annars vikið að þeim vanda sem steðjar að 27.3.2012 05:00
EasyJet hefur flug til Íslands Breska lággjaldaflugfélagið easyJet hefur flug til Íslands í dag. Þá flýgur flugvél á vegum easyJet frá London til Keflavíkur þar sem vélin lendir klukkan 08.40. Fulltrúar ISAVIA og Ian Whitting, sendiherra Bretlands á Íslandi, munu taka á móti flugvélinni en við stjórnvölinn verður íslenskur flugmaður sem starfar hjá easyJet. 27.3.2012 05:00
Ákærðir fyrir flókin og stórfelld fjársvik Embætti sérstaks saksóknara hefur gefið út ákæru á hendur fjórum ungum mönnum fyrir stórfelld og flókin fjársvik og fjárdrátt sem í heild nema tugum milljóna króna. Lögregla hefur rannsakað málið frá því um sumarið 2009, eða í rúmlega tvö og hálft ár. 27.3.2012 04:00
„Hæpið“ að klára viðræður fyrir kosningar Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra telur hæpið að ljúka aðildarviðræðum við Evrópusambandið fyrir þingkosningar á næsta ári. 27.3.2012 03:15
Skora á Kristínu Hópur fólks vinnur nú að því að undirbúa áskorun á Kristínu Ingólfsdóttur rektor Háskóla Íslands til að gefa kost á sér í embætti forseta Íslands.Tilefnið er könnun sem birtist á laugardag og sýndi að mikill meirihluti þjóðarinnar vill sjá nýjan húsbónda á Bessastöðum. 26.3.2012 23:04
Banaslys á Ólafsfjarðarvegi Banaslys varð á Ólafsfjarðarvegi við bæinn Krossa seinni partinn í dag. Þar varð árekstur með sendibifreið og vöruflutningabifreið og voru ökumenn einir í bílunum. Þeir voru báðir fluttir á sjúkrahúsið á Akureyri. Þar var ökumaður sendibifreiðarinnar, maður á þrítugsaldri, úrskurðaður látinn. Ökumaður vöruflutningabifreiðarinnar fékk að fara heim að lokinni skoðun. Lögreglan á Akureyri vinnur að rannsókn málsins í samstarfi við Rannsóknarnefnd umferðarslysa. 26.3.2012 22:32
Herdís íhugar alvarlega forsetaframboð Doktor Herdís Þorgeirsdóttir íhugar alvarlega að gefa kost á sér til embættis forseta Íslands. Hún segir ákvörðun sína byggja á því hvort hún fái nægan stuðning til framboðs. Herdís starfar sem lögmaður í Reykjavík. Hún er forseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga og starfar mikið fyrir Feneyjanefnd Evrópuráðsins á sviði mannréttinda. 26.3.2012 19:26
Gagnrýnir ESB fyrir fjáraustur í kynningarmál Annar aðillinn má ekki vera með tíu til fimmtán sinnum meiri fjármuni en hinn aðilinn þegar verið er að kynna mikilvægan málstað, segir Ásmundur Einar Daðason, þingmaður Framsóknarflokksins. Í viðtali við Reykjavík síðdegis í dag gagnrýndi hann þau miklu fjárútlát sem Evrópusambandið er reiðubúið til að greiða í kynningarmál á Íslandi í miðjum aðildarviðræðum. Máli sínu til stuðnings bendir Ásmundur Einar á Evrópustofu, sem er byrjuð að auglýsa og heldur opna fundi um málefni Evrópusambandsins. Þetta kosti 200 milljónir á ári og með þessu sé verið að afla stuðnings við Evrópusambandið. 26.3.2012 17:49
Öllu innanlandsflugi aflýst í kvöld Búið er að aflýsa öllu flugi Flugfélags Íslands um Reykjavíkurflugvöll í kvöld. Veðurspáin fyrir kvöldið er slæm. Spáð er sunnan 13-18 metrum á sekúndu og rigningi eða súld en skýjað verður norðaustantil. Sunnan og suðvestan 18-23 metrar á sekúndu á V- landi undir kvöld. Búist er við að það lægi smám saman í nótt og á morgun, fyrst S- og V-lands, en áfram hvasst fyrir norðan og austan. 26.3.2012 16:51
Miklar kerfisbreytingar í sjávarútvegi - framsal takmarkað verulega "Það er óhætt að segja að þarna séu miklar kerfisbreytingar í sjávarútvegi,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, þar sem hún ásamt Steingrími J. Sigfússyni sjávarútvegsráðherra, kynntu tvenn frumvörp er varðar stjórn fiskveiða og veiðigjöld. 26.3.2012 16:28