Rafrænar kosningar í Reykjavík hefjast eftir miðnætti 28. mars 2012 14:40 Jón Gnarr borgarstjóri Reykjavíkur.
Rafrænar íbúakosningar í Reykjavík, þar sem kosið verður um verkefni í hverfum borgarinnar, hefjast þegar klukkan verður eina mínútu gengin í eitt í nótt, fimmtudaginn 29. mars. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg en opið verður fyrir móttöku atkvæða fram yfir miðnætti þriðjudaginn 3. apríl. „Kjósendur fara inn á slóðina kjosa.betrireykjavik.is. Auðkenning Ísland.is er notuð við atkvæðagreiðsluna og nota kjósendur kennitölu og veflykil ríkisskattstjóra eða rafræn skilríki á debetkorti til að auðkenna sig," segir ennfremur. „Allir sem eiga lögheimili í Reykjavík og voru orðnir 16 ára um síðustu áramót geta greitt atkvæði í íbúakosningunum." Ennfremur segir að verkefnið hafi verið kynnt undir kjörorðunum „KJÓSUM BETRI HVERFI." „Áður hafa farið fram rafrænar kosningar á vegum Reykjavíkurborgar um verkefni í hverfum borgarinnar. Þær voru haldnar í desember 2009 undir kjörorðunum Kjóstu verkefni í þínu hverfi. Íbúakosningarnar núna eru eins konar framhald á því verkefni en þá var notast við kennitölur sem auðkenni. Núna eru hins vegar notuð rafræn auðkenni í fyrsta sinn sem eiga að tryggja enn meira öryggi við atkvæðagreiðsluna. Kjósendur eru vanir því að nota veflykil ríkisskattstjóra til að skila skattaframtali en skattgreiðendur hafa einmitt verið að nota veflykilinn til þeirra nota." Þá kemur fram að á undanförnum vikum hafi verið gerð öryggisúttekt á kosningakerfinu af sjálfstæðum úttektaraðila.180 verkefni „Kosið verður um 180 áhugaverð verkefni í hverfum borgarinnar. Um er að ræða verkefni sem fegra og bæta hverfin. Kostnaður við verkefnin er mismunandi, sum kosta lítið en önnur meira, allt upp í tíu milljónir króna. Reykjavíkurborg leggur 300 milljónir úr svokölluðum hverfapottum í verkefnin og er þeim úthlutað til hverfanna miðað við íbúafjölda. Þau verkefni sem fá mest fylgi í íbúakosningunum munu koma til framkvæmda í sumar."
Tengdar fréttir Ekki vera eins og Þrándur Nú styttist í að rafrænar kosningar fari fram í Reykjavík. Að því tilefni hefur samráðsvefurinn Betri Reykjavík birt myndband þar sem borgarstjórinn ræðir um kosti slíkra kosninga. 27. mars 2012 16:43 Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira
Ekki vera eins og Þrándur Nú styttist í að rafrænar kosningar fari fram í Reykjavík. Að því tilefni hefur samráðsvefurinn Betri Reykjavík birt myndband þar sem borgarstjórinn ræðir um kosti slíkra kosninga. 27. mars 2012 16:43