Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Pitsusendill slapp ómeiddur úr bílveltu Pitsusendill slapp ómeiddur þegar hann velti bíl sínum á mótum Laugavegar, Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar um klukkan tvö í nótt. 3.1.2012 07:39
Sex loðnuskip leita að loðnu norður af landinu Sex loðnuskip héldu úr höfn í nótt til leitar og veiða norður af landinu og annar eins fjöldi munu bætast í hópinn á næstu dögum, auk þess sem hafrannsóknarskip heldur til leitar í dag. 3.1.2012 07:29
Enn óákveðið með aukalandsfund Tillögu um aukalandsfund Samfylkingarinnar á vordögum, sem fram kom á flokksstjórnarfundi fyrir helgi, var vísað til umræðu á næsta flokksstjórnarfundi, sem gert er ráð fyrir að verði í janúar. Ekki er því rétt sem fram hefur komið í fjölmiðlum undanfarna daga, meðal annars í Fréttablaðinu í gær, að tillagan hafi verið samþykkt. 3.1.2012 06:30
Ekki borin undir Neytendasamtökin Neytendasamtökin eru ósátt við að vera skrifuð fyrir greinargerð um fyrirhugaða ræktun á erfðabreyttum lífverum á Reykjum í Ölfusi. Á plagginu eru gerðar fjölmargar athugasemdir við að heimila skuli ræktunina, líkt og samtökin greina frá á heimasíðu sinni. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segist aldrei hafa samþykkt greinargerðina, þó svo að hún hafi verið til umfjöllunar af hálfu samtakanna. 3.1.2012 06:00
Stjórnarformanni Hafró skipt út Jón Bjarnason, sem lét af embætti sjávarútvegsráðherra á föstudag, lét það verða eitt af sínum síðustu verkum í embætti að biðja Friðrik Má Baldursson um að láta af embætti stjórnarformanns Hafrannsóknastofnunar. Varð Friðrik við þeirri bón á föstudag og tók Erla Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sjávariðjunnar á Rifi, við starfinu. 3.1.2012 06:00
Hlé á vinnslu nýtt til fræðslu HB Grandi nýtir vinnsluhlé yfir hátíðirnar til námskeiðahalds fyrir starfsfólk í landvinnslu fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur haft þennan háttinn á síðustu ár og að þessu sinni tóku 25 nýir starfsmenn í fiskiðjuverinu á Norðurgarði í Reykjavík þátt í „starfsfræðslunámskeiði fiskvinnslunnar“ en slík námskeið hafa verið haldin allt frá árinu 1986. 3.1.2012 06:00
Nýtist til heilaskurðaðgerða Tekið hefur verið í notkun nýtt tölvustýrt staðsetningartæki á heila- og taugaskurðdeild Landspítala. „Tækið gerir að verkum að skurðaðgerðir á höfði verða bæði nákvæmari og öruggari. Það nýtist best við aðgerðir á æxlum í heila,“ segir á vef Landspítalans. Þá nýtist tækið við ýmsar aðgerðir háls-, nef- og eyrnalækna og bæklunarskurðlækna. Tækið, sem er um 25 milljóna króna virði, er gjöf frá Arion banka og sjóði sem verið hefur í vörslu hans og stofnaður var á sínum tíma til að styðja tækjakaup.- 3.1.2012 06:00
Biðst undan auknum verkefnum „Það er ekki þess virði að berjast fyrir fyrirkomulagi sem kostar forseta fjárhagslegar fórnir og hugnast ekki nema helmingi bæjarstjórnar,“ segir Sigurborg Kr. Hannesdóttir, forseti bæjarstjórnar Grundarfjarðar, í bókun á síðasta fundi bæjarstjórnar þar sem hún baðst undan auknum starfsskyldum. 3.1.2012 05:00
Biðja Jón að greiða hlut í dýru malbiki Bæjarstjórn Ölfuss samþykkti á fundi sínum milli jóla og nýárs að greiða verktakafyrirtækinu KNH ehf. þrjár og hálfa milljón fyrir að malbika um hundrað metra vegspotta heim að vatnsverksmiðju Jóns Ólafssonar. 3.1.2012 04:00
Stefnt er að mokstri á stéttum í vikulokin Yfir þúsund fyrirspurnir bárust frá íbúum Reykjavíkurborgar fyrir áramótin í gegnum ábendingagáttina á Reykjavík.is vegna mikils snjós á gangstígum víðs vegar um borgina. Til stendur að hefja mokstur á fimmtudag eða föstudag, að sögn Bjarna Brynjólfssonar, upplýsingastjóra Reykjavíkur. 3.1.2012 04:00
Ákvað makrílkvóta fyrir 2012 Jón Bjarnason, sem lét af embætti sjávarútvegsráðherra á föstudag, gaf út nýja reglugerð um makrílveiðar við Ísland á síðasta starfsdegi sínum. 3.1.2012 03:15
Strætófarþegar ekki fleiri í áratug Strætisvagnafarþegar hafa ekki verið fleiri hér á landi í meira en áratug. Um níu milljónir farþega ferðust með strætó á síðasta ári sem er um tuttugu prósent aukning frá fyrra ári. 2.1.2012 18:30
Innbrotsþjófar tilkynntu sjálfir um innbrot hjá sér Tveir karlmenn voru handteknir í austurborginni í nótt eftir að þeir höfðu hringt í lögreglu og tilkynnt um innbrot. Þegar lögreglumenn ræddu við þá á vettvangi voru mennirnir margsaga en einnig var ýmislegt í fari þeirra sem gaf sterklega til kynna að þeir hefðu komið við sögu í öðru innbroti, sem lögreglan hafði nýhafið rannsókn á. Það var framið skömmu áður á svipuðum slóðum. Í fórum mannanna fundust munir sem þeir gátu ekki gert grein fyrir, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Mennirnir hafa áður komið við sögu hjá lögreglu. 2.1.2012 20:39
Velti bíl í hálku Ökumaður velti bifreið sinni á Biskupstungnabraut í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi slasaðist enginn í veltunni. Full ástæða er til að vara fólk við hálku í Árnessýslu og víðar. 2.1.2012 20:08
Skotveiðimenn styrkja Landsbjörg Skotveiðifélag Íslands (SKOTVÍS) færði í dag Slysavarnafélaginu Landsbjörg góða peningagjöf. 2.1.2012 16:54
Svifrykið 17 sinnum yfir mörkum á síðasta ári Styrkur svifryks í Reykjavík var á mælistöðinni við Grensásveg um 61 míkrógramm á rúmmetra á nýársnótt 2012. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfis- og samgöngusviði borgarinnar. 2.1.2012 16:48
Eldur í Smárabíó Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins barst tilkynning um klukkan hálf átta í morgun um eld í Smáralind, nánar tiltekið í einum af bíósölum Smárabíós. Dælubíll var sendur á staðinn en þegar þangað var komið höfðu öryggisverðir slökkt eldinn sem var minniháttar. 2.1.2012 16:16
Tvö innbrot í Kópavogi í dag Tilkynnt var um innbrot í húsnæði við Nýbýlaveg í Kópavogi um klukkan tuttugu mínútur yfir tólf í dag. Að sögn lögreglu voru rúður brotnar og farið inn í húsnæðið. Ekki er þó ljóst hvort einhverju hafi verið stolið. Skömmu síðar, eða rétt fyrir klukkan tvö í dag var síðan tilkynnt um innbrot í bifreið við Skemmuveg, einnig í Kópavogi. Framhlið á bílaútvarpi var tekin og skemmdir unnar á innréttingu bílsins. Málin eru í rannsókn. 2.1.2012 16:14
Jón var bara að grínast - ekki í framboði Jón Ólafsson athafnamaður vísar því alfarið á bug að hann hyggi á framboð til forseta Íslands. Fyrr í dag var sagt frá því að Jón hafi lýst því yfir í nýársfagnaði í gær að hann ætlaði að bjóða sig fram. Jón segir hinsvegar nú í samtali við Vísi að um gamanmál hafi verið að ræða. 2.1.2012 15:11
Varð fyrir árás Doberman-hunds Til stendur að aflífa Dobermanhund, sem beit sex ára gamla stúlku í matarboði á Akranesi á annan í jólum, á næstu dögum, segir Snorri Guðmundsson dýraeftirlitsmaður á Akranesi. 2.1.2012 14:57
Jón Ólafs lýsir yfir framboði og Jón Gnarr íhugar það Eftir yfirlýsingu Ólafs Ragnars Grímssonar þess efnis að hann hyggi ekki á áframhaldandi búskap á Bessastöðum keppast menn nú við að finna mögulegan arftaka. Tveir Jónar hafa í dag bæst í hópinn, Jón Gnarr borgarstjóri sagðist í viðtali á Rás 2 í morgun vera að íhuga framboð. Jón Ólafsson, sem síðustu ár hefur einbeitt sér að því að selja vatn, er á Pressunni sagður hafa lýst yfir framboði á Nýársfagnaði í gær. Ekki hefur náðst í Jón til þess að fá þetta staðfest. 2.1.2012 14:29
Rætt um að Katrín taki við af Katrínu Þegar að Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra fer í fæðingarorlof, sem reiknað er með að gerist á næstunni, er líklegt að ráðherra úr röðum VG haldi um stjórnartaumana í iðnaðarráðuneytinu. 2.1.2012 13:55
Tveir fjögurra bíla árekstrar á sama tíma Tveir fjögurra bíla árekstrar urðu á sama tíma í höfuðborginni á öðrum tímanum í dag. Einn varð á Kringlumýrarbraut í Fossvogi og hinn á Miklubraut til móts við Kringluna. Engin meiðsli urðu á fólki samkvæmt upplýsingum frá árekstur.is. Mikil hálka er að myndast á götum borgarinnar og eru ökumenn beðnir um að fara sérstaklega varlega. 2.1.2012 13:37
Telur líklegt að leið Ólafs liggi í stjórnmálin á ný Doktor í stjórnmálafræði telur leið Ólafs Ragnars Grímssonar nú liggja í stjórnmálin á nýjan leik, mögulega í gegnum flokkapólitík og þingkosningar. Í nýársávarpi sínu hafi hann sagt með afdráttarlausum hætti, að hann segi nú skilið við forsetaembættið. 2.1.2012 12:44
Eldsneyti hækkar - hömstruðu steinolíu fyrir helgi Örtröð myndaðist um áramótin á bensínstöðvum, þar sem menn voru að hamstra steinolíu, sem hækkaði um 39 prósent um áramótin. Þá er hækkun á vöru- og kolefnagjöldum ríkisins þegar farin að hækka verð á bensíni og dísilolíu. 2.1.2012 12:17
Framkvæmdastjóri LÍÚ: Verið að taka hjartað úr sjávarútvegsráðuneytinu Framkvæmdastjóra LÍÚ líst illa á fyrirhugaðar breytingar á ráðuneytum. Hann segir það vera eins og taka hjartað úr sjávarútvegsráðuneytinu að flytja Hafrannsóknastofnun frá því. 2.1.2012 12:13
Tekinn ölvaður undir stýri: Ákvað að taka "sénsinn" Þrír ökumenn voru kærðir fyrir ölvunarakstur um helgina í umdæmi lögreglunnar á Selfossi. Einn af þeim, sem tekin var við Flúðir á nýársnótt, sagði við lögreglumenn að hann ákveðið að taka "sénsinn" þar sem lögreglumenn væru lítið á ferðinni á svæðinu. Annað kom þó í ljós og fær hann eflaust ákæruna senda heim til sín á næstu vikum. 2.1.2012 12:02
Lítið var laust á hótelum yfir hátíðarnar Áætlað er að ríflega 4.000 ferðamenn hafi heimsótt Reykjavík nú um áramótin. Í fyrra er talið að um 3.500 ferðamenn hafi sótt borgina heim, að mati Höfuðborgarstofu. 2.1.2012 11:15
Fagna því að konur séu í meirihluta í ríkisstjórn Íslands Stjórn Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar fagnar því að í fyrsta sinn í sögu lýðveldisins er kona fjármálaráðherra og konur í meirihluta í ríkisstjórn landsins, samkvæmt tilkynningu sem stjórnin sendi frá sér í dag. 2.1.2012 11:04
Ætlar ekki að rústa öllu því sem Steingrímur hefur gert Oddný G. Harðardóttir býst við að stíga úr stóli fjármálaráðherra í lok sumars. Ráðherranefnd mun endurskipuleggja stjórnarráðið. Verkefni efnahags- og viðskiptaráðuneytis gætu skipst á milli þriggja annarra. 2.1.2012 11:00
Fjöldi nýnema mætir aldrei Brottfall 1. árs nema við Háskóla Íslands er of hátt. Hafi skráningarhlutfall ekki breyst eftir hrun hafa 1.500 stúdentar ekki mætt, hætt snemma eða fallið á prófi. Stöðupróf eru íhuguð til að mæta brottfalli. 2.1.2012 11:00
Herjólfur siglir til Þorlákshafnar fram á mánudag Vegna ölduspár og dýpis í Landeyjahöfn mun Herjólfur sigla til Þorlákshafnar að minnsta kosti til mánudagsins 9. janúar. Brottför frá Vestmannaeyjum verður klukkan átta og hálf fjögur. 2.1.2012 10:47
Hægt að fylgjast með ferðum strætó á vefnum Með nýju rauntímakorti á vef Strætó bs. er nú hægt að fylgjast með ferðum strætisvagna í rauntíma. Þannig geta strætófarþegar með hjálp nýjustu tækni séð hvar vagninn sem þeir ætla að taka sér far með er staddur á hverjum tíma. 2.1.2012 10:31
Stríðsbrúðurin: Dóttir Larrys og ættleidd systir hittust á kaffihúsi Patti Allen og Melissa Gavin hittust á dögunum á kaffihúsi. Það var ekki fyrr en fyrir skömmu sem þær komust að tilvist hvorrar annarrar. Faðir Melissu er Larry Gavin, sem var giftur íslensku konunni, Rögnu Esther Sigurðardóttir, sem hvarf á dularfullan hátt árið 1951. 2.1.2012 10:20
Aðeins helmingur flugferða á réttum tíma Aðeins um helmingur véla Icelandair og Iceland Express frá landinu var á réttum tíma seinnihluta desember. Álíka hlutfall af ferðum Icelandair til Keflavíkur stóðst hinsvegar áætlun. Þetta kemur fram á vefsíðunni túristi.is. 2.1.2012 09:44
Frummatsskýrsla um snjóflóðavarnir kynnt Frummatsskýrsla um "ofanflóðavarnir neðan Gleiðarhjalla á Ísafirði“ hefur verið lögð til athugunar og kynningar hjá Skipulagsstofnun. Skýrslan fer í auglýsingu rétt fyrir eða eftir áramót og hefst þá formlega kynningarferlið. Skýrsluna er hægt að nálgast á vef Náttúrufræðistofnunar Vestfjarðar ásamt teikningum og fylgiskjölum. 2.1.2012 09:43
Skip og bátar streyma á sjó eftir hátíðarnar Skip og bátar fóru að streyma úr höfnum umhverfis allt land upp úr miðnætti, eftir að jólaleyfi sjómanna var liðið. 2.1.2012 07:42
Rýmdu og lokuðu skemmtistað í Kópavogi í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rýmdi og lokaði skemmtistað í Kópavogi upp úr klukkan fimm í morgun, þar sem skemmtanahald var í fullum gangi og að minnsta kosti 50 gestir innandyra. 2.1.2012 07:40
Íkveikjur á fjórum stöðum Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu þurfti að slökkva í fjórum ruslagámum í gærkvöldi og í nótt, en hvergi hlaust alvarlegft tjón af. 2.1.2012 07:28
N1 hækkar verð á bensíni og dísilolíu Olíufélagið N1 hefur hækkað verð á bensíni um fjórar krónur og 50 aura og á dísilolíu um þrjár krónur og 40 aura. 2.1.2012 07:15
Útsölur hefjast víða í dag Útsölur hefjast víða í dag, meðal annars í mörgum verslunum í Kringlunni og Smáralind, en sumstaðar hófust þær fyrir áramót. 2.1.2012 07:00
Myndir frá nýársmóttöku forsetans Eftir að ávarpa íslensku þjóðina og veita ellefu Íslendingum heiðursverðlaun hélt forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, árvissa nýársmóttöku þar sem ráðherrum, hæstaréttardómurum, alþingismönnum, sendiherrum og fleirum var boðið til Bessastaða til samkvæmis. Ljósmyndari fréttastofu var á staðnum og smellti af þegar gestirnir mættu á staðinn. Meðal þeirra voru Vigdís Finnbogadóttir, Geir H. Haarde, Jón Bjarnason, Karl Sigurbjörnsson og fleiri. 1.1.2012 19:28
Fann giftingarhringinn á gulrót eftir 16 ára leit Sænsk kona er skýjunum eftir að hún fann giftingarhring sem hún glataði fyrir 16 árum. Hringurinn fannst í matjurtargarði konunnar en hann var fastur utanum gulrót sem konan hafði beðið með að taka upp þangað til nú. 1.1.2012 19:38
Hreystimenni hófu árið á sjósundi Fjöldi manns hóf nýtt ár í ísköldum sjónum í Nauthólsvíkinni í morgun. Vont en það venst sagði einn prúðbúinn sjósundsnagli. Ískaldur sjór hefur væntanlega ekki verið það fyrsta sem allir hugsuðu um þegar augun voru opnuð á fyrsta degi ársins tvöþúsund og tólf í morgun. Margir hafa að öllum líkindum verið frekar lúnir eftir eftir áramótafögnuð næturinnar, en þó eru Íslendingar harðir af sér og skelltu tæplega þrjúhundruð manns sér í sjóinn í Nauthólsvíkinni. Fallegar konur í sínu fínasta pússi, herramenn með slaufu í hárinu og svona mætti lengi telja. Einn harðasti sjósundsmaður landsins lét sig að sjálfsögðu ekki vanta frekar en fyrri daginn. 1.1.2012 19:30
Pólsk hjón eignuðust fyrsta barnið Pólsk hjón eignuðust fyrsta barnið sem fæddist á Íslandi árið 2012. Þau hafa búið hér í tvö ár og lofa mjög heilbrigðisþjónustuna á Íslandi. Það var myndarlegur drengur sem kom í heiminn þegar fimm mínútur voru liðnar af nýja árinu. Hann er þrettán merkur og fimmtíu sentimetrar. Fæðingin gekk vel og voru foreldrarnir að tygja sig heim þegar við hittum þau skömmu eftir hádegið í dag. 1.1.2012 19:00