Fleiri fréttir

Kjötþjófar á ferð í Kópavogi

Tveir karlmenn fylltu stóra innkaupakörfu af veislufögnum , aðallega kjöti, í Krónunni í Kópavogi í gærkvöldi og hlupu með hana út án þess að borga fyrir vörurnar.

Mótmæla notkun á gróðurhúsi fyrir snyrtivöruiðnaðinn

Félag framleiðenda í lífrænum búskap mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Landbúnaðarháskóla Íslands, að leigja út sérbyggt gróðurhús sitt að Reykjaum í Ölfusi til starfssemi óskyldri garðyrkju og matvælaframleiðslu.

Sakar stjórnvöld um svik og hótar riftun

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir augljóst að ríkisstjórnin hafi svikið gerða kjarasamninga frá því í vor. Hann segir koma til greina að segja upp samningunum við endurskoðun þeirra í janúar næstkomandi.

Ræktandi afhendi fimm hunda

Kona sem ræktar hunda á Kjalarnesi hefur verið dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur til að afhenda fimm Papillon-hunda, einn rakka og fjórar tíkur, sem hún hafði látið fjarlægja af heimili konu í Grindavík fyrir tæpu ári.

Bylting í merkingu á matvælum

Miklar breytingar eru í vændum á reglum um merkingar matvæla. Reglugerð þar að lútandi verður tekin upp hér á landi á næstu misserum og mun þá koma í stað núverandi reglna um merkingu matvæla, merkingu næringargildis og þess háttar, samkvæmt upplýsingum Matvælastofnunar.

Jólastemning á Alþingi

Það er jólastemning á Alþingi þessa dagana enda einungis örfáir dagar þar til þingmenn fara í frí og safna kröftum fyrir átökin sem fram undan eru á næsta ári.

Ráðist á vaktmann á Hlemmi

Ráðist var á vaktmann á strætóstoppistöðinni á Hlemmi um sexleytið í dag. Starfstúlka í sælgætisverslun á Hlemmi tilkynnti um málið til lögreglunnar og komu tveir lögreglumenn á vettvang til þess að sækja árásarmanninn. Hann var handtekinn og gistir nú fangageymslur. Maðurinn var ölvaður. Lögreglan hefur ekki upplýsingar um það hvort maðurinn sem ráðist var á hafi slasast alvarlega.

21 stigs frost á Þingvöllum

Þingvellir voru kaldasta byggða ból landsins í morgun og hefur frostið þar farið niður í -20,9 stig. Næstmesta frostið hefur mælst í innsveitum norðaustanlands ímorgun, við Mývatn -18,6 stig og í Fnjóskadal -18,6 stig.

Stóriðjuframkvæmdir að hefjast á Suðurnesjum

Smíði átján milljarða króna kísilverksmiðju í Helguvík verður boðin út í þessari viku. Um 150 manns fá vinnu við framkvæmdirnar, sem áætlað er að hefjist innan þriggja mánaða.

Grunaður um kynferðisbrot gegn 11 ára dóttur

Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Vesturlands yfir manni sem grunaður er um að hafa beitt ellefu ára gamla dóttur sína kynferðisofbeldi. Stúlkan mun hafa sagt vinum sínum frá ofbeldinu.

Ríkislögreglustjóri svarar ríkisendurskoðun

Ríkislögreglustjóri hefur svarað fyrirspurn Ríkisendurskoðanda vegna viðskipta embættisins við Radíóraf. Ríkislögreglustjóri krafðist þess að Ríkisendurskoðandi viki sæti við afgreiðslu málsins þar sem hann taldi ríkisendurskoðanda vanhæfan til þess að fara með málið, þar sem hann fullyrti í fjölmiðlum að embætti ríkislögreglustjóra hefði brotið lög.

Yfirvegaður og neitaði sök

Laurent Gbagbo, fyrrum forseti Fílabeinsstrandarinnar, mætti í dag fyrir Alþjóðaglæpadómstólinn í Haag en hann er ákærður fyrir glæpi gegn mannkyninu, meðal annars morð og nauðgun. Samkvæmt ákærunni á hann að hafa framið voðaverkin á síðasta ári eftir að hann neitaði að viðurkenna ósigur í forsetakosningum. Um þrjú þúsund manns létust í átökum sem brutust út eftir kosningarnar. Gbagbo neitar sök, en hann var yfirvegaður þegar hann mætti fyrir dómara, þar sem hann tjáði honum að hann þyrfti ekki að lesa yfir ákærurnar.

Margir eiga um sárt að binda á jólunum

Þórhallur Heimisson, sóknarprestur við Hafnarfjarðarkirkju, segir að margir eigi um sárt að binda nú þegar jólin nálgast. Þó að jólin eigi að vera skemmtileg og hátíð ljóss og friðar sé staðreyndin sú að margir hafa miklar áhyggjur á þessum tíma ársins.

Dagbókarbrot Páls Óskars: Von og vonleysi

Dagbókarbrot frá Páli Óskari Hjálmtýssyni í Síerra Leóne munu birtast næstu daga á Vísi, eitt á dag, fram að söfnunar- og skemmtiþætti UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, sem sýndur verður á föstudag, á degi rauða nefsins. Dagur rauða nefsins verður í opinni útsendingu á Stöð 2 og hér á Vísi.

Tveir ölvaðir af 860 ökumönnum

Átta hundruð og sextíu ökumenn voru stöðvaðir víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu um helgina í sérstöku umferðareftirliti sem lögreglan heldur nú úti í umdæminu.

Rafmagnslaust í Kópavogi

Rafmagn fór af í Kópavogi fyrir stundu. Ekki er ljóst hvort það sé rafmagnslaust á fleiri stöðum. Samkvæmt bilanasíma orkuveitunnar hefur orðið bilun í dreifikerfi Orkuveitunnar og unnið er að lagfæringum. Líklega mun sú viðgerð taka um klukkustund.

Tobba hótar að stefna forlagi vegna Flick My Life-bókar

"Málið er að það gengur ekki upp að sumir þurfi að fara eftir reglum og aðrir ekki,“ segir Tobba Marinósdóttir fjölmiðlakona, en hún hefur látið lögfræðing senda útgáfunni Ókeibæ-kur viðvörun út af nýútkominni Flick My Life bók. Í bókinni, sem er unninn upp úr samnefndri heimasíðu, má finna tvær myndir af Tobbu sem eru teknar af Facebook-síðu hennar.

Þorvarður hugsanlega ákærður fyrir að hafa orðið föður sínum að bana

Ríkissaksóknari skoðar nú hvort það eigi að ákæra Þorvarð Davíð Ólafsson fyrir að hafa orðið föður sínum, Ólafi Þórðarsyni, að bana, en hann lést um helgina vegna áverka sem sonur hans veitti honum í hrottalegri árás á síðasta ári. Ólafur, sem hlaut mikla áverka, komst aldrei til meðvitundar eftir árásina.

Vont veður og líkamsárásir á Suðurlandi

Maður var sleginn í höfuðið með glasi utan við skemmtistaðinn Hvíta húsið á Selfossi aðfaranótt sunnudags samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi. Maðurinn var fluttur á heilsugæslustöðina á Selfossi þar sem gert var að sárum hans.

Mikið frost næstu daga

„Það vantar eina góða lægð úr suðri og þá ætti að hlýna,“ segir Helga Ívarsdóttir, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Mikið frost er víða um land og mældist hitastigið í Reykjavík -9 gráður klukkan níu í morgun og á Þingvöllum mældist -21 stigs frost í nótt.

Ari Edwald: Gillz fer ekki í loftið á meðan málið er í athugun

"Hann fer ekki í loftið á meðan málið er í athugun,“ svarar Ari Edwald, forstjóri 365 miðla, spurður hvort Egill Gillzenegger Einarsson, muni skemmta landanum á vegum 365 miðla eftir að hann og unnusta hans voru kærð fyrir nauðgun í síðustu viku.

Studdi ekki framlag til að halda áfram saksókn gegn Geir

Atli Gíslason alþingismaður studdi ekki 12 miljóna króna framlag til sérstaks saksóknara Alþingis svo hann gæti haldið áfram saksókninni gegn Geir H. Haarde fyrir Landsdómi. Í atkvæðagreiðslu um þennan lið eftir 2. umræðu um fjárlagafrumvarpið var Atli í hópi tólf þingmanna sem sátu hjá en hann var sem kunnugt er formaður þingmannanefndarinnar sem lagði til að Geir yrði ákærður.

23 morð á síðustu 13 árum

Lagt var hald á um 27 kíló af marijúana á síðasta ári, 11 kíló af amfetamíni og yfir 15 þúsund e-töflur. Þá var einnig lagt hald á rúmlega 9 þúsund stykki af hassplöntum. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra. Á síðasta ári voru tilkynnt rúmlega 73.500 brot til lögreglu og heildarfjöldi brota voru færri en árin 2009 og 2008.

Tveir teknir með mikið magn af steratöflum á Snæfellsnesi

Síðustu tvær helgar hafa lögreglumenn á Snæfellsnesi fylgst sérstaklega með ástandi ökumanna. Leiddi þetta aukna eftirlit til þess að fjórir ökumenn voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.

Dópaður og réttindalaus ökumaður á 147 km hraða

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók ökumann eftir að hafa mælt bíl hans á 147 kílómetra hraða á Reykjanesbraut á móts við Arnarnesbrúnna um klukkan hálf tvö í nótt. Ökumaðurinn, sem er um tvítugt, reyndist auk þess réttindalaus og undir áhrifum fíkniefna.

Björgunarsveit aðstoðaði ökumann á Kleifaheiði

Björgunarsveitarmenn voru kallaðir út til að aðstoða ökumann, sem hafði misst bíl sinn út af veginum á Kleifaheiði á Vestfjörðum í gærkvöldi. Ökuaðurinn slapp ómeiddur og gekk leiðangurinn vel.

Þættir brutu blað í fjölmiðlun

Öryrkjabandalag Íslands veitti Hvatningarverðlaun sín um helgina, á Alþjóðadegi fatlaðra, í fimmta sinn. Í flokki einstaklinga fékk Bergþór Grétar Böðvarsson viðurkenningu fyrir að stuðla að jákvæðri og uppbyggilegri umræðu um geðsjúkdóma á Íslandi og Hestamannafélagið Hörður fékk verðlaun í flokki fyrirtækja og stofnana fyrir frumkvöðlastarf í hestaíþróttum fatlaðra barna og unglinga. Loks hlaut sjónvarpsþátturinn Með okkar augum viðurkenningu fyrir frumkvöðlastarf í dagskrárgerð.

Þorskur og ýsa nú MSC-vottuð

Útflutningsráð norskra sjávarafurða (NSEC) hefur fengið MSC-vottun um sjálfbærar veiðar á allar þorsk- og ýsuveiðar við Noreg. Þetta þýðir að mögulegt er að selja afurðir af veiðum á 340 þúsund tonnum af þorski og 153 þúsund tonnum af ýsu undir merki MSC. Nær þetta til veiða í troll, línu, handfæri og net. Norðmenn selja saltfisk og fleiri afurðir í suðlægum löndum Evrópu og Suður-Ameríku. Frosnar afurðir og ferskar afurðir eru seldar í norðlægari Evrópulöndum. - shá

Mannvirkjagerð er enn áberandi

Vinnumálastofnun bárust tvær tilkynningar um hópuppsagnir í nóvember 2011. Um er að ræða tilkynningu um uppsagnir í fjármálastarfsemi og iðnaði. Heildarfjöldi þeirra sem sagt er upp er 72 starfsmenn.

Hugmyndir um makríl fráleitar

„Hugmyndir um fjögurra prósenta hlut Íslands í makrílveiðum eru fráleitar og ekki í neinu samræmi við kröfur okkar um réttmæta hlutdeild úr makrílstofninum,“ segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, á heimasíðu sambandsins.

Bókaskattur þvingar SI í mál gegn ríkinu

Bækur og tímarit prentuð á Íslandi bera mun hærri virðisaukaskatt en erlent prentverk. Samtök iðnaðarins (SI) hlutast til um að reka prófmál gegn ríkinu fyrir héraðsdómi þar sem þess verður krafist að innlendir framleiðendur sitji við sama borð og þeir sem flytja inn bækur og tímarit prentuð erlendis. Bókaútgefendur, ólíkt prenturum, virðast hins vegar ekki hafa þekkt til þessa mikla munar á skattinum og hann skýrir ekki hvar þeir láta prenta bækur sínar.

Aldrei mælst eiturefni í fóðri frá Líflandi

Matvælastofnun (MAST) segir að „seint verði unnt að segja“ það æskilegt að fóðurframleiðsla sé innan þynningarsvæðis mengandi starfsemi, í skriflegu svari við fyrirspurn Fréttablaðsins um starfsemi Líflands á iðnaðarsvæðinu á Grundartanga.

Aðferð Norðmanna yki fé um milljarða

Íslendingar standa Norðmönnum langt að baki þegar kemur að fjármögnun rannsókna- og þróunarverkefna í sjávarútvegi. Væri aðferðafræði Norðmanna fylgt væri fé til rannsókna og þróunar um tveimur milljörðum krónum meira á ári.

Með eigið lík í eftirdragi

Rithöfundurinn Steinar Bragi hefur ekki sérstakan áhuga á að skrifa hrollvekjandi skáldskap en ýtir ekki frá sér heillandi hugmyndum sem sækja á hann, í fegurð sinni eða viðbjóði. Hann lýsir fyrir Hólmfríði Helgu Sigurðardóttur baráttunni við krabbamein, stöðugri dauðahræðslu og hugmyndinni að baki nýju skáldsögunni Hálendinu, sem hefur hlotið mikið lof gagnrýnenda.

Átakanlegt myndband um einelti vekur gríðarlega athygli

Unglingur að nafni Jonah Mowry birti í ágúst síðastliðnum myndband á YouTube þar sem hann lýsir einelti sem hann hefur mátt þola í langan tíma. Myndbandið hefur vakið gríðarlega athygli enda hjartanístandi á að horfa.

Ólafur Þórðarson látinn

Ólafur Þórðarson tónlistarmaður lést á Grensásdeild í morgun. Hann komst aldrei til meðvitundar eftir að ráðist var á hann fyrir rúmu ári. Ólafur var fæddur árið 1949 í Glerárþorpi á Akureyri. Hann var menntaður tónlistarkennari og átti að baki glæstan feril með fjölmörgum hljómsveitum. Þar ber hæst Ríó Tríó, en einnig spilaði hann með hljómsveitunum Kuran Swing og South River Band, svo einhverjar séu nefndar. Hann rak einnig í mörg ár umboðsskrifstofu fyrir listamenn.

Jónas Ingimundarson heiðurslistamaður Kópavogs

Móttaka til heiðurs Jónasi Ingimundarsyni píanóleikara var haldin í Salnum síðdegis í dag í tilefni þess að hann hefur verið kosinn heiðursborgari Kópavogsbæjar. Hann er fjórði heiðursborgari bæjarins.

Vídeóleigum fer fækkandi

Myndbandaleigur eiga nú undir högg að sækja en markaðurinn hefur dregist saman um rúman helming á tíu árum. Margar leigur hafa lagt upp laupana á síðustu misserum.

Íbúar í Skaftárhreppi þreyttir á öskunni

Aska heldur áfram að gera íbúum í Skaftárhreppi lífið leitt sem eru orðnir þreyttir á ástandinu. Þeir vilja fá svifryksmæli í Fljótshverfið en hafa þó andað léttar eftir að snjórinn kom.

Lyfjanotkun aldraðra eykst

Langflestir eða um níutíu prósent aldraðra sem búa heima taka einhver lyf að staðaldri og sumir fleiri en tíu lyf. Öldrunarlæknir segir lyfjanotkun hafa aukist hjá eldra fólki samhliða auknum lífslíkum. Mikilvægt sé að vera á varðbergi þegar öldruðum eru gefin lyf þar sem aukaverkanir lyfjanna geti haft mikil áhrif.

Meiri spilling á Íslandi en á hinum Norðurlöndunum

Ísland lendir í þrettánda sæti á spillingarlista Transparancy International en samtökin gefa árlega út listann þar sem löndum er raðað eftir því hve mikil spilling þrífst þar. Í ár mælist minnsta spillingin á Nýja Sjálandi og þar á eftir koma Norðurlöndin Danmörk, Finnland og Svíþjóð. Í fimmta sæti er Singapúr og Norðmenn ná sjötta sætinu. Íslendingar eru því samkvæmt þessum mælikvarða töluvert spilltari en frændur okkar á Norðurlöndunum. Í sætunum fyrir neðan koma lönd á borð við Þýskaland, Japan og Austurríki.

Hvatningarverðlaun ÖBÍ veitt í fimmta sinn

Öryrkjabandalag Íslands veitti í gær á alþjóðadegi fatlaðra hvatningarverðlaun sín í fimmta sinn. Bergþór Grétar Böðvarsson fékk verðlaunin í flokki einstaklinga fyrir að stuðla að jákvæðri og uppbyggilegri umræðu um geðsjúkdóma á Íslandi. Í flokki fyrirtækja og stofnana fékk Hestamannafélagið Hörður verðlaunin fyrir frumkvöðlastarf í hestaíþróttum fatlaðra barna og unglinga.

Sjá næstu 50 fréttir