Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Var með barnaklám í tölvunni Ákæra vegna barnaníðsmynda hefur verið þingfest í Héraðsdómi Reykjaness. Hinn ákærði, karlmaður um fimmtugt, játaði sök og var málið tekið til dóms. 11.10.2011 02:45
Benedikt settur dómari Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra hefur sett Benedikt Bogason dómstjóra í embætti dómara við Hæstarétt Íslands frá og með 1. nóvember 2011 til og með 31. desember 2014. Umsækjendur auk Benedikts voru Guðjón Ólafur Jónsson hæstaréttarlögmaður, Ingimundur Einarsson héraðsdómari og Þorgeir Ingi Njálsson dómstjóri. Dómnefnd sem fjallar um hæfni umsækjenda um embætti dómara mat Benedikt hæfastan umsækjenda til að hljóta setningu, segir á vef innanríkisráðuneytisins. 10.10.2011 15:50
Blekktu starfsmenn Kaupþings til að millifæra yfir hálfa milljón Rúmlega þrítugir karlmenn voru dæmdir í skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir fjársvik. Tveir aðrir einstaklingar sem hylmdu yfir brot þeirra voru einnig dæmdir til refsingar. 10.10.2011 14:55
Dópsali með spítt og gras dæmdur í fangelsi Karlmaður fæddur árið 1989 var dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að hafa í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni rúmlega 82 grömm af marijúana og tæplega 26 grömm af amfetamíni. Maðurinn játaði brott sitt fyrir dómi en hann hefur ekki áður hlotið dóm fyrir brot á fíkniefnalöggjöfinni. 10.10.2011 13:52
Beit í þumalfingur lögreglumanns Karlmaður á fimmtugsaldri var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að hafa ráðist á lögreglumann á lögreglustöðinni í Reykjanesbæ í mars á þessu ári. Hann beit lögreglumanninn í þumalfingur með þeim afleiðingum að hann hlaut tveggja sentimetra langan skurð. Maðurinn játaði brott sitt fyrir dómi en hann hefur áður hlotið dóm fyrir brot á hegningarlögum. 10.10.2011 13:42
Sigmundur Davíð kominn undir 100 kíló Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, er kominn undir 100 kíló og er nú 99,6 kíló. Á Facebook-síðu sinni segist hann hættur að vera póstnúmer. 10.10.2011 13:16
Erlendir sérfræðingar skoða bilun í símkerfi Erlendir sérfræðingar eru komnir til landsins vegna alvarlegrar bilunar sem kom upp í gær þegar farsímanotendur Nova og Vodafone gátu hvorki hringt né móttekið símtöl í um tvo og hálfan klukkutíma vegna bilunar í dreifikerfi fyrirtækjanna. 10.10.2011 12:41
Anna Björns farin úr landi Anna Björnsdóttir sem kom upp um glæpaforingjann James Bulger er farin úr landi. Fyrrverandi saksóknari í Bandaríkjunum gagnrýnir blaðið Boston Globe fyrir að greina frá nafni Önnu. 10.10.2011 12:04
„Hvílík skepna hefur þessi biskup verið“ „Hvílík skepna hefur þessi biskup verið," segir séra Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Ölfusi, um Ólaf Skúlason. Tilefnið er viðtalsþáttur við dóttur Ólafs, Guðrúnu Ebbu, sem sýndur var á RÚV í gær. 10.10.2011 11:58
Sprengiefnið fundið - góðkunningi lögreglu í varðhaldi Sprengiefnið, sem var stolið úr tveimur rammgerðum gámum í Þormóðsdal ofan við Hafravatn á dögunum, fannst við húsleit í Hafnarfirði og Kópavogi seint í gærkvöld. Í tilkynningu frá lögreglu segir að karl um þrítugt, sem á langan afbrotaferil að baki, hafi verið handtekinn í þágu rannsóknarinnar. 10.10.2011 11:36
Stal flösku af skosku viskíi Litháískur karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir þjófnað í verslun ÁTVR við Skútuvog í febrúar á síðasta ári. Samkvæmt ákæru stal maðurinn flösku af Scottish Leader vískíi að verðmæti 3.750 krónur. Krafist er að maðurinn verði dæmdur til refsingar. Þá gerir ÁTVR einkaréttarkröfu um að maðurinn verði greiddur til að greiða flöskuna - auk vaxta. 10.10.2011 11:31
Staða mannréttindamála almennt góð "Almennt held ég að mér sé óhætt að segja að staða mannréttindamála sé góð á Íslandi," sagði Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra þegar hann svaraði fyrir stöðu mannréttindmála á Íslandi hjá vinnuhópi Sameinuðu þjóðanna í Genf í dag, Hann sagði þó ljóst að hægt væri að gera enn betur og Íslendingar myndu ekki víkja sér undan gagnrýni á stöðu mannréttinda á Íslandi. "Við viljum fá slíka gagnrýni," segir Ögmundur. Hann myndi því bregðast vel við öllum ábendingum. 10.10.2011 11:19
Nota stolin bílnúmer til að svíkja út bensín Færst hefur í vöxt að skráningarnúmerum bifreiða sé stolið en tilkynnt var um slíkan þjófnað á Hvolsvelli í vikunni sem leið. 10.10.2011 11:00
Kannabisreykingamenn staðnir að verki Lögreglumenn höfðu afskipti af nokkrum ungum karlmönnum í íbúð á Selfossi árla morguns í gær vegna hávaða. Grunur vaknaði um að þeir væru að reykja hass. Þá var fenginn íkniefnahundur til að leita í búðinni og fann hann þar smávegis af kannabis. Við yfirheyrslu viðurkenndi einn úr hópnum að eiga efnið. 10.10.2011 10:55
Mæðrastyrksnefnd fékk 250 bíómiða, popp og gos Mæðrastyrksnefnd hefur verið gefið 250 aðgöngumiða á myndina Hetjur Valhallar - Þór og einnig gjafamiða yfir poppi og gosi. 10.10.2011 10:34
Heppilegra að einn aðili taki ákvörðun um laun þingmanna Kjararáð telur heppilegra að ákvörðun um laun þingmanna sé tekin af einum aðila, annað hvort þinginu sjálfu eða af óháðum aðila líkt og kjararáði. Þetta kemur fram í umsögn sem kjararáð skrifaði með frumvarpi Marðar Árnasonar og Valgerðar Bjarnadóttur, þingmanna Samfylkingarinnar, sem þau lögðu fram á síðasta þingi. Samkvæmt frumvarpinu var lagt til að sérstökum álagsgreðslum til þingmanna yrði hætt. Frumvarpið varð ekki að lögum. 10.10.2011 10:00
Ákærður fyrir tvær líkamsárásir á Gamlárskvöld Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært karlmann um tvítugt fyrir tvær líkamsárásir um áramótin síðustu. Þá er hann einnig ákærður fyrir að hafa rúmlega hálft gramm af marijúana í fórum sínum í maí á þessu ári. 10.10.2011 09:56
Snjóþekja víða um land Snjóþekja og hálka eru víða á Vestfjörðum, á norðurlandi og norðausturlandi. Spáð er vaxandi norðanátt með snjókomu um landið norðanvert í kvöld, en bjartara syðra. 10.10.2011 08:25
Brotist inn í Kópavogi og í Keflavík Brotist var inn í fyrirtæki í Kópavogi og verslun í Keflavík í nótt , en þjófarnir komust undan í báðum tilvikum. Ekki liggur fyrir hvort þeir höfðu einhver verðmæti á brott með sér en málin eru í rannsókn. 10.10.2011 08:05
Gagnrýnir Boston Globe fyrir að greina frá nafni Önnu Björns Fyrrverandi saksóknari í Bandaríkjunum gagnrýnir blaðið Boston Globe sem greindi frá því í gær að Anna Björnsdóttir hefði sagt alríkislögreglunni bandarísku frá því hvar glæpaforinginn James Bulger gæti verið niðurkominn. 10.10.2011 07:39
Rektor HR býst við meira fé Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, gerir ráð fyrir því að stefna stjórnvalda sé sú að háskólastarf á Íslandi standi ekki höllum fæti gagnvart samanburðarlöndum innan Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) og fleiri skólar en Háskóli Íslands muni því njóta aukinna fjárveitinga frá því sem nú er. Hann fagnar stofnun Aldarafmælissjóðs Háskóla Íslands og að stjórnvöld viðurkenni mikilvægi háskólastarfs með þeim hætti. „Ég vænti því þess að framhald verði á því að auka framlög til alls háskólastarfs í landinu. Þetta verður bara að vera fyrsta skrefið." 10.10.2011 07:08
Ekkert BootCamp án breytinga á skipulagi Eigi hús sem Fornbílaklúbbur Íslands reisti í Elliðaárdal að vera notað undir líkamsræktarstöð þarf að breyta deiliskipulagi á svæðinu. Þetta segir Ólöf Örvarsdóttir, skipulagsstjóri í Reykjavík. 10.10.2011 06:00
Búið að ráðstafa öllu nema 7,5 milljónum Rúmlega 35 milljónir af þeim 40 sem heitið var hafa skilað sér inn til Krabbameinsfélagsins vegna Mottumars. Áheit á netinu áttu að skila inn tæpum 30 milljónum og fyrirtæki áttu að skila inn um 10 milljónum. Enn vantar um þrjár milljónir af áheitum af netinu og um tvær milljónir frá fyrirtækjum. Þeim sem heita á einstaklinga vegna Mottumars ber engin lagaleg skylda til þess að greiða inn til félagsins. 10.10.2011 06:00
Með 90 gyðinga á lista og horfa til sýnagógu Leit tveggja bandarískra rabbínanema að gyðingum á Íslandi hefur borið svo góðan ávöxt að þeir sjá fyrir sér að fljótlega þurfi að koma hér upp samkomuhúsi fyrir íslenska gyðinga og á endanum sýnagógu. Þeir telja leitina hafa gengið vonum framar. 10.10.2011 05:30
Ákærður fyrir brugg og fíkniefnasölu Karlmaður um fimmtugt hefur verið ákærður fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot, kannabisræktun, bruggstarfsemi og sölu dóps og landa. 10.10.2011 05:00
500 nýjar íbúðir gætu risið Borgarráð samþykkti á fundi sínum á fimmtudag að veita vilyrði fyrir stúdentagörðum Félagsstofnunar stúdenta (FS) við Brautarholt 7. Þar gætu risið allt að 100 íbúðir. Enn fremur var ákveðið að hefja viðræður við Háskólann í Reykjavík um að hefja undirbúning að byggingu stúdentagarða á svæði háskólans við Öskjuhlíð. Skipulagsráð kannar síðan frekari uppbyggingarmöguleika fyrir námsmannaíbúðir á tveimur svæðum í samvinnu við HÍ og FS. 10.10.2011 04:00
Góð loðna í grænlenskri lögsögu Fyrstu loðnunni á vertíðinni var landað á Vopnafirði um helgina. Víkingur AK, skip HB Granda, færði að landi þúsund tonna farm af stórri loðnu sem fékkst í grænlenskri lögsögu. 10.10.2011 03:30
ASÍ gagnrýnir fjárlagafrumvarp 2012 Miðstjórn ASÍ lýsir yfir vonbrigðum með grundvallarstefnuna að baki fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2012. Lítil innistæða sé fyrir þeim veiku forsendum sem stjórnvöld gefi sér fyrir efnahagsbata. 10.10.2011 03:00
Hópráðningar á erfiðum tímum Það eru hópráðningar en ekki hópuppsagnir hjá Skemmtigarðinum sem opnar bráðum 2000 fermetra innanhústívolí í Smáralind. Áætlað er að ráða 60 manns í vinnu og tók umsækjendur þátt í óhefðbundnu ráðningarferli í dag. 9.10.2011 22:30
Vilja hreindýr á Vestfirði Skotveiðifélag Íslands vill að hreindýr verið flutt á Vestfirði og telur að koma dýranna muni lengja ferðamannatímann þar. Í tíu ár hefur Skotveiðifélag Íslands kannað möguleika á að fjölga íslensku hreindýrunum. Áhugamenn um að hreindýr verði flutt á Vestfirði hittust því á fundi á Ísafirði í dag. Stefnan er að stofna sérstök samtök í desember til að vinna að þessari hugmynd. 9.10.2011 21:30
Samband komið á farsíma Farsímaþjónusta Vodafone er nú komin í lag, eftir að hafa legið niðri vegna bilunar í dreifikerfi Nova og Vodafone. Viðskiptavinir gætu þó þurft að endurræsa símtæki sín svo tækin skrái sig að nýju inn á kerfin. Tæknimenn hófust handa við að leysa vandann um leið og hans var vart og fljótlega tókst að greina orsök hans. Viðgerð lauk um kl. 20 í kvöld. Engar truflanir urðu á net- og heimasímaþjónustu. 9.10.2011 20:46
Sprengiefnið enn ófundið Um fjögur hundruð kíló af sprengiefni sem stolið var í síðustu viku eru enn ófundin. Lögreglunni hafa borist nokkrar ábendingar sem hún skoðar. Sprengiefnið var á vinnusvæði í Þormóðsdal ofan við Hafravatn. Efnið var geymt í tveimur gámum sem voru vel læstir. Þjófarnir virðast hafa undirbúið sig nokkuð vel en þeir notuð meðal annars logskurðartæki til að komast inn í gámana. 9.10.2011 20:30
Lyf yfirvalda ekki þau bestu Kvensjúkdómalæknar sem látið hafa bólusetja dætur sínar gegn HPV-sýkingum, sem geta valdið leghálskrabbameini, völdu annað lyf en það sem yfirvöld nota til að bólusetja stúlkur með í dag. Gríðarlegur verðmunur gerði útslagið um hvort bóluefnið var valið. 9.10.2011 20:00
Farsímar enn sambandslausir Farsímasamband liggur enn niðri hjá stórum hluta símnotenda hjá Vodafone og Nova. Visir greindi frá því fyrr í dag að bilunin myndi aðeins vara fáeinar mínútur. Annað kom á daginn og sambandslaust hefur nú verið hjá farsímanotendum í lengri tíma. Ástæða þess er bilun í kerfum fyrirtækjanna, sem valdið hefur truflunum á símaþjónustu við farsíma. Tæknimenn hófust handa um leið og bilunarinnar varð vart og hafa nú staðsett bilunina. Unnið er að viðgerð. 9.10.2011 19:44
Farsímar sambandslausir Farsímakerfi Vodafone og Nova liggur niðri eins og stendur. Unnið er að lausn á málinu. Kerfið datt út fyrir nokkrum mínútum síðar. Ekki er um kerfið í heild sinni að ræða, heldur aðeins ákveðin númer sem liggja niðri. Svipuð bilun hefur komið upp áður en þá tók aðeins um 7 mínútur að leysa vandann. Farsímanotendur þurfa því ekki að örvænta vegna langvarandi bilunar. 9.10.2011 18:07
Sauðburður á undarlegum tíma Fimm vetra ær af Litlu-Ávík á ströndum var í morgun borin tveim hrútlömbum. Þegar bóndinn Sigursteinn Sveinbjörnsson athugaði fé sitt fyrir hádegi í dag blöstu þessi merkilegu tíðindi við honum. Hann kom ánni og lömbunum í hús hið fyrsta, enda norðanátt og snjókoma á svæðinu. Eins og menn vita er sauðburður að vori og sjaldgæft að ær beri á haustin. Þess skal þó getið að þetta er ekki í fyrsta sinn sem það ber til í Litlu-Ávík, því árið 2004 bar þar önnur ær tveim lömbum um miðja sláturtíð. Féð á þeim bæ virðist því nokkuð kenjótt. 9.10.2011 15:44
Fjárveiting til HÍ í eðlilegum farvegi Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, segir aukafjárframlög til Háskóla Íslands og framkvæmd þeirra í fullkomlega eðlilegum farvegi. Hann segir engar ákvarðanir um útgjöld til þessa máls verða teknar nema með samþykki þingsins, enda annað andstætt lögum. Eins og kunnugt er tilkynnti Jóhanna Sigurðardóttir í gær að Háskóli Íslands muni næstu fjögur árin hljóta aukafjárveitingu upp á 1,5 milljarð króna. 9.10.2011 14:44
Virðist ekki lífshættulega slasaður Maðurinn sem lenti í bílslysi sunnan við Raufarhöfn í morgun virðist við fyrstu skoðun ekki vera lífshættulega slasaður. Hann hefur þó nokkra höfuðáverka en ekki virðist um mænuskaða að ræða. Maðurinn verður lagður inn á spítala. Sérfræðingar gera ekki ráð fyrir því hann muni liggja inni lengi en fylgst verður með honum um sinn. 9.10.2011 13:45
Rangt staðið að styrk til Háskólans Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd gagnrýnir hvernig staðið er að fyrirhugaðri aukafjárveitingu til Háskóla Íslands. Framlögin komi ekki fram í fjárlagafrumvarpi sem aðeins er nokkurra daga gamalt. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV. 9.10.2011 12:45
Vísbendingar um dýnamítþjófa berast Lögreglu hafa borist einhverjar vísbendingar, sem verið er að kanna, um hverjir gætu hafa stolið rúmlega 400 kílóum af sprengiefni skammt frá Hafravatni í vikunni. Sprengiefnið var í tveimur gámum á vinnusvæði í Þormóðsdal ofan við Hafravatn. Efnið er í eigu verktakafyrirtækis. Fyrirtækið er með grjótnámu þar sem reglulega er sprengt. Lögregla segir vörslu á sprengiefnisins algjörlega í samræmi við reglur Vinnueftirlitsins. Þannig hafi það til að mynda verið geymt í tveimur aðskildum gámum. 9.10.2011 12:30
Mynd Íslendings slær í gegn Gísli Guðjónsson býr í Boston í Bandaríkjunum. Þegar hann frétti af dauða Steve Jobs datt honum í hug skopmynd í minningu forstjórans. Myndin fer nú sem eldur í sinu um internetið og hefur vakið mikla lukku. Á samskiptamiðlinum facebook nálgast myndin nú 100.000 likes. Einnig hafa erlendir fréttamiðlar fjallað um myndina. 9.10.2011 11:52
Mikið slasaður eftir bílveltu Karlmaður sem lenti í bílveltu við Deildará, rétt sunnan við Raufarhöfn er talinn mikið slasaður. Hann er nú í sjúkraflugi á leið til Reykjavíkur. Enn er ekki vitað nákvæmlega hvernig slysið átti sér stað. Maðurinn var einn í fólksbíl á leið eftir beinum vegi. Bíllinn lenti út af veginum og tók í leiðinni nokkrar veltur. Lögreglan á Húsavík er sem stendur að rannsaka slysstaðinn. 9.10.2011 11:39
Bátur í vanda Stjórnstöð siglinga fékk tilkynningu lítinn bát sem var í vandræðum um fjögurleytið í nótt. Aðeins einn maður var um borð og hafði hann ætlað að sigla bátnum frá Norðurfirði til Skagastrandar. Þegar hann kom út á flóann lenti hann í leiðindaveðri, dæla bilaði og stjór kom inn í vélarúmið. Björgunarbáturinn Húnabjörg á Skagaströnd var sendur honum til aðstoðar og dró hann að bryggju á Skagaströnd. 9.10.2011 11:30
Undirbúa vegaframkvæmdir í Teigsskógi Vegagerðin er byrjuð að safna upp efni í grjótfyllingu fyrir umdeildan veg í gegnum Teigsskóg og þekur það nú heilan flugvöll í Gufudalssveit. 8.10.2011 21:30
Æskulýðsstarf fyrir bí vegna nýrra reglna Djákni í grafarvogskirkju segir það sárt að sjá eftir því æskulýðsstarfi sem fellur niður vegna nýrra reglna Reykjavíkurborgar sem setja samskiptum skóla og trúfélaga miklar skorður. 8.10.2011 21:00