Innlent

Hópráðningar á erfiðum tímum

Það eru hópráðningar en ekki hópuppsagnir hjá Skemmtigarðinum sem opnar bráðum 2000 fermetra innanhústívolí í Smáralind. Áætlað er að ráða 60 manns í vinnu og tók umsækjendur þátt í óhefðbundnu ráðningarferli í dag.

Um hundrað manns voru boðaðir í hópviðtöl í dag en áætlað er að ráða starfsmenn til að vinna í nýjum Skemmtigarði í Smáralind. Þar eru framkvæmdir nú í hámarki en vonast er til að opna garðinn um næstu mánaðarmót.

Hópviðtölin í dag voru með frekar óheðfbundnu sniði en hver hópur þurfti að leysa verkefni í sameiningu og fara í leiki. Á meðan fylgdust forsvarsmenn Skemmtigarðsins með og mátu hvern og einn eftir hans frammistöðu. Ingibjörg segir að hægt sé að kynnast fólki hraðar og sjá hvort það hafi þá eiginleika sem verið er að leita eftir.

Þeir eiginleikar eru númer eitt, tvö og þrjú að brosa, hafa þjónustulund og hafa gaman að starfinu. Fólk þarf að vera jákvætt og geta tæklað aðstæður rétt.

Sextíu einstaklingar verða ráðnir eftir hópviðtölin og segir Ingibjörg það jákvætt að geta boðið hópráðningu en ekki hópuppsagnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×