Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Herjólfur fer í Þorlákshöfn Ferjan Herjólfur siglir til Þorlákshafnar á fimmtudag en nú er unnið hörðum höndum að dýpkun í Landeyjahöfn og eru dýpkunarskipin Skandía og Perlan eru þar við dælingar. Í tilkynningu frá Eimskipi segir að stefnt sé að því að mæla dýpi hafnarinnar á miðvikudag eða fimmtudag. Af þeim sökum hefur verið ákveðið að festa siglingar í Þorlákshöfn á fimmtudaginn en bíða með ákvörðun um framhaldið þar til niðurstöður mælinga liggja fyrir. Farþegum er bent á að fylgjast með ferðunum á herjólfur.is og á Facebook-síðu ferjunnar. 17.10.2011 15:09
Framsókn kynnir „plan b“ Framsóknarmenn hafa lagt fram svokallað „plan b“ til að hefja sókn í atvinnumálum og koma á stöðugleika í efnahagsmálum. Meðal tillagna er að afnema verðtryggingu í skrefum og einfalda skattakerfið. 17.10.2011 14:14
Meint brot ná allt til ársins 1998 Skýrslutökum yfir Tryggva Jónssyni, fyrrverandi forstjóra Baugs, í Héraðsdómi Reykjavíkur er lokið. Tryggvi er einn þriggja einstaklinga sem ákærður í er skattahluta Baugsmálsins, en aðalmeðferð í málinu fer fram í dag. 17.10.2011 14:05
Kvennó nýtir sér Miðbæjarskólann Kvennaskólinn í Reykjavík hefur tekið í notkun gamla Miðbæjarskólann sem ríkið keypti af borginni á síðasta ári. Húsið var tekið til gagngerra breytinga í samstarfi við húsafriðunarnefnd áður en skólinn tók við aðstöðunni. Á heimasíðu Reykjavíkurborgar segir að almenn ánægja ríki meðal nemenda og kennara með breytingarnar. 17.10.2011 13:52
Bifreiðin á Hringbrautinni tengist ekki ráninu - mennirnir enn ófundnir Mennirnir þrír sem voru handteknir á Hringbrautinni um klukkan ellefu í morgun tengjast vopnuðu ráni á Laugavegi ekki. Þetta segir varðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 17.10.2011 13:04
Skýrslur teknar af sakborningum í dag "Ég hef aldrei talið vísvitandi rangt fram til skatts," sagði Tryggvi Jónsson, fyrrverandi forstjóri Baugs, við aðalmeðferð skattahluta Baugsmálsins sem fram fer í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 17.10.2011 12:38
Mjög hvasst undir Ingólfsfjalli - vörubíll fauk útaf Vörubíll með tengivagni fauk út af veginum undir Ingólfsfjalli á tólfta tímanum. Ökumaður bílsins slapp ómeiddur. Tengivagninn er gjörónýtur en óvíst er með skemmdir á bílnum. Ekki verður farið í að koma honum aftur upp á veg fyrr en lægir. 17.10.2011 12:01
Ræningjarnir ganga enn lausir Ræningjarnir sem frömdu rán í úraversluninni Michelsen í morgun ganga enn lausir. Þrír menn réðust inn í úraverslunina um klukkan hálf ellefu í morgun. Mennirnir voru allir með leikfangabyssur og barefli en bifreið sem þeir notuðu við verkið fannst stuttu síðar í Þingholtunum og voru þrjár leikfangabyssur í henni. 17.10.2011 11:52
Vopnaðir lögreglumenn handtóku þrjá menn á Hringbraut Þrír menn voru handteknir á gatnamótum Njarðargötu og Hringbrautar nú fyrir stundu en talið er að þeir tengist vopnuðu ráni sem var framið í Michelsen úraverslun í morgun. Varðstjóri hjá lögreglunni vildi þó ekki staðfesta að mennirnir séu þeir sem frömdu ránið - rannsókn sé í enn í fullum gangi. Sérsveit ríkislögreglustjóra aðstoðar við aðgerðir lögreglunnar. 17.10.2011 11:26
Ógnuðu starfsfólki með byssum Vopnað rán var framið í Michaelsen úraverslun á Laugavegi um klukkan hálf ellefu í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu komu þrír menn, sem allir voru vopnaðir skambyssum, inn í verslunina og tæmdu þar hillur með dýrum úrum. 17.10.2011 10:38
Aðalmeðferð í skattahluta Baugsmálsins Aðalmeðferð hófst í morgun í skattahluta Baugsmálsins. Í málinu eru þrír einstaklingar ákærðir fyrir skattalagabrot, persónulega og í rekstri fyrirtækja. Ákærðu eru þau Jón Ásgeir Jóhannesson, Kristín Jóhannesdóttir og Tryggvi Jónsson. Þá beinist ákæran einnig gegn fjárfestingafélagið Gaumur, að því er fram kemur í dagskrá héraðsdóms. 17.10.2011 10:19
Hefur þú séð þennan bíl? Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú að fólksbifreið sem stolið var í Gnoðarvogi í Reykjavík síðastliðna nótt. 17.10.2011 10:17
Flestir fluttu til Norðurlandanna Á þriðja ársfjórðungi ársins fæddust 1220 börn, en 470 einstaklingar létust en landsmönnum fækkaði hinsvegar um 90 á tímabilinu. Í lok fjórðungins bjuggu 319.090 manns á Ísland, Um 160 þúsund karlar og tæplega 159 þúsund konur. Erlendir ríkisborgar voru tæplega 21 þúsund og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu rúmlega 203 þúsund. 17.10.2011 09:30
Spá stormi víða um land í dag Veðurstofan spáir stormi víða um land í dag og bendir ökumönnum á að búast megi við erfiðum akstursskilyrðum á noðranverðu landinu í dag, fyrst norðvestanlands. 17.10.2011 08:36
Grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun Tveir grímuklæddir þjófar brutust inn í tölvuverslun í Kópavogi í nótt og stálu þaðan töluverðum verðmætum og komust undan. 17.10.2011 08:18
Kveikt í mannlausum bíl Tilkynnt var um eld í mannlausum fólksbíl við Laufásveg á sjötta tímanum í morgun og logaði hann í einhverjum efnum við bensínlokið, þegar slökkvilið kom á vettvang. 17.10.2011 08:09
Eldur í íbúð í Eskihlíð, kettir fengu far með sjúkrabíl Eldur kviknaði í íbúð á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi við Eskihlíð um miðnætti. Íbúar annarsstaðar í húsinu heyrðu í reyksynjara í íbúðinni, en þar sem engin virtist vera heima kölluðu þeir á slökkvilið. 17.10.2011 07:39
Björguðu fólki úr ófærð á Klettshálsi Björgunarsveit frá Patreksfirði var kölluð út um miðnætti til að aðstoða fólk í bíl á Klettshálsi, en þar var orðið aftaka veður og snjókoma. 17.10.2011 07:25
Dælingin gæti flýtt fyrir stærri skjálftum Að sögn Jónasar Ketilssonar, jarðhitasérfræðings hjá Orkustofnun, eru allar líkur á því að það dragi úr smáskjálftavirkni á Hengilsvæðinu eftir því sem niðurdæling Orkuveitunnar á vatni stendur lengur. 17.10.2011 07:00
Ráðherra segir vændisrannsókn koma til greina Vel kemur til greina að láta rannsaka umfang og eðli vændis á Íslandi á næstunni. Þetta segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. 17.10.2011 07:00
Höfða mál vegna milljóna Ólafs F. Frjálslyndi flokkurinn hefur höfðað mál á hendur Reykjavíkurborg til að freista þess að innheimta um 3,4 milljónir sem greiddar voru sem styrkur til borgarfulltrúans Ólafs F. Magnússonar. 17.10.2011 06:15
Átján hundruð milljónir í einum lottópotti Það stefnir í að aðalvinningurinn í Víkingalottóinu á miðvikudaginn kemur verði sá næststærsti sem spilað hefur verið um frá því að Víkingalottóið hóf göngu sína hér á landi. 17.10.2011 06:00
Vatnsauðlindinni tryggð vernd Innleiðing vatnatilskipunar Evrópusambandsins er hafin í samræmi við lög sem voru samþykkt á Alþingi vorið 2011 um stjórn vatnamála. Lögin fela í sér innleiðingu vatnatilskipunarinnar í íslenskan rétt. Tilgangurinn er að tryggja verndun og heilnæmi vatns á Íslandi til framtíðar. 17.10.2011 06:00
Framhaldsnám sé á Hólmavík Ingibjörg Valgeirsdóttir, sveitarstjóri Strandabyggðar, lagði á fundi með fjárlaganefnd Alþingis á föstudag megináherslu á að undirbúningur við stofnun framhaldsdeildar á Hólmavík verði hafinn árið 2012. 17.10.2011 06:00
Byltingar þörf til að takast á við kreppu „Eftirspurn eftir mat er að verða meiri en framboðið. Undanfarin tíu ár hefur verið framleitt minna af fæðu en þörf er fyrir,“ segir Julian Cribb, prófessor í miðlun vísindalegrar þekkingar. Cribb skrifaði bókina The Coming Famine – The Global food crisis and what we can do to avoid it, eða Hungursneyðin yfirvofandi – alþjóðlega matarkreppan og hvað við getum gert til að forðast hana. Cribb heldur fyrirlestur í húsakynnum Íslenskrar erfðagreiningar klukkan tólf í dag. 17.10.2011 05:00
Ingibjörg Sólrún á leið til Kabúl Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi formanni Samfylkingarinnar og fyrrverandi utanríkisráðherra Íslands, hefur verið boðið starf yfirmanns UN Women í Kabúl, höfuðborg Afganistans. Þetta staðfesti Ingibjörg Sólrún við Fréttablaðið í gær. Hún er nú í viðræðum við stofnunina um að taka að sér starfið, en slíkar ráðningar eru tímafrekar sökum pappírsvinnu og annars. 17.10.2011 05:00
Ákalli norskrar eyju svarað úr Borgarnesi Með flutningi 13 Íslendinga til eyjunnar Fjelberg undan Noregsströnd hefur eyjarskeggjum fjölgað um 10 prósent. Eyjan fékk styrk frá norska ríkinu til þess að laða til sín barnafjölskyldur og var ákveðið að auglýsa eftir þeim á Íslandi. Nú eru þrjár íslenskar fjölskyldur búsettar á Fjelberg ásamt þeim 108 íbúum sem fyrir voru. 17.10.2011 04:00
Nálgunarbann eftir grófa árás Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað að karlmaður skuli sæta brottvísun af heimili fyrrverandi eiginkonu sinnar og nálgunarbanni í fjórar vikur, eftir að hann hafði gengið í skrokk á henni með þeim afleiðingum að hún fékk meðal annars heilahristing. 17.10.2011 03:45
Sýnir verk með stórstjörnum Þórunn Árnadóttir vöruhönnuður sýnir í hinu virta hönnunarsafni Triennale í Mílanó fyrst Íslendinga. Þar tekur Þórunn þátt í stórri samsýningu og er ekki í amalegum félagsskap þar sem verk eftir heimsþekkta listamenn á borð við Damien Hirst og Louise Bourgeois eru til sýnis. 17.10.2011 03:00
Gagnaverið rís á næstu vikum Gagnaver Verne Global kom til hafnar í Helguvík um helgina. Það verður sett upp á næstu vikum. 17.10.2011 03:00
Varað við stormi Búist er við stormi á Norðvestur landinu í dag og einnig Suðaustanlands á morgun. 16.10.2011 10:07
Slegist fyrir utan Manhattan - rólegt á Airwaves Líkamsárás átti sér stað fyrir utan veitingastaðinn Manhattan í Keflavík í nótt. Nokkrum mönnum lenti þar saman og var einn barinn í höfuðið með glasi. Hann hlaut þó ekki alvarlega áverka en ryskingarnar stöðvuðust þegar lögregla mætti á svæðið. Þá var tilkynnt um líkamsárás á skemmtistaðnum 800 bar á Selfossi um hálffjögurleytið í nótt. 16.10.2011 10:01
Vatnstjón í Drápuhlíð og mikill erill í sjúkraflutningum Mikið vatnstjón varð í kjallara húsnæðis heilsugæslunnar í Drápuhlíð þegar heitavatnslögn virðist hafa gefið sig. Slökkviliðið var kallað á vettvang um klukkan hálf fimm í nótt vegna lekans. 16.10.2011 09:53
Aftur kveikt í á Bergstaðastrætinu Enn og einu sinni var kveikt í mannlausu húsi á horni Bergstaðastrætis og Spítalastígs. 16.10.2011 09:47
Mikið um hálkuslys Mikil hálka var í morgun og virtist koma mörgum í opna skjöldu. Þannig urðu sjö umferðaróhöpp í nótt og tvær bílveltur á Suðurlandsvegi eftir miðnætti í nótt. 16.10.2011 09:35
Vildu ekki vinna eineltisálit með minnihluta vegna tengsla við skólann N listinn í Sveitarfélaginu Garði hefur óskað eftir að fá afrit af bréfi því sem bæjarstjóri og meirihluti skólanefndar sendu til Mennta og menningarráðuneytisins, undirritað af þeim, samkvæmt frétt Víkurfrétta um málið. 15.10.2011 19:48
Manngerðir jarðskjálftar: "Það er alls ekki í lagi“ "Ég hef aldrei orðið fyrir alvarlegum óþægindum af þessu eins og ég segi er ég ekki hrædd, manni bara bregður. En sú tilhugsun að þetta er af mannavöldum? Það finnst mér aftur ekki í lagi, alls ekki í lagi,“ segir Anna Halla Hallsdóttir, íbúi í Hveragerði um jarðskjálftana en íbúum er verulega brugðið eftir morguninn, enda skóku tveir skjálftar bæinn á innan við klukkustund. Báðir mældust fjórir á richter. 15.10.2011 19:30
Íslenskt jeppafyrirtæki á heimsmet í að fara yfir Suðurpólinn Jeppafyrirtækið Arctic Trucks hefur slegið heimsmet í að fara yfir Suðurpólinn á sem skemmstum tíma. Meðalhraðinn var engu að síður 21 kílómetra hraði á klukkustund. 15.10.2011 18:46
Rólegt á starfakynningu Það var rólegt um að litast á starfakynningu Vinnumálastofnunar og evrópsku vinnumiðlunarinnar í dag, þar sem Íslendingar gátu kynnt sér atvinnutækifæri í öðrum Evrópuríkjum. 15.10.2011 18:35
Fjölmenn mótmæli í miðborginni Fjölmenni eru samankomin á Austurvelli þar sem Hörður Torfason heldur byltingaræðu. Þar fara nú fram önnur mótmæli dagsins, en hin eru á Lækjartorgi, og eru hluti af heimsmótmælum. 15.10.2011 15:28
Eldingu laust niður í flugvél Icelandair Eldingu laust niður í flugvél Icelandair snemma í morgun. Vélin var að koma frá Boston þegar eldingu laust niður í vélina. 15.10.2011 14:45
Skjálftarnir voru fjórir á richter Báðir jarðskjálftarnir í morgun reyndust vera fjórir á richter samkvæmt upplýsingum jarðvísindamanna á Veðurstofu Íslands. 15.10.2011 13:51
Orkumálastjóri: Skjálftarnir ekki endilega af mannavöldum „Á þessu svæði, sem verið er að vinna á, þá hafa skjálftar verið í mesta lagi fimm til sex á ricther,“ segir Guðni Albert Jóhannesson, Orkumálastjóri, en Orkumálastofnun hefur að beiðni iðnaðarráðuneytisins fylgst með niðurdælingum Orkuveitu Reykjavíkur á svæðinu, sem hefur skapað fjölda smáskjálfta. 15.10.2011 13:22
Geðhjúkrunarfræðingar: Aðstaðan á Kleppi betri en á Sogni Fagdeild geðhjúkrunarfræðinga hefur lýst yfir stuðningi við að starfsemi réttargeðdeildarinnar á Sogni verði færð á Kleppspítala í Reykjavík. 15.10.2011 12:48
Bæjarstjóri Hveragerðis: Ólíðandi að búa við manngerða skjálfta Íbúar Hveragerðis hafa fengið sig fullsadda af manngerðum skjálftum Orkuveitu Reykjavíkur segir bæjarstjóri. Tveir snarpir jarðskjálftar urður við Hellisheiðarvirkjun í morgun og fundust þeir allvíða á suðvesturlandi. 15.10.2011 12:08