Meint brot ná allt til ársins 1998 Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. október 2011 14:05 Tryggvi Jónsson er ákærður í málinu.
Skýrslutökum yfir Tryggva Jónssyni, fyrrverandi forstjóra Baugs, í Héraðsdómi Reykjavíkur er lokið. Tryggvi er einn þriggja einstaklinga sem ákærður í er skattahluta Baugsmálsins, en aðalmeðferð í málinu fer fram í dag. Brotin, sem Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari telur að hafi átt sér stað í rekstri Baugs ná allt til ársins 1998. Tryggvi var meðal annars spurður út í bílahlunnindi starfsmanna Baugs, líftryggingar og sjúkratryggingar sem saksóknari telur að hafi ekki verið gert grein fyrir hjá skattayfivöldum með réttum hætti. Þá var hann einnig spurður út í kaupréttargreiðslur á árinu 1999. Tryggvi var einnig spurður út i kaupréttargreiðslur til Jóns Björnssonar, æskuvinar Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, á árinu 2002 en Tryggvi sagðist ekki hafa komið að þeim greiðslum og ekkert vitað af þeim. Jón Björnsson var um tíma forstjóri Haga og framkvæmdastjóri Magazine du Nord. Laust fyrir klukkan tvö í dag hóf Helgi Magnús saksóknari svo að taka skýrslu af Kristínu Jóhannesdóttur, systur Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og meðeiganda í eignarhaldsfélaginu Gaumi. Auk Tryggva og Kristínar er Jón Ásgeir Jóhannesson ákærður í málinu. Hann yfirgaf réttarsalinn strax eftir að skýrslutökum yfir honum lauk.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent Fleiri fréttir Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Langreyðarkvótinn mun tæplega nást Fylgdarakstur um Hvalfjarðargöng að næturlagi í næstu viku Eyvindur P. Eiríksson látinn Sjá meira