Innlent

Kveikt í mannlausum bíl

Tilkynnt var um eld í mannlausum fólksbíl við Laufásveg á sjötta tímanum í morgun og logaði hann í einhverjum efnum við bensínlokið, þegar slökkvilið kom á vettvang.

Slökkviliðinu tókst með snarræði að slökkval eldinn áður en hann kæmist í bensíntankinn með ófyrirsjáanlegum afleiðingum, en augljóst þykir að reynt hafi verið að kveikja í bílnum. Sá sem þar hefur verið að verki er ófundinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×