Innlent

Björguðu fólki úr ófærð á Klettshálsi

Björgunarsveit frá Patreksfirði var kölluð út um miðnætti til að aðstoða fólk í bíl á Klettshálsi, en þar var orðið aftaka veður og snjókoma.

Vindur fór þar upp í 38 metra á sekúndu í hviðu og var um tíma stöðugur í 30 metrum. Björgunarmenn voru vel tækjum búir á heiðina og eru að líkindum komnir með fólkið til byggða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×