Innlent

Flestir fluttu til Norðurlandanna

Þónokkur fjöldi pakkaði búslóðinni saman og flutti af landi brott.
Þónokkur fjöldi pakkaði búslóðinni saman og flutti af landi brott. Mynd/365
Á þriðja ársfjórðungi ársins fæddust 1220 börn, en 470 einstaklingar létust en landsmönnum fækkaði hinsvegar um 90 á tímabilinu. Í lok fjórðungins bjuggu 319.090 manns á Ísland, Um 160 þúsund karlar og tæplega 159 þúsund konur. Erlendir ríkisborgar voru tæplega 21 þúsund og á höfuðborgarsvæðinu bjuggu rúmlega 203 þúsund.

Þetta kemur fram í nýjum tölum sem birtar eru á vef hagstofunnar. Þar segir jafnframt að 850 einstaklingar hafi flust frá landinu, umfram aðfluttra. Brottfluttir einstaklingar með íslenskt ríkisfang voru 690 umfram aðflutta, en brottfluttir erlendir ríkisborgarar voru 160 fleiri en þeir sem fluttust til landsins. Fleiri karlar en konur fluttust frá landinu.

„Noregur var helsti áfangastaður brottfluttra íslenskra ríkisborgara, en þangað fluttust 590 manns á 3. ársfjórðungi. Til Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar fluttust 1.380 íslenskir ríkisborgarar af 1.730 alls. Af þeim 1.000 erlendu ríkisborgurum sem fluttust frá landinu fóru flestir til Póllands, 360 manns.

Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu frá Danmörku (480), Noregi (190) og Svíþjóð (130), samtals 790 manns af 1.050. Pólland var upprunaland flestra erlendra ríkisborgara, en þaðan fluttust 180 til landsins af alls 840 erlendum innflytjendum. Þýskaland kom næst, en þaðan fluttust 60 erlendir ríkisborgarar til landsins."



Mannfjöldi, fæðingar, andlát og búferlaflutningar á 3. ársfjórðungi 2011


AllsKarlarKonur
Mannfjöldinn í lok ársfjórðungs319.090160.130158.960
Mannfjöldinn í upphafi ársfjórðungs319.180160.240158.940
Breyting-90-11025
Fæddir1.220630590
Dánir470230250
Aðfluttir umfram brottflutta-850-520-330
Aðfluttir1.880900980
Brottfluttir2.7301.4201.310
Taflan er af vef Hagstofunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×