Fleiri fréttir

17 ára á 140 kílómetra hraða

Sautján ára piltur var staðinn að hraðakstri á Vesturlandsvegi í Reykjavík í gærkvöld. Bíll hans mældist á 140 km hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 80. Pilturinn, sem fékk ökuskírteini í hendur nýverið, á greinilega margt ólært en hann fær nú tækifæri til að hugsa ráð sitt. Fyrir brotið verður hann bæði sviptur ökuleyfi og gert að greiða verulega fjársekt.

Bein útsending á Vísi frá Alþingi í kvöld

Bein útsending verður á Vísi.is frá umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra í kvöld. Ræða Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, hefst klukkan 19:50 en útsending Vísis hefst klukkan 19:15. Hægt verður að nálgast útsendinguna á forsíðu Vísis.

Geir um úrskurðinn: Þetta er áfangasigur

Geir H. Haarde segir frávísun Landsdóms á tveimur fyrstu ákæruliðunum áfangasigur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrrverandi forsætisráðherranum.

Framsóknarmenn vilja leyfa kökubasar

Þingmenn Framsóknarflokksins hafa lagt fram frumvarp um breytingu á lögum um matvæli. Með frumvarpinu er lagt til að heimilað verði að veita leyfi til sölu á matvælum sem ekki eru bökuð í sérstökum eftirlitsskyldum eldhúsum.

Festu sig í ám á Suðurlandi

Lögreglunni á Hvolsvelli bárust tvær beiðnir í síðustu viku vegna rigningar. Þannig festu tveir ökumenn bifreiðar sínar vegna vatnavaxta í ám á Suðurlandi.

Haukur Holm ritstjóri Reykjavíkur

Haukur Holm hefur verið ráðinn ritstjóri Vikublaðsins Reykjavík. Hann tók við starfinu 1. október sl., og kemur fyrsta blaðið undir ritstjórn hans út þann 8. október næstkomandi. Haukur hefur starfað við fréttamennsku vel á þriðja áratug, lengst af hjá Stöð 2.

Blóðugur niðurskurður hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarðar

Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða (HV) nemi rúmum einum milljarði króna á næsta ári sem jafngildir um 31,7 milljóna króna lækkun að raungildi frá fjárlögum ársins 2011 samkvæmt frétt sem birtist á fréttavef Bæjarins besta á Ísafirði í dag.

Kafað ofan í Guðmundar- og Geirfinnsmálið

Komin eru fram ný gögn í einu stærsta sakamáli Íslandssögunnar, Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Það eru dagbækur Tryggva Rúnars Leifssonar, sem sat í gæsluvarðhaldi í tvö ár í Síðumúlafangelsi og fékk 13 ára fangelsisdóm.

Mótmælin rannsökuð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar mótmælin á laugardaginn en að sögn Stefáns Eiríkssonar, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, þá liggur engin kæra fyrir í málinu.

Hagsmunasamtökin harma eggjakastið

Hagsmunasamtök heimilanna harma að þingmaður og myndatökumaður hafi orðið fyri hnjaski þegar eggjum var kastað að ráðamönnum við þingsetninguna á laugardaginn var. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að þau hafi í margar vikur talað fyrir friðsömum samstöðufundi.

Atli neyddur í nefnd

Atli Gíslason, þingmaður, hefur sagt sig úr umhverfis- og samgönguefnd Alþingis en hann var kjörinn í nefndina á laugardag þrátt fyrir að hafa andmælt því formlega. Atli telur að stjórnarflokkarnir séu að refsa honum fyrir að hafa sjálfstæðar skoðanir.

Lögðu hald á ólögleg lyf í alþjóðlegri aðgerð

Tollgæslan lagði hald á tæplega átta þúsund ólöglegar töflur og fölsuð lyf sem selja átti á netinu í viðamikilli aðgerð sem teygði anga sína um allan heim. Aðgerðin var skipulögð af alþjóðlegum samtökum tollembætta og Interpol. Stóð hún yfir dagana 20. til 27. september og er sú viðamesta sem skipulögð hefur verið af þessu tagi.

Réttað yfir grunuðum nauðgara

Aðalmeðferð fer nú fram í Héraðsdómi Suðurlands yfir karlmanni sem er grunaður um að hafa nauðgað stúlku á útikamri á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ágúst síðastliðnum.

Hugmyndasamkeppnin hófst í dag - hvað skal gera við dós?

Hin árlega hugmyndasamkeppni framhaldsskólanna, Snilldarlausnir Marel hófst í þriðja sinn í dag þegar hlutur ársins „dós“ var afhjúpaður. Úr þessum einfalda hlut eiga framhaldsskólanemendur að gera sem mest virði úr t.d. félagslegt, fjárhagslegt, umhverfislegt o.s.frv.

Ákveður í vikunni hvort Guðmundar- og Geirfinnsmál verði tekin upp

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segist ætla að ákveða hvort Guðmundar- og Geirfinnsmálin svokölluðu verði tekin til rannsóknar að nýju, fyrir vikulok. Málin hafa aftur komist í hámæli eftir umfjöllun fréttastofu Stöðvar 2 og Íslands í dag í gær þar sem greint var frá dagbókarfærslum Tryggva Rúnars Leifssonar sem var einn sakborninga í málinu og hlaut að lokum 13 ára fangelsisdóm fyrir að hafa banað Guðmundi Einarssyni. Ögmundur var spurður út í málið í morgunútvarpi Rásar 2 í morgun og þar sagðist hann ætla að ákveða um framhaldið í þessari viku.

Dolfallnir yfir ræðu forsetans

Ungir vinstri grænir eru dolfallnir á þeim misskilningi á eðli lýðræðis, sem birtist í ræðu forsetans við setningu Alþingis á laugardag.

Herjólfur siglir á Þorlákshöfn alla þessa viku

Það stefnir í stopular siglingar Herjólfs á milli Eyja og Landeyjahafnar í vetur og mun Herjólfur til dæmis sigla til Þorlákshafnar alla þessa viku. Í óveðrinu að undanförnu hefur sandur hlaðist upp utan við höfnina og er orðið of grunnt fyrir Herjólf. Breiðafjarðarferjan Baldur, sem hefur leyst Herjólf af að undanförnu á meðan Herjólfur var í slipp, kemst inn í Landeyjahöfn við mun erfiðari aðstæður en Herjólfur.

Ammoníakleki á Sauðárkróki

Ammoníak fór að leka úr frystikerfi í húsnæði loðdýrafóðurgerðar í útjaðri Sauðárkróks klukkan rúmlega fimm í morgun og var lögregla, slökkvilið og starfsmenn fóðurgerðarinnar kölluð á vettvang.

Tekin tvisvar dópuð undir stýri með barnið í bílnum

Þegar lögreglumenn stöðvuðu 32 ára konu á bíl í Skeifunni í Reykjavík rétt fyrir miðnætti, við hefðbundið eftirlit, kom í ljós að hún var undri áhrifum fíkniefna og var með sjö ára barn sitt í bílnum, auk þess sem hún var réttindalaus.

Vilja ekki gera kjósendur sína reiða

Stjórnmálamenn eru allt of tregir til að ganga gegn kjósendum sínum af ótta við að gera þá reiða. Ákveðinnar undanlátssemi gætir í samfélagsumræðunni og enginn vill stíga fram og segja að það sé of langt gengið þegar eggjum og öðrum hlutum er kastað í þingmenn á Austurvelli. Þetta er mat Stefaníu Óskarsdóttur stjórnmálafræðings.

70 hættu að styrkja í september

Sjötíu styrktaraðilar ABC barnahjálpar á Íslandi hafa hætt að styrkja samtökin í þessu mánuði. Samtökin finna sterkt fyrir erfiðu efnahagsástandi.

Minnihluti undrast starfslokin

Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, er ekki lengur í fullu starfi hjá fyrirtækinu. Fram kom í máli Jóns Gnarr borgarstjóra á borgarstjórnarfundi í síðustu viku að Haraldur Flosi hefði að eigin frumkvæði verið í hálfu starfi frá því í mars og hefði svo látið alfarið af störfum 1. júní. Hann hefði ekki talið þörf á kröftum sínum lengur.

Erfitt að lækka verð lóða í Reykjavík

„Við erum um þessar mundir að láta kanna lóða- og fasteignamarkaðinn á eigin spýtur. Ég get hins vegar hvorki sagt af né á hvort lóðaverðið muni breytast," segir Ágúst Jónsson, skrifstofustjóri á Framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar.

Byggja um of á væntingum ríkisstjórnar

Kristján Þór Júlíusson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd, óttast að fjárlögin byggi á meiri væntingum en innstæða sé fyrir. Áherslur og útlegging ríkisstjórnarinnar á fjárlögunum séu í hróplegu ósamræmi við skilning launþega og fyrirtækja á stöðunni á vinnumarkaði í dag. „Ég hef áhyggjur af því hvernig þær forsendur eru lagðar fram sem fjárlögin byggja á. Annars vegar er um að ræða þjóðhagsspá Hagstofunnar frá því í júlí sem maður setur ákveðinn fyrirvara við. Hins vegar á vöxtur í íslensku hagkerfi að byggja á einkaneyslu og fjárfestingu sem á að aukast um 15 prósent.“

Erlend fjárfesting bundin við álver

Óvíða eru meiri hömlur á erlenda fjárfestingu en hér á landi. Ef litið er til síðustu áratuga sést að fjárfesting að utan hefur komið í slumpum og nánast verið bundin við áliðnaðinn. Starfshópur iðnaðarráðherra leggur til að lög um málaflokkinn verði afnumin og nefnd um erlenda fjárfestingu verði lögð niður.

Níu ára hetja bjargaði heimili sínu

Níu ára strákur í Reykjanesbæ bjargaði heimili sínu í gær þegar eldur í kamínu fór úr böndunum. Hann segir auglýsingu í sjónvarpinu hafa kennt sér á slökkvitækið.

Stikla úr mynd Baltasars nýtur gríðarlegra vinsælda

Kynningarstikla fyrir kvikmyndina Contraband í leikstjórn Baltasars Kormáks er vinsælasta myndbandið á YouTube þessa stundina. Myndin kostaði 25 milljónir dollara í framleiðslu og skartar stórleikurum á borð við Mark Wahlberg.

Kvikmyndaskólinn með tilboð frá yfirvöldum

Stjórn Kvikmyndaskóla Íslands hefur í rúma viku haft tilboð frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu um styrktarsamning til skoðunar. Böðvar Bjarki Pétursson, stjórnarformaður skólans, segir það skýrast um hádegi á morgun hvort tilboðinu verði tekið. Hann vill ekki gefa upp hvað stendur út af í samningaviðræðunum en segist þó vera bjartsýnn á að samningar náist. Fyrir liggur að tilboð ráðuneytisins hljóðar upp á styrk til skemmri tíma.

Bankasýslan réði reynsluminnsta umsækjandann

Páll Magnússon, nýráðinn forstjóri Bankasýslu ríkisins, er sá umsækjenda um starfið sem minnsta reynslu hefur af störfum fyrir fjármálastofnanir. Stjórnarformaður Bankasýslunnar telur að tengsl Páls við einkavæðingu bankanna sé ekki ókostur fyrir starfið. Aðrir umsækjendur um stöðuna voru: Karl Finnbogason sem starfar sem sérfræðingur hjá eignastýringu Bankasýslu ríkisins. Hann er með framhaldsmenntun í hagfræði og hefur um þriggja ára reynsla af stjórnunarstörfum hjá fjármálastofnunum. Kolbrún Jónsdóttir viðskiptafræðingur. Hún situr í stjórn Íslandsbanka fyrir hönd Bankasýslu ríkisins og hefur rúmlega áratugs reynslu af stjórnunarstörfum hjá fjármálastofnunum Ólafur Örn Ingólfsson hagfræðingur sótti einnig um. Hann hefur um 30 ára reynsla af störfum í fjármálastofnunum, stærstan hluta sem stjórnandi. Páll Magnússon er með BA í guðfræði og MPA í opinberri stjórnsýslu. Hann hefur sinnt fjölda trúnaðarstarfa fyrir Framsóknarflokkinn; vður bæjarritari hjá Kópavogsbæ, sviðsstjóri stjórnsýslusviðs, aðstoðarmaður ráðherra og stjórnarmaður hjá Landsvirkjun. Af þessu er ljóst að Páll er með minnstu menntunina og minnstu reynsluna þegar kemur að störfum hjá fjármálastofnunum. "Það er rétt hjá þér að Páll skoraði ekki fremst umsækjenda á þessum sviði en heildarmatið var honum í vil en það eru margir þættir sem eru metnir," segir Þorsteinn Þorsteinsson, stjórnarformaður Bankasýslunnar. Það er stjórn stofnunarinnar sem sá alfarið um ráðninguna, í samvinnu við Capacent. Aðspurður segir Þorsteinn að það hafi ekki verið neitt eitt atriðið sem gerði útslagið vegna ráðningar Páls. "Nei, ég mynd ekki segja það hefði verið eitt kannski. Hann stóð sig mjög vel í viðtölum og kom vel fyrir og fékk mjög góðmeðmæli," segir hann. Þorsteinn nefnir sérstaklega að Páll hefur víðtæka reynslu úr stjórnkerfinu og það hafi vegið þungt. Trúnaðarstörf fyrir Framsóknarflokkinn eru áberandi á ferillsskrá Páls. Þorsteinn neitar því aðspurður að pólitík hafi ráðið för við ráðninguna. "Nei, það var alls ekki nein pólitík," segir hann. Páll var aðstoðarmaður Valgerðar Sverrisdóttur, fyrrverandi viðskiptaráðherra, þegar bankarnir voru einkavæddir. Nú er hann óneitanlega nokkuð tengdur einkavæðingunni og þessi einkavæðing var gagnrýnd í rannsóknarskýrslu alþingis. Finnst þér þetta ekki óheppilegt? "Við ákváðum að líta ekki til þessa sérstaklega og töldum að við hefðum ekki rétt til þess í raun og veru að setja á hann neinn mínus fyrir þetta atriði sérstaklega," segir Þorsteinn.

Ríkisráð kemur saman á morgun

Reglulegur fundur ríkisráðs Íslands verður haldinn á Bessastöðum á morgun klukkan þrjú. Á fundinum mun Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, endurstaðfesta mál sem þegar hafa verið afgreidd, líkt og stjórnarskráin gerir ráð fyrir.

Eins og Alþingishúsið hefði veðrast í öld

Þrifin á Alþingishúsinu eftir þingsetningu og stefnuræðu í fyrra voru eins og húsið hefði veðrast eitt hundrað ár, segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. Hún segir í góðu lagi að fólk mótmæli við þessi tækifæri svo framarlega sem það beiti ekki ofbeldi eða skemmi eignir.

Ósammála túlkun forsetans á tillögum stjórnlagaráðs

Stjórnlagaráðsfulltrúi segir túlkun forseta á tillögum stjórnlagaráðs vera allt önnur en ráðið lagði upp með. Hann segir það eðlilega kröfu ráðsins að valdamenn reyni ekki að afbaka tillögurnar eftir pólitískum hagsmunum.

Norræn tíska í Seattle

„Stórsigur fyrir Norræna hönnun," segir Max Dager, forstjóri Norræna hússins, sem er nú staddur í Seattle á Norræna tískutvíæringnum ásamt forystuliði norræna hönnuða . Góð þátttaka hefur verið á sýningunni og málþinginu.

Stjórnarandstaðan stýrir engri þingnefnd

Stjórnarandstöðuflokkarnir sinna ekki formennsku í neinni þingnefnd, þrátt fyrir að gert sé ráð fyrir því í nýjum lögum um þingsköp sem tóku gildi í gær. Ákvörðun um þetta var tekin sameiginlega af þingflokksformönnum allra flokka. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks, Ragnheiður Elín Árnadóttir, segir að þegar unnið var að útfærslu á lögunum hafi komið upp skoðanamunur milli flokka um það hvaða nefndir kæmu í hlut hvers þingflokks. "Í nýju þingskapalögunum er skýrt tekið fram og algjörlega ljóst hvernig formennska skiptist á milli þingflokka," segir hún og á þar við fjölda nefnda sem flokkur stýrir út frá þingstyrk. Hins vegar sé ekki skýrt hvernig ákveða skuli hvaða flokkur fær formennsku í hvaða nefnd. "Þess vegna þegar við vorum búin að fara yfir þetta mál þá var það ljóst að um þetta næðist ekki samkomulag og því varð út að við ákváðum sameiginlega að fresta þessum breytingum og vísa vinnu við útfærsluna í nýja þingskapanefnd," segir Ragnheiður Elín. Miklar breytingar felast í nýju þingskapalögunum og segir Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokks, mikilvægt að þær séu útfærðar að vel athuguði máli. Ragnheiður Elín tekur í sama streng. "Að mínu mati er þetta farsæl niðurstaða, að við vöndum okkur, útfærum þetta og gerum þetta með þeim hætti að okkur verði sómi að," segir hún. Uppi hefur verið orðrómur um að þingflokksformenn stjórnarandstöðunnar hafi hreinlega neitað að taka að sér formennsku í flokkunum. Spurður um þetta segir Gunnar Bragi að svo sé ekki. "Þetta er bara einhver saga sem er verið að reyna að breiða út," segir hann.

Stefnir í kreppu út áratuginn

Íslendingar verða í kreppu út áratuginn ef ríkisstjórnin grípur ekki til aðgerða til að örva fjárfestingu, segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hann segir að hagvöxtur sé allt of lítill enn sem komið er.

Sátu ekki undir ræðu forseta Íslands

Álfheiður Ingadóttir og Davíð Stefánsson, sem bæði eru þingmenn VG, hlýddu ekki á ræðu Ólafs Ragnars Grímssonar, við setningu Alþingis í gær. "Við sátum ekki undir henni. Ég held það megi orða það þannig,“ segir Álfheiður Ingadóttir. Hún segir að ástæðan sé sú að henni finnist ekki við hæfi að blanda saman áróðursræðum forseta Íslands og þingsetningunni.

Slökkvilið kallað á elliheimili

Slökkviliðið var kallað að elliheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi um tíuleytið í gærkvöld. Þar hafði gleymst eggjabakki á eldavél og óttuðust starfsmenn afleiðingar þess. Enginn eldur hlaust af og sáralítill reykur þannig að slökkviliðið þurfti ekkert að aðhafast nema lofta út, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðsmanni.

Ekið á gangandi vegfarendur

Ekið var á tvo gangandi vegfarendur, karlmann og konu, í Lækjargötu um hálffjögurleytið í nótt. Karlmaðurinn fékk höfuðáverka en konan fótbrotnaði. Engar grunsemdir eru um að ökumaður hafi verið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Mikið myrkur var þegar atvikið átti sér stað og vill lögreglan beina því til ökumanna, jafnt sem gangandi vegfarenda, að fara gætilega nú þegar farið er að rökkva á kvöldin.

Sjá næstu 50 fréttir