Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Mótmæla fargjaldahækkun hjá Herjólfi Bæjarráð Vestmannaeyja leggst alfarið gegn fyrirhugaðri 15 prósenta hækkun á gjaldskrá Herjólfs. Bæjarráð minnir vegagerðina á að ekki sé tekið gjald fyrir að aka um nein jarðgöng hér á landi nema Hvalfjarðargöngin, þar sem það kosti þúsund krónur fyrir fjögurra manna fjölskyldu á fólksbíl að fara þar um. 5.10.2011 09:53
Dæmdur fyrir að stela vél og gírkassa úr bifreið Lýsingar Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Austurlands í gær fyrir að hafa fjarlægt aflvél og gírkassa úr bifreiðinni sem Lýsing hf., var skráður eigandi að, en sá dæmdi hafði til umráða. 5.10.2011 09:37
Forsetinn heimsækir skóla á Akureyri Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú heimsækja skóla á Akureyri í tilefni þess að í dag er haldinn Forvarnardagur í grunnskólum og framhaldsskólum landsins. 5.10.2011 09:22
Tæknifrjóvganir ekki lengur niðurgreiddar Samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og læknastofunnar ART Medica um niðurgreiðslur á tæknifrjóvgunaraðgerðum rann út um síðustu mánaðamót. Kostnaður þeirra sem hefja meðferð nú er því mun meiri en þeirra sem hófu meðferð í september. Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga, segir að ljóst hafi verið í byrjun september að of mikið bæri í milli til að nýr samningur yrði gerður. 5.10.2011 08:45
Boltadómurinn gæti haft áhrif á Íslandi Knattspyrnuáhugafólki á að vera frjálst að skipta við útsendingaraðila utan heimalands síns til að sjá leiki í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Evrópudómstóllinn úrskurðaði í gær að hömlur á slíku gengju í berhögg við lög Evrópusambandsins um óheft flæði á sölu vöru og þjónustu. 5.10.2011 08:00
Innlendar níðingssíður sýna íslenskar stúlkur Samtökunum Barnaheill – Save the Children á Íslandi bárust á síðasta ári ábendingar um íslenskar vefsíður sem vistaðar eru erlendis og hver sem er getur sett inn efni á. Þar var meðal annars að finna kynferðislegt efni, texta og myndir af íslenskum stúlkum undir lögaldri. 5.10.2011 07:30
Óánægja með Gnarr í Capacent-könnun Liðlega helmingur borgarbúa er ósáttur við störf Jóns Gnarr borgarstjóra, en tæplega fjórðungur er ánægður með hann, samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups, sem RUV greinir frá. 5.10.2011 07:15
Hagsmunasamtökin ætla ekki að vera með í sérfræðingahópnum Hagsmunasamtök heimilanna ætla ekki að taka þátt í hópi fulltrúa úr stjórnkerfinu og fjármálageiranum, sem Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra boðaði í gær að yrði endurvakinn með aðild Hagsmunasamtaka heimilanna. 5.10.2011 07:07
Snörp hrina í Kötlu Snörp jarðskjálftahrina hófst laust fyrir klukkan þrjú í nótt í norðanverðri Kötluöskjunni. Benedikt Ófeigsson jarðvísindamaður var kallaður á vakt á Veðurstofuna og segir hann að fyrsti skjálftinn hafi verið vel yfir þjú stig á Richter og nokkrir í kringum þrjú hafi fylgt í kjölfarið. 5.10.2011 07:04
Hvít jörð á Akureyri Al hvít jörð var á Akureyri í mogunsárið, en hiti var þar við frostmark og við búið að snjórinn hverfi þegar líður á morguninn. Þar fór að snjóa í nótt og snjóaði enn um sex leitið í morgun. Viðbúið er að hálka sé á Öxnadalsheiði og Víkurskarði. 5.10.2011 07:02
Kaprifol enn við bryggju á Þórshöfn Flutningaskipið Kaprifol, sem strandaði í höfninni á Þórshöfn á Langanesi í gærmorgun, er enn við bryggju á þórshöfn, en stór vörubíll náði að draga skipið af strandstað fyrir hádegi í gær. Ekki liggur fyrir hvort skemmdir urðu á botni skipsins eða skrúfubúnaði, en önnur dráttartaugin slitnaði og fór í skrúfu skipsins þegar verið var að draga það af strandstað. Ef allt fer að óskum á skipið að lesta lýsisfarm til útflutnings. 5.10.2011 07:01
Andmæla sköttum og kvótamáli Skilanefnd gamla Landsbankans hefur fyrir hönd kröfuhafa sem eiga 19 prósent í nýja Landsbankanum sett fram formleg andmæli við ýmsum ákvörðunum og áformum íslenskra stjórnvalda sem kröfuhafarnir telja að geti rýrt virði eignasafns bankans. Þar á meðal eru kvótafrumvörp Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hyggst skilanefnd gamla Landsbankans jafnframt andmæla formlega áformum í fjárlagafrumvarpinu um nýjan skatt á launagjöld fjármálafyrirtækja. 5.10.2011 07:00
Sértækar aðgerðir en ekki almennar Ekki er gert ráð fyrir viðamiklum breytingum á skattkerfinu á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi. Krónutöluhækkun á ýmis gjöld, nýr skattur á fjármálafyrirtæki og hækkun veiðileyfagjalds á að skapa nýjar tekjur. Gert er ráð fyrir umtalsverðri neysluaukningu sem skili fé í ríkissjóð. 5.10.2011 06:00
Tollurinn tók átta þúsund töflur Í alþjóðlegri aðgerð gegn sölu á fölsuðum og ólöglegum lyfjum á netinu sem tollgæslan á Íslandi tók þátt í, lagði hún hald á tæplega 8.000 töflur. 5.10.2011 05:30
Finnst svona ekki eiga að líðast Ólafur Örn Ingólfsson hagfræðingur, einn þeirra umsækjenda um starf forstjóra Bankasýslu ríkisins sem ekki hlutu náð fyrir augum stjórnarinnar, er afar ósáttur við vinnubrögð í ráðningarferlinu og hyggst kalla eftir frekari rökstuðningi. 5.10.2011 04:00
Bleik brjóst prjónuð á ljósastaur „Þetta fær að vera hjá okkur á meðan átakið er í gangi,“ segir Laila Sæunn Pétursdóttir, markaðs- og fjáröflunarstjóri hjá Krabbameinsfélagi Íslands. 4.10.2011 22:09
„Ég hefði ekki komið fram með þessar bækur ef hann væri enn á lífi“ Dóttir Tryggva Rúnars Leifssonar, sakbornings í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, segir sláandi að hafa lesið um hversu einmana faðir hennar var í gæsluvarðhaldinu. Í tvö ár hafi hann staðið einn í baráttunni við lögregluyfirvöld og fangaverði rúmlega tvítugur að aldri. Tilviljun ein hafi ráðið því að dagbækur hans komi fram nú. 4.10.2011 20:20
Ekkert bólar á siðareglum forsetans Forsetinn hefur ekki enn sett sér siðareglur þrátt fyrir gagnrýni og ábendingar í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Forsætisráðherra átti langan fund með forsetanum í síðustu viku til að ræða framgöngu hans að undanförnu. 4.10.2011 20:15
Samantekt um mótmælin á Austurvelli Um þúsund manns komu saman á Austurvelli í gær til að mótmæla á meðan Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flutti stefnuræðu sína. Vísir.is var með beina útsendingu frá mótmælunum og tók Hafsteinn Hauksson, fréttamaður, viðtöl við mótmælendur og þingmenn. 4.10.2011 19:45
Baldur hentar betur en Herjólfur Breiðafjarðarferjan Baldur hefur nú siglt til síns heima eftir að hafa þjónað Vestmannaeyingum í hartnær mánuð. Baldurs er nú sárt saknað af Eyjamönnum enda telja þeir að ferjan hafi sannað gildi Landeyjarhafnar og sett ný viðmið. 4.10.2011 19:45
Vill "ráðgefandi þjóðaratkvæði“ um tillögur stjórnlagaráðs Forsætisráðherra segir að því stefnt að bera tillögur stjórnlagaráðs undir þjóðina í "ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu" þegar stjórnlaga- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur lokið störfum. Hún býst við að formlegar breytingar á stjórnarskránni verði síðan afgreiddar áður en þing verður rofið fyrir kosningarnar 2013. 4.10.2011 19:02
Stytting Vestfjarðavegar með tveimur stórbrúm eitt stærsta verkefnið Vegagerðin stefnir að því að bjóða út fyrir áramót þriggja milljarða króna verkefni á sunnanverðum Vestfjörðum sem felur í sér þverun tveggja fjarða og átta kílómetra styttingu Vestfjarðavegar. 4.10.2011 18:49
Fæddi barn á Miklubrautinni Þótt lögreglumenn verði oft vitni að því versta í lífinu koma líka ánægjulegar stundir og þá fara þeir svo sannarlega glaðir heim af vaktinni. Þannig lýsir lögreglan ánægjulegu útkalli þar sem þeir aðstoðuðu par á leið upp á spítala. Þangað sem þau komust aldrei, því á Miklubrautinni fæddist lítil stúlka. 4.10.2011 16:11
Ætlaði að fá sér pylsu en féll ofan í fornleifagrunn Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Reykjavíkurborg bótaskylda vegna slyss sem karlmaður varð fyrir í Tryggvagötu í Reykjavík aðfararnótt 7. október 2007, þegar hann féll niður rúma þrjá metra þar sem fornleifauppgröftur stóð yfir. 4.10.2011 15:38
Tóbaksfanta leitað: Neyddu tíu ára dreng til þess að reykja Lögreglan á Selfossi lýsir eftir þremur mönnum sem eru grunaðir um að hafa neytt tíu ára gamlan dreng til þess að reykja. 4.10.2011 15:04
Guðmundar- og Geirfinnsmál: Björgvin vill sannleiksnefnd Björgvin G. Sigurðsson þingmaður Samfylkingarinnar hefur lagt fram tillögu á Alþingi um að sérstök sannleiksnefnd verði skipuð til rannsóknar á Guðmundar- og Geirfinnsmálinu. Hann segir fólk úr öllum flokkum styðja tillöguna og mikilvægt sé fyrir samfélagið að gera þessi mál upp. 4.10.2011 14:59
Eigandi byssukúlnanna gaf sig fram Maður á besta aldri gaf sig fram við lögreglu í dag eftir að fréttir bárust af því að tvær byssukúlur hefðu fundist fyrir framan Alþingishúsið í morgun. 4.10.2011 14:54
Paul Young ætlar að kynna sér íslenska matarmenningu Enski tónlistarmaðurinn Paul Young segist ætla að spila gömlu smellina sína á tónleikum sínum í Hörpu í kvöld. Hann stoppar stutt við hér á landi en er þó staðráðinn í að kynnast íslenskri matargerð eins og kom fram í viðtali við kappann í fréttum Stöðvar 2 í gær. 4.10.2011 14:32
Leigusali á Spáni dæmdur fyrir að féfletta fjölskylduföður Kona á fertugsaldri var dæmd í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í morgun fyrir fjárdrátt í júlí árið 2008. 4.10.2011 14:28
Kærði viðskiptafélagann til Persónuverndar og lögreglu Karlmaður kvartaði undan fyrrum viðskiptafélaga sínum til Persónuverndar. Þá hefur hann einnig kært félagann til lögreglu vegna áreitis. 4.10.2011 14:01
Urðu ekki varir við skotvopn Lögreglumenn sem gættu Alþingishússins í gær, urðu ekki varir við skotvopn í fórum mótmælenda í gærkvöldi að sögn Harðar Jóhannessonar, aðstoðarlögreglustjóra. 4.10.2011 13:25
Þingheimi mjög brugðið eftir að byssukúlur fundust Forseti Alþingis, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, segir að öllum sé verulega brugðið eftir að byssukúlur fundust við þrif í morgun eftir mótmælin, sem fram fóru í gærkvöldi við setningu Alþingis. 4.10.2011 13:05
Fundu skothylki fyrir framan Alþingishúsið „Okkur var mjög brugðið að sjá þetta," segir Þorsteinn Pálmarson, framkvæmdastjóri hreinsunarfyrirtækisins Allt-Af, en þeir fundu tvær 22. kalibera byssukúlur fyrir framan Alþingishúsið. 4.10.2011 12:37
Þorgeir verður upplýsingafulltrúi Þorgeir Ólafsson hefur verið gerður að upplýsingafulltrúa mennta- og menningarmálaráðherra, en ráðuneytið ákvað að setja á laggirnar stöðu upplýsingafulltrúa ráðuneytisins. 4.10.2011 11:45
Lýsisflutningaskip strandaði í höfninni í Þórshöfn Flutningaskip strandaði í höfninni á Þórshöfn á Langanesi um klukkan sjö í morgun. Kafari mun í dag kanna hvort einhverjar skemmdir hafa orðið á botni skipsins, sem flytur lýsi. Engar vísbendingar hafa enn sést um olíuleka, en það verður kannað til hlítar. Mjög hvasst var þegar skipverjar reyndu að leggja því að bryggju. Vegna stærðar og mikillar yfirbyggingar tekur skipið á sig mikinn vind og snérist það undan vindinum og rak í strand í höfninni. 4.10.2011 11:30
Vill aðstoða verði Geirfinnsmálið tekið upp Gísli Guðjónsson réttarsálfræðingur segist reiðubúinn að aðstoða við rannsókn á Guðmundar- og Geirfinnsmálinu verði það tekið upp aftur, þrátt fyrir að hann hafi starfað hjá rannsóknarlögreglunni á sama tíma og málið var í rannsókn. Mikilvægt sé að almenn sátt ríki um hans störf. 4.10.2011 11:30
Trúir ekki að málið hafi gerst eins og því er lýst í dómnum "Þessi atburðir gerðust ekki með þeim hætti sem lýst er í dómnum,“ segir Ragnar Aðalsteinsson, sem reyndi að fá mál Sævars Cisielski endurupptekið fyrir fimmtán árum síðan. Hæstiréttur hafnaði endurupptökunni hinsvegar. 4.10.2011 11:28
Sérfræðingar fengnir til að meta svigrúm banka til afskrifta Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að kalla saman sérfræðingahópinn sem vann skýrslu um skuldavanda heimilanna fyrir um ári síðan. Verkefni hópsins nú er að fara yfir fyrirliggjandi gögn um afföll húsnæðislána heimilanna, þegar þau voru færð frá gömlu bönkunum yfir til nýju bankanna og meta hvernig það svigrúm til afskrifta sem þannig myndaðist hefur verið nýtt heimilum landsins til hagsbóta. 4.10.2011 11:16
Fjallað um Facebook í Háskólanum Í dag fer fram í Háskóla Íslands fyrirlestur um Facebook sem fluttur er af Daniel Miller, prófessor í mannfræði við University College í Lundúnum. Þar verður fjallað um fyrstu mannfræðirannsóknina sem gerð hefur verið á afleiðingum Facebook-notkunar. Fyrirlesturinn, sem haldinn er í boði Félags- og mannvísindadeildar og Mannfræðifélags Íslands, hefst klukkan þrjú í stofu 104 á Háskólatorgi. 4.10.2011 11:04
Íslensk erfðagreining uppgötvar krabbameinsgen Vísindamenn hjá ÍE hafa fundið erfðabreytileika í genamengi mannsins sem tengist aukinni hættu á eggjastokkakrabbameini. Þeir hafa líka fundið breytileika sem tengist húð-, blöðruháls- og heilakrabbameini. 4.10.2011 11:00
Barnaheill með nýjan ábendingahnapp Barnaheill, í samvinnu við embætti ríkislögreglustjóra, hafa tekið í notkun nýjan og endurbættan ábendingahnapp. 4.10.2011 10:56
Turninn á Höfðatorgi baðaður bleiku ljósi Turninn á Höfðatorgi er nú baðað bleiku ljósi í tilefni af bleiku slaufunni - árlegu átaki Krabbameinsfélags Ísland. Byggingin sést víða að og mun bleika ljósið skína eins og árvekniviti yfir borginni allan mánuðinn. 4.10.2011 10:39
Vill að ríkislögreglustjóri víki á meðan rannsókn stendur Varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Róbert Marshall, vill að ríkislögreglustjóri víki á meðan rannsókn fer fram á innkaupum embættisins. Þessi orð lét þingmaðurinn falla í Morgunútvarpi Rásar 2. 4.10.2011 10:32
Baltasar í viðræðum um að leikstýra Wahlberg á nýjan leik Leikstjórinn Baltasar Kormákur er sagður vera í viðræðum við Universal kvikmyndafyrirtækið um að hann taki að sér að leikstýra næstu mynd Mark Wahlbergs, "2 Guns". Eins og flestir vita leikur Wahlberg aðalhlutverkið í myndinni Contraband sem er endurgerð myndar Baltasars, Reykjavík-Rotterdam. Myndin hefur ekki enn verið frumsýnd en stikla úr henni hefur þegar vakið mikla athygli í netheimum. 4.10.2011 10:20
Forseti virði stjórnarstefnu Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra sagði í stefnuræðu sinni í gær að forseti lýðveldisins yrði að virða stefnu réttkjörinna stjórnvalda. Forsetinn þyrfti að vera hafinn yfir dægurþras stjórnmálanna, enda væri hann sameiningartákn þjóðarinnar. 4.10.2011 10:10
„Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Innlent