Fæddi barn á Miklubrautinni 4. október 2011 16:11 Lítil stúlka fæddist á Miklubrautinni.
Þótt lögreglumenn verði oft vitni að því versta í lífinu koma líka ánægjulegar stundir og þá fara þeir svo sannarlega glaðir heim af vaktinni. Þannig lýsir lögreglan ánægjulegu útkalli þar sem þeir aðstoðuðu par á leið upp á spítala. Þangað sem þau komust aldrei, því á Miklubrautinni fæddist lítil stúlka. Tveir lögreglumenn voru kallaðir til aðstoðar í úthverfi á höfuðborgarsvæðinu, laust eftir miðnætti. Þar voru hjón akandi á leiðinni á fæðingardeildina en þau óttuðust að ná ekki þangað í tæka tíð. Lögreglumennirnir komu þeim til aðstoðar og örskömmu síðar kom sjúkrabíll á vettvang. Ófríska konan og maðurinn hennar fóru yfir í sjúkrabíllinn og síðan var haldið áleiðis á fæðingardeildina en annar lögreglumannanna ók bíl hjónanna á eftir þeim. Lögreglubíllinn var líka í bílalestinni og einnig annar sjúkrabíll, sem var kallaður á staðinn til vonar og vara. Hersingin komst þó ekki alla leið því að á Miklubraut, á móts við Skeiðarvogsbrúna, kom barnið í heiminn. Þar var því stoppað í stutta stund áður en haldið var á Landspítalann. Þegar fulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafði samband við pabbann í dag og færði honum hamingjuóskir frá embættinu var hann auðvitað í skýjunum, rétt eins og hinir í fjölskyldunni en þetta er þriðja barn þeirra hjóna. Fyrir eiga þau strák og stelpu, 3 ára og 1 árs. Nýjasti fjölskyldumeðlimurinn er stelpa en hún var 3.505 grömm og 50 sentimetrar við fæðingu. Henni og móðurinni heilsast vel. Pabbinn bað fyrir kveðju og þakklæti til allra sem aðstoðuðu þau og grínaðist síðan með að þetta gerðist sem betur fer á Miklubrautinni að nóttu til en ekki í morgunumferðinni. Sjálfsagt líður þessi dagur hjónunum seint úr minni og það sama má segja um lögreglumennina á vettvangi. Annar þeirra sagði að það hefði verið frábært að vera til staðar og aðstoða fólkið og að þetta hefði verið langskemmtilegasta útkallið á vaktinni, að sögn lögreglunnar.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira