Sérfræðingar fengnir til að meta svigrúm banka til afskrifta 4. október 2011 11:16
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur ákveðið að kalla saman sérfræðingahópinn sem vann skýrslu um skuldavanda heimilanna fyrir um ári síðan. Verkefni hópsins nú er að fara yfir fyrirliggjandi gögn um afföll húsnæðislána heimilanna, þegar þau voru færð frá gömlu bönkunum yfir til nýju bankanna og meta hvernig það svigrúm til afskrifta sem þannig myndaðist hefur verið nýtt heimilum landsins til hagsbóta. Í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu segir að þegar nýjir bankar voru reistir á grunni hinna föllnu banka, hafi lánasafn gömlu bankanna verið fært yfir til hinna nýju með afslætti til að lánin væru metin á sannvirði. „Á þennan hátt skapaðist svigrúm til afskrifta hjá hinum nýju bönkum. Í svari viðskiptaráðherra við fyrirspurn á Alþingi hefur komið fram að húsnæðislán heimilanna voru færð yfir í nýju bankana á 72% af kröfuvirði að meðaltali og að afföllin (svigrúm til afskrifta) væri því um 90 milljarðar króna vegna þessara lána. Í svarinu var vísað til gagna frá FME en í fjölmiðlum hefur því ítrekað verið haldið fram að svigrúmið sé hærra og jafnvel miklu hærra." Þá er bent á að í upplýsingum frá Samtökum Fjármálafyrirtækja hafi jafnframt komið fram að í lok júlí í ár hafi bankar og fjármálastofnanir afskrifað um 144 milljarðar frá hruni, á grundvelli 87.200 umsókna vegna lána einstaklinga, þar af um 100 milljarða vegna fasteignalána heimilanna. „Þá voru enn í vinnslu um 6300 umsóknir sem reiknað er með að verði lokið fyrir áramót." Sérfræðingahópnum er ætlað að fara yfir ofangreindar upplýsingar og önnur nauðsynleg gögn í því skyni að upplýsa hið rétta um afskriftir á lánum heimilana, bæði við yfirfærslu þeirra frá gömlu bönkunum til hinna nýju og afskriftir til heimilanna sjálfra. Efnahagsráðgjafi forsætisráðherra, Sigurður Snævarr stýrir hópnum en í honum eru einnig fulltrúar stjórnvalda, fjármálastofnanna, lífeyrissjóða og Hagsmunasamtaka heimilanna.
Mest lesið Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira