Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Strandaði í Sandgerði Færeyska flutningaskipið Axel, með ellefu manna íslenskri áhöfn, strandaði utan við höfnina í Sandgerði í nótt, en náðist á flot eftir hálfa aðra klukkustund. 7.10.2011 07:27
Breyting skattþrepa hækkar ekki skatta Fjárlagafrumvarpið 2012 gerir ráð fyrir breytingu á þrepakerfi í tekjuskattkerfinu. Hækka á mörkin um 3,5 prósent. Fréttablaðið óskaði skýringa frá fjármálaráðuneytinu um hvaða áhrif þetta hefði á skattbyrði einstaklinga. 7.10.2011 07:00
Ráðherra hyggst óska skýringa "Þú getur rétt ímyndað þér hvort ég hafi ekki skoðanir á þessu en ég bara kýs að tjá mig ekki að svo stöddu,“ segir Páll Magnússon, nýráðinn forstjóri Bankasýslu ríkisins, um háværar gagnrýnisraddir sem heyrst hafa um ráðninguna. Málið standi ekki upp á hann heldur stjórn Bankasýslunnar. 7.10.2011 06:00
Segir eignarhald ekki vera lykilatriði „Mér sýnist við fyrstu sýn að þetta séu í sjálfu sér ekki róttækar tillögur,“ segir Ari Edwald, forstjóri 365 sem meðal annars gefur út Fréttablaðið. „Þær vísa fyrst og fremst til þess að þeir sem fara með hlutverk á þessu sviði, Samkeppniseftirlitið og fjölmiðlanefnd, fylgist áfram með þróuninni á markaðnum en hafi ákveðin ný tæki til að grípa inn í á 7.10.2011 06:00
Íslensk uppfinning í fyrsta sæti Valdimar Össurarson hlaut á miðvikudaginn fyrstu verðlaun í keppni Alþjóðasamtaka félaga hugvitsmanna, IIA, fyrir Valorku hverfilinn sinn sem ætlaður er sérstaklega til að nýta hæga sjávarfallastrauma. Verðlaunin námu 300 þúsundum sænskra króna, jafngildi 5,2 milljóna íslenskra króna. 7.10.2011 05:00
Heimta Baldur til Eyja í vetur Þess var krafist á fjölmennum mótmælafundi á Básaskersbryggju í Vestmannaeyjum í gær að Baldur yrði fenginn til að sigla milli lands og Eyja í vetur. Á fimmta hundrað manns voru saman komnir á bryggjunni. 7.10.2011 04:00
Uppbyggingu ekki stýrt af skilanefnd „Það kemur úr hörðustu átt að fá skeyti af þessu tagi frá þeim sem vinna úr búi föllnu bankanna, sérstaklega Landsbankans. Bankarnir sköpuðu okkur mikið fjárhagslegt tjón og við erum að reyna að hífa samfélagið upp úr því og skapa tekjur til að vinna úr áfallinu sem við urðum fyrir við fall bankanna,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. Tilefnið er gagnrýni skilanefndar gamla Landsbankans, sem fram kom í Fréttablaðinu á miðvikudag, á nýja bankaskatta og kvótamál. 7.10.2011 04:00
Geta skipt upp risum á fjölmiðlamarkaði Samkeppnisyfirvöldum verða veittar auknar heimildir til að stöðva og vinda ofan af samþjöppun á fjölmiðlamarkaði, samkvæmt tillögum nefndar um eignarhald á fjölmiðlum. Nefndin, sem skipuð var fulltrúum allra flokka á Alþingi, skilaði af sér í gær. Tillögur hennar eru settar fram í formi lagafrumvarps og greinargerð með því. 7.10.2011 03:15
Bein útsending frá söfnunarátaki fyrir SEM Söfnunarátak SEM, Samtaka Endurhæfðra Mænuskaddaðra, verður í beinni útsendingu hér á Vísi og Stöð 2 í kvöld. Útsending hefst klukkan 19:50. 7.10.2011 19:36
VG á Álftanesi vill kanna möguleika á sameiningu Vinstri grænir á Álftanesi vilja að mögulegir sameiningarkostir sveitafélagsins verði kannaðir í fullu samráði við íbúa Álftaness. Þetta kemur í ályktun aðalfundar félagsins, sem haldinn var í kvöld. 6.10.2011 23:44
Líklegt að þingmenn hafi ekki vitað hvað þeir samþykktu Líklegt er að þingmenn hafi ekki haft hugmynd um hvað þeir voru að samþykkja þegar þeir ákváðu að varaformenn þingnefnda skyldu fá greitt álag fyrir þá vinnu sína, segir Ragnheiður Ríkharðsdóttir, fyrsti varaforseti Alþingis. 6.10.2011 22:13
Kofi Annan: Við getum öll lært af Íslendingum Kofi Annan, fyrrum aðalritari Sameinuðu þjóðanna og handhafi friðarverðlauna Nóbels, segir öryggisráð SÞ bera lagalega og siðferðislega ábyrgð á því að sjálfstætt ríki Palestínu verði stofnað. 6.10.2011 21:25
Mörður segir álagsgreiðslur til varaformanna þingnefnda fráleitar Breytingar sem gerðar voru á álagsgreiðslum til þingmanna eru fráleitar, að mati Marðar Árnasonar, þingmanns Samfylkingarinnar. Breytingarnar fela í sér að varaformenn þingnefnda fá um 55 þúsund krónur í álagsgreiðslur ofan á þingfararkaupið sem er um 545 þúsund krónur. Annar varaformaður þingnefndar, sem er nýtt embætti sem skipað er í samkvæmt nýjum þingskaparlögum, fær fimm prósent hækkun. Það jafngildir um 27 þúsund krónum. 6.10.2011 20:43
Reykjavíkurborg taki þátt í rekstri leigufélaga Jón Gnarr borgarstjóri leggur til að Reykjavíkurborg styðji við uppbyggingu á varanlegum og öruggum leigumarkaði á höfuðborgarsvæðinu og auka fjölbreytileika í framboði á leiguhúsnæði. 6.10.2011 19:36
Ráðherra mun láta skoða Guðmundar- og Geirfinnsmálið Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra mun tilkynna um stofnun starfshóps sem á að fara yfir Guðmundar- og Geirfinnsmálið á morgun. Þetta staðfesti hann í samtali við Vísi. Hann vill að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Fjölmiðlar hafa fengið boð um blaðamannafund klukkan ellefu í fyrramálið þar sem það verður betur kynnt. 6.10.2011 19:18
Forstjóri Bankasýslunnar með 845 þúsund í laun Ráðning forstjóra Bankasýslu ríkisins er hneyksli, segir formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Páll Magnússon fær 845 þúsund krónur á mánuði þegar hann sest í forstjórastólinn. 6.10.2011 18:45
Háskóli Íslands í hópi 300 bestu Háskóli Íslands er kominn í hóp 300 bestu háskóla í heiminum að mati Times Higher Education Supplement, sem er annar af tveimur helstu matslistum á þessu sviði. Í heiminum eru nú rúmlega 17 þúsund háskólar. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, segir þetta mat mikil gleðitíðindi fyrir Háskóla Íslands á hundraðasta afmælisári hans. 6.10.2011 18:24
Hundruð manna hlýða á Annan Hátt í 1300 manns munu sækja hátíðarmálþing Háskóla Íslands sem haldið verður í tilefni af aldarafmæli skólans á morgun í Háskólabíói. Yfirskrift málþingsins er "Áskoranir 21. aldar" og þar munu heimsþekktir fyrirlesarar, fræðimenn og stjórnendur háskóla velta fyrir sér þeim stóru áskorunum sem bíða mannkyns á nýhafinni öld. 6.10.2011 18:11
Tuttugu árekstrar í dag Tuttugu árekstrar hafa orðið á höfuðborgarsvæðinu í dag, samkvæmt upplýsingum frá Árekstur.is. Þar af var einn þriggja bíla árekstur við Skeiðarvog. Þá olli ökumaður, sem var undir áhrifum lyfja, árekstri í Hafnarfirði um fjögurleytið í dag. Einnig varð harður árekstur á Miklubraut. Ökumaður kvartaði undan eymslum í hálsi og fékk aðhlynningu á slysadeild. Af þeim tuttugu árekstrum sem hafa orðið eru fimm árekstrar þar sem tjónvaldar hafa ekið í burtu af vettvangi. 6.10.2011 17:58
Þingmenn fengu launahækkun Allir varaformenn fastanefnda Alþingis fengu 10 prósent, eða um fimmtíu og fimm þúsund króna, launahækkun frá og með síðustu mánaðamótum. Hækkunin leggst ofan á þingfarakaupið sem er 545 þúsund krónur. Launahækkanirnar fengu þeir með sérstökum álagsgreiðslum sem greiddar eru í samræmi við lög um þingfararkaup, en þau lög tóku breytingum um leið og þingsköpum var breytt. 6.10.2011 17:41
Fimm ungskáld hlutu styrk Fimm hlutu nýræktaratyrki Bókmenntasjóðs sem afhentir voru í Nýlistasafninu fyrir stundu. Styrkina hlutu Andri Kjartan Jakobsson fyrir myndasögutímaritið Aðsvif, sem hann ritstýrir; Arndís Þórarinsdóttir fyrir unglingabókina Játningar mjólkurfernuskálds; Bryndís Björgvinsdóttir fyrir barnabókina Flugan sem stöðvaði stríðið; Hildur Knútsdóttir fyrir skáldsöguna Sláttur og Ragnhildur Jóhanns fyrir myndljóðabókverkið Hold og hjarta – líkamlegu ljóðin. 6.10.2011 17:30
Dæmd fyrir fjárdrátt í íslenska sendiráðinu í Vín Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja ára fangelsisdóm yfir tuttugu og níu ára gamallari konu dróg að sér fé frá íslenska sendiráðinu í Vínarborg. Tuttugu og tveir mánuðir dómsins eru skilorðsbundnir. 6.10.2011 16:35
Hæstiréttur staðfestir fjórtán ára dóm yfir Þorvarði Hæstiréttur Íslands staðfesti dóm yfir Þorvarði Davíð Ólafssyni, sem var dæmdur í fjórtán ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps. Hann réðst á föður sinn, Ólaf Þórðarson tónlistarmann, og veitti honum lífshættulega áverka. 6.10.2011 16:31
Líflátshótanirnar voru til á upptöku - stöðumælavörðum oft hótað "Ég fagna þessum dómi því þetta gerist eiginlega alltof oft," segir Kolbrún Jónatansdóttir, framkvæmdarstjóri Bílastæðasjóðs. Karlmaður á fertugsaldri var í vikunni dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ofbeldis- og líflátshótanir í garð stöðumælavarðar. 6.10.2011 16:11
Fjölskyldur flúið Garð vegna viðvarandi eineltis Að mati skólanefndar Gerðaskóla í Garði eru eineltismál og líðan nemenda með öllu óviðunandi þar sem 13,3 % nemenda skólans segjast verða fyrir einelti oftar en 2-3 sinnum í mánuði. Þetta er niðurstaða Sjálfsmatsskýrslu 2010 - 2011 og var lögð fyrir skólanefndina 28. september síðastliðinn. 6.10.2011 15:33
Þrjú ár liðin frá því Geir bað Guð um að blessa Ísland Í dag eru þrjú ár liðin frá því að Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, ávarpaði þjóðina í beinni útsendingu. Hann bað meðal annars Guð um að blessa Ísland. 6.10.2011 14:36
Hótaði að drepa stöðumælavörð sem var að sekta Karlmaður á fertugsaldri var í fyrradag dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ofbeldis- og líflátshótanir í garð stöðumælavarðar sem var við skyldustörf. Atvikið átti sér stað í október á síðasta ári en stöðumælavörðurinn ætlaði að sekta hann fyrir að leggja ólöglega á stíg sem liggur á milli Bergþórugötu og Njálsgötu í Reykjavík. 6.10.2011 14:02
Dæmdur fyrir að gefa upp vitlaust nafn Karlmaður á fertugsaldri var í dag dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi meðal annars fyrir að hafa gefið upp rangt nafn þegar hann var stöðvaður af lögreglu vegna hraðaksturs. Þá var hann einnig dæmdur fyrir brot á umferðarlögum. Maðurinn játaði brot sín en hann hefur ítrekað verið dæmdur fyrir brot á umferðarlögum síðustu ár. Frá því hann var 18 ára hefur hann verið dæmdur níu sinnum fyrir að aka án ökuréttinda og fimm sinnum fyrir ölvunarakstur. 6.10.2011 13:36
SFÚ sátt við tillögur ÓIínu og Rafneyjar Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda (SFÚ) lýsa yfir ánægju með greinargerð og tillögur þeirra Ólínu Þorvarðardóttur, þingmanns Samfylkingarinnar og Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur þingmanns VG, er þær sendu til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra varðandi fiskveiðistjórnunarfrumvarpið. 6.10.2011 13:17
Kvensjúkdómalæknar vilja annað bóluefni Íslenskir kvensjúkómalæknar telja það bóluefni sem notað er til að bólusetna unglingsstúlkur gegn leghálskrabbameini ekki vera besta kostinn. Betra hefði verið að nota bóluefni sem ver þær einnig gegn kynfæravörtum. Kristján Oddsson, kvensjúkdómalæknir, segir í Morgunblaðinu í dag að það hafi verið mistök að bjóða út bólusetningu gegn HPV-smiti, sem getur leitt til leghálskrabbameins. Bóluefnið sem nú er notað kallast Cervarix en einnig er á markaðnum bóluefnið Gardasil, sem einnig veitir vörn gegn kynfæravörtum. Eftir útboð kom í ljós að fyrrnefnda lyfið var um 70 prósentum ódýrara, og það því keypt. Hulda Hjartardóttir, formaður Félags íslenskra fæðingar- og kvensjúkdómalækna, hefur orðið var við óánægju lækna vegna þessa. "Ég held að mínir félagsmenn séu sammála um það að Gardasil sé betri kostur," segir Hulda. Niðurstaðan kom þó ekki endilega á óvart. "Ég get kannski ekki sagt að við höfum orðið beinlínis hissa því það hefur alltaf verið svolítill verðmunur á þessu en við höfum auðvitað vonast eftir því að Gardasil hefði frekar verið valið," segir hlun. Hulda vill ekki fullyrða að útboðið hafi verið mistök. "Ég get náttúrulega ekki alveg tjáð mig um það. Ég geri ráð fyrir því að í útboðsgögnunum hafi þá kannski verið gerður þannig greinarmunur á bóluefnunum að Það hafi haft úrslitaþýðingu að annað bóluefnið stæði hinu framar að þessu leyti," segir hún. 6.10.2011 12:32
Fundu kannabis og stera Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, í samvinnu við lögregluna á Suðurnesjum, stöðvaði kannabisræktun í húsi í Reykjanesbæ í gær. 6.10.2011 12:14
Íhuga hópmálssókn vegna endurútreikninga bankana Í morgun birtist heilsíðu auglýsing í helstu dagblöðum landsins þar sem þeirri spurningu er varpað fram hvort endurútreikningar bankana á skuldum séu réttlætanlegar. Lögmaður hópsins sem stendur að baki auglýsingunum segir það til skoðunar að efna til hópmálsóknar gegn bönkunum. 6.10.2011 12:11
ASÍ gagnrýnir fjárlagafrumvarp Miðstjórn ASÍ gagnrýnir fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar og telur það vera byggt á veikum forsendum um efnahagsbata sem lítil innistæða sé fyrir. 6.10.2011 12:08
Borgarleikhúsið myndskreytir símaskránna Já og Borgarleikhúsið hafa skrifað undir samkomulag um að Borgarleikhúsið verði samstarfsaðili Símaskrárinnar 2012, sem mun koma út í maí á næsta ári. Í samningnum felst að Borgarleikhúsið mun ásamt Já koma að vinnu við myndskreytingar Símaskrárinnar og auk þess taka þátt í vinnu við efnistök bókarinnar. 6.10.2011 11:51
Fangar þurfa sjálfir að greiða fyrir stinningarlyfin „Almennt séð, þá eiga allir íbúar landsins rétt á læknaþjónustu, hvort sem þeir eru fangar eða ekki,“ segir Óskar Reykdalsson, framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands (HSU), spurður út í stinningarlyf sem fangar á Litla Hrauni fá uppáskrifuð frá stofnuninni. 6.10.2011 11:36
Helgi Hjörvar: Ráðning Páls er hneyksli „Ráðning forstjóra Bankasýslu ríkisins er hneyksli,“ sagði Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar á Alþingi í morgun. Hann sagði að með ráðningu Páls Magnússonar í starfið hefði verið ráðinn maður sem hefði hvorki menntun né starfsreynslu af fjármálamörkuðum. 6.10.2011 11:07
Almenningur klofinn í afstöðu til sjúkrahúsbyggingar Skiptar skoðanir virðast vera á meðal almennings um fyrirhugaða byggingu sjúkrahúss við Hringbraut, en um helmingur þeirra sem tekur afstöðu til þess hvort framkvæmdin sé slæm ráðstöfun á skattfé telur svo vera. Könnunin var framkvæmd af MMR og tóku áttatíu prósent aðspurðra afstöðu í málinu. 6.10.2011 10:59
Kofi Annan kemur til Íslands í dag Kofi Annan, fyrrum framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna og handhafi friðarverðlauna Nóbels, kemur til Íslands síðdegis í dag. 6.10.2011 10:20
Flugslysaæfing á Gjögri næstu helgi Næstkomandi laugardag verður haldin flugslysaæfing á flugvellinum á Gjögri, norður á Ströndum, þar sem æfð verða viðbrögð við flugslysi við flugvöllinn. 6.10.2011 10:16
Stefnt að stemningu hjá almenningi Reykjavíkurborg ætlar að leggja samtals 120 milljónir króna á þremur árum í átakið Ísland – allt árið, sem á að styrkja ímynd landsins sem áfangastaðar ferðamanna árið um kring. 6.10.2011 10:00
Aðför að lögum sýnd á nýjan leik "Það var hellingur af fólki sem kom að þessu og það var mikil rannsóknarvinna á bakvið þessa mynd,“ segir Sigursteinn Másson, sem framleiddi og skrifaði handrit að myndinni Aðför að lögum, sem fjallar um Guðmundur- og Geirfinnsmálið. Áhorfendum gefst nú kostur á að sjá myndina á nýjan leik en hún verður sýnd í Bíó Paradís annað kvöld. 6.10.2011 09:47
Réttað yfir lögreglumanni Aðalmeðferð fer nú fram í máli ríkissaksóknara gegn lögreglumanni sem hefur verið ákærður fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi og umferðarlagabrot. Meint brot áttu sér stað þegar lögreglumaðurinn veitti ökumanni eftirför úr Reykjavík í Mosfellsbæ í ágúst á síðasta ári. 6.10.2011 09:47
Vilja svipta ábúanda leyfi til búfjárhalds Starfshópur innan Samtaka lífrænna neytenda hefur sent áskorun til yfirvalda og eftirlitsaðila um að fara að lögum og beita öllum tiltækum úrræðum til að stöðva og koma í framtíðinni í veg fyrir langvarandi illa meðferð búfjár á bænum Stórhóli í Álftafirði sem og hjá öðrum, sem grunaðir eru um eða hafa orðið uppvísir að illri meðferð dýra. 6.10.2011 09:30
Fordæmir vinnubrögð norsks rithöfundar „Það er ekki rétt sem hún segir að Björk hafi vitað af bókinni,“ segir Guðmundur Gunnarsson, faðir Bjarkar Guðmundsdóttur og fyrrverandi formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, um bókina Bli Björk eftir norska rithöfundinn Mette Karlsvik. 6.10.2011 09:30
Harma að Siv sé ekki lengur í forsætisnefnd Framkvæmdastjórn Landssambands framsóknarkvenna harmar þá ákvörðun þingflokks Framsóknarflokksins að draga Siv Friðleifsdóttur út úr forsætisnefnd Alþingis. 6.10.2011 08:00