Fjölskyldur flúið Garð vegna viðvarandi eineltis 6. október 2011 15:33
Að mati skólanefndar Gerðaskóla í Garði eru eineltismál og líðan nemenda með öllu óviðunandi þar sem 13,3 % nemenda skólans segjast verða fyrir einelti oftar en 2-3 sinnum í mánuði. Þetta er niðurstaða Sjálfsmatsskýrslu 2010 - 2011 og var lögð fyrir skólanefndina 28. september síðastliðinn. Þar kemur fram að Þetta sé næstum helmingi hærri tala en á landsvísu og alls ekki hægt að sættast á þessa niðurstöðu. Svo segir orðrétt í bókun Sjálfstæðisflokksins „að Það er svo samfélaginu til vansa að nokkrar fjölskyldur hafa flutt burt undanfarið með börn sín til að forða þeim frá áralöngu einelti og í samtölum sínum við bæjaryfirvöld lýst sárum vonbrigðum yfir viðbrögðum og aðkomu skólayfirvalda að þeim vanda sem börn þeirra voru stödd í." Í fundargerð skólanefndarinna kemur fram að viðbrögð þeirra starfsmanna, sem eiga að taka á þessu vanda, virðast vera fálmkennd í besta lagi, og er bent á það sé ósamræmi í svörum starfsfólks annars vegar og þeirra nemenda sem fyrir einelti verða hinsvegar. Þannig segir í sjálfsmatsskýrslunni að 90 % starfsfólks telur að tekið sé á eineltismálum og ráðið fram úr þeim, en 35 % nemenda telja að umsjónarkennari geri ekkert til að taka á einelti því sem þeir verða fyrir. Þá kemur ennfremur fram að 25 % stúlkna og tæp 30 % drengja segjast verða fyrir einelti í kennslustofu þegar kennari er viðstaddur. Á næsta fundi skólanefndar, sem fram fór 3. október síðastliðinn, bóka kennarar Gerðaskóla mótmæli þar sem segir orðrétt: „Framlögð umsögn bæjarstjóra og meirihluta skólanefndar er ekki unnin í samráði við alla skólanefnd og er að miklu leyti byggð á huglægu mati og sögusögnum. Fulltrúar kennara telja þessi vinnubrögð einstaklega ómálefnaleg og ófagleg. Svo virðist sem leitast sé við að draga fram sem neikvæðasta mynd af skólastarfinu og orðalag notað sem ýtir undir neikvæða túlkun." Meirihluti Sjálfstæðisflokksins svara gagnrýninni með bókun þar sem segir: „Meirihluti skólanefndar hafnar með öllu að svarið sé byggt á huglægumati og sögusögnum, allt sem fram kemur í svari meirihlutans byggir á framkomnum skýrslum og könnunum. Það skal svo áréttað að svar skólanefndar er ekki runnið undan rifjum bæjarstjóra."
Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira