Fleiri fréttir

Minni skattafrádráttur mun draga úr lífeyrissparnaði

Lífeyrissjóðir munu ráðleggja sjóðsfélögum að lækka viðbótarlífeyrissparnað sinn í tvö prósent af launum, nái breytingar sem lagðar eru til í fjárlagafrumvarpinu fram að ganga. Að öðrum kosti verði þeir fyrir tvísköttun, þar sem útgreiðslur úr sjóðunum eru einnig skattlagðar.

Ferðamenn þegar jafn margir og í fyrra

Ferðamálastofa hefur staðfest að 51.576 erlendir ferðamenn fóru frá landinu í september síðastliðnum, tæplega ellefu þúsund fleiri en í sama mánuði í fyrra. Um er að ræða langfjölmennasta septembermánuð frá upphafi mælinga. Um 62 þúsund fleiri ferðamenn hafa komið til landsins frá áramótum í samanburði við sama tímabil í fyrra, þegar brottfarir voru 385 þúsund talsins.

Staðgöngumæðrun í nefnd

Þingsályktunartillaga um staðgöngumæðrun var rædd í fyrra skipti á Alþingi í gær. 23 þingmenn standa að baki tillögunni. Var málinu vísað til velferðarnefndar þingsins að lokinni umræðunni.

Telja neyðarlögin hygla Íslendingum

Íslensk stjórnvöld mótmæla því að neyðarlögin hafi hyglað innlendum innstæðueigendum gömlu bankana umfram þá erlendu. Þetta kemur fram í svari stjórnvalda við rökstuddu áliti ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, vegna Icesave, sem Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, skrifar undir.

Loftnet vinna saman sem risasjónauki

ALMA er alþjóðlegt samstarfsverkefni Evrópu (ESO), Norður-Ameríku, Austur-Asíu og Síle um smíði stærsta stjörnusjónauka heims. Kostnaður við verkefnið nemur meira en einum milljarði dala, um 118 milljörðum íslenskra króna. Sjónaukinn verður tekinn í fulla notkun árið 2013. Í fréttatilkynningu frá ESO (European Southern Observatory, stjörnustöð Evrópulanda á suðurhveli) kemur fram að skammstöfunin ALMA stendur fyrir Atacama Large Millimeter/submillimeter Array.

Hinsegin vetrarnætur

Nýrri hinsegin vetrarhátíð verður hleypt af stokkunum í Reykjavík í febrúar með tilheyrandi náttúruskoðun og lífsins lystisemdum. Hátíðin er ekki til höfuðs Gay Pride heldur viðbót í flóru hinsegin fólks.

Jón Arnar fékk sjálfsofnæmi í háskólanámi

Frjálsíþróttamaðurinn Jón Arnar Magnússon telur að sjálfsofnæmi sem hann fékk í háskólanámi erlendis megi rekja til þess hversu snögglega hann hætti æfingum. Ofnæmið varð til þess að þessi fyrrum hár- og skeggprúði maður missti hvert einasta hár.

Spurning hvort áhuginn á löggulífi sé í genunum

Við erum allir starfandi lögreglumenn, nema sá litli,“ segir Hlynur Steinn Þorvaldsson og á þar við föður sinn Þorvald Sigmarsson, tengdaföður sinn Hlyn Snorrason og soninn Baltasar Goða Hafberg. „Við pabbi erum í útkallsdeildinni og óeirðadeildinni á höfuðborgarsvæðinu en tengdapabbi sér um rannsókn allra mála á Vestfjarðakjálkanum.“

Flugfreyjur fljúga - nýr samningur í höfn

Fulltrúar Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair hafa skrifað undir nýjan kjarasamning eftir langan og strangan sáttafund í allan dag í húsnæði ríkissáttasemjara.

Koma titrandi og skjálfandi af vestfirskum vegum

Slæmar samgöngur á Vestfjörðum hamla uppbyggingu atvinnulífs og skerða samkeppnishæfni fjórðungsins. Þessi viðhorf eru áberandi hjá atvinnurekendum sem Kristján Már Unnarsson ræddi við á sunnanverðum Vestfjörðum og birtust í fréttum Stöðvar 2.

Veist þú hver stakk á dekk lögreglumanns á Blönduósi?

Stungið var á tvö dekk á einkabifreið lögreglumanns á Blönduósi á dögunum. Í tilkynningu frá lögreglunn í bænums segir bílnum hafi verið lagt í innkeyrslu heima hjá honum og sjá megi skurði á báðum hjólbörðunum. Lögreglan telur að þetta hafi gerst í dag, í gær eða fyrradag. Ekki er vitað um þann sem þarna var að verki en ef einhver hefur upplýsingar um málið er þeim bent á að hafa samband við lögregluna á Blönduósi í síma 455-2666.

Flugfreyjur funda

Fulltrúar Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair hafa í allan dag fundað um nýjan kjarasamning í húsnæði ríkissáttasemjara.

Ósýnilegi stimpillinn "Dópisti“

Faðir Sigrúnar Mjallar Jóhannesdóttur krefst þess að rannsókn á andláti hennar verði haldið áfram. Sjálfur hefur hann aflað upplýsinga og sent ný sönnunargögn til ríkissaksóknara máli sínu til stuðnings.

Íslendingur fær 18 milljónir

Íslendingur var með fimm tölur réttar af fimm og bónustöluna í Víkingalottóinu í kvöld og fær rúmlega 18 milljónir króna í sinn hlut. Það voru hinsvegar þrír Norðmenn sem skipta með sér fyrsta vinningnum og fær hver tæplega 57 milljónir í sinn hlut.

Guðmundar- og Geirfinnsmálið - Öll umfjöllunin á einum stað

Samantekt af ítarlegri umfjöllun fréttastofu Stöðvar 2, Bylgjunnar, Vísis og Íslands í dag um Guðmundar- og Geirfinnsmálið. Ný gögn eru komin fram sem vakið hafa mikil viðbrögð í samfélaginu en það eru dagbækur Tryggva Rúnars Leifssonar sakbornings í málinu.

Helmingi færri fuglar veiddir

Svandís Svavarsdóttir hefur gefið leyfi fyrir því að 31 þúsund rjúpur verði veiddar í ár. Ákvörðunin er tekin á grundvelli ráðleggingar frá Náttúrufræðistofnun. Þetta eru ríflega helmingi færri fuglar en í fyrra, sem skýrist af verri stöðu rjúpnastofnsins. Með því að deila ráðlagðri veiði á fjölda skráðra rjúpnaveiðimanna undanfarin ár má þannig gera ráð fyrir um 6 rjúpum á hvern veiðimann.

Fagna mögulegu verkfalli Sinfóníunnar

Ungir sjálfstæðismenn fagna mögulegu verkfalli tónlistarmanna Sinfóníuhljómsveitar Íslands og hvetja stjórnvöld til að nota tækifærið og hætta öllum fjárstuðningi við hljómsveitina, samkvæmt tilkynningu frá SUS.

Margrét Gauja verður forseti bæjarstjórnar

Margrét Gauja Magnúsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, hefur tekið við stöðu forseta bæjarstjórnar í Hafnarfirði. Það er Sigríður Björk Jónsdóttir sem hefur gegnt embætti forseta bæjarstjórnar frá kosningum.

Eldfjall með áhugaverðustu myndum í London

Eitt virtasta kvikmyndatímarit Breta, Total Film, hefur valið kvikmynd Rúnars Rúnarssonar Eldfjall sem eina af þeim þrjátíu kvikmyndum sem lesendur ættu að sjá á kvikmyndahátíðinni í London sem hefst 12. október. Alls eru yfir 200 myndir í fullri lengd á dagskrá hátíðarinnar að því er fram kemur í tilkynningu.

Flugfreyjur funda með samningsaðilum

Flugfreyjufélag Íslands fundar nú með samningsaðilum hjá Icelandair um nýjan kjarasamning. Náist ekki samningar á næstu dögum hefja flugfreyjur í verkfallsaðgerðir á mánudag.

Dagbjartur jarðsunginn

Dagbjartur Heiðar Arnarson verður jarðsunginn frá Safnaðarheimilinu í Sandgerði í dag en hann lést á heimili sínu 23. september síðastliðinn, aðeins ellefu ára gamall.

Björk ósátt við bók um sjálfa sig

"Ég myndi segja að bókin fjallaði meira um samfélagið á Íslandi en um Björk sjálfa,“ segir norski verðlaunahöfundurinn Mette Karlsvik, en bók hennar, Bli Björk, kemur út í Noregi í byrjun nóvember.

Landssöfnun til styrktar geðdeildum

Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, tók á dögunum á móti fyrsta Brospinnanum úr hendi Páls Matthíassonar, framkvæmdastjóra geðsviðs Landspítalans.

Lesendur vilja eldri borgara sem hverfur og spillingasögu

Svíinn Jonas Jonasson trónir á toppi metsölulista Eymundsson með bókinni Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf. Sú bók hefur slegið í gegn hjá lesendum bæði á Íslandi sem og í Svíþjóð. Bókin er sú fyrsta sem höfundurinn gefur út.

Stúdentaráð undrandi á niðurskurði

Stúdentaráð Háskóla Íslands lýsir yfir undrun og skilningsleysi á því að enn og aftur skeri yfirvöld niður fjárframlög til Háskóla Íslands. Í ályktun ráðsins um nýkynnt fjárlög segir að þrátt fyrir fullan skilning á því að fjármagn ríkissjóðs sé af skornum skammti þá velti ráðið fyrir sér hvers konar samfélag yfirvöld vilji byggja hér upp.

Mótmæla fargjaldahækkun hjá Herjólfi

Bæjarráð Vestmannaeyja leggst alfarið gegn fyrirhugaðri 15 prósenta hækkun á gjaldskrá Herjólfs. Bæjarráð minnir vegagerðina á að ekki sé tekið gjald fyrir að aka um nein jarðgöng hér á landi nema Hvalfjarðargöngin, þar sem það kosti þúsund krónur fyrir fjögurra manna fjölskyldu á fólksbíl að fara þar um.

Dæmdur fyrir að stela vél og gírkassa úr bifreið Lýsingar

Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Austurlands í gær fyrir að hafa fjarlægt aflvél og gírkassa úr bifreiðinni sem Lýsing hf., var skráður eigandi að, en sá dæmdi hafði til umráða.

Forsetinn heimsækir skóla á Akureyri

Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff forsetafrú heimsækja skóla á Akureyri í tilefni þess að í dag er haldinn Forvarnardagur í grunnskólum og framhaldsskólum landsins.

Tæknifrjóvganir ekki lengur niðurgreiddar

Samningur milli Sjúkratrygginga Íslands og læknastofunnar ART Medica um niðurgreiðslur á tæknifrjóvgunaraðgerðum rann út um síðustu mánaðamót. Kostnaður þeirra sem hefja meðferð nú er því mun meiri en þeirra sem hófu meðferð í september. Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga, segir að ljóst hafi verið í byrjun september að of mikið bæri í milli til að nýr samningur yrði gerður.

Boltadómurinn gæti haft áhrif á Íslandi

Knattspyrnuáhugafólki á að vera frjálst að skipta við útsendingaraðila utan heimalands síns til að sjá leiki í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Evrópudómstóllinn úrskurðaði í gær að hömlur á slíku gengju í berhögg við lög Evrópusambandsins um óheft flæði á sölu vöru og þjónustu.

Innlendar níðingssíður sýna íslenskar stúlkur

Samtökunum Barnaheill – Save the Children á Íslandi bárust á síðasta ári ábendingar um íslenskar vefsíður sem vistaðar eru erlendis og hver sem er getur sett inn efni á. Þar var meðal annars að finna kynferðislegt efni, texta og myndir af íslenskum stúlkum undir lögaldri.

Óánægja með Gnarr í Capacent-könnun

Liðlega helmingur borgarbúa er ósáttur við störf Jóns Gnarr borgarstjóra, en tæplega fjórðungur er ánægður með hann, samkvæmt þjóðarpúlsi Gallups, sem RUV greinir frá.

Snörp hrina í Kötlu

Snörp jarðskjálftahrina hófst laust fyrir klukkan þrjú í nótt í norðanverðri Kötluöskjunni. Benedikt Ófeigsson jarðvísindamaður var kallaður á vakt á Veðurstofuna og segir hann að fyrsti skjálftinn hafi verið vel yfir þjú stig á Richter og nokkrir í kringum þrjú hafi fylgt í kjölfarið.

Hvít jörð á Akureyri

Al hvít jörð var á Akureyri í mogunsárið, en hiti var þar við frostmark og við búið að snjórinn hverfi þegar líður á morguninn. Þar fór að snjóa í nótt og snjóaði enn um sex leitið í morgun. Viðbúið er að hálka sé á Öxnadalsheiði og Víkurskarði.

Kaprifol enn við bryggju á Þórshöfn

Flutningaskipið Kaprifol, sem strandaði í höfninni á Þórshöfn á Langanesi í gærmorgun, er enn við bryggju á þórshöfn, en stór vörubíll náði að draga skipið af strandstað fyrir hádegi í gær. Ekki liggur fyrir hvort skemmdir urðu á botni skipsins eða skrúfubúnaði, en önnur dráttartaugin slitnaði og fór í skrúfu skipsins þegar verið var að draga það af strandstað. Ef allt fer að óskum á skipið að lesta lýsisfarm til útflutnings.

Andmæla sköttum og kvótamáli

Skilanefnd gamla Landsbankans hefur fyrir hönd kröfuhafa sem eiga 19 prósent í nýja Landsbankanum sett fram formleg andmæli við ýmsum ákvörðunum og áformum íslenskra stjórnvalda sem kröfuhafarnir telja að geti rýrt virði eignasafns bankans. Þar á meðal eru kvótafrumvörp Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hyggst skilanefnd gamla Landsbankans jafnframt andmæla formlega áformum í fjárlagafrumvarpinu um nýjan skatt á launagjöld fjármálafyrirtækja.

Sértækar aðgerðir en ekki almennar

Ekki er gert ráð fyrir viðamiklum breytingum á skattkerfinu á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi. Krónutöluhækkun á ýmis gjöld, nýr skattur á fjármálafyrirtæki og hækkun veiðileyfagjalds á að skapa nýjar tekjur. Gert er ráð fyrir umtalsverðri neysluaukningu sem skili fé í ríkissjóð.

Tollurinn tók átta þúsund töflur

Í alþjóðlegri aðgerð gegn sölu á fölsuðum og ólöglegum lyfjum á netinu sem tollgæslan á Íslandi tók þátt í, lagði hún hald á tæplega 8.000 töflur.

Sjá næstu 50 fréttir