Vilja svipta ábúanda leyfi til búfjárhalds 6. október 2011 09:30 Á þriðja tug lambshræja og sjö kindahræ blöstu við augum dýralæknis, sem var í eftirlitsferð á býlinu Stórhóli sumarið 2009. Fyrra málið var höfðað í kjölfarið.
Starfshópur innan Samtaka lífrænna neytenda hefur sent áskorun til yfirvalda og eftirlitsaðila um að fara að lögum og beita öllum tiltækum úrræðum til að stöðva og koma í framtíðinni í veg fyrir langvarandi illa meðferð búfjár á bænum Stórhóli í Álftafirði sem og hjá öðrum, sem grunaðir eru um eða hafa orðið uppvísir að illri meðferð dýra. Dómsmál á hendur ábúendum Stórhóls var tekið fyrir í Héraðsdómi Austurlands í gær, en þeir hafa verið ákærðir fyrir vanhirðu sauðfjár, eins og Fréttablaðið hefur greint frá. Þetta er í annað sinn sem ábúandinn á Stórhóli er ákærður fyrir sömu sakir. Í desember árið 2009 lauk fyrra málinu með dómssátt og ákvað ákæruvaldið að sekta bóndann um áttatíu þúsund krónur. Starfshópurinn minnir á tilgang laga um dýravernd og búfjárhald og undirstrikar að hann virði ákvæði laga um sjálfstæði og hlutleysi dómstóla. „Við leyfum okkur engu að síður og af marggefnu tilefni ýmissa dómstóla, sem beitt hafa refsiviðurlögum … vegna alvarlegra brota á lögum um dýravernd, að beina því sérstaklega til Héraðsdóms Austurlands að sjónarmiðum um tilgang og markmið framangreindra laga um hagsmunagæslu dýra verði beitt þegar dómstóllinn tekur ákvörðun um það hvort viðkomandi ábúendum verði bannað að halda búfé eins og krafist mun vera í nýlegri ákæru lögreglustjórans á Eskifirði gagnvart ábúanda," segir í áskoruninni. Starfshópurinn segir gögn í málinu hafa sýnt fram á að ábúendur hafa á umliðnum árum ítrekað þverbrotið fyrrnefnda löggjöf og „jafnframt orðið berir að skelfilegri meðferð búfjár, sem valdið hefur varnarlausum dýrunum miklu og langvarandi kvalræði. …Af verknaðarlýsingum og fjölda gagna, sem varða slæma meðferð búfjár á umræddum stað síðastliðin 11 ár er ekki hægt að draga aðra ályktun en að um stórfelld og ítrekuð brot hafi verið að ræða hjá sakborningum og því hljóti lagaskilyrði að vera uppfyllt til að svipta viðkomandi leyfi til búfjárhalds," segir enn fremur. Loks bendir hópurinn á að þrátt fyrir brotin njóti ábúendur óskertra opinberra styrkja til búrekstursins. Þannig séu skattgreiðendur látnir, á óbeinan hátt, styðja við og stuðla að áframhaldandi illri og siðlausri meðferð búfjárins.jss@frettabladid.isÚr ákæru lögreglustjórans á EskifirðiÁbúandinn á Stórhóli er meðal annars ákærður fyrir að „halda of margt fé í fjárhúsum á bænum, en þar töldust vera 764 ær á húsum þó einungis væri húsakostur fyrir 684 ær.Fyrir að … hafa gefið ánum of lítið hey eða af lélegum gæðum, með þeim afleiðingum að hluti fjárins var vanfóðraður. Enn fremur að hafa látið hjá líða að reyna lækningu eða aflífa veika og slasaða gripi á bænum er í ljós kom að lamb var með stóran skurð á kviði og annað heltekið liðabólgu…"Fyrir að „…hafa vanrækt að tryggja góðan aðbúnað, umhirðu og fóðrun um 70 sauðfjár … með þeim afleiðingum að aflífa varð sex ær vegna ástands þeirra…"
Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira