Innlent

Hljóp tölvuþjóf uppi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Starfsmaðurinn hljóp þjófinn uppi.
Starfsmaðurinn hljóp þjófinn uppi. Mynd/ Getty.
Sprettharður starfsmaður verslunar í miðborginni hljóp á eftir unglingspilti sem stal tölvu úr verslun í miðborginni í gær og endurheimti tölvuna. Starfsmaður lauflétti er kominn á miðjan aldur en er greinilega í góðu formi.

Um svipað leyti var hjólsög stolið utan við hús í Kópavogi en hún fannst síðan eftir nokkra leit. Þjófarnir höfðu þá borið vélsögina yfir í Breiðholt en skildu hana eftir þegar þeir sáu lögregluna nálgast. Tækinu var skilað aftur í réttar hendur.

Um kvöldmatarleytið var karl um fimmtugt handtekinn í miðborginni en sá var að reyna að komast inn í bíla. Maðurinn var fluttur á lögreglustöð og vistaður í fangageymslu. Og í gærkvöld var brotist inn í bíl í Heiðmörk og úr honum stolið bæði fartölvu og myndavél.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×