Fleiri fréttir

Fundarmenn gengu á dyr á Patreksfirði

Stærstur hluti þeirra tvö til þrjúhundruð manna sem mættu til fundar við Ögmund Jónasson innanríkisráðherra á Patreksfirði í dag gengu á dyr þegar um hálftími var liðinn. Á fundinum var fjallað um þá ákvörðun Ögmundar að láta Vestfjarðarveg fara yfir tvo ása, fremur en í gegnum Teigsskóg.

Um 75 prósent vilja þjóðaratkvæði

Þrír af hverjum fjórum vilja að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um frumvarp Stjórnlagaráðs til stjórnarskrár og flestir vilja að þjóðaratkvæðagreiðslan verði látin ráða úrslitum um afgreiðslu frumvarpsins. Þetta er niðurstaða könnunnar MMR.

Sást þú mótórhjól keyra aftan á rauðan gamlan bíl?

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir vitnum að umferðaróhappi sem varð á Hjallabraut í Hafnarfirði, þriðjudaginn 13. september síðastliðinn. Óhappið varð til móts við innkeyrslu að húsum 7 til 25.

Dópuð móðir með barnið í bílnum

Kona um þrítugt var stöðvuð við akstur á höfuðborgarsvæðinu í gær en hún var undir áhrifum fíkniefna. Með henni í för var barnið hennar og gerði lögregla viðeigandi ráðstafanir og upplýstu barnaverndaryfirvöld um málið. Móðirin var handtekin og flutt á lögreglustöð.

Hasar á Akranesi: Aðkomumaður með barefli

Lögreglan var kölluð til í fyrirtæki á Akranesi í síðustu viku eftir að maður kom þangað til að innheimta skuld fyrir þriðja aðila. Svo virðist sem maðurinn hafi talið að fjórði maðurinn ætti vöru inni hjá fyrirtækinu sem hann hafði með einhverjum hætti afsalað til þess sem innheimta átti fyrir.

Ekki stætt á að láta pólitík ráða för í Grímsstaðamálinu

Innanríkisráðherra er ekki stætt á því að láta pólitík ráða ferðinni þegar hann tekur ákvarðanir um það hvort veitt yrði leyfi til að víkja frá skilyrðum um íslenskan ríkisborgararétt eða lögheimili hér á landi við kaup á fasteign. Hann verður að láta lögfræðileg sjónarmið ráða för.

Lögreglumenn: Lítilsvirðandi framkoma ríkisvaldsins

Lögreglumenn á Suðurlandi mótmæla harðlega því sem þeir kalla lítilsvirðandi framkomu ríkisvaldsins í garð lögreglumanna. Á félagsfundi sem haldinn var í gær er bent á þá staðreynd að lögreglumenn hafi nú verið samningslausir í tæpa 300 daga. Á fundinum var gerð sú krafa að laun lögreglumanna verði tafarlaust leiðrétt í samræmi við kröfur samninganefndar Landssambands Lögreglumanna.

Skora á Össur að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt ríki

Félagið Ísland-Palestína skorar á Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra að lýsa þegar í stað yfir viðurkenningu á sjálfstæði og fullveldi Palestínu. Palestínumenn áforma að sækja um fulla aðild að Sameinuðu þjóðunum í New York á föstudaginn kemur en félagið segir enga ástæðu til að bíða eftir því, enda alls óvíst hvort eða hvernig málið verði flutt þar.

Hvað ef Lakagígar myndu gjósa í dag?

Vísindamenn við háskólann í Leeds hafa reiknað út áhrifin af eldgosinu í Lakagígum árið 1783 ef sambærilegar hamfarir myndu skella á í dag. Vísindamennirnir, með loftslagsfræðinginn Önnu Schmidt í broddi fylkingar bjuggu til tölvuforrit sem reiknar út áhrifin af því ef brennisteinsský líkt og það sem kom upp úr Laka myndi leggjast yfir Evrópu nútímans.

Óþverralegt athæfi sem verður rannsakað

„Þetta er óþverralegt athæfi og lögreglan mun gera allt sem í hennar valdi stendur til að upplýsa það,“ segir Árni Þór Sigmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, um níðingsverk sem unnin hafa verið á hryssum í Kjós. Lögreglan mun kalla eftir gögnum frá dýralækni í kjölfar athæfisins. Þá hafa lögreglumenn verið í sambandi við eigendur hryssanna til frekari upplýsingaöflunar. Unnið er að því að reyna að áætla hvenær atvikin áttu sér stað og hverjir voru að verki.

Landið þolir hesta verr en fjórhjól

Hestar eru ekki lengur notaðir við leitir og smölun í Skaftárhreppi. „Menn voru sammála um að fara ekki með hesta á fjall, meðal annars vegna þess að við höfum ekki lengur hesthús við afréttarkofann. Slíkt þótti ekki gott áður fyrr og ekki heldur í dag. Auk þess erum við búin að taka tæknina í þjónustu okkar,“ segir Gísli Halldór Magnússon, fjallkóngur til 25 ára og bóndi að Ytri-Ásum í Skaftárhreppi, um þá hefð sem skapast hefur við smölunina. Hann segir fjórhjól hafa verið notuð með hestum til smölunar í aldarfjórðung. „Undanfarin þrjú til fjögur ár höfum við þó eingöngu verið á fjórhjólum.“

Segja alla geta notið góðs af aðild Íslands

Tveir fulltrúar í sendinefnd Evrópuþingsins sem kom hingað til lands á dögunum rituðu greinar á vef Public Service Europe skömmu eftir heimsókn sína þar sem þeir hvetja Íslendinga til að kynna sér kosti aðildar að Evrópusambandinu (ESB) og telja að það geti orðið bæði sambandinu og Íslandi til góðs.

Svínakjöt hækkaði í verði um 42 prósent

„Það er staðreynd að viðvarandi kjötskortur er að hafa áhrif á verðlagið,“ segir Finnur Árnason, forstjóri Haga. „Þær aðgerðir stjórnvalda sem koma í veg fyrir innflutning birtast nú í því.“

Stálbrú frá 1899 fær andlitslyftingu

"Það kemur eitt og eitt svona verkefni þar sem verið er að halda við minjum áður en þær fara í vaskinn,“ segir Guðmundur Sigurðsson brúarsmiður, sem nú annast endursmíði nítjándu aldar stálbrúar í Borgarfirði.

Fá 13 milljónir úr borgarsjóði

járhagsvandi Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar virðist leystur eftir að borgarráð samþykkti að veita 13 milljónir króna aukalega til miðstöðvarinnar. Upphæðin á að renna til þess að greiða húsaleigu á þessu ári og til að gera upp vangoldna húsaleigu frá árinu 2010. Vandinn á rætur að rekja til þess að eftir hrunið stóð Landsbankinn ekki við fyrri skuldbindingar um stuðning við verkefnið.

Bankakreppa gæti skaðað útflutning og ferðaþjónustu

Verði evrópsk bankakreppa að veruleika vegna vandræða Grikklands mun hún ekki hafa veruleg áhrif á íslensku bankana. Áhrifa slíkrar kreppu myndi þó gæta á Íslandi þótt höggið yrði ekki neitt nálægt því sem Ísland fékk í október 2008.

Lögreglumenn segjast vera lítilsvirtir

Lögreglumenn á Suðurlandi segja að ríkisvaldið sýni lögreglumönnum lítilsvirðandi framkomu með þvi að ganga ekki til kjarasamninga við þá. Lögreglumenn hafa verið samningalausir í 300 daga og segja lögreglumennirnir á Suðurlandi, í ályktun sem þeir sendu frá sér í kvöld, að þeir krefjist þess að laun lögreglumanna verði tafarlaust leiðrétt í samræmi við kröfur samninganefndar Landssambands Lögreglumanna.

Óljóst hvenær rannsókn lýkur

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins og lögregluyfirvalda á meintu verðsamráði Byko, Húsasmiðjunnar og byggingavöruverslunarinnar Úlfsins stendur enn yfir. „Það er bara ennþá full vinnsla á málinu," segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, í samtali við Vísi.

Erfitt að manna stöður lækna

Erfitt hefur reynst að manna stöður lækna við Heilbrigðisstofnun Suðurlands að undanförnu. Þar eru 4,5 stöðugildi lækna sem þarf að manna.

Nýr hjólastígur opnaður í Laugardal

Karl Sigurðsson, formaður umhverfis- og samgönguráðs fór fyrir fríðum flokki hjólreiðafólks frá Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Hjólað var um borgina á staði þar sem gerðar hafa verið endurbætur til hagsbóta fyrir hjólreiðar í Eskihlíð, Hamrahlið og Skipholti, en á þessar götur hafa hjólavísar verið málaðir á götuna. Hjólatúrnum lauk í Laugardal þar sem nýr göngu- og hjólastígur var formlega opnaður.

Grunnskólum gert að kynna niðurstöður fyrir foreldrunum

Niðurstöður lesskimunarprófs barna í öðrum bekk grunnskóla í Reykjavík verður hér eftir kynnt fyrir nemendum og foreldrum þeirra. Þannig verður stuðlað að því að sem gleggstar upplýsingar um stöðu náms séu aðgengilegar á hverjum tíma.

Fundu gras og spítt í húsleit

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í húsi í Langholtshverfi í Reykjavík á föstudag.

Unnið að breytingum umferðarljósa

Unnið er að breytingum umferðarljósa á gatnamótum Breiðholtsbrautar og Stekkjarbakka. Vegna vinnu við tengingar verða ljósin gerð óvirk í tvo daga - frá kl. 9:30 þriðjudaginn 20. september til kvölds miðvikudaginn 21. september.

Bleika slaufan komin í hús

Bleika slaufan, sem er hluti af árvekni- og fjáröflunarátaki Krabbameinsfélags Íslands, er komin í hús.

Opnar nýjan hjólreiðastíg

Karl Sigurðsson, formaður Umhverfis- og samgönguráðs, leggur af stað núna klukkan þrjú í hjólatúr frá Ráðhúsi Reykjavíkur en hann er liður í Samgönguviku sem stendur yfir.

Starfshópur skipaður vegna alvarlegrar stöðu svartfuglastofna

Umhverfisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur skipað starfshóp sem ætlað er að gera tillögur um aðgerðir sem stuðlað geti að endurreisn svartfuglastofna hér við land. Þá skal hópurinn gera tillögur um hvernig megi styrkja verndun og sjálfbæra nýtingu stofnanna.

„Mönnum var dálítið brugðið“

„Þeir voru ekki alveg vissir um ástand fólks og vildu fá okkur á staðinn þegar vélin kæmi,“ segir Guðmundur Þórir Ingólfsson, verkefnastjóri hjá neyðarnefnd Suðurnesjadeildar Rauða krossins, sem var einn af þeim sem veitti farþegum frá Kaupmannahöfn áfallahjálp í gærkvöldi.

Breytingar gerðar á störfum héraðsdýralækna

Umdæmisskrifstofum Matvælastofnunar verður fækkað úr 14 í 6 og breytingar gerðar á störfum héraðsdýralækna með það að markmiði að koma í veg fyrir hugsanlega hagsmunaárekstra samkvæmt tilkynningu frá Matvælastofnun.

Newsweek: Best að vera kona á Íslandi

Af öllum ríkjum jarðar er best að vera kona á Íslandi, ef marka má nýja úttekt í tímaritinu Newsweek. Nýjasta tölublaðið er tileinkað konum og umræðu um kvenréttindi og á meðal efnis eru listar þar sem þjóðum er raðað eftir því hve konur hafa það gott í viðkomandi löndum. Ísland er á toppnum en þar á eftir kemur Svíþjóð og Kanada er í þriðja sæti. Danir og Finnar koma svo í kjölfarið og þá Sviss og Noregur. Bandaríkin lenda síðan í áttunda sæti og Ástralir og Hollendingar í því níunda og tíunda.

Velti fjórhjóli við Stöng

Á sunnudag var tilkynnt um tvö umferðaóhöpp annars vegar bílveltu á Skeiða- og Hrunamannavegi við Gýgjarhólskot í Bláskógabyggð. Ökumaður var einn í bifreiðinni og slasaðist lítilega.

Féll af hestbaki og höfuðkúpubrotnaði

Maður höfuðkúpubrotnaði er hann féll af hesti sínum um miðnætti síðastliðins föstudag. Atvikið átti sér stað við Langholtsveg í landi Ásatúns í Hrunamannahreppi á Suðurlandi.

Framkvæmdir á Hafnarfjarðarvegi

Í morgun hófust framkvæmdir á Hafnarfjarðarvegi við gatnamót Álftanesvegar í Engidal. Unnið verður að rýmkun gatnamótanna og breytingu á umferðaljósum en einnig verða framkvæmdir norðan Vífilsstaðavegar þar sem gerð verður frárein að Goðatúni. Áætlað er að verkinu verði lokið 15. desember næstkomandi og biður lögregla vegfarendur að sýna fyllstu aðgát og fylja þeim umferðarmerkingum sem uppi eru hverju sinni.

Launaskriðið ekki skilað sér til opinberra starfsmanna

SFR stéttarfélag í almannaþjónustu hefur birt niðurstöður nýrrar launakönnunar sem unnin er samhliða launakönnun VR og Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Í könnun SFR kemur í ljós að þeim fjölgar sem þurfa að nota sparifé sitt til að ná endum saman ef borið er saman við sömu könnun fyrir ári. Staða heimilanna er svipuð hjá SFR og Starfsmannafélagi borgarinnar samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar, en rúmlega þriðjungur heimila félagsmanna notar sparifé til að ná endum saman eða safnar skuldum. Í tilkynningu frá SFR segir að staða heimila félagsmanna er töluvert lakari en á meðal almennings á sama tíma.

Aðskilnaður síamssystra heppnaðist

Tvíburasysturnar Rital og Ritag Gaboura, sem fæddust samvaxnar á höfði í september í fyrra, voru aðskildar af hópi breskra lækna í London í síðasta mánuði.

Tuttugu ný lög á einum degi

Þingmenn höfðu í nógu að snúast á laugardag, en samkomulag náðist um að ljúka þinghaldi þann dag. Alls urðu tuttugu mál að lögum á þessum síðasta degi þingsins. Ríkisstjórnin kom þó ekki öllum málum sínum gegnum þingið.

Tonnum af lyfjum var fargað í fyrra

Efnamóttakan í Reykjavík tók á móti tæplega átta tonnum af lyfjum til förgunar í fyrra, þar af tæpum þremur tonnum frá apótekum, að því er Jón H. Steingrímsson framkvæmdastjóri greinir frá.

Verðum að standa saman

UN Women hafa öðruvísi nálgun á réttindabaráttu kvenna en flest önnur alþjóðleg samtök. Þetta er afskaplega mikilvægur samvinnuvettvangur sem gerir það að verkum að minni félög um heim allan geta tengst og unnið saman að sameiginlegum markmiðum.

Sjá næstu 50 fréttir