Strandveiðimenn læri rétta meðferð á afla 21. september 2011 04:00 Hluti strandveiðibáta fer á haf út án íss til að kæla aflann þótt sól sé sjaldan jafnhátt á lofti. Banna verður mönnum að fara íslausir út, segir fagstjóri hjá Matís. „
Við skynjuðum það á bryggjunni þegar við vorum að gera þessar mælingar að vilji er til að gera rétt, en oft skortir þekkinguna. Menn átta sig kannski ekki á því en margir hafa gott af smá kennslu í réttri aflameðferð og örverufræði,“ segir Jónas R. Viðarsson, fagstjóri Matís. Stofnunin birti í síðustu viku úttekt sem sýnir að veiðar strandveiðibáta fara fram yfir heitasta árstímann á sumrin þegar fiskur er í slæmu ástandi af náttúrulegum ástæðum. Bátarnir halda sig gjarnan nærri landi þar sem fiskur er smár, meira er um orm í honum og liturinn á roðinu dekkri. Aflanum er jafnan landað óslægðum og meðhöndlun hans með þeim hætti að illa er farið með hráefnið. Í úttektinni er sérstök athygli vakin á því að kælingu afla hjá nokkuð stórum hluta strandveiðiflotans sem og dagróðrabáta í aflamarki er ábótavant. Aflinn sem seldur var í beinum viðskiptum var verr kældur en sá sem seldur var á mörkuðunum. Jónas bendir á að beint samhengi sé á milli kælingar og gæða afla strandveiðibátanna. „Við þekkjum það að fiskurinn er ekki besta hráefnið af náttúrulegum ástæðum á þessum árstíma. Fiskurinn er að ná sér eftir hrygningu og er að fita sig aftur. Sjávarhitastig er mjög hátt, allt að fjórtán gráður. Hráefnið sem fæst við slíkar aðstæður er öðruvísi en á öðrum árstímum. Margir þeirra sem vinna eigin afla, sérstaklega þeir sem eru að frysta eða salta, draga úr umsvifum sínum á þessum árstíma og stoppa jafnvel alveg. En þeir sem eru að flytja út ferskt þurfa að reiða sig á þann afla sem býðst hverju sinni,“ segir Jónas en bendir á að fyrirkomulag veiðanna hvetji til að menn fari á sjó hvernig sem viðrar þá fjóra daga vikunnar sem leyfilegt er að fara út. „Í skýrslunni mælum við með því að skylda menn á námskeið áður en þeir fá veiðileyfi. Við vorum með þrettán námskeið víðs vegar um landið í vor. En mætingin hefði getað orðið betri ef menn hefðu verið skyldaðir til að mæta,“ segir Jónas. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Innlent „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Innlent Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Erlent Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Innlent Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Erlent Tugir drukknuðu og margra enn saknað Erlent Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Innlent Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Innlent Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri fréttir „Þá hafa þau aðgang að öllum gögnum íslenska ríkisins meira og minna“ Óróinn hríðfellur og goslok líklega í aðsigi Sigurður Björnsson óperusöngvari látinn Viðkvæm gögn í höndum Bandaríkjamanna og eftirlit lögreglu „Fólk er reitt, sárt og finnst það ekki geta treyst sveitarfélaginu“ Öryggi á ferðamannastöðum: Ríkið geti talist brotlegt við mannréttindasáttmála Mikill kraftur í íslensku atvinnulífi Harma að upplýsingar um mengað vatnsból hafi ekki borist strax til íbúa Fagna frestun framkvæmda í Heiðmörk Umdeildum framkvæmdum frestað og mengun í drykkjarvatni Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Allir blása í Landeyjahöfn Bónus og Prís virða frídag verslunarmanna en aðrir ekki Fimm vistaðir í fangaklefa eftir hópslagsmál Þórisvatn fullt í fyrsta skipti í sex ár Íslenskar konur gáfu nýjan búning á fjallkonuna í Gimli Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Einn handtekinn vegna líkamsárasar Gosmóða mældist í Hvalfirði og á Vík í Mýrdal Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Þorgerður styður stofnun leyniþjónustu Síðustu þrjú banaslys orðið á sama stað við sömu aðstæður „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Þurfum ekki að loka landamærum en þurfum að opna augun Leggjast yfir hvað megi bæta í Reynisfjöru „Við erum auðvitað mjög slegin yfir þessu slysi“ Fullt af furðubátum keppa á Flúðum í dag Sjá meira