Innlent

Spara má mikið fé hjá ferðaþjónustu fatlaðra

Alls voru farnar 325.224 ferðir á vegum sjö sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu með fatlaða í fyrra. Starfshópur leggur til að sveitarfélögin sameinist um útboð á þjónustunni. Fréttablaðið/Anton
Alls voru farnar 325.224 ferðir á vegum sjö sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu með fatlaða í fyrra. Starfshópur leggur til að sveitarfélögin sameinist um útboð á þjónustunni. Fréttablaðið/Anton
Framkvæmdahópur Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu leggur til að sveitarfélögin nýti hagkvæmni stærðarinnar og sameinist í útboði á ferðaþjónustu við fatlaða.

„Þegar fyrirliggjandi gögn eru skoðuð vekur athygli að meðalkostnaður á ferð er nokkuð mismunandi milli minni sveitarfélaganna og langhæstur hjá Reykjavíkurborg og Álftanesi,“ segir í niðurstöðum starfshópsins. Meðalkostnaður á hverja ferð í Reykjavík sé 2.111 krónur og 2.300 krónur á Álftanesi. Meðalkostnaður hinna sveitarfélaganna sé hins vegar 1.639 krónur á ferð.

„Væri kostnaður borgarinnar í takt við meðalkostnað hinna sveitarfélaganna þá myndu sparast rúmar 85 milljónir á ársgrundvelli. Væri kostnaður borgarinnar sambærilegur og í nýlegu útboði Kópavogs þá yrði sparnaðurinn 116 milljónir,“ bendir framkvæmdahópurinn á og bendir á að öll sveitarfélögin nema Kópavogur séu nú með lausa samninga um þessa þjónustu. Í Kópavogi er meðalverðið á ferð 1.588 krónur og í Hafnarfirði er verðið enn lægra, 1.524 krónur.

Framkvæmdahópurinn leggur til að haldið verði sameiginlegt útboð í síðasta lagi í nóvember næstkomandi. Forsendur verði meðal annars að þjónustan verði ekki lakari en í dag og að fulltrúar hagsmunaðila séu ekki ósáttir við þá lausn sem finnst. Þá hvetur hópurinn til að skoðað verði hvernig fatlaðir geti í ríkari mæli nýtt sér almenningssamgöngur.

Skoðun framkvæmdahópsins náði ekki til ferðaþjónustu við grunnskólanema. Í sveitarfélögunum sjö eigi 1.535 einstaklingar rétt á þjónustunni sem til athugunar var. Í fyrra voru farnar samtals 325.224 ferðir með fólk úr þessum hópi.

Niðurstöður framkvæmdahópsins hafa nú verið sendar bæjarráðum sveitarfélaganna sem enn eru með málið til skoðunar. Aðeins bæjarráð Álftaness hefur nú þegar lýst áhuga á frekari samvinnu og útboði í samræmi við niðurstöðu starfshópsins.

gar@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×