Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Jóhanna er sár og svekkt yfir "svartagallsrausi“ Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segist vera sár og svekkt yfir svartagallsrausi Samtaka atvinnulífsins. Það sé atvinnulífsins að sjá til þess að hjól atvinnulífsins snúist. Samtökin kenni ríkisstjórninni um allt sem aflaga fer án þess að þeir leggi nokkuð til málana. 27.9.2011 12:00
Rannsóknarnefndir taka til starfa Tvær nýjar rannsóknarnefndir á vegum Alþingis hófu störf í dag en á nýafstöðnu þingi samþykkti Alþingi tvær þingsályktanir, annars vegar um rannsókn á Íbúðalánasjóði og hins vegar um rannsókn á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna. 27.9.2011 11:41
Svört skýrsla um milljónainnkaup lögreglunnar Löggæslustofnanir keyptu vörur af fjórum fyrirtækjum í eigu lögreglumanna eða náinna venslamanna þeirra fyrir samtals rúmlega 91 milljón króna á tímabilinu janúar 2008 til apríl á þessu ári. Í nær öllum tilvikum var um að ræða búnað vegna löggæslustarfa. Að mati Ríkisendurskoðunar fór hluti þessara viðskipta í bága við lög um opinber innkaup. Stofnunin brýnir fyrir löggæslustofnunum að virða ákvæði laganna. 27.9.2011 11:13
Styðja lögreglu í kjarabaráttu Félag leikskólakennara styður lögreglumenn í kjarabaráttu sinni. Haraldur Freyr Gíslason, formaður félagsins, sendi ályktun fyrir hönd stjórnarinnar í gær. Þar segir að sú krafa lögreglumanna um að geta framfleytt sér á grunnlaunum sínum sé eðlileg og er ríkið hvatt til að stíga skref í þá átt. 27.9.2011 11:00
Árekstur á Miklubraut - grunur um glæfraakstur Árekstur varð á Miklubraut rétt vestan við Ártúnsbrekku í morgun þegar bifreið var ekið af afli aftan á aðra. Báðir bílarnir eru mikið skemmdir og rannsakar lögregla málið en annar ökumaðurinn er grunaður um glæfraakstur. Einn hlaut minniháttar meiðsl við áreksturinn og var sjúkrabíll kallaður til. 27.9.2011 09:56
Enn og aftur kveikt í á Bergstaðastræti Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var enn einusinni kallað að viðbyggingu við hús á mótum Bergstaðastrætis og Spítalastígs í Reykjavík, seint í gærkvöldi, en þá hafði verið reynt að kveikja í einangrunarplasti utan á sökkli viðbyggingarinnar. 27.9.2011 09:00
Flýta þingsetningunni á laugardaginn Setningu Alþingis á laugardag hefur verið flýtt til klukkan hálf tíu um morgunin, en þingsetning hefur jafnan verið klukkan hálf tvö eftir hádegi. 27.9.2011 08:33
Segja sig úr óeirðaflokknum Allir níu lögreglumennirnir, sem skipa svonefndan óeirðaflokk lögreglunnar við Eyjafjörð, ákváðu í gærkvöldi að segja sig frá störfum í flokknum, en þeir eru sér þjálfaðir til að takast á við óeirðir, eins og fjöldamótmæli. 27.9.2011 07:12
Styður aðild Palestínu að SÞ: Ákvörðun í höndum Alþingis Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra lýsti því yfir á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gærdag að íslensk stjórnvöld styddu umsókn Palestínumanna um aðild að SÞ. Þau hygðust leggja fram þingsályktunartillögu í næstu viku um viðurkenningu á sjálfstæði Palestínu. 27.9.2011 07:00
Ljósleiðari og raflína lögð að Veiðivötnum Lagning rafmagnslínu og ljósleiðara upp í Veiðivötn og Snjóöldu á að stórbæta öryggi manna á svæðinu. Um er að ræða samvinnuverkefni Neyðarlínunnar og Veiði- og fiskiræktarfélags Landmannaafréttar. 27.9.2011 06:15
Fyrirtæki skapi sátt með jafnlaunastaðli Vinnuhópur tækninefndar Staðlaráðs er að leggja lokahönd á tillögu um jafnlaunastaðal sem fyrirtæki og stofnanir geta síðan tekið í notkun, að því er Hildur Jónsdóttir, formaður tækninefndar ráðsins og sérfræðingur stjórnarráðsins í jafnrétti kynja, greinir frá. 27.9.2011 06:00
Ríkisendurskoðandi samdi ljóð um Útey "Ég orti ljóðið í kjölfarið af þessum hræðilegu atburðum í Ósló og Útey. Það var grunnurinn,“ segir Sveinn Arason ríkisendurskoðandi. "Það er kannski ekkert öðruvísi með mig og marga aðra – þetta hafði mikil áhrif á mig.“ Sveinn lét þýða ljóðið yfir á norsku og sendi það til kollega síns í Ósló, norska ríkisendurskoðandans, Jørgen Kosmo, sem virðingarvott. 27.9.2011 06:00
Hálft annað hundrað lærir japönsku Aldrei hafa fleiri nemendur í grunnskólum landsins lært ensku, en 78,9 prósent nemenda stunda það nám. Framhaldsskólanemendur læra að meðaltali 1,41 tungumál skólaárið 2010 til 2011. Áhugi á japönsku eykst, 148 lærðu það tungumál 2010 til 2011, en þeir voru 114 veturinn á undan. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands. 27.9.2011 05:15
Fleiri koma þegar spáin er góð Ríflega fjörutíu jeppar luku um 250 kílómetra bíltúr á laugardag þegar Bílabúð Benna blés til árvissrar "Jeppaferðar fjölskyldunnar“ fyrir viðskiptavini sína. Að þessu sinni lá leiðin um Þingvöll upp að Langjökli þar sem var grillað áður en haldið var að Húsafelli og svo heim. 27.9.2011 05:00
SVÞ gagnrýna tolla- og innflutningsstefnu Margrét Kristmannsdóttir, formaður Samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ), deildi hart á stefnu stjórnvalda í tolla- og innflutningsmálum á opnum fundi sem Samtök atvinnulífsins (SA) stóðu fyrir í gær. 27.9.2011 05:00
Fangar fluttir til 28 landa Íslenska ríkið flutti erlenda fanga til 28 landa á síðustu tíu árum. Kostnaður við fangaflutninga til flestra þeirra er um það bil ein milljón króna eða minna. Þetta kom fram í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar á Alþingi fyrir helgi. Flutningar til Litháens eru rúm 20 prósent af kostnaði ríkissjóðs við fangaflutninga til annarra landa síðastliðin tíu ár. 27.9.2011 04:30
Betlistafur eini kostur lögreglu „Það eina sem lögreglumenn geta gert er að ganga um með betlistaf og biðla til ríkisvaldsins að skoða okkar launakjör ofan í kjölinn, sjá hvað þarna er að og leiðrétta það, en vilji ríkisvaldsins virðist ekki hafa verið mikill til þess undanfarið.“ 27.9.2011 04:00
Fleiri frá Íslandi gista í Köben ferðamálGistinóttum Íslendinga í Kaupmannahöfn hefur fjölgað um nærri þriðjung á fyrri helmingi ársins. Þetta kemur fram á vef Túrista, sem vitnar í Dönsku tölfræðistofnunina. 27.9.2011 03:30
Afdrep fyrir hunda í Hallargarðinum? Hverfisráð Miðborgar leggur til að bann við hundum í ól á Laugavegi verði afnumið. Þetta kemur fram í svari ráðsins til umhverfis- og samgöngusviðs borgarinnar sem óskað hafði eftir tillögum um hugsanlega staðsetningu hundagerðis í miðbænum. 27.9.2011 03:00
Þrír létust í vinnuslysum Þrír starfsmenn létust við vinnu sína á síðasta ári, að því er fram kemur í ársskýrslu Vinnueftirlitsins. Alls eru skráð 1.174 vinnuslys sem voru tilkynnt til eftirlitsins árið 2010, 760 karlar og 414 konur. Dregið hefur úr fjölda slysa um þrjú prósent frá fyrra ári og um 38 prósent frá því sem mest var 2007. 27.9.2011 03:00
Hærri einkunn en í Reykjavík Skimunarpróf á lestri átta ára barna í grunnskólum Reykjanesbæjar skiluðu betri niðurstöðum en í Reykjavík. 27.9.2011 02:00
Lögreglumenn munu ekki taka niðurstöðunni þegjandi „Undanfarnar vikur hefur samtakamáttur lögreglumanna aldrei verið sterkari og ljóst er að þeir muni ekki taka óréttlátri niðurstöðu gerðadóms þegjandi,“ segir í tilkynningu frá frá Lögreglufélagi Suðurnesja þar sem farið var yfir niðurstöður gerðadóms vegna kjaradeilu lögreglumanna við ríkið. 26.9.2011 23:31
Össur lýsti yfir stuðningi við aðild Palestínumanna að SÞ Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra lýsti því yfir á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag að íslensk stjórnvöld styddu umsókn Palestínumanna um aðild að SÞ og að þau hygðust leggja fram þingsályktunartillögu í næstu viku um viðurkenningu á sjálfstæði Palestínu samkvæmt tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. 26.9.2011 21:00
Tilboðin himinhátt yfir kostnaðaráætlun Aðeins tvö tilboð bárust í ræsa- og brúagerð á sunnanverðum Vestfjörðum og reyndust bæði svo hátt yfir kostnaðaráætlun að Vegagerðin ákvað að vinna verkið sjálf. Krafa um að verktakar hafi jákvæða eiginfjárstöðu er talin geta skýrt fá tilboð. 26.9.2011 20:15
Úrvalsnámsmaður rekinn úr landi vegna aldurs Kanadískur íslenskunemi við Háskóla Íslands yfirgaf landið í dag að kröfu útlendingastofnunar. Hann er slíkur yfirburðanámsmaður í íslensku að hann er nú á öðru ári í Háskólanum, aðeins sautján ára gamall, en fær ekki að snúa aftur fyrr en hann hefur náð átján ára aldri. 26.9.2011 20:00
Framkvæmdir á Vesturlandsvegi næstu daga Á þriðjudag og miðvikudag er fyrirhugað að vinna við fræsingar og malbikun á vegöxlum á Vesturlandsvegi, ef veður leyfir. 26.9.2011 20:25
Fangaflutningar til Litháen 20 prósent af kostnaði ríkissjóðs Fangaflutningar til Litháen eru rúm tuttugu prósent af kostnaði ríkissjóðs við fangaflutninga til annarra landa síðastliðin tíu ár. Fangar voru fluttir til tuttugu og átta landa á kostnað ríkissjóðs á þessum tíma. 26.9.2011 19:45
Leiguverð komið upp í topp: "Auðvitað eru þetta fáránlega há verð“ Leiguverð á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu er komið upp í topp miðað við greiðslugetu almennings að mati formanns félags leigumiðlara. Slegist er um lausar íbúðir og dæmi um að þriggja herbergja íbúðir séu leigðar út á alltað hundrað og áttatíu þúsund krónur á mánuði. 26.9.2011 19:30
Þarf að varast kjaftasögur og sporna gegn meiðandi skrifum Bæjarstjórinn í Sandgerði segir íbúa bæjarins harmi slegna vegna sjálfsvígs ellefu ára drengs fyrir helgi. Hún hvetur Sandgerðinga til að sýna samstöðu, varast kjaftasögur og sporna gegn meiðandi skrifum á netinu. 26.9.2011 19:00
Brotist inn í fjölda bíla um helgina Brotist var inn í á annan tug bíla á höfuðborgarsvæðinu um helgina samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. 26.9.2011 17:31
Þrír létust í vinnuslysum í fyrra Þrír starfsmenn létust við vinnu sína á síðsta ári og 1174 vinnuslys voru tilkynnt til Vinnueftirlitsins. Þetta kemur fram í ársskýrslu Vinnueftirlitsins fyrir síðasta ár. Í inngangi að skýrslunni veltir Eyjólfur Sæmundsson forstjóri Vinnueftirlitsins, fyrir sér hvort það sé almennt álitinn óhjákvæmilegur "fórnarkostnaður“ að nokkrir einstaklingar láti lífið á ári hverju og fjölmargir slasist eða verði fyrir heilsutjóni við vinnu sína svo að hjól atvinnulífsins geti snúist og skapað þau verðmæti sem velferð okkar byggir á. 26.9.2011 16:40
Ranglega staðið að ráðningu forstjóra Íslandsstofu Ranglega var staðið að ráðningu framkvæmdastjóra Íslandsstofu þegar stofnunin var sett á fót, segir í nýju áliti Umboðsmanns Alþingis. Umsækjandi um stöðuna kvartaði til Umboðsmanns Alþingis vegna málsmeðferðar við ráðningu í starfið. 26.9.2011 16:09
Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð á Mosfellsheiði Þyrla Landhelgisgæslunnar var send á Mosfellsheiði, auk vel útbúinna björgunarsveitamanna á höfuðborgarsvæðinu og sjúkraflutningamanna, til þess að hlúa að manni sem hafði veikst utan alfaraleiðar eftir hádegið í dag. Á endanum tókst þyrlunni að lenda til þess að ná í manninn og því var ekki þörf á sjúkraliðinu eða björgunarsveitamönnunum. Ekki hafa fengist nákvæmar upplýsingar um heilsu viðkomandi. 26.9.2011 15:45
Rökin í Icesave kynnt fyrir utanríkismálanefnd Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, kynnti svar íslenskra stjórnvalda til Eftirlitsstofnunar EFTA fyrir utanríkismálanefnd Alþingis í morgun. 26.9.2011 14:45
Lögreglumenn íhuga að segja sig úr óeirðasveitinni Svo gæti farið að lögreglumenn á Suðurnesjum hætti í óeirðasveit lögreglunnar. Víkurfréttir hafa þetta eftir Hjálmari Hjálmarssyni hjá Lögreglufélagi Suðurnesja en málið verður rætt á félagsfundi sem hefst klukkan fjögur í dag. 26.9.2011 14:39
Ung börn unnu skemmdarverkin Búið er að finna þá sem unnu skemmdarverk á leiðum í kirkjugarði í Borgarnesi um helgina. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni voru þarna að verki ung börn. Barnaverndayfirvöldum, forráðamönnum barnanna og aðstandendum hinna látnu hefur verið gert viðvart. 26.9.2011 14:06
Fjölmargir foreldrar þurfa að reiða sig á Fjölskylduhjálpina Af þeim 3562 einstaklingum sem fengu matargjafir frá Fjölskylduhjálp Íslands á tímabilinu 1. júní í fyrra til loka maí í ár voru um 1399 með börn á framfæri, samkvæmt rannsókn sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir Fjölskylduhjálpina. Alls var tæplega 24 þúsund matargjöfum úthlutað á tímabilinu. 26.9.2011 11:36
Hnúfubakar ekki fleiri síðan mælingar hófust Hnúfubökum hefur fjölgað jafnt og þétt hér við land eftir að hvalatalning hófst fyrir 30 árum, eða um tíu til fimmtán prósent á ári. Þeir éta nú eina og hálfa milljón tonna á Íslandsmiðum á ári. 26.9.2011 11:24
Come To Harm sú besta á RIFF Íslenska stuttmyndin Come To Harm eftir Börk Sigþórsson var valin besta stuttmyndin þegar verðlaunin voru veitt í fyrsta skipti á RIFF-kvikmyndahátíðinni. Verðlaunin eru veitt í nafni Minningarsjóðs Thors Vilhjálmssonar. 26.9.2011 11:00
Embættismenn enn undir feldi vegna rjúpunnar Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra hefur enn ekki tekið ákvörðun um það hvernig rjúpnaveiði verður háttað. 26.9.2011 10:45
Utanríkismálanefnd fundar um Icesave Utanríkismálanefnd Alþingis kom saman í morgun til þess að funda um stöðuna í Icesave. Fram kom í yfirlýsingu Oda Helen Sletnes, forstjóra Eftirlitsstofnunar EFTA að ekki hefði verið tekin nein ákvörðun um hvort málinu yrði vísað til EFTA-dómstólsins. ESA bíði nú eftir svari íslenskra stjórnvalda við rökstuddu áliti stofnunarinnar frá 10. júní síðastliðins. 26.9.2011 10:24
Nóg komið af öskrum Umræðan í íslenskri pólitík er eins og banvænt krabbamein í samfélaginu að mati Gauks Úlfarssonar, kvikmyndaleikstjóra og eins forsprakka Besta flokksins. Gaukur segir að pólitíkin sé of vond til að gott fólk hætti sér út í hana og Íslendingar séu enn jafn frekir og þeir voru fyrir hrun. 26.9.2011 10:15
Einn kærður fyrir að vera ekki með skotvopnaleyfi Eftirlit hefur verið með skotveiðimönnum á Suðurlandi síðustu daga og var einn kærður í vikunni fyrir að vera ekki með tilskilin leyfi meðferðis og fyrir að vera með vopn sem ekki var skráð á hann. Í tilkynningu frá lögreglu segir að tiltölulega auðvelt sé að hafa þessi mál í lagi en ávallt skal skotvopnaleyfi vera meðferðis ásamt veiðikorti og þurfa þessi leyfi að vera í gildi. Þá bendir lögregla á að notkunarheimild þurfi að vera fyrir skotvopni sem ekki er skráð á viðkomandi. 26.9.2011 09:32
Grunaðir dýrbítar teknir Lögreglan á Hvolsvelli tók í gær hund sem grunaður er um að hafa ráðist á búfé í nágrenni við Hvolsvöll að undanförnu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni mun hundurinn hafa bitið þann sem handsamaði hann í kálfann. Í vikunni réðst jafnframt annar hundur á fé við sveitabæ í nágrenni Hellu. Hundurinn var gestkomandi í sveitinni og sást til hans þar sem hann réðst á féð. Til stendur að aflífa þann hund. 26.9.2011 09:23
Börn læra kínversku í grunnskólum Alls lærðu 23 börn kínversku í grunnskólum landsins á síðasta skólaári, 463 lærðu spænsku, 179 börn lærðu þýsku og 174 börn lærðu frönsku. Þetta kemur fram í upplýsingum Hagstofu Íslands, en þar kemur jafnframt fram að ekki hafi áður verið grunnskólanemendur í kínversku frá upphafi gagnasöfnunar Hagstofu Íslands. Tölurnar eru birtar í tilefni af degi tungumála í Evrópu, sem er í dag. 26.9.2011 09:11