Innlent

Framkvæmdir á Vesturlandsvegi næstu daga

Vesturlandsvegur.
Vesturlandsvegur.
Á þriðjudag og miðvikudag er fyrirhugað að vinna við fræsingar og malbikun á vegöxlum á Vesturlandsvegi, ef veður leyfir.

Um er að ræða framkvæmdakafla frá Blikastaðavegi að Höfðabakkabrú. Fræsing og malbikun mun hefjast á milli k.l 9 og 10 í fyrramálið en verkinu lýkur síðdegis á miðvikudag, ef allt gengur eftir.

Þrengingar verða meðan á framkvæmd stendur og verður tímabundin truflun á umferð. Framkvæmdakaflinn er um 4 km. Akbrautin er með tveimur akreinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×