Styður aðild Palestínu að SÞ: Ákvörðun í höndum Alþingis 27. september 2011 07:00 Össur í ræðustól á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Mynd/AP
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra lýsti því yfir á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gærdag að íslensk stjórnvöld styddu umsókn Palestínumanna um aðild að SÞ. Þau hygðust leggja fram þingsályktunartillögu í næstu viku um viðurkenningu á sjálfstæði Palestínu. „Ríkisstjórnin er harðákveðin í því að viðurkenna Palestínu sem sjálfstætt og fullvalda ríki. Ég hef rætt það í ríkisstjórninni og gerði utanríkismálanefnd grein fyrir áformum mínum,“ segir Össur. „Frá nefndinni komu fram skýrar óskir um að þetta yrði rætt á þinginu og besta leiðin til þess er að leggja fram þingsályktunartillögu til þess að þingið geti rökrætt hana málefnalega og komist að niðurstöðu.“ Utanríkisráðherra sagði í ávarpi sínu að viðurkenning á sjálfstæði Palestínu væri í anda sátta í Mið-Austurlöndum, það væri raunar heimskulegt að neita Palestínumönnum um sjálfstæði á sama tíma og krafan um lýðræðisumbætur færi um arabaheiminn. Ráðherra er bjartsýnn á að þingið muni samþykkja tillöguna. „Það liggur ljóst fyrir að það er meirihluti í þinginu fyrir þessu. Innan stjórnarandstöðunnar er líka stuðningur við þetta, þó ég geti ekki gefið mér það að allir munu styðja þetta. Það á eftir að koma í ljós.“- sv
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Fleiri fréttir Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Sjá meira