Fleiri fréttir

Gengur ekki í lýðræðisþjóðfélagi

Formaður stéttar­félagins SFR, Árni Stefán Jónsson, mótmælir þeirri kröfu Sambands íslenskra sveitarfélaga að starfsfólk svæðisskrifstofa málefna fatlaðra verði skyldað til að skipta um stéttarfélag.

Forðast á að nota þvaglegg við rannsókn

Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið fellst á það sjónarmið setts umboðsmanns Alþingis að ekki hafi verið gætt að grundvallarreglu um meðalhóf þegar þvagleggur var notaður í svonefndu þvagleggsmáli, sem upp kom hjá sýslumannsembættinu á Selfossi fyrir fáeinum árum. Þá telur ráðuneytið jafnframt að forðast eigi að nota þvaglegg til að taka þvagsýni í þágu rannsóknar sakamála.

Þrír karlmenn ákærðir fyrir stórfellda kannabisræktun

Lögreglustjórinn á Selfossi hefur ákært þrjá karlmenn á þrítugsaldri fyrir stórfellda kannabisræktun í Þykkvabæ. Það var 23. mars sem lögreglan fann verksmiðjuna í útihúsi við Bala í Þykkvabæ. Þar höfðu mennirnir sett upp mjög stóra ræktunaraðstöðu og starfrækt í rúmlega hálft ár. Tveimur dögum síðar voru ræktendurnir handteknir. Mennirnir hafa allir komið við sögu lögreglu áður.

Þóknanir til BÍ án samninga

Bændasamtök Íslands (BÍ) hafa fengið þóknanir frá ríkinu fyrir umsýslu á niðurgreiðslum ríkisins til bænda þrátt fyrir að engir samningar hafi verið gerðir um greiðslurnar.

Þyrla flytur krana upp á Þríhnúkagíg

Íslenskt kvikmyndatökulið hyggst síga í risahellinn Þríhnúka­gíg í Bláfjöllum og mynda hellinn fyrir sjónvarpsþátt um eldsumbrot á Íslandi. Þátturinn er framleiddur fyrir sjónvarpsstöðina National Geographic.

Skora á Rögnu að gefa kost á sér til forseta

„Ragna hefur verið duglegur og mannlegur dómsmálaráðherra,“ segir Kristín Sævarsdóttir sem hefur stofnað síðu á samskiptavefnum Facebook þar sem skorað er á Rögnu Árnadóttur, fyrrverandi dómsmála- og mannréttindaráðherra, að gefa kost á sér í forsetakosningunum sem fara fram eftir tvö ár en þá lýkur fjórða kjörtímabili Ólafs Ragnars Grímssonar sem forseta.

Telur að Álfheiður verði atvinnuvegaráðherra

Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, telur að búið sé að ganga frá því að Álfheiður Ingadóttir, þingmaður VG og fyrrverandi heilbrigðisráðherra, verði atvinnuvegaráðherra þegar iðnaðar- og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið verða sameinuð um næstu áramót. Vigdís segir að ef svo væri ekki hefði Álfheiður aldrei gefið ráðherrastól sinn svo auðveldlega eftir.

Lúsin komin á stjá

Til stendur að rannsaka íslensku lúsina í fyrsta sinn, en flest bendir til að höfuðlúsin sé orðin ónæm fyrir lúsalyfjum og að eina ráðið til að losna við hana sé að kemba hárið vandlega.

Lífsýnin skipta ekki sköpum í rannsókn lögreglu

Bráðabirgðaniðurstöður úr DNA rannsókn á morðinu á Hannesi Þór Helgasyni eru ekki taldar skipta sköpum í rannsókn málsins. Frekari niðurstöður eru væntanlegar, svo sem á blóði sem fannst á skóm mannsins sem grunaður er um ódæðið.

Enn haldið sofandi í öndunarvél

Ungum manni er enn haldið sofandi í öndunarvél eftir bílslys við Nýbýlaveg í nótt. Fimm ungmenni voru í bílnum og slösuðust tvö þeirra alvarlega.

Ráðherraskiptin kosta almenning milljónir

Kostnaður vegna biðlauna við ráðherraskiptin nemur á þriðja tug milljóna króna. Ýmislegt er þó enn á huldu við skiptin þar sem ólíklegt þykir að nýir ráðherrar vilji hafa tvo ráðherrabílstjóra.

Fyrsta skóflustungan að nýrri reiðhöll

Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs Kópavogs, tók í dag fyrstu skóflustunguna að nýrri reiðhöll á Kjóavöllum, að lokinni hópreið hestamanna inn á svæðið. Þar með hefjast undirbúningsframkvæmdir.

Afhjúpa minningarhellu um mótmælanda Íslands

Eftir helgi verður liðið átt ár frá andláti Helga Hóseassonar, sem oft var kallaður mótmælandi Íslands. Af því tilefni verður afhjúpuð minningarhella næstkomandi mánudag þar sem Helgi stóð oft við gatnamót Langholtsvegar og Holtavegar í Reykjavík.

Rostungur í Flateyjardal

„Þetta var ógleymanlegt að standa þarna fáeina metra frá þessari gríðarlegu skepnu og mynda hana í krók og kring, vitandi það að ekki mjög margir hafa fengið slíkt tækifæri hérlendis,” sagði ljósmyndarinnar Víðir Pétursson sem tók fyrr í dag myndir af rostungi sem flatmagaði í fjörunni í Flateyjardal. Fjallað er um málið á þingeyska fréttamiðlunum Skarpur.is.

Eldur kom upp í Aðalstræti 9

Eldur kom upp í herbergi í Aðalstræti 9 í dag. Slökkviliðið var kallað á staðinn og slökkti eldinn. Slökkvistarf gekk greiðlega.

Nýbyggð hjúkrunarrými ekki nýtt vegna fjárskorts

Framkvæmdum er að ljúka vegna viðbyggingar við dvalarheimilið Jaðar í Ólafsvík og var gert ráð fyrir að þar væri hægt að bæta við tólf hjúkrunarrýmum áður en árið er úti. Stjórn dvalarheimilisins sótti um leyfi fyrir þeim rýmum til félags- og tryggingamálaráðuneytisins en hefur nú borist bréf þar sem aðeins er veitt leyfi fyrir tíu rýmum. Ef það er endanleg niðurstaða er ljóst að dvalarheimilið situr uppi með tóm hjúkrunarrými á sama tíma og fólk er á biðlista vegna þeirra rýma.

Sprengjulistamaður segir niðurrifið í raun gálgahúmor

„Manni sýnist þetta vera nokkuð hefðbundin leið kerfisins til þess að takast á við vandamál. Það er auðveldast að rífa niður og henda,“ segir listamaðurinn Þórarinn Jónsson en starfsmenn Faxaflóahafnar bútuðu niður og hentu gálga sem Þórarinn hafði smíðað og haft til sýnis á listasýningunni „Slipp my mind“.

Starfsmenn hafnarstjóra hentu gálganum

„Við bútuðum þetta bara niður,“ segir Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafnar, en starfsmenn hafnarinnar bútuðu niður og hentu gálga sem listamaðurinn Þórarinn Jónsson reisti á Daníelsslippi. Gálginn var hluti af listasýningunni „Slipp my mind“ sem var opnuð á laugardaginn.

Leikskólinn rýmdur á örfáum mínútum

Leikskólinn Urðarhóll var rýmdur snemma í morgun eftir að reykur kom upp í þvottavél og rafmagn sló út. Leikskólastarfsmenn settu af stað viðbragsáætlun og var leikskólinn rýmdur.

Árni Sigfússon: Segist oft hafa verið bjartsýnni

„Loksins þegar verið er að herða eina skrúfuna í atvinnumálum af mörgum, þá losar önnur hönd ríkisstjórnarinnar aðra jafnóðum,“ segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, um viðbrögð vegna ákvörðunar Kristján Möllers, fyrrverandi samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, um að heimila flugstjórn að skoða mögleikann á því að skrá herþotufyrirtækið ECA program hér á landi.

SAMFOK fagnar framtaki foreldra í vesturbænum

Stjórn SAMFOK, samtaka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, fagnar framtaki foreldra í málefnum Vesturbæjarskóla samkvæmt tilkynningu sem samtökin sendu á fjölmiðla.

Greiðslur til bænda rangfærðar í bókhaldi ríkisins

Í nýrri skýrslu Rikissendurskoðunar um framkvæmd búvörusamninga er gagnrýnt að hluti greiðslna til bænda sé rangfærður í bókhaldi ríkisins og lögð áhersla á að útreikningar að baki greiðslunum séu gagnsærri.

Aska frá jöklinum berst yfir höfuðborgarsvæðið

Aska frá svæðinu í kringum Eyjafjallajökul berst um þessar mundir yfir höfuðborgarsvæðið en hvöss suðaustlæg átt er ríkjandi á Suðurlandi. Svifryk hefur því aukist hratt síðustu klukkustundir og er líklegt að hálftímagildi geti verið yfir mörkum af og til.

Vilja funda vegna kreppunnar

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í efnahags- og skattanefnd Alþingis hafa óskað eftir því að nefndin komi saman í tilefni af nýbirtum hagtölum Hagstofunnar sem sýna mikinn samdrátt í landsframleiðslu og fjárfestingu.

Herjólfi seinkar vegna veðurs

Seinkun hefur orðið á ferðum Herjólfs frá Vestmannaeyjum í dag en ferð sem fara átti klukkan 10:30 var frestað til klukkan 13:00 og aftur til klukkan 14:00.

Steingrímur fékk ekkert veður af lögfræðiálitum

Steingrímur J. Sigfússon fékk ekkert veður af lögfræðiálitum sem bárust viðskiptaráðuneytinu á sínum tíma frá Seðlabankanum og lögmannsstofunni Lex. Álitin voru á þá leið að gengistrygging myntkörfulána væri ólögleg. Þetta kom fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Sigurðar Kára Kristjánssonar þingmanns Sjálfstæðisflokks.

„Ég óttast ekki dómstólaleiðina“

Nýr innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, sem hætti á sínum tíma sem heilbrigðisráðherra vegna andstöðu við Icesave-málið er nú bjartsýnn á að farsæl niðurstaða fáist í málinu. Samningaviðræður standa yfir í Hollandi.

Ögmundur um ECA: „Misskilningur og bráðræði“

Forsvarsmenn fyrirtækisins ECA Program Limited líta svo á að fullnaðarleyfi hafi verið veitt fyrir starfsemi sinni á Íslandi. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, er ósammála því og segir það misskilning og bráðræði af hálfu fyrirtækisins.

Tilboð í strandsiglingar auglýst í næsta mánuði

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að bjóða út strandsiglingar við Ísland og verður útboð auglýst í næsta mánuði. Siglingar munu spara viðhald á vegum en skipafélögin eru afar ósátt við áformin.

Felgulyklaárásarmaður tjáir sig ekki um sakarefni

Karlmaður um tvítugt sem ákærður var fyrir að ráðast inn í íbúð manns og ráðast á hann með felgulykli vildi hvorki lýsa yfir sekt sinni né sakleysi við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykavíkur í dag.

Glansmyndir og afneitun á Alþingi

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að ríkisstjórnin dragi upp ótrúlega glansmynd af stöðu efnahagsmála en forsætisráðherra segir að stjórnarandstaðan vilji ekki sjá ljósið.

Hreyfingin segir fjórflokkinn ekkert hafa lært af hruninu

Þingmenn Hreyfingarinnar telja hina stjórnmálaflokkana ekki hafa lært af hruninu. Til marks um það segja þeir hvernig frumvarp um breytingar á lögum um fjárframlög til stjórnmálaflokka sé keyrt í gegn um þingið.

Gálga stolið af sprengjulistamanni

„Það virðist hafa verið tekinn í sundur og fjarlægt,“ segir listamaðurinn Þórarinn Jónsson en fjögurra metra hár gálgi sem stóð á Daníelslippi er horfinn. Gálginn var listaverk og tilheyrði sýningunni „Slipp my mind“. Sjö aðrir listamenn sýndu einnig verk sín á sýningunni. Þau verk fengu að standa í friði.

Eygló spyr um fjárfestingar lífeyrissjóða

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram fyrirspurn til fjármálaráðherra um fjárfestingar lífeyrissjóða. Hún spyr hvernig fjárfesting sextán lífeyrissjóða í Framtakssjóði Íslands samræmist lögum um fjárfestingar lífeyrissjóða og óskar eftir skriflegu svari frá Steingrími J. Sigfússyni. Fyrirspurnina lagði hún fram á Alþingi í gær.

Nýr bæjarstjóri tekinn við á Ísafirði

Að loknum fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar í gærkvöldi afhenti fráfarandi bæjarstjóri, Halldór Halldórsson, eftirmanni sínum, Daníel Jakobssyni, lykla að skrifstofu bæjarstjóra. Gengið hafði verið frá ráðningu Daníels á fundi bæjarstjórnar skömmu áður og hefur hann nú formlega tekið við störfum.

ECA lítur svo á að fullnaðarleyfi hafi verið veitt

Forsvarsmenn fyrirtækisins ECA Program Limited líta svo á að fullnaðarleyfi hafi verið veitt fyrir starfsemi sinni á Íslandi. Þetta kemur fram á vef fyrirtækisins. Þar birtist í gær frétt með fyrirsögninni: „Icelandic government grants ECA final operating license" sem á íslensku útleggst sem: „Íslensk stjórnvöld veita ECA endanlegt starfsleyfi.

Tveir fluttir á gjörgæsludeild

Tvö af ungmennunum fimm sem flutt voru á slysadeild eftir alvarlegt umferðaslys á Hafnarfjarðavegi í nótt eru komin á gjörgæsludeild Landspítalans. Þau eru bæði alvarlega slösuð og er öðru þeirra haldið sofandi í öndunarvél. Hin þrjú eru enn á slysadeild en verða að öllum líkindum útskrifuð þaðan í dag, samkvæmt upplýsingum frá vakthafandi lækni á deildinni.

Vafasöm ummæli Þórunnar á bolla og boli

Ummæli þingflokksformannsins, Þórunnar Sveinbjarnardóttur, hafa heldur betur slegið í gegn en á dögunum sagði hún frænda fréttamannsins Ægis Þórs Eysteinssonar, „að hoppa upp í rassgatið á sér.“

Sjá næstu 50 fréttir