Innlent

Árni Sigfússon: Segist oft hafa verið bjartsýnni

Árni Sigfússon
Árni Sigfússon

„Loksins þegar verið er að herða eina skrúfuna í atvinnumálum af mörgum, þá losar önnur hönd ríkisstjórnarinnar aðra jafnóðum," segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, um viðbrögð vegna ákvörðunar Kristján Möllers, fyrrverandi samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, um að heimila flugstjórn að skoða mögleikann á því að skrá herþotufyrirtækið ECA program hér á landi.

Samtök Hernaðarandstæðinga brugðust hart við fregnunum í gær en formaður þess, Stefán Pálsson, sagði ákvörðun Kristjáns ótrúlega ósmekklegan kveðjuhrekk.

Í kjölfarið fann forsætisráðuneytið sig knúið til þess að senda út fréttatilkynningu þar sem það var áréttað að ákvörðun Kristjáns hefði ekki verið tekin í samráði við forsætis- og fjármálaráðherra.

Málið virðist því vera viðkvæmt. Samkvæmt heimildum Vísis þá er grasrót VG beinlínis æf vegna málsins.

Aftur á móti er talið að starfsemin muni skapa um 150 störf á Reykjanesinu. Árni segir það afar mikilvægt, ekki síst í ljósi þess að atvinnuleysi á suðurnesjum er gríðarlegt.

„Þessi viðbrögð koma mér ekki á óvart. En við erum svo sem vön því," segir Árni sem lítur svo á að stjórnvöld hafi brugðist íbúum Reykjanesbæjar enda hafa orðið miklar tafir á álverinu í Helguvík. Í raun eru tafirnar slíkar að það er óljóst hvort af því verði. Þá hafa verið uppi hugmyndir um einkasjúkrahús, gagnaver og kísilverksmiðju sem ekki hafa gengið eftir.

„Þessar herþotur verða vopnlausar, það er annað en þegar herinn var hérna á Miðnesheiðinni," segir Árni og bendir á að störfin sem skapist eru fjölbreytt, fái ECA að starfa hér á landi það er að segja.

Reykjanesbær hefur átt í miklum efnahagsvandræðum undanfarið og er svo komið að sveitarfélagið fékk athugasemd frá yfirvöldum vegna slæmrar fjárhagsstöðu.

„Þetta er bagalegt þegar önnur hönd ríkisstjórnarinnar slær á öll verkefni og atvinnuuppbyggingu á meðan hin réttir okkar bréf um að gera eitthvað í okkar skuldamálum," segir Árni. Aðspurður hvort hann sé bjartsýnn svarar hann: „Ég hef oft verið bjartsýnni. En við erum ekki búin að gefast upp."

Ögmundur Jónasson er nýr samgöngu- og sveitastjórarráðherra. Hann sagði í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag:

„Ef þetta er skaðlaus starfsemi sem uppfyllir allar kröfur og er í samræmi við okkar stjórnsýslu, þá er ekki óttast. En ef svo er ekki þá verða leyfin ekki veitt, en við skoðum þetta málefnalega og komumst að niðurstöðu í kjölfarið."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×