Steingrímur fékk ekkert veður af lögfræðiálitum 3. september 2010 12:24
Steingrímur J. Sigfússon fékk ekkert veður af lögfræðiálitum sem bárust viðskiptaráðuneytinu á sínum tíma frá Seðlabankanum og lögmannsstofunni Lex. Álitin voru á þá leið að gengistrygging myntkörfulána væri ólögleg. Þetta kom fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Sigurðar Kára Kristjánssonar þingmanns Sjálfstæðisflokks. Sigurður sagði síðustu misseri hafa verið afar erfið fyrir „myntkörfufólkið". Enginn hafi hinsvegar fengið að vita af álitunum sem hefðu komið sér vel fyrir almenning í baráttunni við fjármálafyrirtækin og þótti Sigurði það ekki góð frammistaða af hálfu ríkisstjórnar sem talað hefði ítrekað um skjaldborg um heimilin. Hann vildi því fá að vita hvort fjármálaráðherra hefði fengið veður af álitunum og innihaldi þeirra. Steingrímur sagði svarið einfalt, nei. Honum hefði ekki veið kunnugt um álitin þótt að sjálfsögðu hafi verið uppi umræða um lagalega óvissu myntkörfulána. Umrædd álit komu hins vegar ekki inn í fjármálaráðuneytið og fékk Steingrímur ekki veður af þeim fyrr en nokkru síðar. Sigurði Kára sagði það þá koma sér verulega á óvart að fjármálaráðherra, sem á sama tíma stóð í því að stofna nýja banka í landinu hafi ekki verið upplýstur um málið. Því virðist algjört sambandsleysi hafa verið í ríkisstjórninni og talaði Sigurður Kári um afglöp, vanrækslu og svik sem ríkisstjórnin beri ábyrgð á. Að lokum spurði Sigurður Kári hvort málið kalli ekki á sérstaka rannsókn. Steingrímur svaraði þá að nýju og sagði Sigurð Kára viðhafa stóryrði sem engin innistæða væri fyrir. Nær væri að spyrja hvernig á því hafi staðið að slík lánastarfsemi skuli hafa viðgengist í svo langan tíma án athugasemda.
Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Innlent Fyrstur til að rjúfa 800 milljarða dala múrinn Erlent Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Erlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Fleiri fréttir Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Sjá meira